Morgunblaðið - 16.04.2008, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
! "##$
!"#$
%& !"#$
'("#$
) !"#$
*((+("#$
,#$(-(!#.*/0*
12
* ( !"#$
3 !4(/"#$
) +(0* "#$
*"#$
56 - 7 89 :9#$+$"#$
;-("#$
< "#$
=>"#$
*#
2"#$
*(2(
;
*(25
*
-5?
((
*/ !"#$
@ ;
12
* (2 !"#$
A"
:("#$
(!("#$
;//(/-(8&8("#$
B(* &8("#$
!
C
;* -( - , ("#$
,-!(8:"#$
" # $ %
&
B(8(!(
/(
(*+ 8D* /E
3 !*
7
F$>G$>H
FH$>>$>>G
II$>$HF
I$IG$>F$GG=
=$$IGH
I>$>$G
FIG$>=$HH
=$H$>G
I$GH=$
I$G$G=
=HI$FG$=
>H$>FI
$=>$=II
7
==$>>$
I$H=
7
7
$IG$FF
=>$=
7
II$H>$>I>
7
7
=$FI$
7
7
GJ=F
IJ>
J>I
>J>>
GJ
I=J
IJ
FI=J
IHJ>
HJ
J=
IJ=
J=H
HJ
J=>
>J>G
IIGJ
=HJ
=>>J
JGI
IJ
7
7
GJ
7
7
GJ
7
7
GJ
=J
JG
>JG
GJ
I=J
IJI
FIJ
IHJF
HJI
J=H
IJ=F
J
HJI
J=F
>JG
I>J
J
=GJ
JG=
J
JF
IJH
FJ
7
7
J
IJ
>J
:&* (
%(8(!
7
>
>
H
=
=
GH
=
=
G
IG
I
7
7
I
7
7
G
7
7
7
I
7
7
/
(/
%(8$%
8
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
$$IF
G$$IF
$$IF
$=$IF
F$I$IF
$$IF
>$I$IG
II$F$IG
$$IF
I$$IF
G$=$IF
LÝÐUR Guð-
mundsson, stjórn-
arformaður Ex-
ista, tók sæti í
stjórn Sampo Gro-
up á aðalfundi fé-
lagsins í Finnlandi
í gær. Á aðalfund-
inum var sam-
þykkt að greiða
hluthöfum arð
sem nemur um 694
milljónum evra, jafnvirði um 82,3
milljarða króna, fyrir árið 2007.
Exista er stærsti eigandi Sampo,
með um 20% hlut, og fær því um
139 milljónir evra í sinn hlut, jafn-
virði um 16,5 milljarða króna. Í til-
kynningu Exista segir að þetta sé
hæsta einstaka arðgreiðsla sem
greidd hafi verið íslenskum aðila til
þessa. Markaðsvirði Sampo Group
er nú um 1.250 milljarðar króna.
Lýður
Guðmundsson
Exista fær um
16,5 milljarða
Eftir Guðmund Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
HÖFUM við efni á því að hafa krónu,
höfum við efni á að hafa eigin gjald-
miðil fyrir 300 þúsund manns? Þetta
er dýrt og setur okkur í hættulega
stöðu gagnvart spákaupmönnum er-
lendis. Viljum við gera það? Höfum
við efni á því,“ spurði Björgólfur Thor
Björgólfsson, stjórnarformaður
Straums-Burðaráss Fjárfestingar-
banka, í samtali við Morgunblaðið eft-
ir aðalfund bankans sem fram fór í
gær.
Björgólfi Thor varð í ræðu sinni á
fundinum tíðrætt um gjaldeyrismálin
og aðspurður segir hann mikilvægt að
hér verði á einn eða annan hátt tekinn
upp einhver stöðugur gjaldmiðill. „Ég
er ekki að mæla með evru umfram
aðra. Ég er að benda á að það sé hægt
að skoða aðra möguleika, hvort sem
það er franki eða aðrar tengingar eða
fara í fastgengisstefnu þar sem mælt
er á móti evru. Þetta eru allt mögu-
leikar, ég er að skora á menn að hugsa
um eitthvað nýtt,“ segir Björgólfur
Thor.
Ennfremur kom hann í ræðu sinni
inn á skráningu hlutabréfa bankans í
evru og sagði það nauðsynlegt fyrir
framtíð bankans. Slíkt færði rekstr-
inum stöðugleika og væri mikilvægt
til þess að laða að erlenda fjárfesta,
sem væru bankanum mikilvægir.
Seðlabankinn hefði hikað við að veita
leyfi til slíks vegna skrifræðis og póli-
tískra ástæðna en auðveldlega mætti
færa rök fyrir því að hefðu bréfin ver-
ið skráð í evrum hefði það komið í veg
fyrir að verðmæti eignar hluthafa
bankans hafði rýrnað um 20% þegar
krónan féll. „Því er mjög erfitt að
kyngja,“ sagði Björgólfur Thor í ræðu
sinni en aðspurður segir hann að með
tíð og tíma komi sá möguleiki að skrá
bréf bankans erlendis til greina.
Í ræðu sinni fjallaði Björgólfur
Thor um þær breytingar sem orðið
hafa á Straumi á undanförnum árum
og sagði að miðað við þær hremm-
ingar sem íslensk fjárfestingarfélög,
líkt og Straumur var, hafa gengið í
gegnum væri ljóst að rekstur bank-
ans væri mun erfiðari ef ekki hefði
verið ráðist í þessar breytingar.
„Höfum við efni á
því að hafa krónu?“
Björgólfur Thor segir skráningu erlendis koma til greina
Morgunblaðið/Golli
Straumur Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður (t.v.) og
William Fall, forstjóri Straums, á aðalfundi bankans í gær.
Í HNOTSKURN
» Straumur er eini íslenskibankinn sem ekki hefur þurft
að horfa upp á alþjóðlega mats-
fyrirtækið Fitch Ratings lækka
lánshæfiseinkunn sína á und-
anförnum mánuðum.
» Straumur er með starfsemi ífimm löndum og hjá bank-
anum starfa nærri fimm hundruð
manns.
GANGI þjóðhagsspá fjármálaráðu-
neytisins eftir mun fasteignaverð
lækka að raungildi um 15% til ársins
2010, sem er umtalsvert minni lækk-
un en Seðlabankinn spáði í nýjustu
útgáfu Peningamála. Þar er gert ráð
fyrir 30% raunvirðislækkun fast-
eignaverðs til ársins 2010.
Er í spánni gert ráð fyrir að hag-
vöxtur á þessu ári verði 0,5%, 0,7%
samdráttur verði árið 2009 en 0,8%
hagvöxtur árið 2010. Þá er gert ráð
fyrir því að verðbólga minnki á tíma-
bilinu, verði 8,3% í ár, 3,9% árið 2009
og 2,5% árið 2010 og nái þar með
verðbólgumarkmiði Seðlabankans.
Aftur á móti er gert ráð fyrir
auknu atvinnuleysi næstu árin, að
það verði 2% í ár, nái hámarki árið
2009 í 3,9% og verði 3,5% árið 2010.
Í hagvaxtarspánni er gert ráð fyr-
ir því að einkaneysla minnki til muna
og er því til stuðnings bent á að
breytingar á einkaneyslu haldast
gjarnan í hendur við breytingar á
fasteignaverði. Þegar fasteignaverð
lækkar, eins og gert er ráð fyrir í
spánni, megi því ætla að einkaneysla
minnki sömuleiðis.
Viðskiptahalli fari minnkandi
Eins og áður segir spáir ráðuneyt-
ið því að hagvöxtur verði 0,5% á
þessu ári, m.a. vegna tæplega 70%
aukningar á útflutningi áls og
minnkandi innflutnings. Árið 2009
muni áðurnefndur samdráttur
einkaneyslu auk samdráttar í bygg-
ingariðnaði valda því að verg lands-
framleiðsla muni dragast saman. Ár-
ið 2010 er hins vegar gert ráð fyrir
því að einkaneysla taki við sér á ný
og muni, auk vaxandi fjármuna-
myndunar og bata í utanríkisvið-
skiptum, knýja 0,8% hagvöxt það ár.
Hvað varðar viðskiptahalla á spá-
tímabilinu er gert ráð fyrir að hann
verði um 13,2% af landsframleiðslu í
ár, en hann mældist 15,5% árið 2007.
Spáð er að hann muni minnka hratt á
næsta ári og mælast þá 7,7% og að
hann verði 6,6% árið 2010. Í fram-
reikningum fyrir árin 2011-2013 er
reiknað með 0,7% hagvexti að með-
altali, að verðbólga verði nálægt
verðbólgumarkmiði og að viðskipta-
hallinn nálgist 2,5% árið 2013.
Gert ráð fyrir 8,3% verðbólgu í ár
Breytingar á einkaneyslu haldast í hendur við breytingar á fasteignaverði
KHF KHH K K KI K= K K K> KG
=
I
L
' # &(
%
& &
)**+,-../
,* #***
/+
;(/
,
(-(* E :9-9*98
;(8
SAMRUNI bandarísku flugfélag-
anna Delta Air Lines og Northwest
Airlines er talinn geta komið af stað
fleiri sameiningum flugfélaga eða
frekari hagræðingu þeirra í rekstri.
Í frétt Wall Street Journal kemur
fram að bandarísk flugfélög þurfi að
bregðast hart við hækkandi elds-
neytisverði og veikari stöðu efna-
hagsmála. Þannig er talið að samein-
ing geti átt sér stað milli United
Airlines og Continental Airlines.
Með samruna Delta og North-
west, sem reyndar er háður sam-
þykki samkeppnisyfirvalda og flug-
manna félaganna, verður til stærsta
flugfélag heims miðað við fjölda far-
þega. Delta kaupir alla hluti North-
west fyrir andvirði fimm milljarða
dollara en greitt er með hlutabréfum
í Delta. Samanlögð velta félaganna
er 35 milljarðar dollara, starfsmenn
um 75 þúsund og flugvélar um 800.
Fleiri flugsam-
runar í loftinu?
Saman Delta og Northwest eru að
renna saman í stærsta félag heims.
● ALFESCA hefur tilkynnt til kaup-
hallar að viðræðum um fyrirhuguð
kaup á breska matvælafyrirtækinu
Oscar Mayer hafi verið slitið. Fyr-
irtækið framleiðir tilbúna rétti fyrir
verslanakeðjur. Í tilkynningu Alfesca
segir að ákvörðunin hafi verið tekin í
kjölfar verulegra hækkana á hráefn-
isverði undanfarna mánuði. Þær hafi
haft áhrif á rekstur Oscar Mayer og
leitt til þess að rekstrarumhverfið á
markaði fyrir tilbúna rétti í Bretlandi
hafi breyst til hins verra.
Alfesca hættir við
kaup á Oscar Mayer
● GLITNIR Total Capital og JSSS
A/S hafa selt Rahbekfisk í Fre-
dricia til fyrirtækisins Espersen og
fjárfestingafélagsins Greystone
Capital samkvæmt fréttatilkynningu
frá Glitni. Þar kemur fram að fyr-
irtækjaráðgjöf Glitnis á Íslandi og í
Danmörku veitti ráðgjöf til selj-
enda.
Ennfremur segir í tilkynningunni
að við söluna innleysir Glitnir Total
Capital hagnað af fjárfestingu sinni
auk þess sem bankinn fær þókn-
unartekjur vegna ráðgjafar við selj-
endur við sölu. Glitnir var einnig
ráðgjafi þegar fyrirtækið var keypt
2005.
Glitnir og JSSS
selja Rahbekfisk
● GUNNAR Smári
Egilsson er hætt-
ur störfum fyrir
Dagsbrún Media,
hlutdeildarfélag
Baugs, sem kom-
ið hefur að útgáfu
fríblaða í Dan-
mörku og Banda-
ríkjunum. Gunnar
Smári staðfesti
þetta í samtali við
Morgunblaðið, en hann fór í fæðing-
arorlof um síðustu áramót. Hann
hefur ákveðið að snúa ekki til baka
og aðspurður hvað tæki við sagði
Gunnar Smári ekkert ákveðið með
það. Hann ætti inni gott frí og hefði
nóg að gera í barneignarfríinu.
Snýr ekki til baka til
Dagsbrúnar Media
Gunnar Smári
Egilsson
● ÚRVALSVÍSITALAN heldur áfram
að lækka en í gær lækkaði hún um
0,22% og var við lokun kauphall-
arinnar 5.182 stig. Mest hækkun
varð á bréfum Atlantic Petroleum,
0,36%, en mest lækkun varð á bréf-
um Eimskipafélagsins, 4,12%.
Heildarvelta í kauphöllinni nam
25,9 milljörðum króna en þar af var
velta með hlutabréf fyrir um fimm
milljarða.
Gengi krónunnar hækkaði um
0,4% í gær og er gengisvísitalan
150,87 stig.
Enn lækka hlutabréf
VELTA með greiðslukort nam rúm-
um 55 milljörðum króna í marsmán-
uði, samkvæmt tölum Seðlabank-
ans. Þar af nam velta með
kreditkort 24,7 milljörðum króna
og debetkortavelta nam rúmum 30
milljörðum króna. Lækkaði korta-
veltan um 3,6% frá því í febrúar en
miðað við sama tíma í fyrra jókst
veltan um 2,2%. Í Morgunkorni
Glitnis er bent á að raunvöxtur
kortanotkunar í mars hafi verið 1%
á milli ára og hafi ekki verið hægari
undanfarið ár. Þetta gefi vísbend-
ingar um minnkandi einkaneyslu
landsmanna. Lakari efnahags-
horfur, óvissa á fjármálamörkuðum
og aukin svartsýni hafi hvatt heim-
ilin til aukins aðhalds.
Minnkandi
kortavelta
ÞETTA HELST...
ÞRJÁR helstu hlutabréfavísitölur
Bandaríkjanna, Dow Jones-
iðnaðarvísitalan, samsetta Nasdaq-
vísitalan og S&P 500, hækkuðu all-
ar um 0,5% í gær. Að sögn Bloom-
berg-fréttaveitunnar voru það fjár-
mála- og orkufyrirtæki sem drógu
vagninn.
Regions Financials og M&T Bank
birtu uppgjör í gær sem voru yfir
væntingum og virðist það hafa sleg-
ið, a.m.k. tímabundið, á áhyggjur
fjárfesta vegna uppgjöra Citigroup
og Merrill Lynch sem birtast í lok
vikunnar en gengi olíufyrirtækja á
borð við Exxon hækkaði einnig
vegna hækkandi olíuverðs.
Hækkanir
vestanhafs