Morgunblaðið - 13.04.2008, Blaðsíða 69
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 69
■ Fim. 17. apríl kl. 19.30
Söngfuglar hvíta tjaldsins
Söngleikjadívan Kim Criswell flettir söngbókum helstu lagahöfunda
Bandaríkjanna frá gullöld söngvamyndanna og fetar í fótspor
sönggyðja á borð við Judy Garland, Marilyn Monroe og Doris Day.
Hljómsveitarstjóri: John Wilson
Einsöngvari: Kim Criswell
■ Lau. 19. apríl kl. 14.00
Bíófjör - Tónsprotatónleikar
Öll fjölskyldan skemmtir sér konunglega á þessum tónleikum þar
sem tónlist úr kvikmyndum á borð við Stjörnustríð, Harry Potter,
Mary Poppins og Simpsons hljómar. Trúðurinn Barbara kynnir
tónlistina á sinn einstaka hátt.
■ Fim 9. maí kl. 19.30
PPP áttræður
Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í
þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan
með þessum tónleikum þar sem flutt verður fimmta sinfónía
Mahlers, sellókonsert Schumanns auk verks eftir afmælisbarnið.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
NÝ OG FÁRÁNLEGA SKEMMTILEG SÝNING UM FJÁRMÁL ÍSLENDINGA!
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
IK Sýnt í Salnum Kópavogi
Miðasala hjá Salnum í síma 5700 400, á salurinn.is
og midi.is. Miðaverð 2000 kr. 50% afsláttur er fyrir
viðskiptavini Byrs (allt að 5 miðar) ef keypt er í miða-
sölunni í Salnum. ATH! Takmarkaður sýningafjöldi.
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
IK
Þri 15/4 kl. 20
Mið 16/4 kl. 20
Fös 18/4 kl. 21
Lau 19/4 kl. 19
Lau 19/4 kl. 21
Fös 2/5 kl. 19
Fös 2/5 kl. 21
Lau 3/5 kl. 20
Lau 3/5 kl. 22
Fös 16/5 kl. 19
Fös 16/5 kl. 21
Lau 17/5 kl. 19
Lau 17/5 kl. 21
Forsýning - uppselt
Forsýning - uppselt
Frumsýning - uppselt
Uppselt
S Ý N I N G A R
Fyrst var það Hellisbúinn, síðan Pabbinn og nú er það HVERS VIRÐI ER ÉG?
Óborganlega fyndin sýning Bjarna Hauks Þórssonar um fjármál Íslendinga.
Frábær sýning í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar.
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
Hið breiða holt - Ljósmyndasýning
Sunnudaginn 13. apríl kl. 15 munu Berglind Jóna
Hlynsdóttir sýn.stjóri, Einar Falur Ingólfsson, ljósmynd-
ari og Sigrún Sigurðardóttir, menningarfræðingur bjóða
upp á leiðsögn og óformlegt spjall um sýninguna.
Ókeypis aðgangur!
Stefnumót við safnara III
Hljómfagurt stefnumót við tónlistarmenn og
hljóðfærasafnara!
Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir
Boðið er upp á leiðsögn fyrir hópa. s. 575 7700
Sjö landa sýn - María Loftsdóttir
Vatnslitastemmningar frá ferðalögum listakonunnar
um Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Ísland, Japan, Perú
og Skotland.
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur?
Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns.
Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700.
FÉLAGSVÍSINDASVIÐ
Kennslufræði
www.felags.hi.is
Kennslufræði til kennsluréttinda -
diplómanám
MA-nám í kennslufræði
Diplómanám í kennslufræði veitir réttindi til
kennslu í grunn- og framhaldsskólum. Áhersla er
lögð á starfsnámið og kennslufræði námsgreina.
Meistaranám veitir bæði fræðilega og hagnýta
þekkingu ásamt því að efla rannsóknir á kennslu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl n.k.
H
2 h
ö
n
n
u
n
VERÐLAUNAMYNDIN frá Berl-
ínarhátíðinni í vetur virkar líkt og
tryllingslegt hnefahögg í andlitið.
Hin brasilíska Úrvalssveit – Tropa
de Elite, sem byggð er á sönnum at-
burðum, er svo gjörólík öðrum
myndum um baráttu lögreglunnar
við undirheimana að hún hefði getað
gerst á annarri plánetu. Ef hún er
t.d. borin saman við myndir byggðar
á minningum manns á borð við Jo-
seph Wambaugh, sem var á annan
áratug í lögregluliði Los Angeles,
virka þær eins og ævintýri eftir
H.C. Andersen. Engu að síður þóttu
The New Centurions. The Onion
Field, The Blue Knight o.fl., ein-
staklega raunsæjar og gefa ófegr-
aða mynd af hörðum heimi lög-
gæslumanna í stórborg.
Ófögnuðurinn sem Padilha dregur
upp af stéttarbræðrum sínum í
næststærstu borg Brasilíu, er eng-
um öðrum líkur. Lengi vel var Rio
de Janeiro ímynd framandi æv-
intýra, fegurðar og lífsgleði. Karni-
völ, Copacabana-ströndin, iðandi
mannlíf og seiðandi sambatónar
komu upp í hugann og yfir herleg-
heitunum gnæfði Kristslíkneskið á
tindinum. Hún var fjarlæga
draumaborgin sem menn þráðu að
heimsækja og upplifa. Pixote kynnti
fyrir umheiminum aðra og ógnvæn-
legri sýn inn í miskunnarlaust
mannlíf borgarsamfélaganna þar
syðra. Þó hún gerist reyndar í Sao
Paulo er umhverfið hliðstætt því
sem málað er sterkum litum í Úr-
valssveitinni, Cidade de Deus og
öðrum eftirminnilegum verkum sem
lýsa hrottalegu ástandinu í fátækra-
hverfum fyrrum höfuðborgar lands-
ins. Úrvalssveitin fræðir okkur um
að stærstur hluti Ríóborgar eru nið-
urdröbbuð fátæktarhverfi þar sem
glæpagengi stjórna leynt og ljóst,
eiturlyfin flæða og mannslífið er
einskis virði. Lögreglan á aðeins um
tvennt að ræða, fara í stríð eða
ánetjast spillingunni og þiggja mút-
ur. Starfið illa launað og hættulegt.
Til að reyna að ná tökum á ástand-
inu eru stofnaðar BOPE-sérsveit-
irnar. Þungvopnaðar mæta þær ekki
síður vel búnum glæpagengjum
slömmanna og það brestur á stríðs-
ástand, blóði drifin borgarastyrjöld
sem engu eirir. Úrvalssveitin er
byggð á minningum lögreglumanns,
líkt og myndirnar hans Wambaugh.
Höfundurinn heitir Rodrigo Pimen-
tel, hann starfaði á annan áratug í
BOPE, og er fyrirmynd söguhetj-
unnar Nascimentos (Moura), kapt-
eins í úrvalssveitinni. Kona hans er
þunguð af fyrsta barni þeirra hjóna
og lögregluforinginn er búinn að fá
meira en nóg af hættunum og við-
bjóðnum sem fylgja honum hvert
fótmál. Nascimento vill sleppa frá
starfinu lifandi en með sóma og finn-
ur útgönguleið í ungum og kapps-
fullum félögum sínum í BOPE.
Vandinn er að velja þann rétta en
Nascimento er ráðsnjall. Fátæktin
og eiturlyfin spinna saman sinn
gamalkunna örlagavef og Padhila er
örugglega trúr bókinni og hvergi
smeykur við að lýsa af raunsæi þeim
aumkunarverðu fórnarlömbum sem
sitja sem fastast í spunanum. Hann
tvínónar ekki við að undirstrika að-
gangshörku sérsveitanna sem af-
greiðir illþýðið án hefðbundins dóms
eða laga. Þeir eru meindýraeyðar á
sorphaugum mannlífsins. Alræð-
isvaldið í borginni fögru þarf enga
úrskurði til húsleitar eða aftöku,
dópgengin eru réttdræp í návígi.
Skjóta fyrst, spyrja svo. Hér er lýst
skipulagi og óhefðbundnum starfs-
aðferðum löggæslumanna sem eru
mun armlengri og miskunnarlausari
en dæmi eru um. Þeir eru full-
komlega ráðþrota í viðskiptunum
við sorann í jarðnesku víti sem virð-
ist hvorki eiga mörk né viðmiðun.
Úrvalssveitin er vammlaus í útliti,
áhrifin ólýsanleg í trúverðugum
heimildarmyndastíl, tekin að mestu
eða öllu leyti með handheldri vél
sem eykur enn frekar á þá tilfinn-
ingu að áhorfandinn sé að horfa á
fréttamynd frá víti.
Úrvalssveitin „…virkar líkt og tryllingslegt hnefahögg í andlitið,“ segir meðal annars í lofsamlegum dómi.
Meindýraeyðar á sorp-
haugum mannlífsins
KVIKMYND
Regnboginn: Bíódagar Græna
ljóssins
Leikstjóri: José Padilha. Aðalleikarar:
Wagner Moura, Caio Junqueira, André
Ramiro, Fernanda de Freitas. 98 mín.
Brasilía 2007.
Tropa de Elite – Úrvalssveitin
bbbbm
Sæbjörn Valdimarsson
Í VIÐTALI við
ballettdansarann
Kára Frey í
Morgunblaðinu í
gær var hann
sagður Stef-
ánsson. Hið rétta
er að hann er
Björnsson. Beðist
er velvirðingar á
mistökunum.
LEIÐRÉTT
Rangfeðraður
Kári Freyr
Björnsson
Fréttir á SMS
RYAN Seacrest, kynnir American Idol-þáttanna,
hætti eitt sinn að borða þegar hann varð skotinn í
stelpu. Seacrest var mikið strítt á sínum unglings-
árum, en hann var nokkuð vel í holdum, og hann
ákvað því að gera eitthvað í málunum þegar hann
varð skotinn í bekkjarsystur sinni. „Ég treysti
mér ekki til þess að bjóða henni út. Þannig að ég
fór að henda hádegismatnum mínum og í þrjá
mánuði borðaði ég bara appelsínur eða greip,“
sagði kappinn í viðtali. Hann sagði að áhersl-
urnar hafi hins vegar breyst, en nú hefur hann
engan tíma fyrir einkalíf, heldur eingöngu vinn-
una. Enda mun hann vera maður einsamall, orð-
inn 33 ára gamall.
Fór í megrun
Kynnirinn
Ryan Seacrest.