Morgunblaðið - 13.04.2008, Side 58
58 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Góðir gestir hjá
Bridsfélagi Kópavogs
Við fengum góða gesti úr MK sl.
fimmtudag, alls sjö pör og það var
vel tekið á því í eins kvölds tvímenn-
ingi. Röð gestanna varð þessi (hinir
teljast ekki með!):
Davíð - Heimir 114
Arnar Helgi - Birgir Þór 102
Andri Dagur - Benedikt 98
Eiður - Þorsteinn 96
Vilhjálmur - Hafliði 82
Ari - Bjarki 73
Gunnar - Kristófer 73
Við þökkum MK-ingum kærlega
fyrir heimsóknina. Það er óneitan-
lega ánægjulegra að horfa á ný and-
lit en alltaf þessi sömu gömlu og al-
veg klárt að þarna eru á ferðinni
einhverjir sem eiga eftir að láta taka
til sín við græna borðið í framtíðinni.
Fjarnámskeiðið byrjað
hjá Borgfirðingum
Félagar í Bridsfélagi Borgar-
fjarðar eru nú sestir á skólabekk og
stunda fjarnám undir leiðsögn Guð-
mundar Páls Arnarsonar hjá Brids-
skólanum og Þorvaldar Pálmasonar
hjá netskólanum. Námskeiðið tekur
á varnarspilamennsku og óhætt að
segja að nýr heimur sé að opnast
fyrir mörgum félaganum. Vegna
námskeiðsins var sjálf spilamennsk-
an heldur stutt síðasta mánudag en
þó var hægt að skemmta sér við
Mitchell-tvímenning, 15 spil. Úrslit
urðu þessi í N-S
Lárus Pétursson – Sveinbjörn Eyjólfss. 71
Jón Einarsson – Unnsteinn Arason 66
Jóhann Oddsson – Eyjólfur Sigurjónsson 58
A-V
Þórhallur Bjarnas. – Brynjólfur Guðmss. 76
Karvel Karvelss. – Ingimundur Jónsson 68
Jón Pétursson – Eyjólfur Örnólfsson 62
Bridsdeild FEB í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði, Stangarhyl, fimmtud. 10.4.
Spilað var á átta borðum. Meðalskor
168 stig.
Árangur N-S
Einar Einarss. – Magnús Jónsson 197
Sigurður Pálss. – Guðni Sörensen 182
Ægir Ferdinandss. – Óli Gíslason 178
Árangur A-V
Ragnar Björnss. – Jón Lárusson 210
Soffía Theodórsd. – Elín Guðmannsd. 198
Helgi Hallgrímss. – Jón Hallgrímss. 190
Bridsdeild Hreyfils
Önnur umferðin af fjórum í vor-
tvímenningnum var spiluð sl. mánu-
dagskvöld en þrjú kvöld telja til
verðlauna
Úrslitin síðasta spilakvöld:
Björn Stefánss. - Árni Kristjánss. 124
Rúnar Gunnarss. - Ísak Örn Sig. 123
Daníel Halldórss - Ágúst Benediktss. 122
Birgir Sigurðarson - Sigurður Ólafss. 118
Þriðja umferðin er á mánudags-
kvöld kl. 19,30 í sal Sendibílastöðv-
arinnar.
Árshátíð bridskvenna
Árleg árshátíð bridskvenna verð-
ur haldin laugardaginn 10. maí nk. í
Sunnusal Hótel Sögu. Allar konur
sem spila brids velkomnar. Við hitt-
umst kl. 11 og borðum saman há-
degisverð. Síðan spilum við fram
undir kvöldmat. Verð aðeins 4.000
krónur.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku
ekki síðar en 4. maí. Skráning hjá
Svölu (863-6098), Öldu (692-8112) og
Gróu (551-0116). Við hjálpum til við
að mynda pör.
Bridsfélag Reykjavíkur
Allt getur gerst þegar eitt kvöld
er eftir í aðalsveitakeppni BR en
Eykt og Grant Thornton standa
best að vígi. Staða efstu sveita:
1. Eykt 118
2. Grant Thornton 118
3. Mót X 107
4. Prentmet 102
Nánar á bridge.is/br
Ellefu borð í Gullsmára
Úrslit 10.4. Spilað var á 11 borð-
um. Meðalskor 168.
N/S
Karl Gunnarss. – Gunnar Sigurbjörnss. 192
Ragnhildur Gunnarsd. – Haukur Guðm. 183
Sigurður Björnsson – Ólafur Gunnarsson
182
Díana Kristjánsd. – Ari Þórðarson 178
A/V
Ernst Backman – Stefán Ólafsson 202
Jón Stefánsson – Eysteinn Einarsson 193
Halldór Jónsson – Valdimar Hjartarson 183
Haukur Guðbjartss. – Jón Jóhannsson 175
Sveitakeppni á Suðurnesjum
Mánudaginn 7. apríl hélt aðal-
sveitarkeppni hjá Bridsfélaginu
Muninn Sandgerði og Bridsfélagi
Suðurnesja áfram en spilað er á 8
borðum. Spilaðir eru þrír 9 spila
leikir á hverju kvöldi og er keppnin
mjög jöfn.
Hæsta skor 5 efstu para þetta
kvöld voru:
Kristján Kristjánss. og Gunnar Guðbjss. 67
Sigfús Ingvason og Kolbrún 60
Karl Einarss. og Birkir Jónsson 57
Garðar Garðarss. og Karl G. Karlss. 53
Staða 5 efstu eftir 4 kvöldið af 5
er sem hér segir:
Garðar Garðarsson og Karl G. Karlsson/
Þorgeir Ver Halldórsson 235
Jóhannes Sigurðsson/Óli Þór Kartansson og
Svavar Jenssen 201
Lilja Guðjónsd. og Guðjón Óskarss. 196
Karl Einarss. og Birkir Jónsson 194
Vignir Sigursvss. og Úlfar Kristinss. 193
Mánudaginn 14. apríl hefst 5 og
síðasta spilakvöld í aðalsveitar-
keppni félaganna. Og tvö efstu pörin
í þessari keppni fara verða okkar
fulltrúar á Kjördæmamótinu ásamt
völdum pörum.
Spilað er alla mánudaga í Félags-
heimilinu að Mánagrund og hefst
spilamennska á slaginu 19.15.
ÁRDÍS Elíasdóttir varði dokt-
orsritgerð sína í stjarneðlisfræði frá
Dark Cosmology Centre við Niels
Bohr-stofnun Kaupmannahafnarhá-
skóla 8. febrúar
síðastliðinn.
Ritgerðin nefn-
ist „Exploring
the Dark and
Dusty Universe
with Gravitatio-
nal Lensing“ eða
„Hinn huldi og
rykugi alheimur
kannaður með
þyngdarlinsum“.
Leiðbeinandi verkefnisins var
Jens Hjorth, prófessor við Kaup-
mannahafnarháskóla, og andmæl-
endur voru Steen Hansen, prófessor
við Kaupmannahafnarháskóla, Gilli-
an Knapp, prófessor við Princeton-
háskóla, og Andrew Taylor, prófess-
or við Edinborgarháskóla.
Í ritgerðinni eru þyngdarlinsur,
þ.e. sveigja ljóssins vegna afmynd-
unar rúmsins samkvæmt almennu
afstæðiskenningunni, notaðar til að
rannsaka stjörnuryk og hulduefni.
Rannsóknirnar byggja á gögnum frá
ýmsum stjörnusjónaukum, meðal
annars Hubble-geimsjónaukanum,
ásamt fræðilegum reikningum og
tölvulíkönum. Niðurstöðurnar sýna
að stjörnuryk í fjarlægum stjörnu-
þokum getur verið mjög ólíkt því
sem gerist í Vetrarbrautinni. Þessi
niðurstaða getur haft áhrif á túlkun
mælinga á þróun hulduorku í al-
heiminum – en hulduorka er óþekkt
orkuform sem nemur um það bil
70% af heildarorku alheimsins.
Seinni hluti ritgerðarinnar fjallar
um hulduefni í stjörnuþokuþyrp-
ingum – en hulduefnið er óþekkt
tegund efnis sem nemur um 25% af
heildarorku alheimsins. Afgang-
urinn, um 5%, samanstendur svo af
venjulegu efni, sem allt sem við
sjáum í kringum okkur er gert úr.
Ritgerðin er aðgengileg á vefsíðunni
www.dark-cosmology.dk/~ardis/
pub/thesis/thesis.pdf.
Árdís Elíasdóttir lauk stúdents-
prófi frá Menntaskólanum í Reykja-
vík vorið 1998. Hún útskrifaðist með
BSc í stærðfræði og eðlisfræði frá
Háskóla Íslands árið 2001 og MSc í
eðlisfræði frá California Institute of
Technology 2003.
Árdís hefur verið ráðin sem ný-
doktor við Dark Cosmology Centre í
Kaupmannahöfn fram á haustið en
þá heldur hún til Princeton-háskóla
þar sem hún tekur við stöðu sem
Marie Curie-styrkþegi en þar mun
hún halda áfram rannsóknum sín-
um.
Doktor í stjarneðlisfræði
Elsku amma Stína.
Við kveðjum þig
með miklum söknuði,
um leið og við þökkum
fyrir allar yndislegu stundirnar sem
við áttum saman. Það fyrsta sem
kemur upp í huga okkar, þegar við
hugsum til þín, er að þú varst svo
hjálpsöm, einlæg og fékkst okkur
alltaf til að brosa og líða vel með þér.
Þú vildir allt fyrir okkur gera, um-
hyggjan var svo mikil. Það var svo
gaman að koma til þín á Hvamms-
tanga og gista hjá þér og kisu, og fara
með þér í Kaupfélagið, því þú gafst
þér tíma með okkur til að skoða dótið
og fara með þér í bíltúr um bæinn.
Það var yndislegur tími þegar þú
komst með okkur til Spánar. Við lék-
um okkur á ströndinni, fórum í tívolí,
út að borða og margt fleira.
Það var alltaf svo gaman að fá þig
til okkar um jól og áramót og við
munum sakna þess mikið að hafa þig
hjá okkur á þessum tíma.
Minning um yndislega ömmu sem
við söknum mikið mun lifa í hjarta
okkar alla ævi.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Sveinbjörn Egilsson.)
Hvíldu í friði, elsku amma okkar.
Eydís Birna, Þórdís Lilja, Valdís
Anja og Bjarndís Júlía.
Við viljum minnast Kristínar Að-
alsteinsdóttur vinnufélaga okkar með
nokkrum orðum. Kristín var sam-
viskusöm, dugleg og vinnusöm. Hún
var ósérhlífin og mætti alltaf til vinnu
þótt lasin væri. Kristín barðist hetju-
lega við illvígan sjúkdóm sem sigraði
hana að lokum. Hún var formaður
starfsmannafélagsins og vildi ekki
missa af neinu og undirbjó frábæra
árshátíð fyrirtækisins í nóvember sl.
samsíða baráttunni við veikindin.
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf sæla
er þín hjá lambsins stól.
(Hallgrímur Pétursson)
Stórt skarð er höggvið í vinnuhóp-
Kristín Björk
Aðalsteinsdóttir
✝ Kristín BjörkAðalsteinsdóttir
fæddist á Akureyri
27. júní 1950. Hún
andaðist á Landspít-
alanum við Hring-
braut 28. mars síð-
astliðinn og var
jarðsungin frá Graf-
arvogskirkju 7. apr-
íl.
inn og við kveðjum
Kristínu með söknuði
og þakklæti fyrir sam-
fylgdina.
Við vottum fjöl-
skyldu hennar okkar
dýpstu samúð.
Hvíldu í friði.
Vinnufélagar
í KVH.
Síðasti strengurinn í
lífshörpu ömmu Stínu
er hljóðnaður. Hún lést
á Landspítalanum
föstudaginn 28. mars. Við vissum að
hún var mjög veik og lífsharpa henn-
ar var ekki eins hljómmikil síðustu
mánuði. Elsku amma, það er erfitt að
kveðja í hinsta sinn en minningarnar
getur enginn tekið frá okkur, þú hef-
ur gefið okkur meira en hægt er að
gefa.
Þegar við hugsum til þín þá varstu
alltaf kát og glöð, þú varst alltaf tilbú-
in að gera allt fyrir alla. Útilegur, ut-
anlandsferðir, mannfagnaður af öllu
tagi, þetta elskaðir þú. Utanlands-
ferðin til Kanarí. Þegar við vorum
eins og tveggja ára, þá bauðstu okkur
og mömmu út um páskana. Reyndar
munum við ekkert eftir því en mynd-
irnar tala sínu máli, svaka stuð, og af-
mælið hennar Telmu systur. Þú
raukst til og keyptir stóra köku og
allt tilheyrandi til að halda upp á eins
árs afmælið og var öllum boðið sem
voru á staðnum, já svo datt Alex-
andra systir úr rólu og hruflaði sig,
það var mikill grátur en þú reddaðir
því fljótt með plástri og kossi á bágt-
ið. Þú fluttir á Hvammstanga fyrir
nokkrum árum og fórst að vinna í
Kaupfélaginu, það var alltaf gaman
að koma til þín og vera hjá þér. Við
komum alltaf þegar við vorum að
ferðast fyrir norðan, reyndar frekar
stór hópur sem kíkti við hjá þér því
allir voru velkomnir í kotið þitt, þú
tíndir til allt sem þú áttir og borðið
svignaði af kræsingum.
Í tvö sumur vorum við hjá þér í
nokkra daga og var það frábær tími
sem við áttum saman. Þá var margt
brallað og það má segja að þú hafir
spillt okkur eins og þín var von og
vísa.
Þú elskaðir ferðalög og síðasta
ferðin sem þú fórst var til Ítalíu með
Rósu frænku og Guðjóni, en þú varst
veik úti og áttir mjög erfitt en ekki
kvartaðir þú heldur reyndir að njóta
ferðarinnar. Þegar heim var komið
var farið með þig beina leið á spít-
alann. Kom þá í ljós að þú varst með
illvígan sjúkdóm sem þú barðist við af
hörku, en það var eitt sem þú áttir
eftir að gera og var það að mæta í
fermingarveisluna mína og Hrannars
Más, sem þú gerðir með góðri hjálp
lækna sem aðstoðuðu þig til að þú
gætir mætt. Þó að þú hafir ekki getað
farið um og spjallað við alla þá naustu
þess að hitta fjölskyldu, vini og
vandamenn, þar sem þú varst mikil
félagsvera. En á endanum vann sjúk-
dómurinn. Viljum við systurnar
þakka fyrir að hafa fengið að njóta
nærveru þinnar og ástar.
Elsku amma, við finnum í hjarta
okkar að þér líður vel. Við munum
minnast þín um ókomna tíð með
söknuð í hjarta.
Þínar
Alexandra Sif og Telma Rut.
Nú þegar komið er að kveðjustund
kemur ótal margt upp í hugann frá
liðnum árum og áratugum. Það var í
ágúst 1973 sem ég kynntist Stínu og
Jóa þegar við fluttum á sama tíma inn
í nýja blokk í Breiðholtinu. Þau með
Hafþór 2 ára, Rósu 1 árs og ég kem
Katrínu 5 mánaða. Tókst þá strax
góður vinskapur með okkur, ári
seinna átti hún svo Ágústu. Ekki er
hægt að segja annað en hún hafi haft
nóg að hugsa um og hlúa að með ung-
ana sína.
Tveim árum seinna flutti ég til
Austurríkis, nýbúin að missa föður
minn. Móðir mín dvaldi þá í íbúð
minni og voru það Stína og Jói sem
hugsuðu vel um hana í fjarveru minni.
Árið 1982 fluttu þau upp í Mosó þar
sem þau voru búin að reisa sér stórt
og mikið hús og þar áttum við margar
gleðistundir. Þegar Rósa var fermd
þá sátum við og saumuðum, Stína pils
á sig, ég fermingarfötin á Rósu og
Haffi jakkaföt á sig. Þá var mikið
spaugað og hlegið. Þegar við fjöl-
skyldan fluttum síðan til Akureyrar
voru þau dugleg að koma til okkar.
Farið var í margar ógleymanlegar
ferðir og standa upp úr útilegurnar í
Vaglaskógi og ferðin með Snorra og
Skara út í Fjörður var okkur öllum
sem ævintýri. Svo skildi leiðir með
þeim hjónum. Síðustu árin eftir að
hún flutti til Hvammstanga með
yngsta syni sínum Aðalsteini hefur
orðið lengra á milli funda.
Í grenndinni veit ég um vin sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
„Ég hringi á morgun,“ ég hugsaði þá,
„svo hug minn fái hann skilið.“
En morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd,
gleymd ekki hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Höf. óþekktur.)
Nú kveðjum við þig elsku Stína
okkar og vitum að þú varst orðin
þreytt, en nú er sál þín frjáls. Biðjum
góðan Guð að styrkja börnin, tengda-
börn og barnabörn, því nú sjá þau á
eftir móður og ömmu sem var alltaf til
staðar fyrir þau, sem og aldraða for-
eldra sem sjá á eftir yndislegri dótt-
ur. Eftir dimma nótt kemur bjartur
dagur.
Þín vinkona,
Ólína Ingibjörg.
Einn glæsilegasti
maður landsins er fall-
inn frá. Mynd hann rís
í glöggu minni þar sem
hann gengur fram öruggur í fasi,
reistur en þó slakur, silfurhærður,
með leiftrandi bros, augu sem heilla,
og það fylgir honum blær af hafi,
seltu og frelsi. Slíkur maður var
Kjartan, að afar gott var að hitta
✝ Kjartan Thor-oddsen Ingi-
mundarson fæddist
á Sunnuhvoli á
Barðaströnd 25.
ágúst 1923. Hann
andaðist 18. febrúar
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Seljakirkju í Reykja-
vík 25. febrúar.
hann, eiga með honum
stund eða tala við hann
í síma, lengi, því að
hann var opinn fyrir
hugmyndum og sjón-
arhornum, og gagn-
rýninn á það sem mið-
ur fór í heimsmálum
og landsmálum, en
hafði jákvæð viðhorf
til lífsins og sköpunar-
innar. Hagleiksmaður
var hann einstakur
eins og tálguverk hans
vitna um, þar standa
fremst þrjú stykki,
Kristur á krossinum, Júdas, og kött-
ur sem teygir sig í hreiður á grein,
þrístæða um dauðann og fórnina,
áhrifamikil verk, reist af trúarlegum
innblæstri og tærum skilningi á hlut-
föllum, línum og öðrum fagurfræði-
legum gildum sem liggja ekki ljóst
fyrir öllum en bera uppi heildina.
Það var eins og Kjartan væri á
ósjálfráðan hátt vígður inn í laun-
helgar listasögunnar og meðtæki
kjarnann án þess að hika. Hann hafði
ekki formlegt nám að baki í þeim efn-
um, aðeins þessa traustu taug skiln-
ings og ígrundunar sem gerir mönn-
um eins og honum kleift að sigrast á
hindrunum, marka sér stöðu og
halda henni hvað sem á dynur.
Nú er þessi yndismaður genginn
fyrir hornið, en ekki horfinn, því per-
sónuleiki hans lifir, verk hans lifa,
samneyti hans við vini og fjölskyldu,
kostir hans í ferskri nálægð, reynsla
hans, umhyggja, ást og trúnaður, og
hvatning til góðra verka, það er sú
minning sem rís og tindrar í hjart-
anu.
Við sendum Hrefnu Sigurðardótt-
ur, listakonu, ekkju Kjartans, inni-
legar samúðarkveðjur með þakklæti
fyrir vináttu þeirra beggja.
Níels Hafstein og Magnhild-
ur Sigurðardóttir, Safna-
safninu, Svalbarðsströnd.
Kjartan Thoroddsen
Ingimundarson