Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 35 Skógrækt Glæsilegt sérblað tileinkað skógrækt fylgir Morgunblaðinu fimmtudaginn 24. apríl. • Stærð skóglendis á Íslandi. • Útivistar og borgarskógrækt. • Svigrúm til skógræktar í þéttbýli. • Nýjar og gamlar trjátegundir. • Ráð og leiðbeiningar. og fjölmargt fleira. Meðal efnis er: • Nýjungar í skógræktarmálum. • Skemmtileg sýn á skógrækt og útivist í skógum. • Viðtöl við forstöðufólk í skógrækt á landsbyggðinni. • Yndisgróður, runnar og skjólbelti. Auglýsendur! Pantið fyrir klukkan 12, mánudaginn 21. apríl. Allar nánari uppl. veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is. Krossgáta Lárétt | 1 stór að flat- armáli, 8 tími, 9 reiður, 10 munir, 11 aflaga, 13 fífl, 15 draugs, 18 lægja, 21 glöð, 22 skjögra, 23 krossblómategund, 24 saurlífi. Lóðrétt | 2 óhóf, 3 stór sakka, 4 synja, 5 snaginn, 6 reykir, 7 vex, 12 ber, 14 hnöttur, 15 næðing, 16 þungbær reynsla, 17 sjó- fugl, 18 vísa, 19 beindu að, 20 tómt. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 SPRON, 4 herma, 7 tásan, 8 gömul, 9 díl, 11 stal, 13 brot, 14 jullu, 15 skrá, 17 roks, 20 emm, 22 Papey, 23 játar, 24 rorra, 25 rúman. Lóðrétt: 1 sætis, 2 rispa, 3 nánd, 4 hagl, 5 rúmar, 6 atlot, 10 íslam, 12 ljá, 13 bur, 15 súpur, 16 rípur, 18 ostum, 19 sárin, 20 eyða, 21 mjór. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Sannleikurinn hljómar vel. En í dag gerir lygin það líka. Það er kannski mikill munur á því sem er satt og því sem þú vilt að sé satt – en það hljómar mjög svipað. (20. apríl - 20. maí)  Naut Þig langar til að vera einn en þú eignast aðdáendur ef þú ferð út á meðal fólks. Það er gaman að pæla í fólkinu sem fellur fyrir þér þegar þér gæti ekki verið meira sama. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Það var mikill þrýstingur á þér en hann er núna búinn. Þú áttir að muna hluti sem þú hafðir ekki hundsvit á. Ekki vera svekktur ef þér tókst illa upp. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Væntir einhver viðurkenningar frá þér? Stöðvar þig eitthvað sem má auð- veldlega ýta til hliðar? Hvernig væri þá að veita viðurkenninguna og hjálpa þessari manneskju tilfinnanlega? (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Þegar þú ert öruggur með sjálfan þig, gleymirðu að biðja um hjálp. Pældu í hversu miklu sterkari þú yrðir með fleiri þér við hlið á leið til fyrirheitna landsins. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Þú tekur ábyrgðarhlutverk þín al- varlega. Svo þau gangi ekki of nærri þér, gætirðu nálgast þau með húmor, samúð, áhuga og hugmyndaflugi. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Stjörnurnar koma á töfrasambandi. Missætti gufar upp þegar þið eignist sam- eiginlegt áhugamál. Ekki keppa. Nú er þörf á bandamanni, ekki andstæðingi. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Aðeins meiri athygli getur hjálpað manni mikið – ekki síst ef hún kemur frá manni sjálfum. Þú þarfnast ástar og hvatningar. Peningamálin gætu skánað. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Ef þú finnur fyrir öfund út í það sem félagarnir taka sér fyrir hendur, er það kannski bara gott. Öfundin sýnir manni hvað maður vill virkilega í lífinu. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Breyting á útliti þínu end- urspeglar innri breytingar sem hafa orðið á þér nýlega. Þáðu boð. Þú munt hitta ein- hvern sem getur hjálpað þér varðandi vinnu. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Gerðu upp hug þinn. Og svo aftur. Margar skjótar og góðar ákvarð- anir borga sig skjótar og betur en þú von- aðir. Einhleypir eru heppnir – þegar kem- ur að vog. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Þú skalt krefjast heiðarleika af þeim sem finnst gaman að leika sér. Því fylgir heppni að spyrja hrút ráða. Hann gæti orðið góður kennari eða elskhugi. stjörnuspá Holiday Mathis 1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6 5. Be3 Rge7 6. Bd3 cxd4 7. cxd4 Db6 8. Dd2 Rb4 9. Be2 Rf5 10. Rf3 Bd7 11. Rc3 Be7 12. O–O Rxe3 13. fxe3 O–O 14. a3 Ra6 15. b4 Rc7 16. Hab1 Bb5 17. Rxb5 Rxb5 18. Dd3 a6 19. Hfc1 Hac8 20. a4 Ra7 21. b5 axb5 22. axb5 h6 23. Db3 f5 24. Ha1 g5 25. Da4 g4 26. Hxc8 Rxc8 27. Rd2 Dc7 28. Db3 Rb6 29. Dd3 Bg5 30. g3 Kg7 31. Kf2 Hc8 32. Ha7 h5 33. Da3 Be7 34. Da2 h4 35. Rb3 hxg3+ 36. hxg3 Hh8 37. Ra5 Dc1 38. Bf1 Hh2+ 39. Bg2 Bb4 40. De2 Dh1 41. Df1 Staðan kom upp í fyrri hluta Íslands- móts skákfélaga sem fram fór haustið 2007. Hörður Garðarson (1845)hafði svart gegn Pálmari Breiðfjörð (1775). 41… Hxg2+! 42. Dxg2 De1 mát. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is Svartur á leik Mismunandi hugarfar. Norður ♠K765 ♥D106 ♦107 ♣DG75 Vestur Austur ♠982 ♠104 ♥9542 ♥7 ♦4 ♦KDG9862 ♣K9842 ♣1063 Suður ♠ÁDG3 ♥ÁKG83 ♦Á53 ♣Á Suður spilar 7♠. Það veltur meira á hugarfari en kerfi hvernig menn meðhöndla spil suðurs. Hinir værukæru opna á 1♥ og vona að makker eigi fyrir svari, þeir sómakæru axla ábyrgðina með sterku laufi eða tveimur. Spilið er frá Íslandsmótinu og í hvorri byrjun sem varð fyrir valinu setti austur gjarnan mark sitt á sagnir með tígulhindrun. Slík afskipti ættu að daga úr ákafa suðurs, en ekki létu allir segjast. Er einhver möguleiki í 7♠? Eðlilegast er að taka þrisvar spaða og trompsvína fyrir ♣K í austur. Ekki gengur það í þessari legu en hins vegar er til vinningsleið. Sagnhafi tekur bara tvisvar tromp, spilar svo hjarta fjórum sinnum og hendir tígli í borði. Hann á þá samgang til að trompa tvo tígla. Þetta er glannaleg leið en ekki alvit- laus eftir tígulhindrun austurs. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is 1 Berlusconi verður næsti forsætisráðherra Ítalíu enhann er umsvifamikill á öðru sviði. Hvaða? 2 Fríblað í eigu Baugs í Boston í Bandaríkjunum hefurhætt útkomu. Hvað heitir það? 3 Rúmenía hefur fengið nýjan ræðismann hér á landi.Hver er hann? 4 Talsvert öflugt bókaforlag er rekið á Akranesi. Hvaðheitir það? Svör við spurningum gærdagsins: 1. Maður fórst í eldsvoða um helgina. Hvar á landinu? Svar: Blönduósi. 2. Hver er nýbakaður Íslandsmeistari karla í kletta- klifri og hver í flokki kvenna fullorðinna? Svar: Kristján Þór Björns- son og Katrín Hrund Eyþórsdóttir. 3. Hver er tekin við formennsku í Framtíðarlandinu? Svar: Hrund Skarphéðinsdóttir. 4. Miklar bið- raðir mynduðust í einni Bónus-versluninni í borginni vegna til- boða. Hverri? Svar: Faxafeni. Spurter… ritstjorn@mbl.is Morgunblaðið/Jón Sigurðsson dagbók|dægradvöl Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.