Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Í HNOTSKURN
»Obama hefur sigrað í um 70% þeirra sýslnasem státa af flestu menntafólki. Clinton
vann í 90% sýslna með minnstu menntunina.
»Könnun AP sýndi álíka mikinn stuðning álandsvísu meðal demókrata við keppinaut-
ana tvo. Kosið er í Norður-Karólínu 6. maí.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
HILLARY Clinton er mun líklegri en Barack
Obama til að vinna John McCain, frambjóðanda
repúblikana, í forsetakosningunum í haust, ef
marka má könnun sem gerð var af AP-fréttastof-
unni. Clinton myndi sigra með 50% atkvæða gegn
41% væri kosið nú en Obama hlyti 46% atkvæða
gegn 44% atkvæða McCains. Athygli vekur að
þeim fjölgar mjög sem segjast fremur mundu
kjósa McCain en þann demókratann sem þeir
styðja ekki núna. Flokkshollustan gæti reynst
veikburða, svo harkaleg hefur baráttan verið.
Obama hefur enn forskot á Clinton, rúmlega
130 fulltrúa og talsvert fleiri atkvæði samanlagt í
forkosningum, en því fer fjarri að hann hafi tryggt
sér tilnefninguna. Markhóparnir eru ólíkir:
Obama fær alls staðar þorra atkvæða svartra en
einnig mikinn meirihluta háskólamenntaðra stór-
borgarbúa. Clinton sópar hins vegar til sín at-
kvæðum hvítra verkamanna og íbúa í strjálbýli.
Obama á nú aftur undir högg að sækja vegna
þess að séra Jeremiah Wright, prestur hans til
tveggja áratuga, baðar sig í sviðsljósinu og ítrekar
herská ummæli sín sem gjarnan eru túlkuð sem
hatur á hvítum og bandarísku samfélagi almennt.
Ríma þau orð illa við stefnu Obama um að sameina
í stað þess að sundra. Hann hefur t.d. forðast að
reyna að vera sérstakur málsvari blökkumanna en
Wright hefur með harkalegum árásum sínum
beint athyglinni að kynþáttaátökunum.
Obama hefur áður lagt sig fram um að lýsa and-
úð sinni á umdeildum yfirlýsingum Wrights en um
leið forðast að fordæma prestinn sem hann segir
oft hafa reynst sér og fjölskyldunni vel. Ljóst er að
frambjóðandinn og menn hans vonuðu að málið
hyrfi smám saman í skuggann. En nú virðist
Wright staðráðinn í að knýja Obama til að taka af-
stöðu með sér eða móti. Hiki Obama of lengi munu
margir túlka það sem veikleika og ráðleysi, hann
hafi ekki lengur stjórn á atburðarásinni.
Tekst Clinton að snúa vörn
í sókn á lokasprettinum?
Reuters
Takið eftir! Obama á kosningafundi í Indiana.
Ný könnun sýnir að hún er líklegri en Obama til að sigra McCain í haust
PALESTÍNUMENN í Shati-flóttamannabúðunum á
Gaza í gær með korn sem ein af hjálparstofnunum
Sameinuðu þjóðanna útvegaði. Ban Ki-moon, fram-
kvæmdastjóri SÞ, átti í gær fund með 27 alþjóða-
samtökum í Sviss og ákvað hann að fela sérstökum
starfshóp að takast á við hnattrænan vanda vegna ört
hækkandi verðlags á mat. Hvatti Ban aðildarríki SÞ til
að tryggja að Matvælastofnun SÞ, WFP, fengi nægilegt
fé til að aðstoða þá sem verst standa að vígi en mikið
vantar á að WFP geti sinnt brýnustu verkefnum. Víða
hefur komið til óeirða í þróunarríkjunum vegna
ástandsins. Robert Zoellick, yfirmaður Alþjóðabank-
ans, varaði ríki heims við því að bregðast við með út-
flutningsbanni á mat. Höft að slíku tagi myndu leiða til
þess að fólk færi að hamstra mat og verðið myndi því
hækka sem kæmi verst niður á fátæku fólki.
Reuters
Átak vegna hækkandi matarverðs
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
GEÐLÆKNAR telja að Josef
Fritzl, 73 ára Austurríkismaður sem
hélt dóttur sinni fanginni í glugga-
lausum kjallara í 24 ár, beitti hana
kynferðislegu ofbeldi og átti með
henni sjö börn, hafi verið haldinn
valdafýsn og öðrum geðflækjum.
Austurríski geðlæknirinn Rein-
hard Haller sagði að svo virtist sem
Fritzl hefði blindast af sjúklegri
sjálfsást og hvöt til að ná valdi yfir
öðrum og beita því. „Þessi maður
hlýtur að hafa haldið að hann væri
öðrum æðri,“ sagði Haller.
Réttargeðlæknirinn Sigrun
Rossmanith sagði að Fritzl hefði
augljóslega verið mjög ráðríkur og
stjórnað fjölskyldunni með harðri
hendi. „Hafi hann bannað eiginkonu
sinni og öðrum börnum sínum að
fara inn í kjallarann, og sagt þeim
það aftur og aftur, þá þorðu þau ekki
að rjúfa bannhelgina,“ sagði hún.
„Hafi einhver vald yfir öðrum og
beiti því eru orð hans eins og orð
Guðs.“
Dæmdur fyrir kynferðisbrot?
Lögreglan telur að eiginkona
Fritzl hafi ekki vitað af því að hann
hélt dóttur þeirra, Elisabeth, sem er
nú 42 ára, í gluggalausri prísund í
kjallara húss þeirra í bænum Amst-
etten. Dóttirin ól sjö börn í kjall-
aranum og þrjú þeirra dvöldu þar
hjá henni í einangrun frá umheim-
inum. Fjórða barnið dó skömmu eft-
ir fæðingu en hin börnin þrjú dvöldu
í íbúð Fritzl og konu hans í sama
húsi. Fritzl hafði talið eiginkonu
sinni og nágrönnum trú um að dótt-
irin hefði farið að heiman átján ára
gömul árið 1984 og gengið í einangr-
aðan sértrúarsöfnuð.
Breska dagblaðið The Times hafði
eftir íbúum Amstetten að Fritzl
hefði afplánað fangelsisdóm fyrir
kynferðislega árás á konu seint á
sjöunda áratugnum. Austurrísk yf-
irvöld höfðu ekki staðfest það í gær.
Elsta barnið sem fæddist í kjall-
aranum – nítján ára kona – er nú í
dái á sjúkrahúsi vegna óþekkts sjúk-
dóms. Tveir bræður hennar sem
dvöldu í kjallaranum – fimm og átján
ára – dvelja nú í sérútbúnum gámi í
umsjá sérfræðinga, að sögn barna-
og unglingasálfræðingsins Paulus
Hochgatterers. Hann sagði að El-
isabeth og synir hennar dveldu í
gámi, sem hægt væri að læsa að inn-
an, til að vernda þau frá umheim-
inum. Þau yrðu þar einnig næstu
vikurnar í umsjá sérfræðinga til að
vernda þau fyrir sálrænum áföllum
sem þau kynnu að verða fyrir ef þau
fengju ekki nægan tíma til að aðlag-
ast heimi sem þau hafa lítið eða ekk-
ert vitað um í öll þessi ár.
„Þau fá aðeins að kynnast um-
heiminum smám saman,“ sagði
Hochgatterer. „Þau standa sig
reyndar býsna vel miðað við að-
stæður.“
Hans-Heinz Lenze, yfirmaður fé-
lagsþjónustu Amstetten, sagði að
læknar ákvæðu hvenær rannsókn-
armenn lögreglunnar fengju að yf-
irheyra Elisabeth og syni hennar, en
taldi ólíklegt að það yrði gert næstu
dagana. Bæjaryfirvöld hafa lagt til
að öll afkvæmi Fritzl fái nýtt nafn til
að vernda þau – ekki aðeins El-
isabeth og sex börn hennar, heldur
einnig fullorðin systkin hennar.
Geðlæknar telja að Fritzl hafi verið heltekinn af hvöt til að ná valdi yfir öðrum og beita því. Börn
hans dvelja í sérútbúnum gámi til að venja þau við umheiminn eftir einangrun í kjallaraprísund
Sjúkleg sjálfsást og valdafýsn
Reuters
Rannsókn Lögreglumenn að störf-
um í bakgarði „hryllingshússins“.
ÍRAKI, sem eitt sinn var túlkur fyrir
danska herliðið í landi sínu en fékk
hæli sem flóttamaður í Danmörku,
fær ekki að eiga áfram tvær eigin-
konur. Dómsmálaráðuneytið í Kaup-
mannahöfn hefur úrskurðað að tví-
kvæni varði við lög og maðurinn
verði því að velja.
Lög íslams heimila múslímakörl-
um að eiga allt að fjórar konur en
mjög sjaldgæft er nú að þeir nýti sér
þessa heimild. Konurnar komu báð-
ar með manninum til Danmerkur og
ekki verður hróflað við landvistar-
leyfi þeirra fremur en leyfi hans.
Túlkar danska liðsins í Írak fengu
hæli vegna þess að þeir gátu rökstutt
að líf þeirra væri í hættu vegna hót-
ana þarlendra öfgamanna.
„Við gáfum honum frest til 26.
maí, þá verður hann að skilja við
aðra eiginkonu sína, ella verðum við
að grípa til nauðsynlegra ráðstafana
til að binda enda á þetta tvíkvæni
sem er ólöglegt í Danmörku,“ sagði
talsmaður ráðuneytis fjölskyldu-
mála, Malene Vestergaard.
Lögmaður Írakans, Marine Vøl-
und, sagði að skjólstæðingur sinn
væri „mjög ósáttur“ við ákvörðunina
en hann myndi velja aðra konuna.
Má bara
eiga eina
konu
KÍNVERJAR
dæmdu í gær 30
Tíbeta í fangelsi
fyrir þátttöku í
mótmælum gegn
kínverskum
stjórnvöldum í
Lhasa, höfuðborg
Tíbets, í mars.
Þrír þeirra hlutu
ævilangt fangelsi.
Tíbetskir útlagar segja að yfir 203
manns hafi látið lífið í mótmælunum.
Ráðamenn í Beijing kenna útlægum
leiðtoga Tíbeta, Dalai Lama, um
óeirðirnar. Segja þeir að hann eigi að
stöðva „glæpsamlegar ofbeldisað-
gerðir“ sínar til að gera Kínverjum
kleift að hefja viðræður við hann.
Lögregla í Suður-Kína réðst ný-
lega inn í verksmiðju sem framleiddi
tíbetska fána sem eru ólöglegir í
Kína. Það eru þeir hins vegar ekki í
sjálfstjórnarborginni Hong Kong en
þar verður hlaupið með ólympíukyn-
dilinn á föstudag. Ekki er ljóst hvort
lögreglan í Hong Kong hyggst banna
að fána Tíbets verði veifað.
Tíbetar
dæmdir
í Lhasa
Dalai Lama
Kína sakar Dalai
Lama um ofbeldi
Lúxemborg. AFP. | Utanríkisráð-
herrar Evrópusambandsins kröfðust
þess í gær að sett yrði á alþjóðlegt
vopnasölubann gagnvart Simbabve.
Slíkt bann er þegar í gildi meðal
ESB-ríkjanna, en óttast er að vopn
sem berist til landsins verði notuð til
að brjóta stjórnarandstöðuna á bak
aftur.
Krafan kemur í kjölfar þess að
kínversku skipi með vopnasendingu
ætlaða Simbabve-stjórn var snúið
aftur til Kína. Sendingin komst ekki
á áfangastað þar sem Simbabve er
landlukt og nágrannaríkin neituðu
að afferma skipið í höfnum sínum.
Ráðherrar ESB-landanna lýstu
einnig yfir miklum áhyggjum af því
að enn hefði ekki verið tilkynnt um
kosningaúrslit, fjórum vikum eftir að
gengið var til kosninga en stjórnar-
andstaða landsins heldur því fram að
forsetinn, Robert Mugabe, hafi beðið
ósigur í kosningunum. Ráðherrarnir
kröfðust þess að úrslit yrðu kynnt
þegar í stað.
Krefjast
vopnasölu-
banns
♦♦♦