Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 29 ✝ Ragnar MagniMagnússon fæddist á Akureyri 9. september 1925. Hann lést á líkn- ardeild LSH á Landakoti 8. apríl síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Magnús Pét- ursson kennari, f. 26. febrúar 1890, d. 17. október 1976, og Guðrún Bjarnadótt- ir húsmóðir, f. 5. maí 1888, d. 4. nóvember 1952. Systkini Ragnars eru Sverrir Hermann, f. 22. febrúar 1921, bú- settur í Bandaríkjunum, Haraldur Bragi, f. 1. febrúar 1922, búsettur í Bandaríkjunum, Ingibjörg Ragn- heiður, f. 23. júní 1923, Bjarni Við- ar, f. 8. september 1924, d. 17. júní 2000, Viðar, f. 15. nóvember 1927, d. 6. júlí 1928, og Gunnar Víðir, f. 22. júlí 1929. Seinni kona Magn- úsar var Margrét Jónsdóttir, skáldkona og kennari, f. 20. ágúst 1893, d. 9. desember 1971. Ragnar kvæntist 23. mars 1952 Þórunni Ingjaldsdóttur, f. 8. ágúst 1933, d. 25. júní 1996. Foreldrar hennar voru Ingjaldur Ísaksson bifreiðarstjóri, f. 27. október 1909, d. 14. júní 1991, og Henriette Ís- aksson, f. Niclasen í Færeyjum 28. október 1910, d. 15. janúar 1994. Synir Ragnars og Þórunnar eru: 1) Gunnar Magnús, f. 26. september klæðskera- og trésmíðanámi við Iðnskólann á Akureyri. Á Ak- ureyri vann hann sem klæðskeri um tíma en fluttist svo til Reykja- víkur og stofnaði eigið fyrirtæki og rak það í nokkur ár undir nafn- inu Style. Árið 1955 fluttust þau hjón til Bandaríkjanna, bjuggu þar fyrst í Minneapolis í Minnesota en síðar í Berkeley og Oakland í Kali- forníu, þar sem Ragnar starfaði sem klæðskeri. Nokkur ár vann hann hjá Iceland Seafood, fyr- irtæki SÍS, í Harrisburg í Penn- sylvaníu. Árið 1970, eftir 15 ára búsetu í Bandaríkjunum, fluttust þau heim til Íslands með syni sína fimm. Við komuna heim keyptu þau hús í Garðabænum, að Stekkjarflöt 21, og bjuggu þar æ síðan. Ragnar stofnaði þar, með sonum sínum þremur, inn- og útflutningsfyr- irtækið Style og síðar Style ehf. sem framleiðir flokkunarvélar fyr- ir sjávarútveg á innanlandsmark- aði og erlendis. Ragnar gekk í Sjálfstæðisflokk- inn á unga aldri og var alla tíð mjög áhugasamur um stjórnmál. Hann sat í fulltrúaráði Sjálfstæð- isflokksins í Garðabæ, átti sæti í fé- lagsmálaráði Garðabæjar og fleiri nefndum á vegum bæjarins. Skáti var hann frá unglingsárum og alla tíð síðan og um tíma var hann í Lionsklúbbi Garðabæjar. Í nóvember á sl. ári greindist hann með illkynja æxli í heila. Hann naut læknisþjónustu og hjúkrunar frá heimahlynningu LSH og síðustu vikurnar á líkn- ardeild LSH á Landakoti. Útför Ragnars verður gerð frá Vídalínskirkju í Garðabæ í dag og hefst athöfnin klukkan 13. 1952, kvæntur Fran Ragnarsson, f. O’Keefe 16. janúar 1947, þau eru búsett í Bandaríkjunum. 2) Ingjaldur Henry, f. 3. ágúst 1955, kvæntur Hafdísi Oddu Ingólfs- dóttur, f. 24. október 1959, dætur þeirra eru: a) Þórunn Inga, f. 8. nóvember 1979, unnusti Steinþór Ein- arsson, f. 25. mars 1972, börn; Róbert Max, f. 4. júní 1998, og Andrea Odda, f. 3. desember 2007, b) Inga Ragna, f. 2. júlí 1986, unnusti Valur Þór Valsson, f. 28. september 1984. 3) Egill Þór, f. 7. desember 1959, kvæntist Írisi Öldu Stefánsdóttur, f. 20 desember 1957. Þau skildu. Börn þeirra eru: a) Pétur Ingi, f. 4. mars 1983, unn- usta Alice Fenu, f. 15. ágúst 1985, b) Ingibjörg Ragnheiður, f. 21. maí 1985, unnusti Guðmundur Þor- geirsson, f. 22. desember 1980, c) Stefanie Esther, f. 11. júní 1987, d) Atli Fannar, f. 24. janúar 1992, og e) Hugrún Birta, f. 24. júlí 1995. Sambýliskona Egils er Ása Björk Sigurðardóttir, f. 20. nóvember 1960. 4) Eiríkur Snorri, f. 5. maí 1965. 5) Leifur Ragnar, f. 5. maí 1965. Ragnar ólst upp á Akureyri. Hann nam við Héraðsskólann á Laugum í Reykjadal og lauk síðan Ragnar, faðir okkar, lést á líkn- ardeild LSH eftir nokkra vikna legu þar. Hann greindist með krabba- mein í heila í nóvember sl. Hann gat verið heima hjá okkur í fyrstu með hjálp heimahjúkrunar LSH, en að því kom að hann þurfti á meiri hjúkr- un að halda, þá tók líknardeildin á Landakoti við. Því fólki, er vann við þessi störf, erum við afar þakklátir. Þar er valinn maður í hverju rúmi, læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk. Fólk er sinnir ekki aðeins sjúklingum sín- um, heldur líka aðstandendum sem eiga um sárt að binda. Ragnar ólst upp á Akureyri, var næstyngstur sex systkina. Frá fyrstu tíð voru þau systkin öll mjög hneigð fyrir nám og íþróttir. Ragnar var í íþróttafélaginu Þór, hafði eink- um áhuga á knattspyrnu, handknatt- leik og fimleikum og náði þar góðum árangri. Hann var alla tíð mjög kappsamur og fylginn sér að hverju sem hann gekk. Skáti varð hann ungur – ávallt skáti. Að loknu iðn- skólanámi vann hann við klæðskera- iðn, fyrst á Akureyri en síðar í Reykjavík og Bandaríkjunum. Fjölskyldan bjó erlendis í rúmlega 15 ár, m.a í Oakland og Berkeley í Kaliforníu og Harrisburg í Penn- sylvaníu í Bandaríkjunum. Gamall vildi Ragnar ekki verða í Ameríku, hann var Íslendingur og á Íslandi vildi hann vera til síðasta dags. Nýr kafli hófst í lífi okkar bræðra árið 1970 er við fluttumst til Íslands, þá fimm ára gamlir. Í Garðabæ var sest að og þar höfum við búið síðan. Ragnar stofnaði þar nýtt fyrirtæki, Style, sem var í fyrstu með innflutn- ing en síðar breytti hann því í Style ehf. og rak það ásamt Agli syni sín- um og okkur bræðrum. Fyrirtækið framleiðir flokkunarvélar fyrir sjáv- arútveg hér á landi og víða erlendis. Ragnar var mjög áhugasamur um stjórnmál, var eldheitur sjálfstæðis- maður alla tíð en þó mjög gagnrýn- inn á eitt og annað hjá félögum sín- um og var þá óspar á að láta það heyrast. Meðal annars fannst honum of lítið hugað að málefnum aldraðra, þar stefndi í mikið óefni ef ekki væri meira að gert. Hann hafði sterka réttlætistilfinn- ingu og fylgdi henni eftir. Hann var félagslyndur en afar starfsamur og því varð oft minna um félagsstörf en hann hefði kosið, enda lítill tími fyrir menn er reka fyrirtæki að sinna öðr- um málum. Vinnudagurinn varð oft mjög langur. Foreldrar okkar voru samstiga um uppeldi á okkur bræðr- um og lögðu áherslu á heiðarleika og réttlæti. Þeir höfðu bjargfasta trú á framhaldslífi og kviðu engu að skipta um tilverustig. Það reyndist okkur vel á kveðjustundum. Ragnar og systkini hans voru miklir sögumenn og höfðu gaman af að segja frá ýmsu í léttum tón. Marga skrýtluna kunni Ragnar frá Bandaríkjunum og hér heima og hló þá jafnan vel og lengi. Eitt var sterkt í fari hans, það var hvað hann var barngóður. Það er aðall þeirra systk- ina allra. Honum þótti afar vænt um barnabörnin sín og reyndist þeim vel. Og þegar lítil dama, barnabarna- barn, dóttir Þórunnar Ingu og Stein- þórs, bættist í hópinn gladdi það hann mjög. Þegar við nú kveðjum kæran föð- ur viljum við þakka öllu því góða fólki er annaðist hann – af færni, hlýju og skilningi – síðustu sporin. Við þökkum Ingibjörgu föðursystur og Brynhildi móðursystur fyrir ein- stakan stuðning og styrk. Góður Guð veri með ykkur öllum. Eiríkur og Leifur. Elsku afi Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Það eru margar minningar sem streyma um huga okkar þegar við hugsum til þín afi, allar gömlu góðu stundirnar á Stekkjarflötinni hjá ykkur ömmu. Sumarstundirnar í fal- lega garðinum ykkar, glæsilegu jóla- boðin og ferðirnar í kartöflugarðinn. Einnig varst þú mikill pólitíkus, gaman var að spjalla við þig um póli- tík þar sem skoðanir okkar voru ekki alltaf þær sömu í þeim málefnum. Mest stendur þó upp úr hvað ávallt var stutt í brandarana og grínið hjá þér. Duglegri mann er erfitt að finna, vinnan skipaði stóran sess í lífi þínu enda varstu vinnandi þar til veikind- in tóku yfir. Dýrmætar þótti okkur stundirnar sem við áttum saman á Landakoti og viljum við þakka starfsfólki líknardeildar Landspítal- ans á Landakoti fyrir hlýju og að hlúa vel að afa. Elsku afi, við kveðjum þig með söknuði en vitum að amma hefur tek- ið á móti þér með bros á vör. Guð blessi þig, Þórunn Inga og Inga Ragna Ingjaldsdætur Ragnar Magni Magnússon Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Yvonne Tix ✝ Þökkum af alúð auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, EIRÍKS JÚLÍUSAR SIGURÐSSONAR vélstjóra, Smáratúni 12, Keflavík. Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki D-deildar Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir kærleiksríka umönnun. Guð blessi ykkur öll. Anna Vernharðsdóttir og fjölskylda. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og kærrar vinkonu, SIGURJÓNU SIGURJÓNSDÓTTUR, Hólavangi 9, Hellu, áður Smáratúni, Þykkvabæ. Guð blessi ykkur öll. Heimir, Friðsemd, Sighvatur, Kristborg, Linda, Bryndís og fjölskyldur. Pálmi Viðar Samúelsson. ✝ Þökkum auðsýnda samúð, vináttu og virðingu vegna andláts og útfarar ÁRNA STEFÁNSSONAR fv. hótelstjóra, Höfn í Hornafirði. Guð blessi ykkur öll. Svava Sverrisdóttir, Hjördís Árnadóttir, Sigurbjörg Árnadóttir, Kristín Þóra Kristjánsdóttir, Gísli Sverrir Árnason, Guðrún Baldursdóttir, Guðlaug Árnadóttir, Hólmgrímur Elís Bragason, Gauti Árnason, Ragnheiður Rafnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, HELGA HALLVARÐSSONAR fyrrverandi skipherra, Lautasmára 1, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við Landhelgisgæslunni og starfsmönnum hennar fyrir auðsýnda samúð og virðingu. Þuríður Erla Erlingsdóttir, Guðfinna Helgadóttir, Guðni Einarsson, Sigríður Helgadóttir, Birgir H. Sigurðsson, Helgi Helgason, Brynja Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS PÁLS SIGFÚSSONAR, Kleppsvegi 2, Reykjavík, sem lést föstudaginn 14. mars. Sérstakar þakkir til starfsfólks dagvistunar við Vitatorg og deildar A-2 á hjúkrunarheimilinu Grund fyrir einstaka hjúkrun, alúð og umhyggju. Guðbjörg Lilja Guðmundsdóttir, Bragi G. Kristjánsson, Erna Eiríksdóttir, María Anna Kristjánsdóttir, Jesús S.H. Potenciano, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.