Morgunblaðið - 16.04.2008, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 16.04.2008, Qupperneq 44
Hrunamannahreppur | ,,Þetta eru hörkukindur,“ sagði Magnús Helgi Loftsson, bóndi í Haukholtum, þegar fréttaritari fór til hans að líta á þrjár ær sem voru að heimtast. Hann, ásamt bróður sínum, Þorsteini, sem jafnframt er byggingarmeistari, rekur myndarlegt fjárbú á jörðinni. ,,Það voru bræðurnir Jón og Svanur Einarssynir í Tungufelli sem komu auga á ærnar þegar þeir voru að leita að tófuförum á vélsleðum sínum. Þær hafa þraukað veturinn í skógi austan við Gullfoss, enda eru þær skógdregnar en rýrar,“ sagði Magnús enn- fremur. Kindurnar heimtust allar í haust, voru tví- lembdar og voru fimm gimbrar settar á undan þeim. Eftir að lömbin höfðu verið tekin undan var þeim sleppt aftur á útjörð. Fullorðið fé hefur yfirleitt heimst vel á haustin hjá þeim bræðrum en þeir söknuðu þess- ara og þriggja annarra. Höfðu þeir bræður leitað þeirra mikið. Ekki er óalgengt að sauðfé lifi af veturinn á útigangi, en þar sem mikill jafnfallinn snjór var hér svo vikum skipti þykir það sérstakt að þessar kindur skyldu lifa veturinn af. Af 630 lömbum sem fæddust sl. vor á bænum vantaði 15 í haust. Á nokkrum bæjum hér í Hrunamannahreppi vantaði á milli 10 og 20 lömb á heimtur sl. haust. Gruna bændur refinn um að eiga stóran hlut að máli. Þraukuðu veturinn í skógi Þrjár útigangsær fundust í Hreppum Ljósmynd/Sigurður Sigmundsson MIÐVIKUDAGUR 16. APRÍL 107. DAGUR ÁRSINS 2008 »MEST LESIÐ Á mbl.is »VEÐUR mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2800 HELGARÁSKRIFT 1700 PDF Á MBL.IS 1700 SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT Morgunblaðið bíður eftir þér þegar þú vaknar á morgnana ÞETTA HELST» Kannast ekki við mafíu  Pólverjar sem hér starfa kannast ekki við að hér sé pólsk mafía sem níðist á samlöndum sínum. Þetta er reynsla Pólverjans Stanislaws Bu- kowskis, sem hefur búið hér í sjö ár. Sú staða sé að koma upp að enginn vilji ráða Pólverja í vinnu þar sem þeir séu orðnir „glæpaþjóð“. »9 Lágmarka áhættu  Kjartan Magnússon, stjórnar- formaður Orkuveitu Reykjavíkur (OR), segist ekki sjá fyrir sér að Reykjavík Energy Invest (REI) fái fjármagn frá OR í framtíðinni og muni fyrirtækið lágmarka áhættu í verkefnum sem eru hafin. »Forsíða Skoði aðra möguleika  Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður Straums – Burð- aráss, hvetur menn til að skoða möguleika á að taka upp annan stöð- ugan gjaldmiðil. »13 Gagnrýnir hallarekstur  Rekstur ríkisstofnana hefur batn- að frá árinu 2003, þótt uppsafnaður halli þeirra hafi numið 974 millj- ónum króna í árslok 2006, en um 847 milljónum króna í árslok 2007. Þetta kemur fram í skýrslu Ríkisendur- skoðunar um framkvæmd fjárlaga árið 2007 og ársáætlanir þeirra 2008. Af stofnunum sem eru gagnrýndar sérstaklega í skýrslunni má nefna framhaldsskóla og heilsugæslu- stöðvar. »4 SKOÐANIR» Staksteinar: Samráð eða tilviljun? Forystugreinar: Fjármálakreppan breiðist út | Sigur Berlusconis Ljósvaki: Þarf hvorki kút né kork UMRÆÐAN» Alþjóðlegur dagur leiklistar Svar við ummælum Starfshættir Seðlabanka Íslands Ennþá rúinn trausti  3 3 3 3 3  3  3 4  "5'  .! + !" 6 !   !! #1   3  3 3 3  3 3 -7&1 '   3  3 3 3 3  3 89::;<= '>?<:=@6'AB@8 7;@;8;89::;<= 8C@'77<D@; @9<'77<D@; 'E@'77<D@; '2=''@#F<;@7= G;A;@'7>G?@ '8< ?2<; 6?@6='2+'=>;:; Heitast 8°C | Kaldast 2°C  Sunnan- og suð- austan 5-13 m/s. Skýj- að með köflum og að mestu þurrt sunnan- lands. Annars bjart. » 10 Fyrsta sólóplata Sverris Bergmanns er loksins komin út, en platan sem heitir Bergmann var kost- uð af Eiði Smára. »36 TÓNLIST» Fyrsta sólóplatan KVIKMYNDIR» Scorsese og Stones virka vel saman. »39 Anna Jóa er á því að ekki eigi að notast við stjörnugjöf þeg- ar kemur að því að dæma myndlist í fjölmiðlum. »41 MYNDLIST» Stjörnur eða ekki stjörnur? TÓNLIST» Smekkleysa lokar við Laugaveg. »39 FÓLK» Carey kemst í gamlar gallabuxur. »37 reykjavíkreykjavík VEÐUR» 1. Stúlkan ætlar ekki að kæra 2. „Kynlífsmyndband“ með Monroe 3. Flutningabifreið föst undir … brú 4. Sat fastur í ruslalúgu systur sinnar  Íslenska krónan styrktist um 0,4% „MÁL MÁLANNA er fræðirit um annars-máls-fræði og kennslu er- lendra tungumála,“ segir Auður Hauksdóttir, dósent í dönsku við Háskóla Íslands, um nýtt fræðirit sem hún og Birna Arnbjörnsdóttir, dósent í rannsóknum og kennslu- fræði erlendra tungumála við Há- skóla Íslands, ritstýra. Það hefur að geyma greinar um fræðigrein- ina, sem þær segja að lítið hafi ver- ið skrifað um á íslensku til þessa. Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum gefur ritið út í samvinnu við Háskólaútgáfuna. Þjál orð og hugtök Mikil vinna hefur að sögn Auðar farið í að finna gagnsæ og þjál ís- lensk orð og hugtök sem geta lýst fræðunum, en ekki síður í það stóra verkefni að samræma hugtaka- notkun í þeim hluta bókarinnar sem hefur að geyma greinar eftir þekkta erlenda fræðimenn í grein- inni. „Greinarnar eru þýddar úr dönsku, ensku og sænsku og þýð- endurnir eru því nokkrir. Það fór gríðarleg vinna í að halda utan um rétta og samræmda notkun hug- taka.“| 15 Mál mál- anna um erlend mál Morgunblaðið/Valdís Thor Fræðirit Vigdís Finnbogadóttir fékk fyrsta eintakið afhent í gær. VOPNAÐ rán var framið í sölu- turni á Grettisgötu um klukkan hálftólf í gærkvöldi. Ungur maður sem huldi andlit sitt með klút gekk þá inn í söluturninn og ógnaði starfsmanni með hnífi. Ekki kom til líkamlegra átaka, en ræninginn komst undan með nokkra fjármuni og sígarettur. Að sögn varðstjóra hjá lögreglunni í Reykjavík var ræningjans enn leitað um mið- nættið og vissi lögreglan ekki nán- ari deili á honum. Vopnað rán á Grettisgötu Eftir Önund Pál Ragnarsson onundur@mbl.is ÍBÚAR við Sæbraut á Seltjarnar- nesi fengu ekki póstinn sinn um vikutíma, frá 26. febrúar til 3. mars síðastliðinn. Að viku liðinni barst póstur fyrir heila viku, þá blautur og rifinn, að því er virðist eftir veru úti undir berum himni. Konu einni, sem býr við Sæbraut og hafði samband við Morgunblaðið í gær, segist svo frá að sonur hennar hafi búist við kreditkorti og PIN- númeri í pósti frá Europay í þeirri viku. Áður en pósturinn skilaði sér var hins vegar farið að taka út af kortinu í hraðbanka í miðbæ Reykja- víkur, alls 50.000 krónur, áður en tókst að loka því. Konan, sem ekki vill láta nafns síns getið þar sem lög- reglumál hafi orðið vegna þessa, tek- ur fram að bréfberinn í hverfinu hafi lengi borið þar út og ætíð sinnt sínu starfi vel en verið veikur þessa viku. Ekki sé, að hennar mati, hægt að ráða annað af ástandi póstsins og út- tektunum af kortinu en að pósturinn hafi einhvers staðar legið utandyra án eftirlits. Láti vita af töskum á víðavangi Morgunblaðinu barst í gær yfir- lýsing frá Íslandspósti, í tilefni af fréttum svipaðs efnis undanfarna daga. Í yfirlýsingunni segir að vinnu- reglur kveði skýrt á um að bréfbera- töskur eigi aldrei að vera án eftirlits á víðavangi. Misbrestur hafi orðið þar á og hafi tafarlaust verið tekið á því með áminningum til viðkomandi bréfbera. „Vinnureglur Íslandspósts eru skýrar hvað þetta varðar og hef- ur sérstaklega verið hnykkt á þeim innan fyrirtækisins í kjölfar þessara ábendinga. Örugg meðferð pósts er grundvallaratriði í þjónustu Íslands- pósts og liggur skýrt fyrir, að end- urtekið brot á verklagsreglum hvað það varðar leiðir til uppsagnar. Sjái fólk bréfberatöskur á víða- vangi og engan bréfbera í augsýn hvetjum við eindregið til þess að láta vita í þjónustusíma Íslandspósts, 580-1200. Rétt er þó að hafa í huga að kerrur og töskur bréfbera geta sést fyrir utan hús á meðan póstur er borinn þar út, en þær eiga þá að vera í augsýn bréfberans,“ segir í yfirlýs- ingunni. Kortið hvarf úr pósti  Korti og PIN-númeri stolið úr bréfberapoka á Seltjarnar- nesi í lok febrúar  Íslandspóstur bregst við fréttum ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.