Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
# $
#%& '() *+ ,$
!!"
! " ##
$ "
!"#$
%& !"#$
'("#$
) !"#$
*((+("#$
,#$(-(!#.*/0*
12
* ( !"#$
3 !4(/"#$
) +(0* "#$
*"#$
56 - 7 89 :9#$+$"#$
;-("#$
< "#$
%#&! #'#() $ =>"#$
*#
2"#$
*(2(
;
*(25
*
-5?
((
*/ !"#$
@ ;
12
* (2 !"#$
A"
:("#$
(!("#$
;//(/-(8&8("#$
B(* &8("#$
$ #* +#'#, -$
C
;* -( - , ("#$
,-!(8:"#$
.$)$ )#
B(8(!(
/(
(*+ 8D* /E
3 !*
$=$F
=$FF$GFG
=>$H$HG
=$>=$>=
I$=F>$==I
$=F$
G$H$>G
$H$H$H=I
=$>FG$F
>$IG$>
H$GI$H>>
=$IH$I
>$==
H$=>$=
7
=$>G>$
I$I=$HGI
$$I=
7
7
I=F$H>G$H>>
7
7
G$>=G$IHH
7
7
GI$G$
$I>$=H
7
FJ=
=HJI
IJI
>J
>J>
IJG
IIJ
HJ
IGJG
HGJF
J
IJHH
=JFI
GHJ
J=
>J>>
IJ
IJ
=J
JH
>J
7
7
7
7
7
=J
J
7
FJ=
=HJ
IJ=I
>JI
>JF
IIJ
IIJ=
HIJ
=J=
GJI
J>
IJG
=JF>
GGJ
J=F
>JFI
IJ
=GJ
=J
JH>
J
IJ
IJG
FJ
7
7
J
IJ
JG
:&* (
%(8(!
F
G
I
H
I
=
I
=
F
II
I
=
7
=
=
=
7
7
II
7
7
7
7
>
7
/
(/
%(8$%
8
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
I$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IG$$IH
IH$$IH
I=$$IH
IG$$IH
$=$IH
F$$IH
II$$IH
>$I$IF
II$H$IF
IG$$IH
IG$$IH
F$=$IH
ÞETTA HELST ...
● LÆKKANDI væntingavísitala og
slök uppgjör fjármálafyrirtækja
höfðu minni áhrif á bandarískar
hlutabréfa-
vísitölur en ætla
mætti, en Dow
Jones lækkaði
um 0,31% í gær á
meðan Nasdaq
hækkaði um
0,07%.
Væntinga-
vísitalan lækkaði
fjórða mánuðinn í
röð vestra og er nú 62,3 stig en var
90,6 stig í desember síðastliðnum.
Fasteignalánafyrirtækið Countrywide
greindi frá því í gær að ríflega þriggja
milljarða dala (um 220 milljarða
króna) tap hefði orðið á rekstri fé-
lagsins á fyrsta ársfjórðungi, meðal
annars vegna aukinna vanskila á lán-
um.
Þýska DAX-vísitalan lækkaði um
0,58% í gær en Deutsche Bank
greindi í gær frá því að tap hefði orð-
ið á rekstri bankans í fjórðungnum
og er það í fyrsta sinn í fimm ár sem
það gerist. Olíuverð lækkaði töluvert
í gær, er nú um 115,6 dalir á fat.
Væntingar enn
á niðurleið vestra
● ÚRVALSVÍSITALA Kauphallarinnar
lækkaði um 1,57% í gær og var
5.215 stig við lokun markaða. Bréf
Century Aluminium hækkuðu um
3,67% og bréf Atlantic Petrolum um
1,43%. Bréf Bakkavör Group lækk-
uðu um 8,11% en félagið birti upp-
gjör í gærkvöldi. Þá lækkuðu bréf Ice-
landair um 4,13%.
Krónan veiktist í gær um 1,34%
en velta á millibankamarkaði nam
30,4 milljörðum. Gengi Bandaríkja-
dollara var 74,35 krónur við lok við-
skipta og gengi evru 115,85 krónur.
Skuldatryggingarálag á skuldabréf
viðskiptabankanna hækkaði í gær
og er álag á bréf Glitnis nú um 407,5
punktar, álag á bréf Kaupþings
sömuleiðis um 407,5 punktar og
álag á bréf Landsbanka um 312,5
punktar.
Lækkun á gengi úr-
valsvísitölu og krónu
TAP Exista nam 43,8 milljónum
evra, rúmum fimm milljörðum
króna, á fyrsta ársfjórðungi saman-
borið við 640,7 milljónir evra hagnað
á sama tímabili í fyrra.
Miðað við uppgjör fyrirtækisins
þá stendur rekstur þess, fyrir utan
fjárfestingar í hlutafélögum ágæt-
lega. Hagnaður af fjármálaþjónustu
Exista, en innan hennar telst vá-
tryggingarstarfsemi VÍS, nam 67,2
milljónum evra. Hins vegar varð 111
milljóna evra tap af fjárfestingar-
starfsemi.
Gengistap af öðrum eignum en
hlut Exista í Kaupþingi og Sampo
nam 173,2 milljónum evra, en á sama
tíma í fyrra varð 38,2 milljóna evra
gengishagnaður. Fyrirtækið reiknar
sér hlut í hagnaði Kaupþings og
Sampo og nam hann 64,6 milljónum
evra, en á sama tíma í fyrra nam
hann 457 milljónum evra.
Hreinar tekjur samstæðunnar
námu 16,1 milljón evra á fyrsta árs-
fjórðungi 2008, en voru 668 milljónir
evra á sama tímabili í fyrra. Hagn-
aður vegna breytinga á gengi gjald-
miðla og vegna verðbóta nam 88,4
milljónum evra á fyrstu þremur
mánuðum þessa árs, en á sama tíma í
fyrra nam hann 29 milljónum evra.
Athygli vekur að á fjórðungnum
hefur Exista minnkað skuldir sínar
um 11% og eru rétt rúmir fimm
milljarðar evra, en voru um áramót
5,64 milljarðar. Þá jókst hlutafé fé-
lagsins um 19% á tímabilinu, úr 120,6
milljónum evra í 143,5 milljónir.
Eignir Exista nema nú um 7,36 millj-
örðum evra, en voru um 8,01 millj-
arður um áramót.
Lýður Guðmundsson, stjórnarfor-
maður Exista segist sáttur við út-
komu Exista úr ársfjórðungi sem
reynst hafi fyrirtækjum í fjármála-
þjónustu sérlega erfiður. Þrátt fyrir
neikvæða afkomu hafi Exista staðið
vörð um fjárhagslegar undirstöður,
lausafjárstöðu og eignir félagsins.
Um fimm milljarða
tap á rekstri Exista
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sáttur Lýður Guðmundsson er sátt-
ur við útkomuna úr fjórðungnum.
Skuldir minnkað-
ar, en mikið tap
af fjárfestingum
Uppgjör
Exista hf.
bjarni@mbl.is
TAP á rekstri
Skipta, móður-
félags Símans,
nam 3,6 milljörð-
um króna á fyrsta
ársfjórðungi,
samanborið við
ríflega 1,4 millj-
arða hagnað á
sama tímabili árið
2007. Segir félagið að munurinn
skýrist einkum af gengisþróun ís-
lensku krónunnar á tímabilinu.
Sölutekjur fyrirtækisins námu 8,9
milljörðum á tímabilinu og jukust
um 20% milli ára.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir
og fjármagnsliði (EBITDA) nam 2
milljörðum króna samanborið við 2,1
milljarð fyrir sama tímabil 2007.
EBITDA hlutfallið var 22,4% og eig-
infjárhlutfall Skipta hf. er 30,4%.
Hlutur erlendrar starfsemi í tekju-
myndun félagsins er um 28%. Hand-
bært fé frá rekstri án vaxta og skatta
nam 2,6 milljörðum króna en eftir
vexti og skatta nam handbært fé frá
rekstri 1,9 milljörðum króna.
Tap Skipta
3,6 milljarð-
ar króna
ÖSSUR hf. hagnaðist um 6,7 millj-
ónir Bandaríkjadala, um 491 milljón
króna, á fyrsta fjórðungi ársins. Á
sama tímabili í fyrra var 2,7 milljóna
dala tap á rekstrinum en heildar-
hagnaður ársins 2007 nam 7,6 millj-
ónum dala.
Sölutekjur námu 89,6 milljónum
dala og jukust um 12% milli ára,
framlegð jókst um 20% og rekstr-
arhagnaður fjórfaldaðist, nam 17
milljónum dala. Hagnaður fyrir af-
skriftir (EBIDTA) rúmlega tvöfald-
aðist og nam 23 milljónum dala. Þar
af eru 5,5 milljónir dala einskiptis-
tekjur vegna sölu á sáraumbúðavö-
rulínu Össurar.
Heildareignir félagsins jukust um
15,5 milljónir dala, að hluta til vegna
gengisáhrifa, og námu 651,4 milljón-
um dala. Eiginfjárhlutfall var 40%.
Sex nýjar og endurbættar vörur
voru kynntar á fyrsta ársfjórðungi,
bæði í stoðtækjum sem og spelkum
og stuðningsvörum. Sala á spelkum
og stuðningsvörum svarar til 53% af
heildarsölu félagsins, en hún jókst
um 9% á fjórðungnum. Þá jókst sala
á stoðtækjum um 14%, en sala á
vörum til nota við blóðrásarmeðferð-
ir dróst saman um 12% miðað við
sama tímabil í fyrra.
Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar,
lýsir yfir ánægju með niðurstöðurn-
ar í tilkynningu frá félaginu.
„Salan á stoðtækjum heldur áfram
að aukast umfram vöxt markaðarins,
sem staðfestir sterka stöðu Össurar
á þessum markaði. Salan á spelkum
og stuðningsvörum í Bandaríkjunum
er minni en vonir stóðu til en stjórn-
endur hafa trú á því að umskipti séu í
sjónmáli.“
Í tilkynningu frá Össuri segir að
sveiflur í efnahagsmálum hafi tak-
mörkuð áhrif á heilbrigðismarkað-
inn. Fjöldi nýrra vara og vörunýj-
unga sé væntanlegur á árinu, gert er
ráð fyrir 360-365 milljóna dala sölu.
halldorath@mbl.is
Snýr tapi í hagnað
á fyrsta fjórðungi
Uppgjör
Össur hf.
Össur Sala á stoðtækjum jókst.
NORRÆNA flugfélagið SAS tapaði
ríflega einum milljarði sænskra
króna á fyrsta fjórðungi ársins, jafn-
virði 13,2 milljarða króna. Til sam-
anburðar var tap félagsins á sama
tíma í fyrra 18 milljónir sænskra
króna. Til að bregðast við samdrætt-
inum hyggst SAS auka við hagræð-
inguna og segja upp allt að þúsund
manns á næstu mánuðum og fækka í
flugflotanum um 11 vélar. Helsta
skýring á auknu tapi er sögð hækk-
andi eldsneytiskostnaður, sem hefur
margfaldast á skömmum tíma.
Tekjur SAS á fyrsta ársfjórðungi
námu 12,8 milljörðum sænskra
króna, borið saman við 11,9 millj-
arða í fyrra, og á sama tímabili jókst
farþegafjöldinn um 2,4%. Í tilkynn-
ingu frá SAS er haft eftir forstjór-
anum, Mats Jansson, að ástandið í
flugrekstrinum sé alvarlegt og
nauðsynlegt sé að snúa við afkom-
unni.
Uppsagnir
hjá SAS
Tap Mats Jansson er forstjóri SAS.
DÓTTURFÉLAG Glitnis í Noregi,
Glitnir Securities AS, og Pareto Sec-
urities AS höfðu umsjón með lokuðu
hlutabréfaútboði norska orkufyrir-
tækisins Noreco, sem lauk síðastlið-
inn föstudag. Í tilkynningu frá Glitni
kemur fram að umframeftirspurn
hafi verið eftir bréfum í félaginu.
Nam hlutbréfaaukningin um 450
milljónum norskra króna eða um 6,5
milljörðum íslenskra króna.
Noreco er norskt olíu- og gasfyr-
irtæki sem framleiðir olíu á sjö svæð-
um í Norðursjó og er skráð í norsku
kauphöllinni. Hlutabréfaútgáfan
tengdist nýlegum kaupum Noreco á
olíufyrirtækinu Talisman Oil Den-
mark.
Umsjón með
norsku útboði
HINN venjulegi bíleigandi axlar
þungann á meðan olíufélögin og
ríkisstjórnin hlæja alla leiðina í
bankann.“ Þetta sagði Edmund
King, framkvæmdastjóri félags
breskra bifreiðaeigenda í samtali
við Guardian. Tilefnið var umtals-
verður hagnaður olíurisanna Royal
Dutch Shell og British Petroleum
(BP) á fyrsta fjórðungi ársins. Í
uppgjörum félaganna sem birt
voru á þriðjudag kom fram að
hagnaður Shell jókst um 12% milli
ára og nam 7,8 milljörðum dala,
BP jók hagnaðinn um helming og
nam hann nú 6,6 milljörðum dala.
Ræst hefur úr vanda BP á vinnslu-
svæðum vestanhafs, og kallaði
Gordon Brown forsætisráðherra
eftir því að hagnaðinum yrði varið
til olíuvinnslu í Norðursjó. Rík-
isstjórnin hefði fryst álögur á elds-
neyti og væri auk þess að þrýsta á
Opec, samtök olíuframleiðsluríkja,
um að ná verðinu niður.
Edmund King sagði að öku-
mönnum myndi bregða í brún að
sjá fyrrnefndar hagnaðartölur
þegar verðið hjá bensínstöðvum
hefði aldrei verið hærra. „Þeir eru
slegnir að sjá olíufélögin með fulla
vasa fjár og ríkissjóð safna auði.“
Shell og BP segja rannsókna- og
framleiðslustarfsemi sína hafa
hagnast mjög með hækkandi olíu-
verði, sem hafi á móti haft nei-
kvæð áhrif á smásöluhlið reksturs-
ins. Starfsemi félaganna tveggja
skiptist þannig í olíuvinnslu og
smásölu. Hvor hlutinn er við-
skiptavinur hins og þeir eru laga-
lega aðgreindir, þ.e. geta ekki
samið um verð innan fyrirtækisins,
því alls ekki öll fyrirtæki starfa á
báðum sviðum.
Risar hagnast á ökufólki
STANGAVEIÐI
Stangveiði á vatnasvæði Elliðavatns hefst 1. maí.
Veiðileyfi eru seld á Kríunesi og Elliðavatni.
Á sömu stöðum geta félagar úr Sjálfs-
björg, unglingar (innan 16 ára aldurs)
og ellilífeyrisþegar úr Reykjavík og
Kópavogi fengið afhent veiði-
leyfi án greiðslu.
♦♦♦