Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 27 ✝ Haukur Hauks-son fæddist í Sandgerði 16. ágúst 1935. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu Stuðla- seli 3, 6. apríl síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jenný Lovísa Einarsdóttir, f. 9. maí 1912, d. 2. janúar 2002, og Einar Haukur Jóns- son, f. 28. nóvember 1906, d. 23. mars 1935. Stjúpfaðir Hauks var Árni Þorsteinsson, f. 14. nóvember 1908, d. 10. mars 1986. Haukur átti þrjár alsystur; 1) Jóna Margrét, f. 1930, d. 1931, 2) Anna Margrét, f. 1932, d. 2002, og 3) Einarína Sigurveig, f. 1934. Systkin sammæðra eru 1) Guðný Helga Árnadóttir, f. 1937, 2) Þor- björg Ágústa Árnadóttir, f. 1937, d. 1955, 3) Inga Eygló Árnadótt- ir, f. 1938, 4) Þorsteinn Árnason, f. 1940, 5) Brynja Árnadóttir, f. 1944, 6) Guðrún Árnadóttir, f. 1948, og 7) Árni Árnason, f. 1957. Haukur kvæntist 1981 Anneyju Jóhannsdóttur, f. 1949. Þau slitu samvistir. Börn þeirra eru 1) Jóna Margrét, f. 1977, hún á þrjú börn; Júlíus Karl Svavarsson, f. 1994, Eydísi Ósk Svav- arsdóttur, f. 2006, og stúlku Jónudótt- ir, f. 2008. 2) Alda Ósk, f. 1979, gift Kolbeini Gísla Bergsteinssyni, f. 1976, þau eiga þrjú börn; Jakob Frey, f. 1996, Karen Ölfu Rut, f. 1998, og Rakel Andreu Dögg, f. 2001. 3) Einar Haukur, f. 1981, í sambúð með Söndru Dögg Kolbeinsdóttur og eiga þau einn son óskírðan. Haukur ólst upp ásamt syst- kinum sínum fyrst í Sandgerði og síðan í Keflavík Hann fór ungur út á vinnumarkaðinn og vann hin ýmsu störf. M.a. starfaði hann í vélsmiðju Björns Magnússonar, í frystihúsinu Jökli, sem háseti á Helgunni og Hörpunni, hjá Sand- blæstri & málmhúðun á Akureyri og hjá BG þjónustu. Haukur var afburðahandlaginn og lék allt í höndum hans. Haukur verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Öllu er afmörkuð stund og sérhver hlutur undir himninum hefur sinn tíma. Í önnum hins daglega lífs er hugsunin um dauðann oftast fjarlæg og því vorum við með öllu óviðbúnar þegar fregnin af andláti Hauks bróð- ur okkar barst hinn 6. apríl sl. en hann hafði orðið bráðkvaddur á heimili sínu. Í hugum okkar yngstu systra Hauks sem við kveðjum nú var Suð- urgata 16 nokkurs konar félagsmið- stöð þegar hann réði ríkjum í stóra hornherberginu í kjallaranum. Bæði vorum við systkinin mörg og margir félagar fylgdu. Haukur hafði komið sér upp stóru plötusafni með vinsæl- ustu tónlistarmönnum þess tíma, s.s. Little Richard, Chuck Berry, Fats Domino, Bill Haley, Elvis Presley o.fl. Mest var fjörið þegar Haukur stillti hátölurunum út í glugga og tónlistin glumdi um nágrennið. Það var aðdá- unarvert hve vel hann hugsaði um plöturnar sínar því þar var allt í röð og reglu og helstu upplýsingar skráð- ar. Einnig voru myndir af frægustu stjörnunum málaðar á veggina. Þeir ágætu eiginleikar sem Haukur bjó yfir nýttust honum vel við þau störf sem hann tók að sér á lífsleið- inni. Hann var mikill hagleiksmaður og vandvirkur og sérstaklega þótti hann laginn við sandblástur en við það vann hann lengi, fyrst hjá Birni Magnússyni í Keflavík og síðar hjá Sandblæstri og málmhúðun á Akur- eyri. Hann var ávallt vel liðinn af sam- starfsmönnum sínum og eftirsóttur starfskraftur. Haukur kvæntist Anneyju Ölfu Jó- hannesdóttur 1981 og saman eignuð- ust þau þrjú börn, Jónu Margréti, Öldu Ósk og Einar Hauk. Haukur og Anney skildu. Hauki var alla tíð mjög annt um börn sín og áttu þau alltaf stærstan sess í lífi hans. Þar sem þau voru þar vildi hann vera. Hann var frekar dulur maður og kunni ekki sem best við sig í margmenni en naut sín vel með sínum nánustu. Frænd- semi hans var viðbrugðið og það voru ófáar ferðirnar suður til Keflavíkur og þá var gjarnan komið við í Vog- unum og í Sandgerði til að heilsa upp á skyldfólk þar. Við þökkum bróður okkar samfylgdina og vottum börnum hans og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Guðrún og Brynja. Ég held að engu okkar hafi dottið í hug á sl. Þorláksmessu að við ættum eftir að kveðja Hauk svo fljótt, þegar við sátum og kýldum okkur út af hinni gómsætu skötu. En skyndilega var kallið komið og Haukur horfinn á vit annarrar víddar eða yfir móðuna miklu. Ég kynntist honum fyrir tíu árum þegar ég giftist yngsta bróðurnum og hann góðfúslega rétti okkur stóra hjálparhönd á fyrstu árum okkar. Haukur hafði kraftmikla rödd og naut þess að segja frá ýmsum uppá- komum og atvikum úr daglega lífinu og gerði það á lifandi hátt, svo að ég tali nú ekki um þegar talið barst að bílum. Þar var hann fróður og vel heima og hægt að spyrja hann frá a til ö. Hann skóf ekki af því ef honum fannst eitthvað vera athugavert og var einlægur og hreinn og beinn í samskiptum. Þær urðu ófáar stundirnar við spjall og frásagnir yfir kaffibollanum þegar hann skaust hingað á Suður- nesin til að heimsækja fjölskyldumeð- limi og uppeldisstöðvar en þennan tíma sem ég þekkti hann bjó hann á höfuðborgarsvæðinu. Þorláksmessuskatan er fastur liður og munum við sakna hans mjög í næstu skötu. Þegar persónur eins og Haukur, sem hafði mjög sterka útgeislun, kveðja þá kemur tóm og skarð sem ekki verður fyllt en við höfum margar góðar minningar til að varðveita um góðan mann sem lagði rækt við sína nánustu. Það síðasta sem ég ræddi við hann var þegar hann var að fara úr skötu- veislunni og ég minnti hann á að hann þyrfti að koma oftar en á sl. ári. Kæri mágur, ég ætla að þakka þér fyrir alla hjálpina og samverustund- irnar á liðnum árum og megir þú hvíla í friði. Börnum hans þremur vottum við okkar innilegustu samúð svo og systkinum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Hér er viðbótarkveðja til þín kæri bróðir, Minnstu þess þegar storminn þú færð í fang og fárviðrið æðir og hvín, senn mun lægja á ný verður létt um gang og þér ljósið í myrkrinu skín. Gakk áfram þinn veg mót veðri og nauð þína von þú rætast sérð í krafti trúar átt þú auð þú ert aldrei einn á ferð þú ert aldrei einn á ferð. (Þýð. Jón Þ. Björnsson.) Erla Melsteð og Árni Árnason. Það er stutt bilið milli lífs og dauða. Á einu andartaki fækkaði um einn í hópi okkar systkina. Haukur bróðir fallinn frá öllum að óvörum. Á mið- vikudag að versla í Nettó – á sunnu- dag nár. Haukur var sem ungur maður afar flinkur teiknari. Mér er minnisstæð mynd sem hann teiknaði og málaði á einn vegginn í herberginu sínu. Var hún af idolinu hans Little Richard og það í fullri líkamsstærð. Hann var af- ar handlaginn og fannst lítið mál að taka í sundur og setja saman heilu bíl- ana. Það virtist allt leika í höndum hans. Hvort var að sprauta bíla, sand- blása gler eða sjóða járn – allt var sem leikur. Í mörg ár vann Haukur í Vél- smiðju Björns Magnússonar í Kefla- vík og milli hans og fjölskyldu Björns ríkti mikil vinátta. Haukur fór til sjós var háseti á Helgu RE 49 og Hörpu RE 342 og þótti góður sjómaður. Það var sama við hvað hann vann hann var alls staðar vel liðinn og þótti góður verkmaður. Ungur glímdi Haukur við Bakkus og hafði betur. Felldi hann Bakkus á hælkrók á báðum. Haukur var um fertugt þegar hann kvæntist og eign- aðist börn. Börnin urðu þrjú, Jóna Margrét, Alda Ósk og Einar Haukur og eru barnabörnin orðin sjö. Þegar hjónin skildu og eiginkonan fyrrver- andi flutti norður í land tók Haukur sig einnig upp og flutti til Akureyrar til að geta verið nálægt börnunum. Þar fékk hann vinnu hjá Sandblæstri & málmhúðun og starfaði þar tæpa tvo áratugi, þá ákvað hann að flytja aftur suður. Í Reykjavík hóf hann störf við hreingerningar sem hann vann við allt þar til hann hætti störf- um sjötugur. Haukur minn var ekki mikið fyrir margmenni. En glaður og reifur með vinum og vandamönnum. Haukur og Búdda voru mjög náin systkin og heimsótti hann hana oft. Var þá oftar en ekki ekið suður í Sandgerði og rifj- aðar upp æskuminningar. Þar var hugur hans og hjarta. Síðustu ár leigði Haukur hjá þeim hjónum Jóhönnu og Ingþóri. Með þeim tókst góð vinátta og reyndust þau hjón honum vel. Þeim eru hér færðar kærar þakkir. Þá á ég ekki annað eftir en að þakka bróður mínum samfylgdina og óska honum góðrar heimkomu. Guðný Helga Árnadóttir. Sérstæðri lífssögu er lokið. Bar- áttusögu karlmanns sem leitaði réttar síns að hafa börnin sín hjá sér, manns sem háði baráttu við misvitrar barna- verndarnefndir og ráðherra sem ekk- ert gat gert. Hve mörg eru dæmin um mistök lögskipaðra nefnda og ráðamanna í ís- lensku þjófélagi sem meðhöndlað hafa barnfaðernismál af ótrúlegu skilningsleysi og lítt lærðri kunnáttu? Vonandi eru þessi mál í betri farvegi í upphafi 21. aldar. Kynni okkar Hauks hófust er und- irritaður kvæntist systur hans Guð- nýju Helgu árið 1957. Fyrstu sam- fundir okkar voru að vísu ekki skemmtilegir, en eftir að við kynnt- umst betur varð með okkur góð vin- átta. Eftir að bölmóði áfengisneyslunnar lauk var hann ábyrgur fjölskyldu- maður og faðir sem lét sér annt um börn sín. Enginn ræður í hug annarra. Haukur var dulur og flíkaði ekki til- finningum sínum. Segja má að með árunum hafi hann og verið einfari. Þegar hamingjan virtist blasa við og til sólar sást reið yfir þrumuský er byrgði fyrir sólu. Fjölskyldulífið var fyrir bí. Haukur var nýkominn til Reykja- víkur eftir að hafa dvalið með börnum sínum og barnabörnum á Akureyri og í Eyjafjarðarsveit, en þar eyddi hann með þeim páskahátíðinni. Hann bjó sín síðustu ár í einni af fegurstu götu höfuðborgarinnar – Stuðlaseli. Þar undi hann hag sínum vel í skjóli og vináttu sona hjóna er leigðu honum góða íbúð í húsi sínu. Á þeim degi er ég skrifa þessi fá- tæklegu orð á tölvuna í Stekkjargötu í Reykjanesbæ skín sól á blátærum himni og ég lít fjallahringinn allt frá Snæfellsjökli að Ljósufjöllum, svart Hafursfellið og til Skyrtunnu snæ- hvítrar, Fagraskógarfjall að Skarðs- heiði með Skessuhornið tignarlegt, Hafnarfjall og Akrafjall, Esju, Kistu- fell og Skálfell, þá Vífilsfell, Bláföll, Trölladyngju og Keili, Löngufjöll, Svartsengi, Þorbjarnarfell og allt Stapafell er sífellt minnkar. Kæri Haukur, í þínum fjölmörgu ferðum með Búddu systur þinni að gröf föður ykkar í Hvalsneskirkju- garði, tel ég víst að ofantalin fjallasýn hafi blasað við. Megi hinn víðáttumikli og fagri fjallahringur fylgja þér, þó þú leggist nú í norðlenska mold. Af óviðráðanlegum ástæðum getur undirritaður ekki fylgt þér síðasta spölinn, en biður almættið að taka við – verkamanni sínum er var verður launa sinna. Höskuldur Goði. Haukur Hauksson ✝ Elskulegur sambýlismaður minn og faðir, GUNNAR STEFÁN ÁSGRÍMSSON, Eiðum, Grímsey, verður jarðsunginn frá Miðgarðakirkju laugardaginn 19. apríl kl. 13.30. Jóna Sigurborg Einarsdóttir, Einar Helgi Gunnarsson. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR frá Odda, Borgarfirði Eystri, Síðast til heimilis á hjúkrunarheimilinu Garðvangi, Garði, lést á hjúkrunarheimilinu Garðvangi mánudaginn 14. apríl. Jarðarförin auglýst síðar. Halldór Guðfinnsson, Sigríður Halldórsdóttir, Jón Hjálmarsson, Árni Þór Halldórsson, Jón Már Halldórsson, Kristín Jónsdóttir, Karl Vilhelm Halldórsson, Ásgerður Þorsteinsdóttir, Inga Dóra Halldórsdóttir, Örn Arnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, lang- amma og langalangamma, VILHELMÍNA ARNGRÍMSDÓTTIR, Hrafnistu, Hafnarfirði, áður til heimilis að Skúlaskeiði 18, sem lést þriðjudaginn 8. apríl, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði, föstudaginn 18. apríl kl. 11.00. Sigurfljóð Erlendsdóttir, Anna Erlendsdóttir, Kristján J. Ásgeirsson, Davíð V. Erlendsson, Vignir Erlendsson, Inga Áróra Guðjónsdóttir, Steinar R. Erlendsson, Dagrún Erla Ólafsdóttir, Arngrímur I. Erlendsson, Erla M. Erlendsdóttir, Ólafur Ö. Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og systir, GUÐRÚN EINARSDÓTTIR, áður til heimilis að Kleppsvegi 2, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð aðfaranótt mánudagsins 14. apríl. Útförin auglýst síðar. Sigrún Stefánsdóttir, Elís Örn Hinz, Arnar Hrafn Gylfason, Einar Theodór Hinz, Svava Storr. Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is . Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formál- anum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírn- arnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Ef mynd hefur birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd er ráðlegt að senda hana á mynda- móttöku: pix@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.