Morgunblaðið - 16.04.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 17
LANDIÐ
Þorlákshöfn | „Lýsi harmar það
ástand sem skapast hefur um at-
vinnurekstur fyrirtækisins í Þorláks-
höfn þar sem íbúar hafa kvartað yfir
lyktarmengun frá fiskþurrkun þess,“
segir í yfirlýsingu frá Lýsi hf.
„Lýsi hefur í eitt og hálft ár verið
tilbúið með mengunarbúnað til að
setja við fiskþurrkunina en ekki feng-
ið leyfi frá bæjaryfirvöldum til að
setja hann upp. Erfitt er að draga
aðrar ályktanir af þessari synjun en
þær að bæjaryfirvöld vilji viðhalda
óánægju íbúa Þorlákshafnar með
starfsemi fiskþurrkunarinnar. Lýsi
setti búnað af þessari gerð upp við
lifrarbræðslu sem fyrirtækið á í Þor-
lákshöfn árið 2006. Hefur hann gefið
mjög góða raun. Fullyrða má því að
búnaðurinn sem Lýsi á tilbúinn muni
koma fyllilega til móts við þær kröfur
sem bæjarbúar gera. Í blaðaviðtölum
hefur forsvarsmaður undirskrifta-
söfnunar gegn fiskþurrkuninni haft
uppi gífuryrði um Lýsi sem eru
ósönn. Lögfræðingur félagsins kann-
ar nú réttarstöðu þess með málshöfð-
un í huga,“ segir í yfirlýsingu Lýsis.
527 íbúar í Þorlákshöfn, 18 ára og
eldri, skrifuðu sig á undirskriftalista
þar sem öllum hugmyndum um end-
urnýjun á starfsleyfi fyrir Lýsi hf. í
þorpinu vegna fiskþurrkunar er
harðlega mótmælt. Hefur listinn ver-
ið afhentur heilbrigðisyfirvöldum.
Búnaður til
mengunar-
varna
tilbúinn
Eftir Gunnlaug Árnason
Stykkishólmur | Það ríkti góður andi
á vorvöku Emblu í félagsheimilinu í
Stykkishólmi á laugardagskvöld.
Kvennaklúbburinn Embla heldur
menningarvöku á vori hverju með
vandaðri dagskrá. Að þessu sinni bar
dagskráin heitið: „Einu sinni var …
Tehús.“ Þar var horft á tímabilið um
og upp úr 1960 í bæjarsögu Stykk-
ishólms og þann svip sem Ágúst Sig-
urðsson setti á bæjarlífið á þessum
árum.
Ágúst kom ungur að árum frá námi
í Bandaríkjunum árið 1958. Þar birt-
ist honum nýr heimur og hann flutti
með sér heim nýjar hugmyndir sem
höfðu vakið athygli hans. Ein hug-
myndin var sú að stofna veitingastað
að amerískri fyrirmynd. Hann byggði
veitingastað sem fékk nafnið Tehúsið
þar sem boðið var upp á hamborgara
og slíkan matseðil höfðu Hólmarar
ekki séð áður. Tehúsið var á þessum
árum meira en matsölustaður. Te-
húsið varð miðstöð unglinganna í
bænum, þar áttu þeir athvarf til að
hittast og vera saman. Ágúst rak á
sama tíma bíóhús staðarins og
hleypti miklu lífi í skátastarf í bænum
svo að eftir var tekið. Hann hafði
mótandi áhrif á unglinga og þessir
unglingar eru nú orðnir fullorðnir og
minnast liðins tíma með þakklæti.
Dagskráin hjá Emblum var í máli
og myndum. Rakel Ólsen, eiginkona
Ágústs, flutti ávarp og sagði frá störf-
um Ágústs. Þórhildur Pálsdóttir
sagði frá starfi sínu í Tehúsinu. Hún
var fyrsta afgreiðslustúlkan þar og
rifjaði upp atburði sem eru henni
henni í fersku minni. Eyþór Bene-
diktsson rifjaði upp minningabrot frá
Tehúsárunum og fléttaði inn í sögu
sína um hvað lífið snerist í bæj-
arfélögum við sjávarsíðuna eins og
Stykkishólmi. Nemendur Grunnskól-
ans fluttu atriði úr sýningu sinni „Te-
húsið“ frá því í vetur þar sem fjallað
var um þátt Tehússins í bæjarlífinu
því þar var oft mikið um að vera og líf
og fjör.
Að lokum sýndi Rakel Ólsen
myndir úr ljósmyndasafni Ágústs
Sigurðssonar og nefndist sýningin
„Stykkishólmur og mannlífið fyrir
hálfri öld“.
Samkoman var vel sótt og þótti
gestum greinilega gaman að fá tæki-
færi til að rifja upp þennan merka
tíma og ýmis spaugileg atviki sem
greinilega lifa lengi.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Í Tehúsinu Nemendur Grunnskólans í Stykkishólmi sýndu atriði úr söngleik sínum, Tehúsinu, á vorvöku Emblu.
Minningar um Tehúsið á
dagskrá í Stykkishólmi
Eftir Jóhann Óla Hilmarsson
Stokkseyri | Gistiheimilið Kvöld-
stjarnan var opnað formlega á
Stokkseyri í síðustu viku. Þar með
er komið til móts við þá fjölmörgu
sem heimsækja þorpið árlega og
vilja staldra við eða eiga náðuga
daga á þessum sérstaka stað.
Tugir þúsunda ferðamanna
heimsækja Stokkseyri árlega. Þeir
koma til að fá sér humar á Fjöru-
borðinu, heimsækja Draugasetrið
eða Álfa- og Norðurljósasetrið,
róa á kajak, heimsækja Töfra-
garðinn, Veiðisafnið, Þuríðarbúð,
Rjómabúið á Baugsstöðum eða
skoða gallerí einhvers þeirra lista-
manna, sem búa á staðnum. Eyr-
arbakki er steinsnar frá, þar er
byggðasafn Árnesinga í Húsinu,
veitingahúsið Rauða húsið og rit-
höfundanýlenda, svo nokkuð sé
nefnt. Stærsta hraunfjara landsins
og friðland fugla við Ölfusá eru
meðal náttúruperla, sem margir
heimsækja.
Sárlega hefur vantað gistiað-
stöðu fyrir þá sem vilja staldra við
og eiga náðugan dag eða daga á
Eyrum. Magnús Sigurjónsson og
börn hans, sem reka gróðrarstöð-
ina Blóma, tóku sig til og end-
urbyggðu gamalt hús við stöðina
og settu upp gistiheimili. Það
stendur miðsvæðis á Stokkseyri,
við Stjörnusteina, og hlaut nafnið
Kvöldstjarnan. Hægt er að taka á
móti 10-12 gestum í gistingu og
jafnframt er tekið á móti hópum.
Á neðri hæð eru herbergi, en á
efri hæð er íbúð eða svíta með
stórum svölum. Af svölunum er
einstakt útsýni yfir byggðina á
Stokkseyri og stórkostleg fjalla-
sýn. Morgunverður er fram-
reiddur fyrir þá sem vilja.
Vefur Kvöldstjörnunnar er
kvoldstjarnan.com.
Morgunblaðið/Jóhann Óli Hilmarsson
Útsýni Margrét Magnúsdóttir á svölum Kvöldstjörnunnar, en útsýnið það-
an er einstakt. Stærsta hraunfjara landsins og friðland fugla við Ölfusá.
Gistiheimili opnað
á Stokkseyri
Gistihús Glæsilegt hús Kvöld-
stjörnunnar á Stokkseyri á vígslu-
daginn, 10. apríl.
AÐALFUNDUR TR
Aðalfundur Trésmiðafélags Reykjavíkur verður haldinn fimmtudaginn 17. apríl nk. kl. 18:00 í
Glaðheimum, félagsheimili Hestamannafélagsins Gusts við Álalind í Kópavogi.
Fundarefni:
1. Skýrsla stjórnar og starfsáætlun
2. Skýrslur fastanefnda
3. Reikningar félagsins og skýrsla endurskoðenda
4. Lagabreytingar (Ný lög)
5. Kosning um sameiningu Trésmiðafélags Reykjavíkur og Félags byggingamanna Eyjafirði
6. Ákvörðun um félagsgjald og mælingagjald.
7. Lýst kjöri stjórnar og trúnaðarmannaráðs
8. Kosning fastanefnda
9. Kosning fulltrúa á aðalfund Sameinaða lífeyrissjóðsins
10. Kosning fulltrúa á ársfund ASÍ
11. Önnur mál
Í fundarhléi verður boðið uppá kvöldverð.
Stjórn Trésmiðafélags Reykjavíkur
ATH. Tillögur að lagabreytingum liggja frammi á skrifstofu félagsins. Einnig er hægt að nálgast
þær á heimasíðu félagsins www.trnet.is