Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 8
8 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is VIÐ reynum eftir mætti að styrkja stöðu kvenna í viðskiptalífinu, takist það munum við einnig ýta undir valdeflingu kvenna á öðrum sviðum. Sums staðar er nóg frelsi en annars staðar eintómar hömlur. Við verðum að nýta okkur það frelsi sem við höf- um til að ryðja burt þessum höml- um,“ segir Nadereh Chamlou, ír- anskur hagfræðingur hjá Alþjóðabankanum. Hún starfar þar sem ráðgjafi og flytur fyrirlestur á vegum Alþjóðamálastofnunar Há- skóla Íslands og Landsnefndar UNIFEM á Íslandi í Lögbergi í dag. Mun hún fjalla um kynjamisrétti og valdeflingu kvenna í samfélögum Mið-Austurlanda og Norður-Afríku. En hvaða misskilningur er oftast á ferðinni þegar Vesturlandamenn ræða um ríkin og stöðu kvenna á umræddu svæði? „Margir þeirra og reyndar einnig fólk frá þessum sömu ríkjum telja að konur í Mið-Austurlöndum og Norð- ur-Afríku sé að jafnaði verr mennt- aðar en karlarnir,“ svarar Chamlou. „En nú er svo komið að í 11 af 18 ríkjum á svæðinu sem ég mun ræða um eru konur hlutfallslega fleiri en karlar í háskólunum og þannig hefur þetta verið í flestum landanna und- anfarin sjö eða átta ár. Konurnar skortir ekki menntun. Samt sem áð- ur er lítið um að konur séu áberandi á opinberum vettvangi í þessum löndum en það er ekki mennt- unarleysi sem háir konum. Annar algengur misskilningur er að kona sem hylur sig blæju eða not- ar höfuðklút hljóti að vera áhrifa- laus. Eitt af því sem er athyglisvert við stöðu kvenna í Mið-Aust- urlöndum er geysilegar þverstæður. Tökum sem dæmi Sádi-Arabíu. Þar eru 40% allra einkafyrirtækja í eigu kvenna en hvergi á svæðinu er at- vinnuþátttaka kvenna jafn lítil.“ – En tvö stór vandamál eru illvið- ráðanleg: mikið atvinnuleysi meðal unga fólksins og hröð fólksfjölgun. Hvernig er tekið á þeim? „Það er rétt, þetta tvennt er enn erfitt viðfangs. En fæðingatíðni hef- ur lækkað á síðari árum og atvinnu- leysi hefur minnkað verulega þegar litið er á svæðið í heild, það t.d. er komið niður í um 10% í Egyptalandi. Vandinn er að fólk fær ekki störf sem það langar til að stunda, fær ekki vinnu þar sem menntunin nýt- ist. Það er ekki nóg fyrir háskóla- menntað fólk að vinna sem leigubíl- stjóri. Mikilvægasta viðfangsefnið er að skapa hágæðastörf á svæðinu til að glata ekki menntafólkinu. Ef litið er á svæðið sem heild flytjast þang- að mun fleiri til að vinna en fara það- an en störfin eru mest láglauna- störf.“ – Haldið er aftur af konum í þess- um löndum, meira en annars staðar í heiminum. Eru karlarnir svona hræddir um að missa völd? Chamlou hlær dátt. „Ég veit ekki hvort það eru endilega karlar sem halda aftur af þeim. Ef við lítum á þá sem helst láta að sér kveða í lönd- unum eru það stundum karlar sem ganga lengra í að krefjast kynjajafn- réttis en konurnar. Fram kemur í gögnum sem við notum hjá bank- anum um afstöðu kynjanna að karlar í Sádi-Arabíu voru að jafnaði mun hlynntari jafnrétti en konurnar sjálfar! Íhaldssemin er mikil.“ Lýðræðishallinn og opinská umræða – En nú ríkir yfirleitt ekki lýðræði í umræddum löndum og tjáning- arfrelsið er skert. Er rætt þar um stöðu kvenna á opinskáan hátt? „Það er talsvert um að hvatt sé til þess að hlutur kvenna sé bættur. En ef til vill hafa átökin og stríðin síð- ustu ár valdið nokkru afturhvarfi til íhaldssemi á sviði kynjaumræðu. Margir líta á hefðbundin kynja- hlutverk sem mikilvægan hluta af sjálfsvitund fólks í ríkjunum og það hefur kannski orðið dálítið aft- urhvarf til eldri sjónarmiða.“ Hún segir brýnt að ýta undir aukna þátttöku kvenna í atvinnu- og viðskiptalífinu vegna þess að þá sé varkárnin og tortryggnin minni en þegar fjallað sé um réttindi þeirra á öðrum sviðum. „Efnahagslegu lögin eru hlutlaus gagnvart kynjunum en það eru lög á öðrum sviðum sem valda vanda. Tökum sem dæmi að kona geri samning við risafyrirtæki eins og Boeing eða Halliburton. Hún und- irritar samninginn sjálf og enginn átelur hana fyrir það. En þegar kemur að hjónabandssáttmálanum verður hún að hafa fengið leyfi hjá föður sínum! Chamlou er spurð um hlutskipti kvenna í Íran og segir hún að mikið hafi verið gert til að ýta undir rétt- indi þeirra um langa hríð. „Jafnvel í tíð núverandi ráðamanna hafa konur fengið alls konar tækifæri. Konur í mjög íhaldssömum hlutum sam- félagsins vildu fyrir byltinguna 1979 ekki fara út án blæju og það merkti að þær gátu ekki sótt háskóla, þar var bannað að vera með blæju í tíð keisarans. Samfélagið hefur nú lagað sig að blæjunni og kynjahlutverkunum, at- vinnuþátttaka íranskra kvenna er nú hærri en í nokkru öðru landi á svæð- inu, um 42%. Konur geta nú verið leigubílstjórar í Teheran en sinna þá eingöngu konum, þær geta verið slökkviliðsmenn. Margar íhalds- samar konur sætta sig betur við ásýnd samfélagsins eins og hún er núna, finnst það siðsamlegra. Og þær hætta sér þess vegna út í ým- islegt sem þær gerðu ekki fyrr.“ „Konurnar skortir ekki menntun“ Íranskur hagfræðingur segir að hlutfall kvenna með háskólamenntun í Mið-Austurlöndum sé nú hærra en meðal karla og hægt sé að efla jafnrétti með aukinni þátttöku kvenna í viðskiptalífinu Í HNOTSKURN »Mið-Austurlönd og Norður-Afríka ná frá Íran í austri til Marokkó í vestri, frá Sýrlandi í norðri til Jemen í suðri. Þorri íbúanna er arabar ef Íran og Ísr- ael eru undanskilin. »Reglur um höfuðklúta ogblæjur fyrir bæði kyn til að verjast sólinni eru miklu eldri en íslam. »Elstu skráðu lög sögunnar,sem Hammúrabí lét skrá fyr- ir 4.000 árum, kveða á um um hlutverk kynjanna. Reuters Ráðgjafi hjá Alþjóðabankanum Nadereh Chamlou: „Margir líta á hefð- bundin kynjahlutverk sem mikilvægan hluta af sjálfsvitund fólks í ríkj- unum og það hefur kannski orðið dálítið afturhvarf til eldri sjónarmiða.“ »Tveir af hverjum þrem íbú-um svæðisins eru undir 30 ára aldri. Hagvöxtur hefur auk- ist mjög, er nú um 5,7%. »Hlutfall kvenna á atvinnu-markaði var 23% árið 1970 en 32% árið 2000 sem er lægra en í flestum löndum heims. Atvinnu- leysi meðal ungs fólks var frá 37% í Marokkó í 73% í Sýrlandi. »Frá 1970 til 2000 jókst læsimeðal kvenna úr 16,6% í 52,5%. Hlutfall kynjanna í grunn- skóla var svipað og sama var að segja um framhaldsskóla. Gæði þessara skóla eru þó víða talin lítil. Starf Konur í Sádi-Arabíu mála. SÖLU fimm skála Ferðafélags Fljótsdalshéraðs norðaustan Vatna- jökuls hefur verið frestað til hausts- ins og alls er óvíst hvort af henni verður. Viðhald skálanna hefur lengi lent á örfáum félagsmönnum án þess að endurgjald hafi komið til og orðið er torvelt að fá félaga til starfans. Félagið hefur ekki burði til að ráða starfsmann til að sinna viðhaldi og rekstri skálanna. Kom því fram hugmynd um að skálarnir yrðu seldir og félagið myndi einbeita sér að uppbyggingu skála á Klyppstað í Loðmundarfirði til að tengja við skála sína í Breiðuvík og Húsavík. Í viðræðum við sveitarfélagið Á aðalfundi félagsins nýverið tók ný stjórn Ferðafélags Fljótsdals- héraðs af skarið með að ákvarð- anatöku um sölu skálanna skyldi frestað fram til hausts. Félagið stendur í viðræðum við bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs um hugsanlegan stuðning við reksturinn. Ferðafélag Íslands hefur dregið tilboð sitt upp á 45 milljónir króna í skálana til baka og ætlar að sjá hverju fram vindur. Skálarnir fimm munu verða inn- an Vatnajökulsþjóðgarðs. Sölu fimm skála Ferða- félags Fljóts- dalshéraðs frestað Örfáir félagsmenn hafa séð um viðhald Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is HJALTI Jón Sveinsson, skólameist- ari Verkmenntaskólans á Akureyri, hefur efasemdir um þá þróun að litlir framhaldsskólar verði stofnaðir víðs vegar um landið í nágrenni stærri skóla. Hann telur það geta dregið úr krafti þeirra sem fyrir eru og mik- ilvægara sé fyrir nemendur að al- menningssam- göngur á svæðun- um séu efldar. 144 nemendur brautskráðust frá VMA á laugardag- inn. „Sitthvað í þessum hugmyndum finnst mér orka tvímælis, einkum og sér í lagi vegna þess að gert er ráð fyrir að hinir nýju skólar verði reistir í nágrenni stærri skóla, sem hafa ver- ið að byggja upp fjölbreytt náms- framboð bæði verklegt og bóklegt með hagsmuni ákveðinna svæða í huga,“ sagði Hjalti Jón í ávarpi sínu við brautskráningu. Hjalti Jón sagðist eiga við fyrirætl- anir um stofnun framhaldsskóla á Reyðarfirði, í næsta nágrenni við Verkmenntaskóla Austurlands á Norðfirði og Menntaskólann á Egils- stöðum. „Einnig er verið að ræða stofnun skóla á Hvolsvelli – en hing- að til hafa nemendur af Rangárvöll- um sótt Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Í þriðja lagi er verið að ræða stofnun framhaldsskóla í Grindavík – en Fjölbrautaskóli Suð- urnesja í Keflavík hefur þjónað nem- endum þaðan með sóma.“ Hjalti Jón segist þeirrar skoðunar að skynsamlegra sé að efla almenn- ingssamgöngur innan þessara svæða, en þannig gæfist nemendum kostur á að sækja öflugri skóla með miklu námsframboði. Litlu skólarnir muni aðeins geta boðið upp á tak- markaðar námsleiðir – og þá fyrst og fremst á sviði bóknáms. „Auk þess tel ég að hinir nýju skólar muni draga úr krafti þeirra sem fyrir eru sem þurfi þá jafnvel í kjölfarið að rifa seglin með því að fækka kostnaðarsömum verknámsdeildum. Spurning mín er því sú: Er þetta leiðin til að bæta að- gengi nemenda á landsbyggðinni að fjölbreyttu framhaldsskólanámi?“ Akureyrsk sókn Skólameistari VMA orðaði það svo að ekki væri gott að segja hvaða áhrif væntanleg stofnun framhaldsskóla við utanverðan Eyjafjörð muni hafa á starfsemi framhaldsskólanna á Ak- ureyri, sem báðir hafi verið í mikilli sókn á undanförnum árum. „Ekki verður það heldur séð fyrir hvort nemendur af Dalvík munu fremur koma hingað en að fara til Ólafsfjarð- ar þar sem fyrirhugað er að reisa hinn nýja skóla. Þá er næsta víst að einhverjir nemendur bæði úr Dalvík- ur- og Fjallabyggð munu eftir sem áður taka stefnuna á Menntaskólann á Akureyri og aðrir hingað í Verk- menntaskólann í krafti hins mikla og kraftmikla námsframboðs.“ Hann nefndi að verið væri að end- urskoða almenningssamgöngur um Eyjafjörð „og ég held því fram að fjölgun ferða um svæðið myndi ekki síst þjóna framhaldsskólanemend- um. Vissulega er gott að nemendur geti sótt framhaldsskóla í heima- byggð eða sem næst henni. Ég get samt ekki neitað því að þessi þróun, sem virðist vera farin af stað, veldur mér nokkrum áhyggjum og hef ákveðnar efasemdir um að hún verði til góðs þegar heildarmyndin er skoð- uð,“ sagði Hjalti Jón. Skólameistari ræddi einnig um ný framhaldsskólalög, sem hann reiknar með að verði komin í gagnið að ein- hverju leyti í haust – og segir skóla- fólk gera sér vonir um að nýju lög- unum muni fylgja aukið fjármagn inn í framhaldsskólakerfið, t.d. til náms- efnisgerðar „því að þar sé pottur víða mölbrotinn,“ eins og hann komst að orði. „Nú er tækifærið fyrir stjórn- völd að bæta verulega í og auglýsa hreinlega eftir fólki í fullt starf næstu tvö til þrjú árin til þess að semja kennsluefni í fjölmörgum greinum sem yrði bæði í takt við nýja tíma og bætti úr þeirri brýnu þörf sem víða er fyrir hendi.“ Efast um skynsemi þess að stofna litla framhaldsskóla Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Útskrift 144 nemendur voru brautskráðir frá VMA á laugardaginn. Víða pottur brot- inn varðandi náms- efni, segir skóla- meistari VMA Hjalti Jón Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.