Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 25 „Megum við koma inn og fá Guðs orð og bæn?“ Það var auðsótt og síðan var þeim boðið að matarborðinu. Þórarin langaði mjög að lifa 85. af- mælisdag sinn 16. mars, sem nú bar upp á pálmasunnudag. Honum veittist það, þó að lífskraftar hans væru að þverra út. Hann gladdist yfir því, að þessa sömu helgi hélt dóttursonur hans Þórarinn einsöngstónleika á Gimli og í Winnipeg líkt og Hanna eig- inkona hans hafði gert rúmri hálfri öld áður. Afmælisdagur Þórarins kallast einnig Gvendardagur, sem var dánar- dægur Guðmundar góða Arasonar biskups árið 1237. Hann var vinsæll meðal alþýðunnar og góðmennska hans sögð einstök. Góðmennska Þórarins var einnig einstök. Æskuvinkonan hafði svo sannarlega rétt fyrir sér. Hið góða hjartalag hans var svo sannarlega gulls ígildi. Þegar ég kom að sjúkrabeði Þór- arins fann ég fyrir sérstakri nærveru Guðs, djúpstæðum heilags anda friði, sem heimurinn þekkir ekki, en Jesús einn getur gefið. Sérstakt var að sjá hvernig trúarstyrkur Þórarins óx í hans mikla veikleika. Hann skyldi allt- af eiga kraft til bæna, þó að annars gæti hann vart tjáð sig í orðum. Hann sagði líka nær alltaf að sér liði vel. Þórarinn hélt trúarstyrk sínum, ljúflyndi og góðlátlegri kímnigáfu til hinstu stundar. Hann var mikill föð- urlandsvinur og íslenskumaður. Síð- asta kveðjan hans til mín var því nokk- uð sérstök, en hann sagði lágt með bros á vör og góðlátlegum glettnisfull- um augunum: „See you later“. Ég bið þess, að Guðs miskunn og náð megi leiða til þess að eilífðarvonin bjargfasta, sem Þórarinn átti, megi einnig vera okkar og að við megum fullna skeiðið líkt og hann gerði. „See you later“. Í Guðs friði og Jesú nafni. Drottinn gaf. Drottinn tók. Lofað veri nafn Drottins. Ólafur Óskar Jakobsson. Að eiga góðan afa, eru dýrmæt for- réttindi. Í gegnum tíðina hefur fólk minnt mig á hvað ég sé heppin að ég eigi ekta afa. Hvað áttu þau við með því, jú það er ekki sjálfsagður hlutur að eiga afa sem kemur beint upp úr uppskriftinni að fyrirmyndarafanum. Þann afa átti ég. Hann var einstakur maður, sem var alltaf í góðu skapi með bros á vör. Vildi alltaf halda friðinn og ég sá hann aldrei rífast við nokkurn mann. Hann hélt í gleðina og kenndi manni jákvæðni og létta lund. Afi minn var einskonar lærifaðir okkar allra, hann var tvímælalaust höfuð fjölskyldunnar. Móðir mín er eina barnið hans og afi bjó í sömu götu og við, hann var einn af okkur, átti mjög stóran þátt í að móta lífsskoðanir manns og ala okkur systkinin upp. Á ensku þegar sagt er afi er notað orðið „grandfather“ sem útleggst á ís- lensku hinn mikli faðir. Þannig var hann afi, hann var stóri mikli pabbinn okkar, sem viskan kom frá og maður leit alltaf upp til. Afi minn var líka alveg einstaklega barngóður og alltaf til í að leika við mann. Hann smíðaði með okkur dót og ef við áttum ekki einhver leikföng þá bjó hann þau til. Afi gat lagað ónýta barbie-kalla, búið til barbie- bíla, hermannahatta og allskyns dót, svo leyfði hann okkur líka að smíða með sér. Hann gat hermt eftir og leik- ið öll dýrin, fór með okkur í hina ýmsu leiki og átti alltaf góðar sögur að segja. Ég eyddi öllum stundum með ömmu og afa og gisti oft hjá þeim. Amma og afi komu líka með allar há- tíðir með sér, jólin fyrir mér komu þegar þau gengu inn um dyrnar. Þau vógu hvort annað svo skemmtilega upp, hún svo ör og hress, algert fiðr- ildi en hann alltaf svo rólyndur og ótrúlega geðgóður. Þau voru mjög samstillt í öllu sem þau gerðu og maður sá alltaf hvað þau voru hamingjusöm og ástfangin. Amma sagði líka öllum þeim er heyra vildu að hún ætti besta mann í heimi. Afi minn hafði alltaf trú á mér, það er honum að þakka að ég dreif mig aftur í píanónám og að mörgu leyti honum að þakka að ég sem ennþá ljóð. Hann vildi alltaf hlusta og það var svo gam- an að vita að maður gæti gert eitthvað til að gleðja hann. Ég á margar ótrú- lega dýrmætar minningar um mann sem var alltaf í mínum augum besti maður í heimi. Það var sárt að horfa á hann veikan í sjúkrarúmi síðustu mánuði. Hann rétt lifði 85 ára afmælið sitt og dó daginn eftir að hann átti 60 ára trúlofunarafmæli. Þau voru nefni- lega svo miklir húmoristar að þau trú- lofuðu sig 1. apríl. Það er ótrúlega gott að eiga þá von að afi sé á himnum hjá Guði og ömmu og ég mun halda í þá trú. Hann fékk frið í sál sína og lík- amlegar þjáningar hans eru á enda. Ég veit að þetta var besta lausnin en þó er sárt að horfa upp á stólinn hans við borðið alltaf auðan og tómlegt að koma í húsið hans. Það er skrýtið að eiga ekki eftir að sjá breiða brosið hans meira í þessu lífi. Ég held í þá von að við hittumst á ný. Ég er ótrú- lega þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk að eiga með afa mínum. Æskan mín og öll ferðalögin með afa síðustu ár geyma dýrmætar minningar. Guð blessi minningu elsku afa Þóra. Hanna Lísa. Afi Þóri var ekki maður sem vílaði hlutina fyrir sér. Þegar hann var staddur á samkomu austur í Kirkju- lækjarkoti í Fljótshlíð og predikarinn hafði eftir Jesú Kristi í Biblíunni að hver sem væri ekki með Jesú væri á móti honum, þá var afi fljótur að ákveða sig. Drottinn allsherjar fengi stjórnina, umyrðalaust. Svo vildi hann bara fara í næsta læk og taka skírn. Afgreitt mál. Skírnin fór reyndar fram daginn eftir, en þetta lýsti honum vel. Hann vildi klára allt strax og ekki bíða eftir neinu. Enda ekki eftir neinu að bíða. Það er þessi eiginleiki sem ein- kenndi hann. Það var ekkert „við skulum bíða og sjá“, það var bara framkvæmt. Eitt sinn stóðu þau hjón frammi fyrir hvort ætti að kaupa bíl eða ekki. Engir peningar til. Spyrjum Drottin. Þá var dregið orð úr Biblí- unni, og upp kom 2. Korintubréf, 6. kafli Á hagkvæmri tíð bænheyrði ég þig, og á hjálpræðisdegi hjálpaði ég þér. Nú er hag- kvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur. Þá var keyptur bíll og blessaðist það eins og svo margt annað í þeirra lífi. Þegar afi hlóð forláta arin úr fjörugrjóti heima hjá mömmu og pabba, þá var bara byrjað. Ég horfði agndofa á hann – „er það bara svona sem maður gerir þetta?“ sagði ég. Já, maður tekur þetta bara, einn stein í einu. Byrja bara. Svo er ekki hver sem er sem getur lifað af litlum lífeyr- issjóði, samt rekið einbýlishús, bíl, styrkt Ómega og alls konar happ- drætti og samt átt afgang. En þetta var afi. Nægjusamur og gaf alltaf af sér. Það var nóg fyrir hann að fara út í garð og hlaða útiarin úr gömlum vikri úr rauðamöl frá JL og brenna svo nokkrar greinar í arninum. Eins og hellisbúarnir gerðu á sínum tíma. Hann þurfti ekki meir. Afi kallaði vinnuna leik. Hann var alltaf að leika sér. Einu sinni byggðum við garðhús og útiarin í garðinum heima. Þá sagði hann að við værum að byggja fallegt úr ljótu. Í leiðinni sagði hann mér frá Alvar Aalto og fleiri snillingum, og sagði að ég gæti náð alveg jafnlangt og þeir. Þyrfti bara að trúa á sjálfan mig og framkvæma. Hann sagði mér einnig frá fleiri snillingum eins og Halldóri Laxness og forfeðrum mínum, Einari í Nesi og Þorleifi ríka. Meðan afi vann við bygg- inguna og fræddi mig um þessa menn, varð ég vitni að sömu eiginleikum í afa og þeim sem komu þessum mönnum áfram, hugviti og metnaði. Afi fann alltaf leið. Ef eitthvað var bilað, þá var það bara lagað. Tekinn upp vasahnífur og málið dautt. Á spítalanum var afi alltaf á leiðinni heim. Heim í húsið sitt. Eins og örugglega allir hinir sem eru á sjúkra- húsi. En nú er hann kominn heim til Drottins. Þar sem samræmið og arki- tektúrinn og hleðslurnar og allt annað eru magnaðri en við getum ímyndað okkur. Enda erum við bara menn og geta okkar til að spá fyrir um annað en við þekkjum bundið við okkar reynsluheim. Hann er kominn á góðan stað. Guð blessi minningu afa Þóra og ömmu Hönnu. Ég þakka Guði fyrir þennan tíma sem ég fékk með þeim og að fá að vera vitni að þeim metnaði sem einkenndi þau. Sigurður Anton Ólafsson. „Engin ógæfa hendir þig og engin plága nálgast tjald þitt“. Þetta er ritn- ingarstaður úr Davíðssálmi 91 í heil- agri ritningu, sem afi hafði eitt sinn látið grafa í stein og blöstu þessi ritn- ingarorð ávallt við manni á arinhill- unni þegar í stofuna hjá honum var komið. Honum fannst þetta vera fyr- irheit fyrir sig og sína fjölskyldu enda má segja að afi hafi verið einstakur gæfunnar maður í þessu lífi. Ég var staddur í Montreal þegar mér bárust þær sorgarfréttir að elskulegur afi minn væri látinn. Minn- ingarnar um góðan mann flæddu um hugann. Mann sem hafði það að leið- arljósi að vera jákvæður og uppörv- andi persónuleiki. Hann hafði áhuga á sönglist og var mjög hvetjandi í að amma heitin, Hanna Bjarnadóttir, færi til söngnáms í Hollywood í byrj- un 6. áratugar síðustu aldar. Öllu var fórnað, íbúð var seld til þess að amma gæti látið drauminn rætast um að læra hjá einum af bestu kennurum sem völ var á þá. Afi var maður sem lét verkin tala og verklagni hans í múrverki ber þess merki í þeim fögru verkum sem hann skildi eftir sig. Ég minnist þess að þegar ég var fimm ára gamall hannaði hann sverð, skildi og húfur til að gleðja okkur bræðurna. Hann hafði gaman af að leika við börn og var hann einstaklega hæfileikarík- ur í að herma eftir hinum ýmsu dýr- um, allt í raun til að vekja undrun og gleði hjá okkur barnabörnunum. Mannkostir hans voru ótvíræðir og var hann alltaf einstaklega hvetjandi og hlýr persónuleiki sem einatt sá það jákvæða í margbreytilegum kringum- stæðum lífsins. Í huga mér koma orð Páls postula í 5. kafla Galatabréfsins sem hljóða þannig: „En ávöxtur andans er: Kær- leiki, gleði, friður, langlyndi, gæska, góðvild, trúmennska, hógværð og bindindi.“ Afi hafði í raun alla þessa kosti til að bera. Ég náði einnig að vinna með honum á sumrin þegar ég var unglingur og sá ég þá enn frekar hversu yfirvegaður og úrræðagóður hann var. Hann hafði gott lag á að tala við fólk og var honum alls staðar vel tekið. Afi hafði mikinn áhuga á klassísk- um söng og fékk ég einatt hvatningu frá honum í því sem ég var að vinna að í söngnum. Hann studdi vel við bakið á mér á ýmsan hátt og var stoltur þeg- ar ég gat sýnt honum afrakstur af því sem ég hafði verið að vinna að. Ég hafði einstaklega gaman af því að fá tækifæri til að sýna honum töfra Ítalíu þegar hann kom þangað sum- arið 2004. Honum fannst það áhrifa- mikið að sjá merkustu staði Rómar, Feneyja, Písa og að fara á óperuna Aidu í hringleikahúsinu í Veróna. Komið er að kveðjustund þar sem far- sælli ferð afa á þessari jörð er lokið. Það er því mikið tómarúm í hjarta mínu nú þegar hann er farinn og rödd hans hljóðnuð. En minningarnar um einstakan mann munu lifa innra með mér um ókomna tíð. Að lokum vil ég kveðja afa með orð- um sem mér finnst lýsa lífsviðhorfi hans og því sem hann stóð fyrir. Þessi ritningarstaður er úr 37. sálmi Davíðs. „Fel Drottni vegu þína og treyst hon- um, hann mun vel fyrir sjá“. Guð blessi minningu þína elsku afi, Þórarinn Jóhannes Ólafsson.  Fleiri minningargreinar um Þór- arin Jónsson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. strax miklir mátar og ósjaldan sem þið rædduð um ykkar uppáhald, ís, enda bæði sérfræðingar í heimatil- búnum ís, það var auðvelt að gleðja þig ef komið var í heimsókn með ís í poka. Minningarnar eru svo góðar af okkar samverustundum og eina þeirra áttum við fyrir nokkrum dög- um, mamma hringdi og sagði að nú væri kallið komið og þú ættir ekki nema nokkrar klukkustundir eftir. Ég mælti mér mót við mömmu og við strukum þér og héldum í höndina þína góða stund meðan þú svafst, þú hélst þéttingsfast eins og þú gerðir alla tíð, ótrúlegur kraftur. Þegar síðan var komið með ís til þín þá hresstist þú heldur betur. Þú settist upp, lagaðir þig til og lékst síðan á als oddi þennan tíma sem ég dvaldi hjá þér. Þetta var ómetanleg stund að sjá að þú varst ekki þjáð þrátt fyrir mikil veikindi. Þú söngst, fórst með vísur og rifjaðir upp gamlar minningar og talaðir um hvað væri gaman, við mamma hlógum stanslaust með tárin í augunum, þú stríddir mömmu og hlóst mikið. Þegar ég var að fara þá reistir þú þig upp og breiddir út faðminn þú vildir fá faðm- lag. Takk fyrir þetta mikilvæga kveð- jufaðmlag. Þú varst tilbúin að kveðja og ég veit að nú hefur þú öðlast hvíld. Þú varst ótrúlega kona, svo sterk, já- kvæð, glöð, hæfileikarík, prakkari, ung í hjarta og umfram allt með stórt hjarta. Guð geymi þig, amma prakkari, og takk fyrir allt. Þín Elín. Elsku besta amma mín, þetta er erfið stund hjá mér að vera að skrifa minningargrein um þig. Samt er það léttir að vita að þú sért komin við hlið afa aftur. Ég á margar margar góðar og yndislegar minningar um þig og okkur saman. Mínar bestu æsku- minningar eru þegar við vorum ásamt afa og Ástrúnu frænku uppi á Apa- vatni, það voru sko ófáar stundirnar sem við áttum þar saman. Og svo þeg- ar leið að jólum beið maður spenntur eftir að þú færir að baka piparkökur sem við máluðum og borðuðum svo með bestu lyst. Hafðu hjartans þakk- ir fyrir og allt sem þú gerðir fyrir mig, elsku amma mín. Amma, góða nótt! Þitt barnabarn, Ástríður Linda. Hinn 5. apríl sl. lést móðursystir mín Ástríður Hafliðadóttur. Lauk þá farsælli ævi hennar. Síðustu æviárin glímdi hún við illvígan sjúkdóm sem svipti hana raunveruleikaskyninu. Sjúkdómurinn svipti hana þó ekki glaðværðinni sem var einkenni henn- ar alla tíð. Ásta var fædd og uppalin í Reykja- vík. Ólst hún upp á heimili foreldra sinna, Hafliða Baldvinssonar fisksala og Jóneu H. Fríðsteinsdóttur, að Hverfisgötu 123. Naut hún öryggis og elsku í uppvextinum ásamt systkinum sínum Hákoni, Halldóru og Helga, en þau eru öll látin. Var samband systk- inanna alla tíð gott en einkanlega tengdust systurnar sterkum böndum. Hinn 12. maí 1945 giftist Ásta Ágústi Guðmundssyni slökkviliðs- manni en hann lést árið 2004. Ágúst var ættaður frá Efra-Apavatni í Laugardal. Foreldrar mínir, Halldóra og Jón Sveinsson, gengu í hjónaband sama dag. Var haldið veglegt systra- brúðkaup sem löngum var í minnum haft og jafnan haldið upp á daginn með pomp og prakt. Ásta og Ágúst bjuggu lengst af á Rauðalæknum. Stóðu þau alla tíð vel saman og hlúðu vel að fjölskyldunni. Þau eignuðust fjögur mannvænleg börn: Jónu, Hafdísi, Guðmund Karl og Ástrúnu. Þeim náði ég að kynnast mjög vel vegna þess hve mæður okk- ar voru nánar. Hafa þau alla tíð reynst mér eins og bestu systkini sem hefur verið mér, einkabarninu, afar dýrmætt. Ásta var einstaklega myndarleg húsmóðir og lipur var hún við sauma- skapinn. Hún var ákaflega gestrisin. Gestum var ævinlega tekið opnum örmun og ekkert til sparað. Hún var gamansöm, glöð og hress og gat verið stríðnispúki þegar svo bar undir. Allt- af fór maður glaður af hennar fundi. Hún var félagslynd og hafði ánægju af samskiptum við fólk. Það kom greinilega í ljós á síðari hluta ævinnar þegar börnin voru löngu uppkomin og hún tók sig til og fór að vinna utan heimilis. Starfaði hún m.a. um tíma við verslunarstörf hjá Hagkaupum við Laugaveg og síðar við þjónustu- störf hjá Sjálfsbjörg við Hátún. Leyndi sér ekki hvað hún naut þess að sinna þessum störfum sínum og vera í samvistum við annað fólk. Eins og gengur og gerist fluttu börnin að heiman og stofnuðu sínar eigin fjölskyldur og eru afkomend- urnir orðnir margir. Það var alltaf mikið fjör hjá Ástu og Gústa í hangi- kjötinu á jóladag. Þá var borðað, hleg- ið og farið í leiki. Í sumarbústaðnum við Apavatn var alltaf sól í minning- unni og gaman að dveljast þar. Ásta að vinna í garðinum og hella upp á könnuna og krakkaskarinn úti að leika sér. Í nokkur ár hittumst við Ásta, og fleiri hressar konur, á morgnana í sundlaugunum í Laugar- dal. Eru það eftirminnilegar stundir enda var oft glatt á hjalla. Ásta var systur sinni einstaklega góð þegar hún missti mann sinn og stóð eins og stólpi við hlið hennar. Sama var þegar móðir mín dó. Þá sýndi Ásta mér einstakan stuðning og umhyggju. Það eru auðvitað óteljandi minningar sem koma upp í hugann við fráfall Ástu sem verða ekki raktar frekar hér. Ég vil með þessum fátæk- legu orðum þakka elsku Ástu minni samfylgdina öll þessi ár og umhyggju hennar í minn garð. Guð blessi minningu hennar. Kristjana Jónsdóttir. Kær svilkona og vinkona mín er látin. Við gengum í hjónaband báðar ungar með bræðrum frá Efra-Apa- vatni, Ásta giftist Ágústi (Gústa), ég giftist Þorsteini (Steina). Ásta var yndisleg kona, myndarleg húsmóðir, falleg og alltaf hress og kát. Við áttum margar samverustundir í skemmtun og leik þegar við vorum ungar. Við fórum oft út að skemmta okkur og nutum þess að vera saman. Ásta og Gústi eignuðust fjögur börn, öll ynd- islegt fólk, sem öll hafa stofnað fjöl- skyldu. Efra-Apavatn kom mikið við sögu í lífi okkar Ástu, þangað var farið í öll- um sumarfríum og um helgar. Tengdaforeldrar okkar voru dásam- leg, þau voru bændur á sinni eignarjörð, Efra-Apavatni (vest- urbæ) í Laugardal, þau hétu Jónína Þorsteinsdóttir og Guðmundur Ás- mundsson. Þau eignuðust sjö börn, tvær dætur og fimm syni, stórmynd- arlegt fólk. Jónína var stórkostleg húsmóðir, skemmtileg og góð. Guð- mundur spilaði á orgel sem hann hafði lært ungur og var organisti í Mos- fellskirkju og við sáum stundum á eft- ir honum þeysast á hesti sínum yfir holt og hæðir til kirkju á sunnudög- um. Það var alltaf orgel á heimilinu og mikið sungið. Systkinin flest byggðu sér sumarhús í Aphól. Gústi og Ásta byggðu fyrst hús við vatnið en við byggðum uppi í hólnum. Það voru lögð net í vatnið og vitjað um á hverjum morgni. Gústa og Steina þótti þetta hinn besta skemmtun og alltaf var komið við hjá Ástu og Gústa, drukkið kaffi og spjallað. Einnig fór- um við í heimsóknir hvert til annars, fengum okkur í glas og mikið var hlegið. Öll systkinin frá Apavatni sóttu mikið á æskustöðvarnar og þar var alltaf fullt hús af fólki, stórkost- legar móttökur og miklar veitingar. Ég vil þakka Ástu gömlu og góðu dag- ana og hvíldu í friði kæra vinkona. Kveðja, Elín Th. Björnsdóttir.                         

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.