Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 38

Morgunblaðið - 16.04.2008, Side 38
38 MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ MYNDASAGAN Exit Wounds er fyrsta saga ísraelska höfundarins Rutu Modan í fullri lengd og jafn- framt fyrsta verk hennar sem út- gáfufyrirtækið Drawn and Quart- erly gefur út. Það hefur á sínum snærum marga af fremstu mynda- söguhöfundum samtímans og það er ákveðinn gæðastimpill á nýjan höfund að komast í þann hóp. Modan sýnir það með þessari frumraun að hún á þar vel heima. Í Exit Wounds er fylgst með ung- um manni, Koby Franco, sem starf- ar sem leigubílstjóri í Tel Aviv. Hann fær vísbendingar um að faðir hans hafi látist í sjálfsmorðsspreng- ingu og hefur leit að honum með að- stoð jafnöldru sinnar, hermanns í ísraelska hernum, sem átti í ást- arsambandi við föðurinn. Bókin er á yfirborðinu um kynni aðalpersón- anna og hvernig maðurinn sem þau eru að leita að hefur svikið þau bæði. En hún fjallar líka öðrum þræði um þau málefni sem fyrst koma upp í hugann þegar minnst er á Ísrael, hernað, hryðjuverk og trúmál og gerir það mjög frumlega og lip- urlega. Modan forðast allar klisjur og kemur lesandanum sífellt á óvart, ekki síst með því hversu hófstillt frá- sögnin er. Ísrael birtist manni yf- irleitt í æsilegum fréttaskotum en hér er það venjulegt fólk sem er að reyna að gera upp sársaukafulla for- tíð, koma reglu á óreiðuna í kringum sig og finna leið fram á veginn. Frábær frumraun Exit Wounds eftir Rutu Modan. Drawn and Quarterly gefur út. 163 bls. innb. Gunnhildur Finnsdóttir ERLENDAR BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. Unaccustomed Earth – Jhumpa Lahiri 2. Small Favor – Jim Butcher 3. Compulsion – Jonathan Kellerman 4. The Appeal – John Grisham 5. Belong To Me – Marisa de los Santos 6. Change of Heart – Jodi Picoult 7. Remember Me? – Sophie Kinsella 8. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 9. 7th Heaven – James Patterson & Maxine Paetro 10. Winter Study – Nevada Barr New York Times 1. The Post-birthday World – Lionel Shriver 2. A Thousand Splendid Suns – Khaled Hosseini 3. The Gathering – Anne Enright 4. On Chesil Beach – Ian McEwan 5. Engleby – Sebastian Faulks 6. Nineteen Minutes – Jodi Picoult 7. Revelation – C.J. Sansom 8. The Book Thief – Markus Zusak 9. Slam – Nick Hornby 10. Thanks for the Memories – Cecelia Ahern Waterstone’s 1. Exit Music – Ian Rankin 2. Stalins Ghost – Martin Cruz Smith 3. Borderlands – Brian McGilloway 4. Daring to Dream – Nora Roberts 5. Witch of Portobello – Paulo Coelho 6. Absolute Scandal – Penny Vincenzi 7. Skin Privilege – Karin Slaughter 8. Dexter in the Dark – Jeff Lindsay 9. Blood of Flowers – Anita Amirrezvani 10. Bad Luck and Trouble – Lee Child Eymundsson Eftir Höskuld Ólafsson hoskuldur@mbl.is „GLUGGAR herbergjanna á efri hæðinni snúa út á vatn- ið sem glæða herbergin bæði náttúrulegu ljósi og fersk- um andblæ en viljirðu spara nokkra dali er einnig hægt að panta fábrotin herbergi á neðri hæðinni. Gistiheimilið býður upp á einhverja fallegustu verönd borgarinnar og þar er draumi líkast að sitja með drykk í hönd og fylgjast með undurfögru sólarlaginu speglast á vatninu.“ Svo hljómar lýsing Lonely Planet á gistiheimilinu Fljótandi eyjan (Floating Island) sem er staðsett við Boeng Kak-vatnið í Phnom Penh, höfuðborg Kambódíu. Við hjónin stóðumst að sjálfsögðu ekki þessa lýsingu þegar við undirbjuggum ferðina til höfuðborgarinnar og hugsuðum til þess með tilhlökkun að geta upplifað aust- urlenskt sólarlag með svalandi drykk í hönd. Ég held ég fari ekki ofan í það hversu ólík lífsreynsla okkar af þessu gistiheimili reyndist að lokum en segja má að fleira hafi verið „fábrotið“ en herbergin á neðri hæðinni. Spegilmyndir Þetta er rifjað upp í ljósi frétta sem bárust utan úr heimi á dögunum þess efnis að Thomas Kohnstamm, 32 ára, frá Seattle í Bandaríkjunum, hefði skáldað á annan tug bókarkafla fyrir Lonely Planet-bókaröðina. Ko- hnstamm skrifaði kafla um Brasilíu, Venesúela og Chile án þess þó að hafa kynnt sér löndin sérstaklega og þegar það kom að því að skrifa inngang að ferðabók um Kól- umbíu ráðfærði hann sig við kærustu sína sem var í starfsnámi hjá kólumbíska konsúlnum í San Francisco. Sama hvað fólki finnst um þessi svik Kohnstamms er ekki annað hægt en að dást að óskammfeilninni. Nú þeg- ar hafa tugir þúsunda ferðamanna ferðast um Suður- Ameríku með bókarkafla Kohnstamms, tekið mið af skrifum hans um vínhéruð Chile, „favellur“ Rio de Ja- neiro og þjóðvegi Kólumbíu. Saklausir ferðamenn voru teymdir um ímyndaðan heim Kohnstamms og líkaði kannski bara vel. Ósjálfrátt vakna hugrenningatengsl við sögur Jose Luis Borges. Sögur fullar af ímynduðum verum í veröld sem á sér fyrirmynd en þó ekki. Það mætti ef til vill lesa þær sögur samtímis bókarköflum Lonely Planet og finna sambærilega heima – speg- ilmyndir. Hvað um það. Kohnstamm var ekki á meðal þeirra höfunda sem ég studdist við í Kambódíu en ég hef svo sem enga tryggingu fyrir því að sá sem skrifaði um gisti- heimilið Fljótandi eyjuna hafi stigið þar inn fæti. Örugg- lega ekki. Trúlega hefur höfundurinn setið á útikaffihúsi í Prag – með svalandi drykk í hönd – og ímyndað sér rauðsprengda sólina speglast á vatnsfleti Boeng Kak. Nafn gistiheimilisins hefur hann svo tekið upp úr skáld- sögu eftir Borges sem hann var að enda við að lesa. Forvitnilegar bækur: Ímyndaður heimur Lonely Planet Fljótandi eyjan Reuters Phnom Penh Kambódískir drengir stinga sér til sunds. SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í SMÁRABÍÓI l ATH: Á UNDAN MYNDINNI VERÐUR FRUMSÝNT FRÁBÆRT MYNDSKEIÐ (TRAILER) ÚR ICE AGE 3! SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI eeeee -S.M.E., Mannlíf eeee - S.S. , X-ið FM 9.77 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Háskólabíói Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI J E S S I C A A L B A Vantage point kl. 8 - 10:10 B.i. 16 ára Shutter kl. 10:30 B.i. 16 ára Horton m/ísl. tali kl. 4 - 6 - L.I.B. TOPP5.is/FBL. eee 21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 B.i. 12 ára 21 kl. 5:20 - 8 - 10:35 LÚXUS Superhero movie kl. 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Definately maby kl. 8 SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND Í BORGARBÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í HÁSKÓLABÍÓISÝND Í HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI - Empire eeeeeeee - E.E, D.V.- ÓHT, Rás 2 eee - L.I.B. Topp5.is/FBL eeee SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI MÖGNUÐ MYND BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM UM HÓP NEMENDA SEM SÉRHÆFÐU SIG Í AÐ LÆRA OG TELJA Í SPILIÐ 21 MEÐ ÞAÐ MARKMIÐ AÐ HREINSA SPILAVÍTIN Í VEGAS! Superhero Movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Vantage Point kl. 8 B.i. 16 ára The Orphanage kl. 6 B.i. 16 ára The Eye kl. 10 B.i. 16 ára 21 kl. 6 - 9 B.i. 12 ára Superhero movie kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Doomsday kl. 10:30 B.i. 16 ára The other Boleyn girl kl. 5:30 B.i. 10 ára The Kite Runner kl. 10 B.i. 12 ára Brúðguminn kl. 6 - 8 B.i. 7 ára eee - S.V., MBL - S.V., MBL eee TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG! 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.