Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
AKUREYRI
Eftir Skapta Hallgrímsson
skapti@mbl.is
LÝÐRÆÐISDAGUR Akureyr-
inga þótti að mörgu leyti takast
vel. Bæjaryfirvöld blésu til sam-
komunnar á laugardaginn var og
ýmis atriði voru þar rædd fram og
til baka í málstofum. Hátt í 200
manns mættu og margt áhuga-
vert bar á góma.
Töluvert var rætt um forvarnir í
víðum skilningi; íþrótta- og æsku-
lýðsmál, samverustundir foreldra
og barna þeirra, einnig um meng-
un, umferð, lýðheilsu, íbúalýðræði
og ýmislegt fleira.
Framsögumenn voru í átta mál-
stofum, sem hver var haldin tvisv-
ar þannig að hver og einn gat tekið
þátt í a.m.k. tveimur – jafnvel
flakkað á milli fleiri.
Í málstofu þar sem göngu- og
hjólreiðastígar voru til umræðu
var það t.d. nefnt að strætisvagnar,
gangandi fólk og hjólreiðamenn
hefðu forgang, en reynt að draga
úr notkun einkabílsins. Einn orðaði
það svo að hætta þyrfti að hugsa
um hjóla- og göngustíga sem þjón-
ustu fyrir útivistarfólk heldur ætti
að líta á þá sem samgönguleiðir.
Nefnd var nauðsyn þess að
fjölga hjólreiða- og göngustígum í
bænum, út á flugvöll og jafnvel út
fyrir bæinn; inn á Hrafnagil og út á
Þelamörk.
Þetta tengist umræðu um meng-
un og umferð, þar sem töluvert var
rætt um svifrykið sem hrellt hefur
bæjarbúa undanfarin misseri.
Þeim skoðunum var lýst að sópa
þyrfti göturnar betur, auka mæl-
ingar á svifrykinu og tilkynna þeg-
ar hættuástand skapaðist og einnig
kom fram það álit að setja þyrfti
sterkara slitlag til þess að minnka
líkur á svifryki.
Sitt sýndist hverjum, sem sagt.
Í fyrri málstofunni sem ofanrit-
aður hlýddi á, þar sem rætt var um
Akureyri sem fjölskylduvænt sam-
félag, var þeirri skoðun m.a. lýst að
íþróttafélögin legðu allt of mikla
áherslu á keppni og afrek. Nefnd
var sú hugmynd að bæjaryfirvöld
ættu að styrkja íþrótta- og æsku-
lýðsstarf mun meira fjárhagslega
en gert væri í dag, en á móti að
gera meiri kröfur til starfseminn-
ar. Meðal annars þannig að boðið
yrði upp á eitthvað við allra hæfi,
en ekki bara hugsað um þá sem
vilja keppa. Að með þeim hætti
mætti koma í veg fyrir að krakka
dagaði uppi á þessum vettvangi og
það væri mikilvægt, því íþróttaiðk-
un væri mjög góð forvörn.
Ein hugmynd sem nefnd var, í
því skyni að krakkar gætu kynnst
öllum íþróttum, var sú að fram að
12 ára aldri yrði íþróttastarfsemin
alfarið í umsjá grunnskólanna
sjálfra. Að börnin yrðu t.d. í
„íþróttafélagi Brekkuskóla“ fram
að þeim tíma, gætu þá kynnst öll-
um mögulegum íþróttum og í
þessu „félagi“ yrði ekki lögð
áhersla á keppni.
Einnig var því varpað fram að
þróunin yrði í hina áttina; að
íþrótta- og æskulýðsfélög bæjarins
kæmu inni í skólana og sæju t.d. al-
veg um frístundina; starfsemina
eftir að hefðundnum skóladegi lýk-
ur.
Nefnt var í þessari sömu mál-
stofu að nýta mætti húsnæði
grunnskólanna miklu betur en gert
er í dag; dæmi væru um það er-
lendis að skólarnir væru notaðir
sem nokkurs konar félagsmið-
stöðvar fyrir hverfið – og þá ekki
bara fyrir börnin.
„Við renndum blint í sjóinn með
þátttökuna, en allt í allt voru um
200 manns sem tóku þátt í málstof-
unum, sem mér finnst frábært,“
sagði Sigrún Björk Jakobsdóttir
bæjarstjóri við Morgunblaðið.
Margt áhugavert
bar á góma
á Lýðræðisdegi
Íþróttafélögin í skólana eða
skólarnir verði íþróttafélög?
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gaman Skemmtilegar umræður urðu í málstofunum á Lýðræðisdaginn.
Í HNOTSKURN
»Fyrsti Lýðræðisdagur Ak-ureyringa þótti takast vel.
Hátt í 200 manns tóku þátt í
málstofunum.
»Stefnt er að því að Lýðræð-isdagurinn verði haldinn
strax á næsta ári aftur og
reglulega héðan í frá.
»Hugmyndir, sem fólk varmeð en kom ekki til skila í
málstofunum, var hægt að
skrifa á blað og skila í kassa.
„Þar var að finna ótrúlegustu
hugmyndir,“ sagði Sigrún
Björk bæjarstjóri í samtali við
Morgunblaðið í gær.
NÝ jafnréttislög verða til umfjöllunar á
Jafnréttis- og félagsvísindatorgi Jafnrétt-
isstofu og félagsvísinda- og lagadeildar
HA í dag. Kristín Ástgeirsdóttir, fram-
kvæmdastýra Jafnréttisstofu, og Ingi-
björg Elíasdóttir, lögfræðingur stofunnar,
fjalla þar um lögin og spyrja: Hvar erum
við stödd? Samkoman hefst kl. 12.00 og
verður í stofu L201 á Sólborg.
Fjallað um ný
jafnréttislög
SEX börn, sem eiga lögheimili í nágranna-
sveitarfélögum, eru nú í leikskóla á Ak-
ureyri en skólanefnd bæjarins hefur sam-
þykkt að dvalarsamningur þeirra verði
ekki framlengdur eftir sumarleyfi, svo
hægt sé að bjóða fleiri börnum á Akureyri
pláss.
Í dag er á leikskólum á Akureyri 241
barn sem fætt er 2002 og hætta því vegna
aldurs í vor. Á umsóknarlistanum eru nú
257 börn sem fædd eru á árunum 2003 til
2006, sem þýðir að fjölga þarf plássum um
16 til þess að allir komist inn af biðlist-
anum, til viðbótar við þá fjölgun sem varð
í byrjun ársins en þá voru tekin inn 15
börn. Þessi fjölgun kemur m.a. til vegna
þess að börnum á leikskólaaldri er að
fjölga í bænum eða um 31 barn. Þau börn
sem eru fædd árið 2006 og eru að koma
inn í leikskóla eru 254, en nú eru alls 243
sex ára börn í bænum.
Utanbæjarbörn
ekki á leikskólum
ÞRÍR umsækjendur eru um stöðu skóla-
stjóra Brekkuskóla, sem nýlega var aug-
lýst. Það eru Bergþóra Þórhallsdóttir, að-
stoðarskólastjóri Brekkuskóla, Hildur
Bettý Kristjánsdóttir, grunnskólakennari í
Lundarskóla, og Jóhanna María Agnars-
dóttir, skólastjóri Grunnskólans í Hrísey.
Þrjár vilja stýra
Brekkuskóla
VEFRÆNAR verkmöppur eru nýtt form á
verkefnaskilum sem verið er að taka upp í
Ölduselsskóla. Kennarar Ölduselsskóla hafa
undanfarið verið á námskeiði hjá Ívari Sigur-
bergssyni upplýsingatækni- og tónmennta-
kennara í Lindaskóla þar sem þeim er m.a.
kennt hvernig nemendur geta skilað verk-
efnum sínum inn á bloggsíður.
Anna Josefin Jack, grunnskólakennari í
Ölduselsskóla, sagði að skólinn hafi verið
þekktur fyrir svonefndar verkmöppur þar
sem nemendur kynna verk sín. „Okkur lang-
aði að víkka þetta út og fara í vefrænar verk-
möppur,“ sagði Anna. Á bloggsíðu hennar
(annajack.blog.is) má lesa fyrirmæli til nem-
endanna sem þeir fara eftir. Hún sagði að lítil
reynsla væri komin á verkefnaskil af þessu
tagi en að stefnt sé að því að þróa vefræn
verkefnaskil enn frekar í Ölduselsskóla. Í
leiðbeiningunum eru m.a. fyrirmæli um upp-
byggingu verkefnisins, hvernig eigi að vista
það á vefnum og tengja glærusýninguna.
Nemendur Ölduselsskóla hafa opnað
bloggsíður á Morgunblaðsblogginu
(www.blog.is) og þykir viðmót þess þægilegt.
„Nemendurnir höfðu orð á því að þeim þætti
aðgengilegra að blogga á Morgunblaðinu en
annars staðar því vefurinn væri svo aðgengi-
legur og skemmtilegur,“ sagði Anna.
Öllum nemendum 7. bekkjar Ölduselsskóla,
sem eru um 60 talsins, verður kennt að opna
eigin bloggsíður og vista þar verkefni sín.
Þau bjuggu m.a. til verkefni um sálmaskáldið
séra Hallgrím Pétursson. Eftir heimildaöflun
útbjó hver nemandi glærusýningu um Hall-
grím í forritinu Power Point. Á síðunum er
hægt að birta texta, ljósmyndir, teikningar,
kvikmyndir og hljóðritanir. Glærusýning-
arnar eru vistaðar hjá slideshare.net.
Næsta verkefni sem nemendur í 7. bekk
Ölduselsskóla eiga að skila með vefrænum
hætti er um Evrópu. Nú hafa þau lært að nota
kvikmyndaforritið MovieMaker svo búast má
við enn líflegri framsetningu. Í vor er síðan
stefnt að því að nemendur fái foreldra sína í
heimsókn í skólann og sýni þeim vefrænu
verkmöppurnar sem þau hafa unnið í vetur.
Framtíðin undirbúin
Ívar Sigurbergsson er að ljúka kenn-
aranámi með áherslu á upplýsingatækni í
Kennaraháskólanum. Hann telur að rafræn
verkefnaskil með þeim hætti sem verið er að
reyna í Ölduselsskóla séu ekki orðin mjög al-
geng í grunnskólum. Salvör Gissurardóttir
hafi kennt þetta í Kennaraháskólanum og
þetta sé þekkt erlendis.
„Hugsunin er sú að verkefnaskilin fari um
vefsíðuna og verkefnin liggi á netinu. Hugs-
unin með að nota bloggið er að nemendur átti
sig á tilgangi verkefnisins og tjái sig. Þeir
vista verkefnin með ýmsum hætti á fríum vef-
svæðum og kennarinn getur skoðað þau þar.“
Ívar segir að með þessu sé verið að undirbúa
nemendur fyrir framhaldið en nám snúist æ
meir um stafræn skil og miðlalæsi. Því sé
mikilvægt að þjálfa þau í tölvunotkun og hag-
nýta tæknina við námið. Ennig er þetta til að
auka á fjölbreytnina í náminu.
„Ég hugsa að þetta eigi eftir að aukast
mikið. Háskólar eru komnir með mikið fjar-
nám og nemendur þurfa að vera undir það
búnir að lesa alls konar miðla og nýta
tæknina í þágu námsins,“ sagði Ívar.
Nemendur í 7. bekk Ölduselsskóla eru farnir að skila skólaverkefnum inn á bloggsíður
Vefrænar verkmöppur
Morgunblaðið/RAX