Morgunblaðið - 16.04.2008, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 16.04.2008, Qupperneq 26
Nú legg ég augun aftur, ó, Guð, þinn náðarkraftur mín veri vörn í nótt. Æ, virst mig að þér taka, mér yfir láttu vaka þinn engil, svo ég sofi rótt. (Sveinbjörn Egilsson.) Elsku langafi, þú sem varst svo góður við okkur, við eigum eftir að sakna þín en við vitum að þér líður miklu betur núna. Skilaðu kveðju til lang- ömmu. Kristjana Ýr, Margrét Lea, Ari Freyr, Ernir Þór og Egill. HINSTA KVEÐJA 26 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Jón Egilssonfæddist í Hafn- arfirði 13. mars 1921. Hann lést á St. Jósefsspítala 6. apríl síðastliðinn. For- eldrar Jóns voru Eg- ill Jónsson sjómað- ur, f. í Hafnarfirði 20.9. 1889, fórst með enska togaranum Robertsson á Hala- miðum 8.2. 1925, og kona hans Þjóðbjörg Þórðardóttir, f. á Stóru Borg í Gríms- nesi 18.11. 1891, d. 27.1. 1984. Þau áttu saman auk Jóns: Helgu, f. 1916, d. 2006, Stefán, f. 1918, Að- alstein, f. 1919, d. 1994, Guðnýju, f. 1922, d. 2007, og Egil, f. 1925. Síð- ari maður Þjóðbjargar var Jón Jónsson, f. 1900, d. 1973. Þau áttu saman synina Guðjón, f. 1930, d. 1994, og Jóhann Gunnar, f. 1933, d. 1982. Jón kvæntist 25. desember 1946 Guðfinnu Leu Pétursdóttur, hús- freyju, f. 7.7. 1925, d. 3.11. 1985. Foreldrar hennar voru Pétur Pét- ursson, verkstjóri, f. 10.3. 1895, d. 14.7. 1986, og Guðrún Þorbjarn- ardóttir, húsfreyja, f. 17.9. 1903, d. 22.5. 1931. Synir Jóns og Guðfinnu eru 1) Egill, múrari í Hafnarfirði, f. 5.3. 1947, kvæntur Kristjönu Magn- úsdóttur, f. 20.9. 1948, þau búa í af miklum dugnaði í fjölmörgum félögum og þá aðallega í íþrótta- hreyfingunni. Var hann í hand- knattleiksliði Hauka þegar þeir unnu sinn fyrsta Íslandsmeist- aratitil árið 1943. Jón var gjaldkeri Hauka í 32 ár eða frá 1940-1972. Árið 1956 var hann kjörinn heið- ursfélagi Hauka fyrir störf sín í þágu félagsins. Einnig var Jón for- maður Íþróttabandalags Hafn- arfjarðar frá 1953-1955 og var auk þess í stjórn félagsins 1960-1975. Á 60. þingi Íþróttasambands Íslands 1990 var hann útnefndur heið- ursfélagi ÍSÍ. Auk þess að sinna störfum í þágu íþróttamála í Hafnarfirði var hann kjörinn í stjórn Verslunarmanna- félags Hafnarfjarðar árið 1943 og aftur árið 1950 og átti sæti í vara- stjórn og trúnaðarmannaráði VH á árunum 1957-60. Sat síðan í stjórn 1961-62 og 1974-1992. Jón var kjörinn fyrsti heiðursfélagi VH ár- ið 1993. Jón var einnig meðlimur í Félagi frímerkjasafnara í Reykja- vík og sat bæði þar í stjórn ásamt því að sitja í stjórn Landsambands íslenskra frímerkjasafnara um ára- bil. Jón vann til margra viðurkenn- inga fyrir frímerkjasafn sitt, bæði hérlendis og erlendis. Einnig sat hann í stjórn Viðeyingarfélagsins sem ritari í mörg ár. Síðustu fjögur árin hefur Jón búið að Hraunvangi 3, Hafnarfirði. Útför Jóns verður gerð frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. Hafnarfirði. Börn þeirra eru a) Helga Lea, f. 25.3. 1971, gift Kristni Arasyni, járn- iðnaðarmanni f. 17.6. 1971, börn þeirra; Kristjana Ýr, f. 29.12. 1999, Margrét Lea, f. 21.9. 2002, og Ari Freyr, f. 21.9. 2006. b) Jón Freyr, efnaverk- fræðingur, f. 16.5. 1973, sambýliskona Elísabet Finn- bogadóttir, lífefna- fræðingur, f. 27.4. 1978, og eiga þau saman soninn Egil, f. 25.8. 2007. Fyrir á Elísabet, Erni Þór Valsson, f. 20.9. 1998. 2) Ásbjörn, matvælafræðingur, f. 22.10. 1960, kvæntur Unni S. Ein- arsdóttur, fatahönnuði, f. 27.6. 1957, þau búa í Kópavogi. Saman eiga þau dótturina Arndísi Leu, f. 19.11. 1996. Fyrir á Unnur soninn Árna Einar f. 5.2. 1975. 3) Viðar, verkefnastjóri, f. 18.4. 1964, og býr í Hafnarfirði. Jón gekk í Barnaskóla Hafn- arfjarðar. Hann byrjaði að vinna í Gíslabúð sumarið 1937, þá 16 ára gamall. Jón hóf störf hjá KRON ár- ið 1943 og síðar Kaupfélagi Hafn- firðinga þar sem hann starfaði nær óslitið fram til ársins 1992. Sam- hliða daglegum störfum var Jón ákaflega félagsrækinn og starfaði Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Synir og tengdadætur. Elsku afi, í dag er komið að kveðjustund og það er sárt til þess að hugsa að eiga ekki fleiri stundir með þér en það er þó huggun að vita af þér og ömmu aftur saman og yljar sú hugsun okkur um hjartarætur. Það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við hugsum til baka er þakklæti, þakklæti fyrir að hafa átt þig sem afa því að þú varst okkur systkinunum ákaflega góður og vildir allt fyrir okkur gera. Það var heldur ekki að ósekju að við sóttumst mikið eftir því að fara í heimsókn til þín og ömmu á Öldu- slóðina og fengum við þá oft að gista. Garðurinn þinn á Ölduslóð- inni var þitt stolt og eyddir þú miklum tíma í að gera hann fal- legan. Fyrir okkur systkinunum var garðurinn hreinn ævintýra- heimur, þar settir þú oft upp ind- íánatjald fyrir okkur og á góðviðr- isdögum fengum við að hlaupa á brókinni í gegnum úðarann. Íþróttir voru stór hluti af lífi þínu, ungur að árum gekkstu til liðs við Knattspyrnufélagið Hauka og fylgdir þeim alla þína ævi, fyrst sem keppnismaður í íþróttum og síðar tók við löng stjórnarseta þar sem þú gegndir trúnaðarstörfum fyrir félagið. Þér tókst heldur betur að smita okkur systkinin af þessum íþróttaáhuga og varst þú okkur mikil fyrirmynd og studdir ávallt dyggilega við bakið á okkur á okk- ar íþróttaferli sem var okkur ómet- anlegt. Það var tilfinningaþrungin stund síðasta föstudagskvöld fyrir okkur, fjölskyldu þína, að horfa á Haukana tryggja sér Íslandsmeist- aratitilinn í handknattleik, en þar færðu Haukarnir, félagið sem þú hefur verið tengdur órjúfanlegum böndum nánast alla þína ævi, þér hlýja kveðju og þakkir fyrir þitt framlag til þeirra. Þú varst einstakur og yndislegur maður, fámáll en traustur og góður við alla í kringum þig og lýsti það sér vel í því hvernig þú hugsaðir um ömmu alla ykkar ævi saman. Það var gaman að fylgjast með þér síðastliðið haust þegar Egill litli var skírður, hvað þú varst stoltur og ánægður með nafnið. Þú hefur reynst langafabörnunum þínum vel, stelpurnar Kristjana Ýr og Mar- grét Lea komu iðulega til þín til að sýna þér afrakstur æfinganna með verðlaunapeningana um hálsinn en þá kom nú ekki svo sjaldan fyrir að þú sjálfur lumaðir á verðlaunapen- ingum fyrir púttmót enda var ávallt stutt í keppnisskapið hjá þér. Við viljum þakka þér, elsku afi, fyrir þá leiðsögn og þann stuðning sem við höfum fengið frá þér og hefur það haft mikil áhrif á okkar líf. Það er erfitt og sárt að þurfa að kveðja þig en minningin um þig mun alltaf lifa í hjörtum okkar. Guð blessi þig, afi. Að endingu viljum við færa starfsfólki St. Jósefsspítala okkar bestu þakkir fyrir alúð og hlýju við umönnun afa okkar hans síðustu lífdaga. Helga Lea og Jón Freyr. Fallinn er nú frá einn af þessum gömlu góðu Hafnfirðingum, sem alla þekkti og allir þekktu. Jón Eg- ilsson var áberandi í hafnfirsku mannlífi, þar sem hann starfaði lengi í Kaupfélagi Hafnfirðinga, en ekki var hann síður þekktur fyrir starf sitt hjá Knattspyrnufélaginu Haukum. Þá var hann alla tíð mikill stuðningsmaður Alþýðuflokksins hér í bæ og fór aldrei dult með skoðanir sínar í pólitíkinni frekar en öðrum efnum. Kynni okkar og Jóns voru hins vegar fyrst og síð- ast á sviði íþróttanna þar sem við vorum í forsvari fyrir Fimleika- félag Hafnarfjarðar og Jón að sjálf- sögðu fyrir Haukana. Vissulega vorum við ekki alltaf sammála um hlutina, en þá bara ræddum við þá til hlítar og skildum alltaf samir og bárum virðingu fyrir skoðunum hver annars. Jón var sögunnar maður og vildi hafa hlutina skipulagða og oft leit- uðum við til hans um upplýsingar um keppni fyrri ára og sömuleiðis hann til okkar. Þannig má segja að þessi samvinna hafi skilað drjúgri vinnu og upplýsingum í sögu félag- anna beggja. Þá var Jón mikill safnari og áttum við á því sviði samvinnu langt út fyrir íþróttirnar. Það er einkennileg tilviljun að tveir af kunnustu forystumönnum FH og Hauka, þeir jafnaldrarnir Jón og Árni Ágústsson, skuli hafa fallið frá á sama deginum, menn sem um áratugaskeið stóðu í fremstu fylk- ingu sinna félaga og tókust oft á ut- an vallar sem innan. Við sendum félögum okkar í Haukum og ástvin- um Jóns öllum innilegar samúðar- kveðjur um leið og við þökkum Jóni vegferðina og hans framlag til íþróttanna í Hafnarfirði. Ingvar Viktorsson, Bergþór Jónsson. Horfinn er til feðra sinna heið- ursmaðurinn Jón Egilsson, 87 ára gamall. Jón gekk ungur til liðs við Hauka og vann þar til afreka, bæði í knattspyrnu og handknattleik. Hann var m.a. í liði Hauka sem varð Íslandsmeistari í handknatt- leik 1943. Þó ber líklega hæst það afrek að vera gjaldkeri félagsins í 32 ár, frá 1942 til 1974, sem er trú- lega einsdæmi í sögu íþróttahreyf- ingarinnar hérlendis og verður seint slegið. Jón gætti þess ávallt að hafa borð fyrir báru í fjármálum félagsins og hefur hann sagt frá því að á erfiðu tímabili um miðja síð- ustu öld gátu Haukamenn látið út- svarið sitt ganga til félagsins með samþykki bæjaryfirvalda. Í huga Jóns var Knattspyrnu- félagið Haukar nánast heilög stofn- un sem hann setti ofar öllu sem sést m.a. í samviskusemi og heið- arleika í öllu sem hann tók sér fyrir hendur fyrir félagið og glöggt má sjá í efnismiklu gagnasafni sem hann hefur ánafnað félaginu. Jón var gerður að heiðursfélaga Hauka 1956 og hefur hann fengið fyrir störf sín ótal viðurkenningar íþróttahreyfingarinnar. Um leið og félagið þakkar Jóni samfylgdina um langan tíma sendir félagið sonum hans, Agli, Viðari og Ásbirni og fjölskyldum þeirra inni- legustu samúðarkveðjur. Aðalstjórn Hauka. Í dag verður borinn til grafar Jón Egilsson, mikilsmetinn félagi í samtökum frímerkjasafnara. Mik- ilsmetinn er þó ekki nógu sterkt orð til að lýsa því hversu mik- ilvægur hann var fyrir Félag frí- merkjasafnara og Landssamband íslenskra frímerkjasafnara. Í fé- lögum sem þessum er þörf á ein- staklingum sem eru hugmyndaríkir og drífandi en ekki síður þeim sem geta komið hugmyndum í fram- kvæmd. Þannig maður var Jón, hann var úrræðagóður og nákvæm- ur og ef hann tók eitthvað að sér þá var hægt að treysta því að málið var klárað. Jóni, sem var innfædd- ur Hafnfirðingur, var annt um heimabæ sinn og setti hann upp frí- merkjasafn sem fjallaði um póst- sögu Hafnarfjarðar. Fékk hann verðskulduð verðlaun fyrir safnið. Jón valdist snemma í stjórn Félags frímerkjasafnara, var formaður, meðstjórnandi og lengst af ritari. Ritarastarfið var einmitt það starf þar sem hæfileikar hans nutu sín best. Eftir að hann hætti í stjórn félagsins hélt hann áfram að skrá hjá sér ýmsar upplýsingar þegar hann mætti á félagsfundi í félags- heimilinu í Síðumúla 17. Þetta kom sér oft vel, eins og til dæmis þegar taka átti fyrir sömu lagabreyt- inguna á aðalfundi annað árið í röð. Á 50 ára afmæli félagsins á síðasta ári var honum veitt sérstök við- urkenning fyrir frábær störf í þágu frímerkjasafnara. Því miður gat hann ekki veitt viðurkenningunni viðtöku en bað fyrir kveðju og til- kynnti að hann vildi gefa félaginu mikið safn blaðaúrklippa um frí- merki og póstsögu sem hann hafði safnað til fjölda ára. Jón var í mörg ár fulltrúi félags- ins á landsþingum Landssambands íslenskra frímerkjasafnara. Leysti hann það starf með sóma og var kosinn í stjórn landssambandsins, þar sem hann sat í nokkur ár. Eftir að heilsan fór að gefa sig tók Jón minni þátt í félagsstörfum frí- merkjasafnara en fylgdist þó ávallt vel með starfinu og spurði frétta, enda tekið þátt í að koma frí- merkjasöfnurum upp góðri fé- lagsaðstöðu og byggja upp öflugt félagsstarf sem yngri félagar njóta góðs af. Ófáar vinnustundir lagði hann á sig þegar innlendar og nor- rænar frímerkjasýningar voru sett- ar upp hér á landi. Að leiðarlokum viljum við þakka samfylgdina og votta fjölskyldu Jóns, sem hann var alltaf mjög stoltur af, okkar innilegustu samúð við fráfall hans. Félag frímerkjasafnara og Landssamband íslenskra frímerkjasafnara. Árið 1907 urðu mikil kaflaskipti í atvinnusögu þjóðarinnar og sögu Viðeyjar. Athafnamennirnir Pét- ur J. Thorsteinsson og Thor Jen- sen, ásamt dönskum áhrifamönn- um, stofnuðu útgerðar- og fiskvinnslufyrirtækið P.J.Thor- steinsson og Co, hið svonefnda Milljónafélag, og völdu aðalstöðv- um þess aðsetur í Viðey. Byggður var hafnarbakki og fyrstu hafskipabryggjurnar við Faxaflóa. Reykjavík var þá hafn- laus og Viðeyjarstöð varð á svip- stundu miðstöð samgangna við um- heiminn. Gufuskipafélagið DFDS gerði Viðey að sinni upp- og útskipunarhöfn og hið sama gerði olíufélagið DDPA. Þaðan voru farmar félaganna selfluttir til Reykjavíkur og út um landið. Þessi mikla og skjóta uppbygging kallaði á vinnufúsar hendur. Í eynni risu upp mörg íbúðarhús og ein stærsta og glæsilegasta verbúð landsins. Fólk flykktist til eyjarinnar; barna- fjölskyldur sem óbundnir einstak- lingar. Sumir þeirra kynntust þar verðandi lífsförunaut, bundust, stofnuðu heimili og bættu brátt nýjum einstaklingum í ört stækk- andi barnahóp eyjarinnar sem iðaði af mannlífi. Þegar mest var um að vera var Viðeyjarþorp, þegar aðkomu- verkafólk var talið með, eitt það mannflesta á landinu. Barnaskóli var starfræktur í eynni frá 1912. Viðey tilheyrði þá Seltjarnarnes- hreppi og Viðeyjarskóli heyrði und- ir Mýrarhúsaskóla, var eins konar útibú frá honum. Byggðin óx og fólkinu fjölgaði. Það segir sína sögu að skólaárið 1917-́18 voru 17 börn í „útibúinu“, Viðeyjarskóla, en 25 á „höfuðbólinu“, Mýrarhúsaskóla. Árið 1931 lagð- ist útgerð og fiskvinnsla niður í Viðey og flestir fluttu þá burt. Við- eyjarskóli starfaði til ársins 1941 og tvær síðustu fjölskyldurnar fluttu úr eynni 1943. Þá var æv- intýrinu endanlega lokið. Kennarar í Viðey voru lengst af Ásmundur G. Þórðarson og kona hans Guðlaug Bergþórsdóttir. Þeim varð ekki barna auðið en ólu upp stúlku, Guðfinnu Leu Pét- ursdóttur, náfrænku Guðlaugar. Guðfinna hafði misst móður sína strax í bernsku og þau Ásmundur og Guðlaug gengu henni í foreldra- stað. Þau hjónin hættu kennslu 1939 fyrir aldurs sakir og fluttu til Hafnarfjarðar. Þar í bæ kynntist og giftist Dista, ensvo var Guðfinna Lea ætíð kölluð, Jóni Egilssyni, verslunarmanni. Böndin milli Viðeyinga trosnuðu næstu áratugina en um miðjan átt- unda áratuginn ráku menn af sér slyðruorðið og stofnuðu Viðeyingafélagið. Þau hjón tóku af alhug þátt í störfum félagsins ogJón var ritari þess til margra ára. Hann gegndi þeim störfum með stakri prýði, safnaði öllu sem kom út á prenti um Viðey og límdi í sérstakar bækur. Vandvirkni Jóns kom engum á óvart sem til þekktu. Hann var einstakt snyrtimenni og fagurkeri. Garður þeirra hjóna fékk t.d. í tvígang viðurkenningu fyrir að vera sá fegursti í Hafn- arfirði. Það lýsir vel hug Viðeyinga til Jóns, að á sjötugsafmæli hans komst einn þeirra svo að orði að Jón væri tengdasonur Viðeyjar og fyrir það mætti færa forsjóninni sérstakar þakkir. Ég endurtek þakkir Viðeyinga og færi afkom- endum þeirra hjóna samúðarkveðj- ur. Örlygur Hálfdánarson. Jón Egilsson var einn af hinum fræknu Haukastrákum sem voru í fararbroddi hvort heldur innan sem utan vallar. Hann var sannur íþróttamaður eins og þeir Egils- bræður allir. Háttvís og drengur góður en keppnismaður mikill. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd síns félags, Haukahjartað var svo sannarlega á sínum stað. Jón var ekki aðeins frækinn leik- maður í handknattleik og knatt- spyrnu heldur var hann líka einn af forystumönnum Hauka um ára- tugaskeið. Hann hélt utan um fjár- mál félagsins í yfir þrjá áratugi og óhætt að segja að það var ekki síst fyrir aðgæslu og árverkni Jóns að félagið komst klakklaust í gegnum ýmis erfið ár þegar pyngjan var nánast tóm. Það var því sönn gleði í huga Jóns og hans félaga frá gömlu gullaldarárunum að fá að taka þátt í þeirri miklu uppbyggingu og sókn á öllum sviðum sem hefur orðið hjá gamla góða félaginu á síðustu ár- um. Hann var virkur þátttakandi í öldungaráði og fylgdist með öllum kappleikjum meðan heilsan leyfði. Ég átti því láni að fagna að eiga gott samstarf við Jón og njóta fjöl- breytilegs fróðleiks og þekkingar hans þegar ég tók að mér það verk- efni að skrá 60 ára afmælissögu Hauka. Í framhaldi af því verkefni unnum við Jón að öðru stóru verki sem var skráning á verslunarsögu Hafnarfjarðar en Jón sem var í for- ystusveit Verslunarmannafélagsins tók virkan þátt í þeirri vinnu sem fulltrúi í ritnefnd. Þar var Jón líka svo sannarlega á heimavelli, þekkti vel til þróunar og sögu verslunar í bænum sínum, enda víða komið við á löngum starfsferli. Fyrir þessi ánægjulegu kynni, allan fróðleikinn og samstarfið í gegnum árin vil ég fá að þakka af heilum hug, um leið og ég færi fjöl- skyldu Jóns og aðstandendum inni- legar samúðarkveðjur. Lúðvík Geirsson. Jón Egilsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.