Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 9
FRÉTTIR
Eftir Björn Björnsson
SÍÐARI dagur heimsóknar for-
setahjónanna, frú Dorritar Mo-
ussaieff og Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, til Skagafjarðar var bjartur
og sólríkur, líkur þeim fyrri, og
hófst með heimsókn í Fjölbrauta-
skóla Norðurlands vestra, en nem-
endur og starfsfólk kynntu skól-
ann og það starf sem þar er unnið.
Síðan lá leiðin til Varmahlíðar í
Upplýsingamiðstöð ferðamála, þar
sem kynntir voru afþreying-
armöguleikar í Skagafirði og
skoðað skagfirskt handverk og
minjagripir tengdir svæðinu, en
því næst var haldið í Varmahlíð-
arskóla, þar sem nemendur fögn-
uðu forseta sínum og kynntu
skólastarfið.
Brá sér í mjaltirnar
Næsti áningarstaður var Flugu-
mýri, en þar voru skoðaðir gæð-
ingar en síðan farið í fjós þar sem
mjaltir stóðu yfir og forsetafrúin,
sem reyndi sig við handflökun
fisks í fyrradag, brá sér nú í
mjaltirnar og virtist í þessu sem
öðru vera vel liðtæk.
Frá Flugumýri var haldið til
Hóla, en þar flutti forsetinn setn-
ingarávarp á málþinginu Sjálfbær
þróun: íslensk náttúra, menning
og þekking í alþjóðasamhengi.
Eftir að hafa snætt hádegisverð
með nemendum Háskólans á Hól-
um var farið í leikskólann og
grunnskóla staðarins, en síðan
haldið sem leið lá að Listasetrinu
að Bæ á Höfðaströnd sem skoðað
var undir leiðsögn Steinunnar
Jónsdóttur.
Grunnskólinn á Hofsósi var
næsti viðkomustaður, en þar tóku
nemendur þess skóla og grunn-
skólans að Sólgörðum ásamt kenn-
urum á móti forsetahjónunum.
Eftir spjall við nemendur þar
sem forsetinn leysti úr ótal spurn-
ingum þeirra var haldið að vænt-
anlegu byggingarsvæði nýrrar
sundlaugar við Suðurbraut, en
sundlaugin er gjöf þeirra Lilju
Pálmadóttur að Hofi og Stein-
unnar Jónsdóttur í Bæ og nú tóku
þær ásamt forsetahjónunum fyrstu
skóflustunguna að þessu glæsilega
mannvirki við dynjandi húrrahróp
fjölmargra íbúa sem viðstaddir
voru.
Að aflokinni skóflustungunni til-
kynnti Gunnar Bragi Sveinsson,
formaður Byggðaráðs, að fyrr í
gær hefðu verið opnuð tilboð í
jarðvinnu vegna byggingarinnar,
þannig að nú væri einbúið að hefj-
ast handa.
Eftir kaffisamsæti í Félagsheim-
ilinu Höfðaborg var haldið sem
leið lá að Ljósheimum, þar sem
Félag eldri borgara á Sauðárkróki
tók vel á móti forseta og fylgd-
arliði.
Með þessari móttöku lauk form-
legri, opinberri heimsókn forseta-
hjónanna til Skagafjarðar, sem að
sögn Gunnars Braga Sveinssonar,
formanns byggðaráðs, tókst í alla
staði frábærlega vel og var hin
ánægjulegasta.
Skoðuðu skagfirskt
handverk og minjagripi
Forsetaheimsókn í Skagafjörð á björtustu dögum vorsins
Gleðst með börnunum Dorrit Moussaieff gerði sér lítið fyrir og skellti sér á hestbak ásamt þremur kátum stúlkum.
Ljósmynd/Gunnar Geir Vigfússon
Morgunblaðið/Pálína Ósk Hraundal
Heim að Hólum Forsetinn flutti setningarávarp á málþinginu Sjálfbær
þróun: íslensk náttúra, menning og þekking í alþjóðasamhengi.
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
MÁLEFNI meintra afbrotamanna
frá Póllandi eru mjög til umræðu
meðal samlanda þeirra hér á landi og
valda töluverðum
áhyggjum hjá öll-
um þeim fjölda
Pólverja sem
kæra sig ekkert
um afbrot eða þá
sem tengjast
þeim, segir Pól-
verjinn Stanislaw
Bukowski, sem
búið hefur hér-
lendis og starfað
undanfarin sjö ár.
Hann segir umræðuna um sam-
félag Pólverja á köflum afar undar-
lega og til að mynda geti hann engan
veginn fengið botn í sögusagnir um
„verndartolla“ sem skyndilega urðu á
hvers manns vörum eftir árásina í
Keilufelli þar sem Pólverjar komu við
sögu. „Ég fer mikið á milli staða
vegna vinnu minnar í byggingargeir-
anum og er alltaf að spyrja samlanda
mína um þetta en heyri aldrei neitt,“
segir hann. „Þetta er einhver mis-
skilningur. Hvorki ég né þeir sem ég
tala við kannast við að hér sé pólsk
mafía sem níðist á samlöndum sínum.
Það er óhugsandi að mínu mati og ég
verð ekki var við slíkt þótt ég sé alltaf
að spyrja aðra Pólverja,“ segir hann
„Nú fara í hönd þeir tímar sem
enginn vill ráða Pólverja í vinnu af því
að þeir eru allt í einu orðnir „glæpa-
þjóð“.“
Stanislaw bendir á Pólverjar hafi
sjálfir haft vissar ranghugmyndir um
Ísland og það hafi ekki byggt upp
mjög jákvæða ímynd þeirra hérlend-
is. „Í uppsveiflunni undanfarin þrjú
ár hafa Pólverjar komið hingað til að
vinna og þar var fólk sem talaði engin
tungumál utan móðurmálsins og
reyndi ekki einu sinni að læra önnur
mál,“ bendir hann á.
„Þeir hafa hugsað sem svo að hér
væri nóga vinnu að hafa og þá þyrfti
maður ekkert að leggja sig fram um
að læra tungumálið. Þess vegna
finnst mér pólska samfélagið hafa
lokast dálítið. Fólk heldur sig í hópum
út af fyrir sig eða bara heima hjá sér
og tekur ekki mikinn þátt í hinu ís-
lenska samfélagi.“
Stanislaw getur ekki dæmt um
sekt eða sakleysi grunaðra samlanda
sinna hérlendis „en við kærum okkur
alls ekki um einstaklinga sem skaða
ímynd Pólverja“, segir hann. „Það
verður að hafa í huga að Pólverjar á
Íslandi eru 15-20 þúsund talsins, álíka
og helmingurinn af íbúafjölda Kópa-
vogs.“
Stanislaw segir vissulega geta ver-
ið svarta sauði í hverri hjörð og þeir
spilli fyrir heildinni.
„Pólska samfélagið
hefur lokast dálítið“
Stanislaw
Bukowski
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Silki sparifatnaður
Sendum í póstkröfu
Hinir frábæru
Care þægindabrjóstahaldara,
bæði smelltir og heilir
Tilboð í
Sjúkravörum ehf.
í bláu húsi v. Faxafen,
sími 553 6511
Opið 11-18 virka daga
Nýkomin sending
af þýskum sjúkraskóm frá Schurr
M
bl
.9
35
07
4
10% afsláttur
15% afsláttur
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Barcelona
17. eða 24. apríl
frá aðeins kr. 19.990
Helgarferðir - allra síðustu sæti!
Heimsferðir bjóða ótrulegt tilboð á allra síðustu flugsætunum í
helgarferðir til Barcelona 17. og 24. apríl. Barcelona er einstök perla sem
Íslendingar hafa tekið ástfóstri við. Borgin býður frábært mannlíf og
óendanlega fjölbreytni í menningu,
afþreyingu og úrvali fjölbreyttra
veitingastaða og verslana. Gríptu
þetta frábæra tækifæri -
takmarkaður fjöldi sæta í boði! Mb
l 9
94
98
2
Verð kr. 19.990
Netverð á mann, flugsæti báðar leiðir með
sköttum, sértilboð, 17. eða 24. apríl.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn