Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 36
■ Á morgun kl. 19.30
Söngfuglar hvíta tjaldsins
Söngleikjadívan Kim Criswell flettir söngbókum helstu lagahöfunda
Bandaríkjanna frá gullöld söngvamyndanna og fetar í fótspor
sönggyðja á borð við Judy Garland, Marilyn Monroe og Doris Day.
Hljómsveitarstjóri: John Wilson
Einsöngvari: Kim Criswell
■ Lau. 19. apríl kl. 14.00
Bíófjör - Tónsprotatónleikar
Öll fjölskyldan skemmtir sér konunglega á þessum tónleikum þar
sem tónlist úr kvikmyndum á borð við Stjörnustríð, Harry Potter,
Mary Poppins og Simpsons hljómar. Trúðurinn Barbara kynnir
tónlistina á sinn einstaka hátt.
■ Fim 9. maí kl. 19.30
PPP áttræður
Íslenskt tónlistarlíf og ekki síst Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur í
þakkarskuld við Pál Pampichler Pálsson og heiðrar hann áttræðan
með þessum tónleikum þar sem flutt verður fimmta sinfónía
Mahlers, sellókonsert Schumanns auk verks eftir afmælisbarnið.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is
Við innganginn stóð
kofi einn en þó ekki í
honum jólasveinn … 40
»
reykjavíkreykjavík
BJÖRK Guðmundsdóttir hóf á
föstudaginn tónleikaferðalag sitt
um Bretland þar sem hún spilar á
alls tíu tónleikum. Tvennir þeirra
eru að baki og hafa breskir fjöl-
miðlamenn keppst við að hlaða á
hana lofi fyrir frammistöðuna.
„Hún er stjarna í orðsins
fyllstu merkingu, ófyrirsjáanleg,
dularfull og dáleiddi áhorfendur
gjörsamlega,“ sagði gagnrýnandi
Manchester Evening News eftir
tónleika Bjarkar þar á föstudags-
kvöldið. „Það eru fjögur ár síðan
hún túraði síðast um Bretland og
það var tekið á móti henni í Man-
chester eins og týndri dóttur.“
Björk hefur eins og kunnugt er
vakið athygli á tónleikaferðalagi
sínu fyrir að hvetja Grænlend-
inga, Færeyinga og nú síðast Tíb-
eta til þess að lýsa yfir sjálfstæði.
Það mátti greina nokkur von-
brigði hjá gagnrýnanda This is
London vegna þess að hún hvatti
ekki íbúa Hammersmith-
hverfisins til þess að lýsa yfir
sjálfstæði og lyfta fána á tónleik-
unum þar í fyrrakvöld. „Lítil þjóð
sem stærsta poppstjarna Íslands
drottnar yfir virðist mjög freist-
andi hugmynd,“ sagði hann.
Hann varð þó ekki fyrir nein-
um vonbrigðum með tónleikana
sjálfa og sagði að þó að hann
hefði alltaf haft það á tilfinning-
unni að Björk væri ekki alveg af
þessum heimi, þá hefði hún end-
anlega staðfest það þarna að hún
væri göldrótt.
Árni Matthíasson blaðamaður
Morgunblaðsins var meðal áheyr-
enda í Hammersmith og var ekki
síður hrifinn af tónleikunum.
„Það seldist upp á augabragði og
mikil stemning í kringum þá.
Þetta voru alveg ofboðslega vel
heppnaðir tónleikar.“
Týnda dóttirin snýr heim
Reuters
Göldrótt Björk á tónleikum.
Ekkert er nýtt
undir sólinni,
stendur einhvers
staðar skrifað, og
margt er til í því.
Glöggur blaða-
maður Monitors
vekur athygli á því að margt sé líkt
með myndbandi Mercedes Club
við lagið „Meira frelsi“ og nýjasta
myndbandi Íslandsvinarins Bass-
hunter við lagið „Now You’re
Gone“. Söguþráður myndbandanna
snýst í báðum tilvikum um strák og
stelpu sem eiga í upphafi samskipti
með sms-skilaboðum en enda síðar
á skemmtistað þar sem þau ná loks
saman á dansgólfinu. Myndböndin
enda svo bæði á ástríðufullum kossi
á miðju dansgólfinu. Samkvæmt
Monitor mun Basshunter-
myndbandið vera nokkru eldra, eða
frá því í nóvember sl., og því verður
að teljast líklegt að þeir sem gerðu
myndbandið fyrir Mercedes Club
hafi vitað af hinu.
Hugmyndin að mynd-
bandi MC stolin?
Uppselt var á danssýningu
Ernu Ómarsdóttur og Jóhanns Jó-
hannssonar sem nefnist Mysteries
of Love og var sýnd í BOZAR-
listamiðstöðinni í Brussel í síðasta
mánuði. Salurinn tekur 400 manns
í sæti og því verður árangurinn að
teljast nokkuð merkilegur. Þá
sagði Erna að lokinni sýningu að
frábær viðbrögð áhorfenda hefðu
komið sér dálítið á óvart, enda
Brussel talin Mekka nútímadans-
ins. Sýningin var hluti af Iceland
on the Edge-hátíðinni, stærsta
landkynningar- og menningar-
verkefni ársins, og því ljóst að hún
var enn ein rósin í hnappagat ísl-
enskrar menningar á erlendri
grundu.
Dansað í „Mekka“
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
„NEI, þú getur ekki ímyndað þér hversu glaður
ég var þegar ég hélt loksins á fullkláruðum grip
í höndunum,“ tjáir Sverrir blaðamanni vígreifur.
„Nú er maður líka kominn yfir ákveðinn þrösk-
uld og það var allt önnur tilfinning að setjast nið-
ur með gítarinn þegar ferlið var loks að baki. Nú
fara loksins að tínast inn lög á næstu plötu.“
Lokahnykkurinn var er S. Husky Hoskulds, Ís-
lendingurinn knái sem getið hefur sér gott orð
sem upptökumaður vestur í Bandaríkjunum,
kom til landsins til að klára hljóðblöndun í upp-
hafi árs. Hann, Sverrir og aðrir þeir sem hafa
unnið með honum að plötunni settust þá saman í
einn hnapp og bundu endahnútinn á lögin.
Útlönd
Ýmsir aðilar tóku þátt í plötuvinnslunni, og
koma þeir víða að. Auk Husky sá Bretinn James
Hallawell um upptökustjórn og píanóleik auk
þess að taka þátt í lagasamningu. Magnús Þór
Sigmundsson á þá eitt lag og Franz Gunnarsson
gítarleikari (Dr. Spock, Ensími) á tvö lög. Þrjú
laganna samdi Sverrir þá með Ludwig Böss,
fyrrverandi leiðtoga sænsku skrýtipoppsveit-
arinnar Ray Wonder.
Sverrir gefur plötuna út sjálfur en Sena sér
um að dreifa hérlendis. Metnaðurinn er auðheyr-
anlegur þegar plötunni er rúllað í gegn og efnið
þesslegt að það væri hreinlega bjánalegt að
gægjast ekki út fyrir landsteina með gripinn.
Það stendur og til.
„Ætlunin er nú að pota þessu eitthvað áfram,
jú jú,“ segir Sverrir, auðheyranlega með báða
fætur á jörðinni. „Husky ætlar að kynna þetta
fyrir fólki sem hann þekkir þarna úti og svo er
James með sín sambönd. Ludwig er úti í Berlín
og svo veit ég að Eiður Smári, sem sá um kostun,
hefur áhuga á að vinna plötunni brautargengi.
Þannig að það eru þræðir út um allt, það vantar
ekki.“
Vantar hljómborðsleikara
Sverrir leggur samt áherslu á að fyrst sé nú að
kynna plötuna rækilega fyrir landanum. Það
þýði ekkert að ana til útlanda strax; heimamark-
aðurinn gangi fyrir. Útgáfutónleikar verða
haldnir í maí og Sverrir vonast til að komast í
hringtúr um landið í sumar með sveit sína. Allt
er þetta þó á teikniborðinu en þó er alveg hægt
að staðfesta að það er mikill hugur í Sverri og
co.
„Það er frábært að vera búinn að koma þessu
út loksins og ég hlakka til að kynna þetta fyrir
landsmönnum,“ segir hann. „Þeir sem skipa
sveitina eru þeir sömu og áður, þ.e. Franz, Jónsi
sem var með mér í Daysleeper en hann spilar á
bassa og svo leikur Halli úr Lights on the
Highway á trommur.
Við erum að leita okkur að hljómborðsleikara,
það ætlar að verða dálítið snúið einhverra hluta
vegna. En svo eru það bara tónleikar og aftur
tónleikar.“
Þremur árum síðar …
Sverrir Bergmann er klár með fyrstu sólóplötu sína en útgáfudagur er föstu-
dagurinn 25. apríl „Þungu fargi loksins af mér létt,“ segir hann blaðamanni
Bergmann „Það er frábært að vera búinn að koma þessu út loksins og ég hlakka til að kynna þetta
fyrir landsmönnum,“ segir Sverrir Bergmann sem hefur gefið út sína fyrstu plötu, Bergmann.