Morgunblaðið - 16.04.2008, Page 23

Morgunblaðið - 16.04.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 23 Í byrjun október 2006 kynntiríkisstjórnin aðgerðir tillækkunar á matvælaverði ogýmsum öðrum þjónustuliðum. Að- gerðirnar fólu í sér að lækka og samræma virðisaukaskatt, af- nema vörugjald á til- teknum vöruflokkum og lækka tolla á kjöt- vörum. Gert var ráð fyrir að matvælaverð gæti lækkað um 14- 16% og vísitala neysluverðs um 2,3%, sjá nánar á heimasíðu forsætisráðuneyt- isins. Með aðgerð- unum átti matvæla- verð á Íslandi að leiða til sambærilegs með- alverðs á matvælum á hinum Norðurlönd- unum og auka kaup- mátt þjóðarinnar. Af þessu tilefni gerði við- skiptaráðuneytið þjónustusamning við ASÍ um eftirlit með matvælaverði frá des- ember 2006 fram á sumar 2007 (við- skiptaráðuneytið gerði jafnframt samn- ing við Neytendastof- una um eftirlit á veitingum og hót- elgistingum). Enn fremur ákváðu Neytendasamtökin að birta nið- urstöður á heimasíðu sinni um áhrif verðlækkana hjá birgjum og í sölu- turnum og Hagstofa Íslands hóf þann 1. mars 2007 að mæla fast- skattavísitölu samhliða vísitölu neysluverðs sem sýnir áhrif skatta- breytinga á verðlag. Viðskiptaráðu- neytið hefur nú gert úttekt á skýrslum og mælingum í tengslum við aðgerðir ríkisstjórnarinnar. ASÍ fylgdi eftir verðþróun í mat- vöruverslunum samkvæmt samningi við viðskiptaráðuneytið og skilaði inn niðurstöðum í byrjun árs 2008. ASÍ hafði eftirlit með um 90 mat- vöruverslunum á öllu landinu í viku- tíma í senn í desember 2006 og í jan- úar, febrúar, mars og maí 2007. Reiknuð var út vegin breyting á verði vörukörfu í hverri verslun/ verslunarkeðju. Samkvæmt nið- urstöðum ASÍ skiluðu aðgerðir rík- isstjórnarinnar um lækkun mat- vælaverðs sér ekki í verðlagi til neytenda. Lækkunin hefði að með- altali verið um 6%-8% á fyrstu mán- uðunum en síðan gengið að hluta til baka. Neytendasamtökin tóku að sér að fylgja eftir verðþróun hjá birgjum og söluturnum. Á heima- síðu samtakanna eru birtar niður- stöður úr verðmælingunum sem sýna m.a. að 43 (helstu) birgjar á matvælamarkaðnum hækkuðu verð á innfluttum matvælum og sætind- um að meðaltali um 4,5% í lok árs 2006 og í byrjun árs 2007 (Krydd og pasta hækkaði mest um 10% hjá ein- um heildsala). Nokkrir af þessum birgjum lækkuðu síðan verð í lok febrúar og byrjun mars. Mælingar Hagstofunnar sýndu að frá febrúar til mars 2007 lækkaði verð á mat- og drykkjarvörum um 7,5%. Þessi nið- urstaða var í takt við fyrri spár hennar um raunhæfar lækkanir vegna aðgerðar ríkisstjórnarinnar. Afnám vörugjalda virtist hins vegar ekki koma fram þar sem vísitalan sýndi 7% lækkun í maí en Hagstofan hafði spáð lækkun um tæplega 9% þegar niðurfellingin hefði skilað sér út í þjóðfélagið. Til samanburðar hefði fastskattavísitalan á mat- og drykkjarvörum sýnt sem dæmi 0,5% hækkun frá febrúar til maí ef ekki hefði komið til skattabreytinga. Viðskiptaráðuneytið aflaði gagna hjá Hagstofunni við úttekt á mat- vælaverði í tengslum við aðgerð rík- isstjórnarinnar. Niðurstöður úttekt- arinnar sýna að heildarlækkun á mat- og drykkjarvörum í mars var um 7,5%. Í apríl/maí 2007 lækkuðu þessar vörur aftur um 0,5-1% sem skýrist af niðurfellingu vörugjalda. Í maí hækkuðu þær að meðaltali um 1,3% frá fyrra mánuði og fyrir lok árs 2007 höfðu þær lækkað um rúm- lega 2% en um 4% miðað við tólf mánaða mælingu. Ljóst er því, eins og oft hefur komið fram, að upphaflegt markmið um heildar- áhrif sem næmi yfir 14-16% lækkun gengu ekki eftir. Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,34% í mars frá fyrra mánuði en sveifl- aðist síðan upp og nið- ur en endaði í 6% hækkun síðustu tólf mánuði. Hækkun vísi- tölunnar má þó helst rekja til hækkunar á bensíni og húsnæði. Þegar mat- og drykkjarvörum var skipt upp í annars veg- ar flokk innfluttra vara og hins vegar flokk innlendra vara kom í ljós að í byrjun árs 2007 hækkuðu báðir flokkarnir sem má að einhverju leyti skýrast af hækkun hráefnisverðs og launaskriðs. Í mars lækkuðu báðir flokk- arnir að meðaltali um 7%. Í maí hækkuðu aftur innfluttar vörur um 2% en innlendar vörur um hálft prósent. Á þessum tíma hafði gengi krónunnar styrkst verulega, verð á hrávörum á heimsmarkaði var í hægu hækkunarferli að undan- skildum sykri sem var að lækka og launakostnaður hafði lítið breyst frá því snemma á árinu. Þótt hækkun hrávöruverðs hafi að nokkru leyti vegið upp gengisáhrifin er ósvarað hvers vegna matvörur lækkuðu ekki meira í mars og hvers vegna margar þeirra hækkuðu í maímánuði. Þegar skoðuð voru áhrif lækkunar virð- isaukaskatts eftir vörutegundum kom í ljós að þau voru mismikil og virtist samkeppnisstaða þeirra skipta máli. Þær vörur sem lækkuðu hvað mest í mars voru gosdrykkir (18%) og sætindi (11%) en þessar vörur báru áður 24,5% virð- isaukaskatt. Minnst lækkaði verð á kjöti (4-5%) sem bar áður 14% virð- isaukaskatt sem þýðir líka að tolla- lækkunin á kjöti var engan veginn að skila sér. Meðallækkun á öðrum vörum var um 6%. Mest hækkuðu ávextir og fiskur eða um 8% á tíma- bilinu frá mars til október 2007 og næstmest kjötvörur um 4%. Gos, kaffi og sætindi hækkuðu líka en mun minna eða á bilinu 1-2,5% sem var í takt við almenna verðþróun en á móti var verð á sykri lágt á heims- markaði. Verð á mjólkurvörum stóð hins vegar nánast í stað. Þannig má sjá að t.d. gos og sætindi sem búa við sterkt samkeppnisumhverfi og bera samanlagt um 14% af útgjöldum dæmigerðs neytanda lækkuðu í samræmi við lækkun skattsins. Þessar vöru, auk kaffivara, héldu aftur af vísitölunni og hækkuðu líka lítið á tímabilinu. Aðrar verðlækk- anir frá því í mars eins og á kjöti og fiski hafa gengið að mestu til baka. Greinin er birt í fullri lengd á heima- síðu viðskiptaráðuneytisins http:// www.vidskiptaraduneyti.is/ Enn á ný er mikil umræða um verðlagsmál, vegna lækkunar geng- is og hækkana á hrávöruverði er- lendis. Í síðustu viku átti við- skiptaráðherra fundi með forystu verslunarinnar og hagsmuna- samtökum launþega og neytenda. Unnið er að tillögum um aðgerðir til að fylgjast grannt með verðlags- þróun hér á landi og mæta þannig áskorunum fulltrúa samtakanna. Þegar hefur verið ákveðið að fela hagdeild ASÍ að fylgjast sérstaklega með þróun verðlags matvöru að minnsta kosti næstu þrjá mánuði. Úttekt á matvælaverði Eftir Margréti Sæmundsdóttur Margrét Sæmundsdóttir »Unnið er að tillögum um aðgerðir til að fylgjast grannt með verðlags- þróun hér á landi og mæta þannig áskor- unum fulltrúa Neytenda- samtakanna. Höfundur er hagfræðingur viðskiptaráðuneytisins. Hegerl. European Health Forum – Gastein er árleg ráðstefna um 500 stefnumótandi aðila í heilbrigð- ismálum innan Evrópusambands- ins. „Við erum mjög ánægð og stolt af þessum verðlaunum og þeirri viðurkenningu sem baráttan gegn þunglyndi fær með þeim,“ segir Hegerl. „Verkefnið hefur vaxið gífurlega en það var fyrst reynt í Nürnberg í Þýskalandi og teygði svo anga sína út til 40 héraða. Á síðustu tveimur árum hefur það svo breiðst út til annarra landa og er nú starfrækt í 17 löndum af samtökum sem hafa sett sig í samband við EAAD að eigin frumkvæði og viljað nota að- ferðafræði okkar,“ segir Hegerl. Hann segir mikilvægan þátt í verkefninu að það sé ekki eitthvað sem sé fyrirskipað af yfirvöldum hvers lands heldur sé það víða framkvæmt af borgurum sem vilja sinna þessum málstað. Árlegir fundir skila miklu Hegerl segir einstaklega gott and- rúmsloft ríkja meðal samstarfs- landanna og að árlegir fundir skili ætíð miklu. Þar hittist fólk og miðli af reynslu sinni í heimalandinu. „Þrátt fyrir ólíka menningarheima hefur ekki komið til árekstra, það ríkir mikill skilningur og sameig- inlegur málstaður sameinar okk- ur,“ segir Hegerl. upphafsmenn verkefnisins. Upp úr því þróuðust Evrópusamtökin, EA- AD. Landlæknisembættið hefur notað aðferðir þess við mótun verk- efnisins Þjóð gegn þunglyndi sem sett var af stað fyrir um fimm ár- um. „Evrópuráðið hefur styrkt verk- efnið frá árinu 2004 og árið 2007 var það fyrsta verkefnið til að hljóta European Health Forum Award – Gastein-verðlaunin,“ segir fs kerfi og vígstíðni issulega di eftir er ekki st að áðst,“ utan liðs við nglyndi í Evrópu Morgunblaðið/Valdís Thor ðlæknarnir Ulrich Hegerl og Högni Óskarsson ttökulanda EAAD-verkefnisins. „VERKEFNI geðdeildar LM- háskólans í München, sem seinna þróaðist yfir í EAAD, varð fyrir valinu því það var svo vel útfært. Við fengum mikið af fræðsluefni frá þeim og gátum lagað að ís- lenskum aðstæðum,“ segir Sal- björg Bjarnadóttir geðhjúkr- unarfræðingur, sem ásamt Högna Óskarssyni geðlækni stýrir verk- efninu Þjóð gegn þunglyndi á veg- um Landlæknisembættisins. „Við höfum nú farið um allt land með námskeiðin okkar og brugðum á það ráð að hafa fé- lagsþjónustu, presta, lögreglu og heilbrigðisþjónustu saman,“ segir Salbjörg. „Aðstandendur EAAD voru mjög ánægðir að sjá hvernig við bættum skólakerfinu og prest- um inn í þeirra snið og hyggjast nú bæta því inn í sitt verkefni,“ segir Salbjörg. Nú stendur til að taka fyrir áhættuþætti þunglyndis, sem koma fram á barns- og unglings- árum, og verður vefsíða opnuð um næstu mánaðamót, þar sem að- gengi foreldra, barna og fagaðila að upplýsingum verður auðveld- að, auk þess að bjóða upp á þjálf- un fyrir fagfólk. Nýtist vel á Íslandi sögu Argentínu, ríkti óðaverðbólga og verð- mæti eigna almennings, þar á meðal lífeyrir, rýrnaði þannig að nánast ekkert var eftir. Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þessi staða kom upp og það er hægara sagt en gert að byggja upp trúverðugleika við slíkar að- stæður. Hagfræðilíkönin sýna okkur hversu hraður vöxturinn hefði orðið hefði landið bú- ið við fullt traust fjárfesta og sú staðreynd að vöxturinn var mun hægari, vegna skorts á fjármunum, sýnir okkur greinilega að trú- verðugleika og traust skorti.“ Fyrirsjáanleg skattlagning Í upphafi nefndi Kydland Írland sem dæmi um ríki sem hefur beitt góðri efna- hagsstefnu eins og hann kallar það. Hann segir landið hafa gert margt betur en Arg- entína og nefnir nokkra þætti en tekur fram að vissulega stuðli fleiri þættir að efnahags- uppgangi. „Á 7. áratugnum var ákveðið á Írlandi að framhaldsskólamenntun skyldi vera gjald- frjáls og um 1990 bjó vinnuafl í landinu yfir mikilli hæfni. Þeir höfðu því safnað upp tölu- verðum mannauði. Til þess að geta nýtt mannauðinn þarf hins vegar fjármuni og Ír- ar höfðu lækkað skatta, og það sem enn mik- ilvægara er, þeir höfðu skapað hvata fyrir erlend fyrirtæki til þess að reisa verksmiðj- ur og fjárfesta í öðrum fjármunum. Hægt er að spyrja hvers vegna Írland hafði nægan trúverðugleika til þess að draga að fjárfesta og það er góð spurning. Ef Argentína hefði reynt að laða að fjárfesta hefði enginn trúað því en Írar höfðu trúverðugleikann. Ef til vill áttu fjárfestar ekki slæmar minningar frá Írlandi á sama hátt og frá Argentínu. Síðan má velta vöngum yfir því hvort munur á stjórnskipan ríkjanna hafi eitthvað að segja.“ Oft hefur verið talað um að upptaka evr- unnar eigi stóran þátt í uppganginum í írsku efnahagslífi en Kydland segist telja að þótt eflaust hafi evran haft einhver áhrif til hins betra hafi hún ekki haft úrslitaáhrif. Mik- ilvægara sé í hans huga að skattlagning framtíðarinnar var fyrirsjáanleg. Þannig hafi verið hægt að laða að fjármuni og fjár- magn. Að lokum er Kydland spurður hvernig hægt sé að byggja upp trúverðugleika eftir að honum hefur verið glatað. „Þetta er stór spurning og ég hef ekki svarið en ég hef stundum sagt að takist ein- hverjum ungum og snjöllum hagfræðingi að finna svarið við þessari spurningu gæti hann fengið að taka við verðlaunum úr hendi sænska konungsins, eða drottningarinnar, eftir aldarfjórðung.“ ógerlegt. Hefði verið fylgst með skuldasöfn- un héraðanna hefði sennilega verið hægt að viðhalda fastgengisstefnunni og um leið byggja upp trúverðugleika hagkerfisins. En það var ekki gert og því fór sem fór. Fjár- festar gerðu rétt í að vantreysta hagkerfinu. Ég tel að Argentína hafi þjáðst af sjúkdóm- inum sem mótsagnakennd efnahagsstefna yfir lengri tíma er,“ segir hann. Sjálfstæði seðlabanka Ein ástæða þess að trúverðugleiki argent- ínska seðlabankans er ekki eins og best verður á kosið er að sögn Kydlands sú að þar í landi beitir hið opinbera seðlabankann stöðugum þrýstingi. Ríki óánægja með seðlabankastjórann er honum umsvifalaust skipt út og það hefur jafnvel gerst margoft á ári. „Mjög erfitt er að viðhalda trúverðugleika við slíkar kringumstæður. Allar rannsóknir benda til þess að peningastefna með verð- bólgumarkmiði sé mun árangursríkari búi seðlabankar við sjálfstæði frá öðrum þáttum hins opinbera,“ segir hann en eins og áður segir er skertur trúverðugleiki seðlabank- ans aðeins hluti af trúverðugleikavanda landsins. „Minni fólks er gott. Á 9. áratugnum, sem hefur verið kallaður „tapaði áratugurinn“ í hafa hindrað það. „Þetta er hins alveg einfalt. Þegar Carlos Me- til valda í Argentínu upp úr 1990 n að auka efnahagslegan trúverð- dsins með því að festa gengi pe- Bandaríkjadal á genginu einn á . Dollaraforði landsins var auk- að gera aðgerðina trúverðuga en það sýnir hagfræðilíkanið – þrátt gentínska hagkerfið hafi virst – að vöxturinn hefði þurft að vera við aukninguna í framleiðni.“ Kydlands má segja að trúverð- entínska seðlabankans hafi verið það var þó alls ekki eina ástæða r í upphafi aldarinnar. „Peninga- kisfjármálin tengjast vegna þess eggja eru innan sömu útgjalda- t stjórnvöldum í Argentínu hafi ysa eitt vandamál var annað sem að leysa og það tengist annars jármálum og hins vegar fjármál- landsins. Héruðin gátu tekið lán au gátu ekki staðið í skilum leit- ríkissjóðs sem einhverra hluta kuldbundinn til þess að taka yfir þannig að erfiðara varð að við- ri efnahagsstefnu sem mörkuð og fastgenginu við dollarinn. það hefði það þó ekki átt að vera stefna mikilvæg Morgunblaðið/Golli land segir Írland dæmi um ríki með góða efnahagsstefnu en Argentínu ekki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.