Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 72

Morgunblaðið - 13.04.2008, Page 72
72 SUNNUDAGUR 13. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ ÞESSI notalega, furðubreska en bandaríska, rómantíska gam- anmynd fjallar á frekar opinskáan hátt um útskýringar föður á fertugs- aldri fyrir 10 ára dóttur sinni á lífi sínu og ástum. Pabbinn, Will (Reyn- olds), er að skilja og Maya litla (Breslin) vill fá að komast til botns í ástamálunum sem eru í óskiljan- legum hnút. Will segir henni undan og ofan af líflegu sambandi sínu við kvenþjóðina á tíunda áratugnum þegar sú stutta kom undir en segir henni ekki hin réttu nöfn kvennanna svo hún veit ekki fyrr en í lokin hver þeirra þriggja er móðir hennar. Will á í nokkrum vandræðum með að gefa telpunni nógu penar lýsingar á nánu sambandi hans við April (Fish- er), sem er gömul og góð vinkona; blaðakonuna Summer (Weisz), og í þriðja lagi æskuunnustuna Emily (Banks.) Hver skyldi vera mamman? Bakgrunnurinn er umbrotasamur og líflegur síðasti áratugur 20. ald- arinnar, þegar Will er lítt reyndur en metnaðarfullur ráðgjafi á uppleið í kosningabaráttu Clintons í New York. Myndin er full af skondnum smáatriðum eins og fyrstu gemsa- hlunkunum og varnaðarorðunum sem farið var að setja á sígar- ettupakkana (engum hugkvæmdist að benda Clinton á að vindlar gætu líka valdið óþægindum!), andrúms- loftið er frjálslegra en í dag og Tví- buraturnarnir gnæfa við himin. Handritshöfundurinn spinnur tals- vert áhugaverðan vef úr kvennamál- unum og oft og tíðum er bráðfyndið að fylgjast með samræðum feðg- inanna, hann verður að skauta listi- lega á velsæmismörkunum. Sá línu- dans gefur Definitely, Maybe afslappandi og skondin augnablik. Auk þess er Breslin litla ísmeygilega góð og Reynolds túlkar á viðunandi hátt margslungið líf manns sem er að taka stakkaskiptum á miklum umbrotatímum þegar ástir, átrún- aðargoð, vinátta og hugsjónir fæðast og deyja í miklum flýti. Sögulokin eru í rökréttu framhaldi af því sem á undan kemur og áhorfandinn heldur heim bjartsýnni en áður. Til þess þarf hann að gefa sig aðalpersónun- um á vald sem er ekki erfitt, feðginin eru trúverðug og konurnar þrjár eru leiknar af frambærilegum og upp- rennandi skapgerðarleikkonum með skopskyn. Þrjár konur og feðgin KVIKMYND Smárabíó, Laugarásbíó Leikstjóri: Adam Brooks. Aðalleikarar: Ryan Reynolds, Isla Fisher, Derek Luke, Abigail Breslin, Elizabeth Banks, Rachel Weisz. 110 mín. Bandaríkin 2008. Definitely, Maybe bbbmn Fyndin feðgin „Oft og tíðum er bráðfyndið að fylgjast með samræðum feðginanna,“ segir meðal annars í dómi gagnrýnanda. Sæbjörn Valdimarsson TVEIR menn eru í haldi lögreglunnar í Mílanó eftir að upp komst að þeir höfðu í hyggju að koma á fót tískulínu sem bar nafn leikarans George Clooney. Lögreglan lagði hald á efni til fataframleiðslu, armbandsúr og falsaða pappíra. Að söng fréttastofunnar ANSA var ráðgert að hefja sölu á fötunum í næstu viku. Það var leikarinn sjálfur sem komst á snoðir um fals- arana og gerði lögreglunni á Ítalíu viðvart. „Reyni einhver að selja ykkur föt eða úr með nafninu mínu á, þá vinsamlegast ekki kaupa,“ sagði Clooney á blaðamannafundi í Róm þar sem hann var að kynna nýjustu mynd sína Leatherheads. Reuters Ekta Óprúttnir aðilar reyndu að græða á nafni Clooneys. Clooney-fatalína gerð upptæk

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.