Morgunblaðið - 30.04.2008, Blaðsíða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Í TILEFNI af því að í dag, 30. apríl,
verða liðin 100 ár frá fæðingu Bjarna
Benediktssonar forsætisráðherra
hefur sjóðurinn Rannsóknarstyrkir
Bjarna Benediktssonar verið stofn-
aður. Verða fyrstu styrkir úr sjóðn-
um afhentir við athöfn í Þjóðmenn-
ingarhúsinu við Hverfisgötu í dag
klukkan 16.
Við athöfnina, sem Ragnhildur
Helgadóttir, fyrrverandi ráðherra,
stjórnar, skýra formenn dómnefnda,
Anna Agnarsdóttir sagnfræðipró-
fessor og Róbert R. Spanó lögfræði-
prófessor frá fyrstu rannsóknar-
styrkþegum.
Jónas H. Haralz, fyrrverandi
bankastjóri, flytur ávarp og erindi
flytja dr. Þór Whitehead, prófessor í
sagnfræði, og Ragna Árnadóttir,
settur ráðuneytisstjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneyti.
Ólafur F. Magnússon borgarstjóri
opnar vefsíðuna www.bjarnibene-
diktsson.is á vegum Borgarskjala-
safns.
Markmið sjóðsins er að styrkja
rannsóknir á þeim sviðum lögfræð-
innar sem snerta innviði stjórnskip-
unarinnar og réttaröryggi borgar-
anna gagnvart leyfisvaldi og eftirliti
stjórnvalda. Styrkir á sviði hag- og
stjórnmálasögu 20. aldar til okkar
daga skulu veittir til að efla rann-
sóknir og dýpka skilning á umbreyt-
ingum í íslensku efnahagslífi, stjórn-
málum og utanríkismálum á 20. öld.
Skulu árlega veittir allt að þrír
styrkir á hvoru fræðasviði, ein millj-
ón og tveir 500 þúsund króna styrkir,
það er að hámarki fjórar milljónir
króna á ári og er markmiðið, að sjóð-
urinn starfi í fimm ár. Sjóðsstjórn
hefur sent bréf til fyrirtækja og ein-
staklinga og boðið þeim að leggja
sjóðnum lið með fjárframlögum.
Styrkir veittir úr
minningarsjóði
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
sérblað um Bjarna heitinn Benedikts-
son, Bjarni Benediktsson, aldarminn-
ing.
Bjarni var fæddur 30. apríl 1908 og
lést í eldsvoða í Konungshúsinu, sem
síðar varð ráðherrabústaður, á Þing-
völlum aðfaranótt 10. júlí 1970, ásamt
eiginkonu sinni og dóttursyni.
Bjarni Benediktsson var einhver
áhrifamesti stjórnmálaleiðtogi, sem
Íslendingar hafa átt á lýðveldistíman-
um, og með störfum sínum á þeim
vettvangi, sem ráðherra, forsætisráð-
herra og leiðtogi Sjálfstæðisflokksins,
hafði hann mikil áhrif á sögu samtím-
ans og á stjórnmálaþróunina í land-
inu.
Í blaðinu er æviferill Bjarna rakinn
en hann lauk cand. juris-prófi árið
1930 með hæstu einkunn, sem þá
hafði verið gefin. Hann var skipaður
prófessor í lögum árið 1932, 24 ára að
aldri. Hann var borgarstjóri í Reykja-
vík 1940 til 1947 en síðan ráðherra í
tvo áratugi, þar af forsætisráðherra
frá 1963 til dauðadags. Hann var einn
ritstjóra Morgunblaðsins 1956-1959.
Nokkrir samherjar, vinir og aðrir,
sem kynni höfðu af framkvæmda-
manninum, stjórnmálamanninum og
fræðimanninum Bjarna Benedikts-
syni, minnast hans í greinum sínum í
blaðinu í dag. Eru höfundar þeirra
þau Geir H. Haarde forsætisráð-
herra, Davíð Oddsson, seðlabanka-
stjóri og fyrrverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, Styrmir Gunnars-
son, ritstjóri Morgunblaðsins,
Matthías Johannessen, fyrrverandi
ritstjóri, Þorsteinn Pálsson, fyrrver-
andi formaður Sjálfstæðisflokksins,
Halldór Blöndal, Ragnar Arnalds,
Ellert B. Schram, Hulda Valtýsdóttir,
Bjarni Benediktsson og Stefanía Ósk-
arsdóttir.
Hafði mikil áhrif
á samtíma sinn
MORGUNBLAÐINU í dag fylgir
sérblað, Bjarni Benediktsson, ald-
arminning.
Bjarni fæddist 30. apríl 1908 og í
dag eru því liðin 100 ár frá fæðingu
hans.
Bjarni Benedikts-
son, aldarminning
FRÉTTASKÝRING
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
EINFALDA þarf reglur og draga úr kostnaði
sem fylgir viðskiptum við vefverslanir. Þetta hafa
Neytendasamtökin ítrekað bent á – og barist fyr-
ir – en nú hillir undir breytingar. Viðskiptaráð-
herra boðaði á mánudag að skipaður yrði sér-
stakur starfshópur sem endurskoða ætti reglur
um netverslun, einkum frá öðrum löndum EES-
svæðisins, með það að markmiði að auka sam-
keppni og lækka vöruverð.
Mýmörg dæmi hafa verið rakin í fjölmiðlum
um hvernig viðskiptavinum erlendra vefverslana
finnst þeir vera hlunnfarnir þegar varan loks
skilar sér til þeirra. Sendingarkostnaður, tollur,
virðisaukaskattur og tollmeðferðargjald gerir það
að verkum að kostnaður við bókakaup, s.s. frá
Amazon í Evrópu, getur tvöfaldast og ríflega það
ef um mynddisk er að ræða. Ljóst er að geng-
isfelling krónunnar í marsmánuði hjálpar þar
ekki til.
„Hvatinn kemur frá Neytendasamtökunum,“
segir Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður við-
skiptaráðherra, um fyrirhugaða endurskoðun.
„Þeir hafa sett fram nokkrar hugmyndir frá sinni
hlið sem allar stuðla að því að auðvelda viðskipti,
draga úr kostnaði og umstangi við það að eiga
viðskipti um netið og yfir landamæri.“
Minni kostnaður veitir aðhald
Jón Þór segir samtökin m.a. hafa óskað eftir að
virðisaukaskattur verði felldur niður af ódýrari
vörum, líkt og gert er í aðildarlöndum ESB, og
það er meðal þess sem skoðað verður. „En það er
að sjálfsögðu ekki búið að taka afstöðu til þessara
óska.“
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytenda-
samtakanna, segir mikinn kostnað við viðskipti
frá öðru landi á EES-svæðinu letja fólk til að
kaupa hjá vefverslunum. „En þarna er ráðherra
að taka undir okkar sjónarmið, að það þurfi að
gera eitthvað í þessu og við viljum sjá úrbætur.
Ef hægt verður að kaupa um netið án mikils
kostnaðar mun það veita verslunum hér á landi
verulegt aðhald.“
Ekki hefur verið ákveðið hverjir skipa munu
starfshópinn, sem raunar er á vegum fjármála-
ráðuneytis og viðskiptaráðuneytis, né heldur hve-
nær áætlað er að hann skili af sér tillögum. Jó-
hannes segist telja eðlilegt að hagsmunaaðilar
komi þar að, þ.m.t. Neytendasamtökin. Að sögn
Jóns Þórs mun skipan hópsins liggja fyrir á
næstu dögum eða vikum.
Hillir undir einfaldari netverslun
Morgunblaðið/Golli
Verslað Tollar og gjöld á vörur pantaðar um
netið letja Íslendinga til kaupa.
Bók sem kemur t.d. frá
Amazon í Evrópu getur
tvöfaldast í verði vegna
alls kyns kostnaðar
EIMSKIP hefur efnt til kynningar-
og fræðsluátaks á Íslandi og í Fær-
eyjum um mikilvægi þess að börn
og unglingar noti reiðhjólahjálma.
Átakið nefnist „Gott á haus“. Af
þessu tilefni gefur Eimskip öllum
börnum í 1. bekk, á Íslandi og í
Færeyjum, reiðhjólahjálma í sam-
starfi við Kíwanis og fengu sjö ára
nemendur í Ártúnsskóla fyrstu
hjálma ársins afhenta á athafna-
svæði Eimskips í Sundahöfn í gær.
Undanfarin fimm ár hafa Eim-
skip og Kíwanis átt gott samstarf
og gefið og dreift rúmlega 23.000
hjálmum til grunnskólanema vítt
og breitt um landið. Markmiðið er
að draga verulega úr slysatíðni
barna í umferðinni og hefur samn-
ingurinn verið framlengdur til
næstu þriggja ára. Eimskip greiðir
fyrir hjálmana og Kíwanisfélagar
heimsækja grunnskóla og afhenda
börnunum þá.
Eimskip og Kíwanis gefa öllum sjö ára börnum reiðhjólahjálma
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Gott á
haus að
fá hjálm
Í GÆR fylgdu
sjálfsafgreiðslu-
bensínstöðvar
eftir hækkunum
þjónustubens-
ínstöðvanna og
hækkuðu dísil-
olíu um þrjár
krónur og bensín
um tvær.
Á sama tíma lækkaði hráolía
töluvert, eða um rúm tvö prósentu-
stig yfir daginn.
Innkaupastjórar olíufélaganna
segja hins vegar að lækkun hráolíu
skili sér ekki endilega beint út í
verð á bensíni og dísilolíu, auk þess
sem krónan veiktist um leið og ol-
ían varð ódýrari.
Magnús Ásgeirsson, inn-
kaupastjóri eldsneytis hjá N1, segir
ekki línulegt samband á milli verðs
á hráolíu annars vegar og bensíni
og dísilolíu hins vegar: „Meginskýr-
ingin á háu olíuverði núna er veik
staða dollarans á alþjóðamörk-
uðum,“ segir hann. „Þá hafa fjár-
festar verið að kaupa olíu, gull og
aðra hrávöru og þegar eðlilegt
framboð og eftirspurn stýra ekki
markaðnum getur þetta gerst.“
Bensínsala virðist ekki minnka
Þeir sem Morgunblaðið ræddi við
gátu ekki greint að sala á eldsneyti
hefði minnkað í lítrum talið en hæg
stígandi hefur verið á verði og get-
ur verið erfitt að greina smábreyt-
ingar í sölu.
Hráolían
lækkar en
krónan veikist
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæð-
isins fór í eitt útkall vegna sinu-
bruna í gærkvöldi. Ekki var um
langan veg að fara því eldur logaði
í sinu við Bústaðaveginn, skammt
frá bensínafgreiðslustöð Skeljungs
við Öskjuhlíð, einungis steinsnar
frá slökkvistöð slökkviliðsins í
Skógarhlíð.
„Við sem vorum að mæta á vakt-
ina sáum þetta bara þegar við ók-
um hjá,“ sagði varðstjóri í samtali
við fréttavef Morgunblaðsins. Út-
kallið barst klukkan 19.20 og greið-
lega gekk að slökkva eldinn.
Kveikt í sinu
skammt frá
slökkvistöð
♦♦♦