Morgunblaðið - 16.04.2008, Page 18
|miðvikudagur|16. 4. 2008| mbl.is
daglegtlíf
andi. Í fyrrakvöld tók
Snæfell úr Stykk-
ishólmi sig til og sendi
Grindavík í sumarfrí.
Sú viðureign fór 3-1,
en í tveimur leikjanna
köstuðu Grindvíkingar
frá sér sigri og misstu
niður forskot. Í leikn-
um á mánudag höfðu
þeir 19 stiga forskot í
upphafi fjórða og síð-
asta leikhluta. Snæfelli
tókst með ótrúlegri
þrautseigju að saxa
jafnt og þétt á for-
skotið og knýja fram
framlengingu þar sem
þeir síðan höfðu betur.
Hlutur Sigurðar Þorvaldssonar í
sigri Snæfells var drjúgur og virtist
sama með hvaða hætti hann lét
skotið ríða af ef hann var utan
þriggja stiga línunnar, öll rötuðu
þau ofan í körfuna. Snæfell var neð-
ar en Grindavík í töflunni eftir
venjulega leiktímabilið þannig að
úrslitin í viðureign liðanna sýna að
oft er lítið að marka árangurinn
fram að úrslitakeppninni. Þegar á
hólminn er komið sýna lið hvað í
þeim býr.
x x x
Þetta á ekki síður við um ÍR-inga,sem lentu í sjöunda sæti á
venjulega leiktímabilinu. Þeir byrj-
uðu á að slá KR-inga út með sann-
færandi hætti og komust í 2-0 gegn
Keflavík, sem kom inn í úr-
slitakeppnina með besta árangur
allra liða. Í næstu tveimur leikjum
tóku Keflvíkingar sig saman í and-
litinu og tókst að hemja hraðlest
ÍR-inga. Nú er staðan jöfn í einvíg-
inu og í kvöld ræðst það suður með
sjó hvort liðið kemst áfram, þraut-
reyndir Keflvíkingar, eða ban-
hungraðir ÍR-ingar, sem hafa ekki
unnið Íslandsmeistaratitil frá 1977.
Úrslitakeppnin íkörfuboltanum
hefur verið með ólík-
indum, bæði hjá körl-
um og konum. Úrslita-
viðureign Keflvíkinga
og KR-inga í kvenna-
flokki var mun jafnari
en úrslitin gáfu til
kynna. Keflavík vann
3-0, en tveir leikjanna
unnust með aðeins
eins stigs mun. Árang-
ur KR-liðsins undir
stjórn Jóhannesar
Árnasonar er ekki síst
eftirtektarverður fyrir
þær sakir að í fyrra
unnu stúlkurnar sig
upp úr 1. deild.
x x x
Í úrslitakeppninni hjá körlunumhefur margt komið á óvart og
margar viðureignir verið æsispenn-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Á Iðunnarfundi í byrjun mánaðarvar ort um egg. Jón Ingvar
Jónsson byrjaði:
Ef opnar þú kælinn og eggin þú sérð
og ætlar að framreiða hátíðarverð
þá gættu að þessu samt góður:
að sjóða þau vinur minn ekki þú átt
og alls ekki hræra né spæla þau mátt,
þú manst að þau eiga sér móður.
Þá Steindór Andersen:
Forðum daga átti egg
ástarfund með sæði.
Nú er það með skalla og skegg
og skoðar gömul kvæði.
Sigurður Björnsson trésmiður á
Seyðisfirði orti á sínum tíma:
Brúðurin brjóstið reytti.
barnarúmið skreytti
fínni fiðursæng.
Egg svo í það lagði
ofur hýr í bragði
hlúði hlýjum væng.
pebl@mbl.is
VÍSNAHORNIÐ
Af eggjum í heiminum
Þ
að hefur löngum verið vitnað til orð-
taks Grikkja – heilbrigð sál í heil-
brigðum líkama. Allt sem stuðlar að
meiri hreyfingu og áhuga á líkams-
rækt er því vafalaust af hinu góða.
Skólahreysti er keppni sem unglingar hafa tekið
þátt í undanfarin ár og nýtur sú keppni mikilla
vinsælda enda hart barist um að komast í liðin
sem svo keppa til úrslita eftir undankeppnir í
skólum víða um land.
Íslandsmeistari í armbeygjum í keppninni
Skólahreysti í fyrra varð Fríða Rún Ein-
arsdóttir. Hún er 15 ára og hefur stundað fim-
leika frá því hún var fimm ára.
„Ég er búin að vera í þessu í tæp ellefu ár,“
segir Fríða Rún sem nú tekur þátt í keppninni
Skólahreysti fyrir Lindaskóla enn á ný.
En gerir hún sér vonir um að vinna til verð-
launa núna?
„Við ætlum alla vega að gera okkar besta. Við
erum fjögur, tvær stelpur og tveir strákar, og
keppum í öllum greinum. Ég keppi í armbeygj-
um og hreystigreip, einn strákur í dýfum og upp-
hífum og svo keppa stelpa og strákur saman tvö í
hraðaþrautinni. Þetta er mjög skemmtilegt.“
Mikill stuðningur í salnum
Manstu eftir einhverju skemmtilegu sem
gerðist í síðasta ári?
„Mér fannst allt mjög skemmtilegt, planið gott
og mikið fjör og mjög mikill stuðningur í saln-
um.“
Komu margir frá Lindaskóla?
„Já það komu mjög margir. Það komu líklega
flestir í unglingaárganginum.“
Ertu þá ekki orðin fræg í skólanum?
„Nei, ekkert fræg en ég finn samt að krakk-
arnir hafa áhuga á þessu og spyrja út í keppnina.
Þeim finnst þetta allt mjög spennandi.
Mömmu og pabba finnst þetta flott og gaman
að ég skuli taka þátt í þessu fyrir skólann. Þau
eru ánægð með keppnina.“
Er mikið félagslíf í kringum keppnina?
„Já, það eru undirbúin fagnaðarlæti og við
krakkarnir sem keppum hittumst líka oft og höf-
um farið saman út að borða.“
Er þetta erfið keppni?
„Já, þetta er miklu erfiðara en fólk grunar. Ég
er oft mjög þreytt í höndunum eftir æfingar. En
stuðningur úr salnum, og það að vera ákveðin og
ætla að gera vel fyrir skólann sinn, hjálpar
manni að gera sitt besta,“ segir þessi hrausta
stúlka.
Ætlar hún kannski að halda áfram fimleika-
æfingum og stefna að því keppa í útlöndum?
„Ég er þegar búin að keppa mjög oft í fim-
leikum í útlöndum, s.s. öllum Norðurlöndunum,
Mónakó, Serbíu, Grikklandi og Þýskalandi
meðal annars og vann Norðurlandamót í apríl á
síðasta ári. En núna hef ég ekki verið að und-
anförnu af því að ég þurfti að fara í aðgerð á
fæti og er að láta mér batna eftir meiðslin sem
ég varð fyrir í fimleikaæfingum.“
Eru það mest stelpur sem æfa fimleika?
„Meirihlutinn sem æfir fimleika eru stelpur,
strákarnir eru líklega meira í fótbolta en þar
eru líka margar stelpur. Ég hef bara æft fim-
leika hingað til og svo æfingarnar fyrir Skóla-
hreysti.“
Hreystival í Lindaskóla
María Guðnadóttir er íþróttakennari í Linda-
skóla. Hvernig líst henni á Skólahreystikeppn-
ina?
„Mér finnst þetta mjög gott framtak og mjög
hvetjandi fyrir krakkana. Þetta er líka góð for-
vörn. Það eru skýrar reglur hjá okkur í skól-
anum um að þeir krakkar sem hafa fiktað við
áfengi eða tóbak fái ekki að vera í liðinu.“
Er mikið áhugamál krakkanna að komast í
þetta lið?
„Já, það er mjög mikill áhugi. Við vorum með
undankeppni og til að komast í liðið þurfti að
vinna þá keppni. Stefnan hjá okkur er að bjóða
næsta vetur upp á svokallað Hreystival, sem
væri undirbúningur undir Skólahreysti og
reyndar æft miklu meira en það. Þrír þessara
krakka sem eru í keppninni frá okkur núna eru
að æfa fimleika hjá Gerplu og einn er í bardaga-
íþróttum og klifri.“
Er þetta gott innlegg í íþróttakennslu?
„Ég myndi segja að þær greinar sem keppt
sé í séu vissulega gott innlegg og krakkar sem
ekki eru í skipulagðri þjálfun muni vonandi
velja hreystival til þess að æfa næsta vetur. Það
eru mjög margir sem vilja komast í liðið. Hins
vegar keppa bara fjórir frá hverjum skóla. Með
því að bjóða upp á hreystival verður keppnin
innan skólans fjölmennari og eftirsóttari – fleiri
fá því að taka þátt í henni þótt þeir komist ekki í
endanlega liðið.“
Frítt inn á lokakeppnina
Skipuleggjandi keppninnar Skólahreysti er
Andrés Guðmundsson.
„Við konan mín, Lára Helgadóttir, byrjuðum
með þessa keppni árið 2005. Sjálfur er ég gam-
all kraftakall, ef svo má segja, og okkur datt í
hug að koma þessari keppni á fyrir skólabörn
vegna þess að við vorum höfum verið með
samskonar keppni fyrir fullorðna undanfarin
ár. Sú keppni heitir Íslandsmót Icefitness.
Hugmyndin með Skólahreysti var að finna
aðferð til að gera hreyfingu skemmtilegan og
spennandi valkost fyrir börn og unglinga og
endurvekja hinn gamla og góða „Tarsanleik“
sem allir höfðu gaman af.“
Eru margir sem keppa í Skólahreysti núna?
„Það eru 424 keppendur frá 106 skólum víðs
vegar að af landinu. Við héldum tíu forkeppnir
út um allt land og þessi lið sem keppa núna eru
sigurvegarar þessara riðla.
Það er kannski gaman að geta þess að
áhorfendur skipta æ meira máli í keppninni
Skólahreysti og það hefur verið húsfyllir á
hverjum stað sem við höfum verið. Áhorf-
endur eru með trommur og skilti og búnir að
mála sig þannig að það er gríðarleg stemning í
kringum þetta.“
Eru krakkarnir sem vinna yfirleitt íþrótta-
fólk að jafnaði?
„Flestir krakkarnir sem vinna eru í íþrótt-
um en furðumargir eru þó úr hópi sem aldrei
hefur stundað íþróttir fyrr og það er mjög
gaman að sjá hvað þeir skora vel í keppninni.“
Er þetta dýr keppni?
„Já, hún er mjög umfangsmikil. Það kostar
mikið að fara á alla þessa staði og svo endum
við með því að hafa lokakeppni í Laugardals-
höll, sem er núna á fimmtudaginn. Við bjóðum
frítt inn og það eru engin keppnisgjöld. Þetta
getum við gert vegna mjög góðs stuðnings
Mjólkursamsölunnar, sem hefur stutt þetta
skemmtilega verkefni frá byrjun.
Það sem er einkum gaman við þetta er að
krakkarnir hafa verið í aðalhlutverki í vetur og
við viljum þakka íþróttakennurum skólanna
sem senda keppendur fyrir frábært samstarf.“
Þess ber að geta að allar þessir keppnir hafa
verið sýndar á Skjá einum og verður sjón-
varpað frá úrslitakeppninni á Skjá einum ann-
að kvöld.
Það er ekki að efa að unglingar landsins
jafnt sem þeir fullorðnu, sem hafa áhuga á
íþróttakeppnum, munu fylgjast af áhuga með
þessari skemmtilegu skólakeppni – Skóla-
hreysti.
Gamli góði
Tarsanleikurinn
endurvakinn
Stuðningsfólk Mikilvægt er fyrir keppendur að fá góðan stuðning úr salnum.
Keppandi Mikill áhugi er meðal skólanema á
að komast í liðin sem keppa í Skólahreysti.
Annað kvöld sýnir Skjár einn beint frá lokakeppni Skóla-
hreysti. Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Fríðu Rún Ein-
arsdóttur keppanda, Maríu Guðnadóttur íþróttakennara og
Andrés Guðmundsson, skipuleggjanda Skólahreysti.
Armbeygjur Fríða Rún Einarsdóttir sigraði í
armbeygjum í Skólahreysti í fyrra.
gudrung@mbl.is
smáauglýsingar mbl.is