Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 34
34 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Sími 551 9000 Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Þú færð 5 % endurgreitt í SmárabíóSími 564 0000Sími 462 3500 Kickin it old school kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 7 ára Harold og Kumar kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Made of Honour kl. 5:50 - 8 - 10:10 21 kl. 8 - 10:30 B.i. 12 ára Brúðguminn enskur texti kl. 6 B.i. 7 ára ÞAÐ ÞARF ALVÖRU KARLMANN TIL AÐ VERA BRÚÐARMEYJA BREIKIÐ ER EKKI DAUTT... ÞAÐ HEFUR BARA LEGIÐ Í DVALA! Hinn frábæri grínari Jamie Kennedy fer á kostum semeilífðarbreikari sem vaknar efir 20 ára dásvefn, Frábær gamanmynd sem kemur öllum í gott skap. ÖSKUR BERA ENGAN ÁRANGUR !! FÓR BEINT Á TOPPINN Í BANDARÍKJUNUM eee ,,Hugljúf og skemmtileg" - V.J.V., Topp5.is/FBL Indiana Jones 4 kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára Harold og Kumar kl. 6 - 8 B.i. 12 ára What happens in Vegas kl. 10 Made of Honour kl. 8 - 10:15 Superhero Movie kl. 4 - 6 B.i. 7 ára Bubbi Byggir m/ísl. tali kl. 4 Horton m/ísl. tali kl. 4 * Gildir á allar sýningar merktar með rauðu TILBOÐ Í BÍÓ SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI OG SMÁRABÍÓI SÝND Í REGNBOGANUMSÝND Í HÁSKÓLABÍÓI, SMÁRABÍÓI OG BORGARBÍÓI Indiana Jones 4 kl. 5:20D - 8D - 10:40D DIGITAL Indiana Jones 4 LÚXUS kl. 5:20D - 8D - 10:40D DIGITAL Prom Night kl. 6 - 8 - 10 B.i. 14 ára What happens in Vegas kl. 5:45 - 8 - 10:15 SÝND Í SMÁRABÍÓI OG REGNBOGANUM 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borgar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! ÞAÐ var frábært að fá Wayne Short- er til Íslands ásamt kvaretti sínum á Listahátíð og hefur ekki slík djass- stjarna komið hingað síðan Ray Brown lék á Jazzhátíð Reykjavíkur. Wayne er nærri 75 ára og hefur ekki enn staðnað í tónsköpun sinni. Segja má að ferli hans megi skipta í fjögur tímabil. Hápunktur fyrsta tímabils- ins var spilamennskan með Art Blakey og hljóðritanir fyrir Blue Note. Tónsmíðar hans náðu nýjum hápunkti á Miles Davis-tímabilinu frá 1964–70. Þá kynntist hans aust- urríska hljómborðsmeistaranum Joe Zawinul og þeir stofnuðu fremstu djassrokksveit allra tíma, Weather Report. Shorter samdi mikið fyrir sveitina en smám saman fékk saxó- fónleikur hans minna vægi og eftir að sveitin hætti 1980 hefur hann leik- ið með eigin hljómsveitum og þessi kvartettinn hefur starfað frá 2001. Það fór ekkert milli mála að fé- lagarnir þekktu hver annan ansi vel og gripu tónhendingar hratt á lofti og spunnu í sameiningu. Kvartettinn lék 80 mínútur samfellt og runnu verkin, sem flest voru eftir Shorter, saman í eina svítu. Ég hafði á tilfinn- ingunni að ansi margar tónsmíð- arnar væru nýlegar þó stundum mætti greina brot úr gömlum ópus- um, s.s. „Footprints“ í upphafi tón- leikanna. Shorter blés í ten- órsaxófóninn fyrstu 55 mínúturnar og saxófónleikurinn dálítið inn- hverfur á stundum, en lífleg hryn- sveitin skemmtilegt mótvægi við Shorter. Líflegur stíll Perezar lyftir betur undir blástur Shorters en inn- hverfur stíll Brads Meldhau sem stundum hefur spilað með honum. Aftur á móti var mögnunin á Fazioli- flyglinum, er Perez lék á, fullhörð þó hann mýktist er sópranþátturinn hófst – og þvílíkur tónn sem Shorter töfrar úr því hljóðfæri. Hann smaug að hjartarótum og lyfti tónlistinni í nýjar hæðir. Kontrapúntísk skrif Shorters fyr- ir kvartettinn elfdu hlutverk hryn- sveitarinnar sem var alveg makalaus og á köflum var eins og samspilið væri því sem næst frjálst. Tónlist sem menn meðtaka ekki áreynslu- laust og það verður gaman að heyra hana aftur á Rás 1 í vikunni. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Blástur og plokk Það fór ekkert á milli mála að félagarnir þekktu hver annan ansi vel. TÓNLIST Háskólabíó Wayne Shorter, sópran– og tenórsaxófón, Danilo Perez píanó, John Pattitucci bassa og Bobby Blade trommur. Kvartett Wayne Shortersbbbbm Vernharður Linnet Á vængjum sópransins Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is ÞAÐ má með sanni segja að ekki sé einn einasti dauður punktur í dagskrá GusGus-manna, þeirra President Bongo og Bigga veiru. Þeir eru að allan sólarhringinn og rúmlega það, ávallt breiðandi út hið takvissa fagnaðarerindi og er allur heimurinn undir í þeim efn- um. Þeir félagar eru nú að gera sig klára í sumarrúnt um hinar og þessar tónlistarhátíðir og verður m.a. hin mikla Melt-hátíð í Þýska- landi heimsótt, en þar koma og fram Björk, Franz Ferdinand, Ro- isin Murphy o.fl. Einnig eru fyr- irhugaðir tónleikar í Brasilíu, Sviss, Rússlandi, Póllandi og Tékk- landi og sveitin mun þá fljúga teknóvængjum þöndum hér heima 16. júní næstkomandi, en þá verða stórtónleikar í Laugardalshöll. Í samtali við forsetann, Presi- dent Bongo, kom fram að tónleika- rúnturinn væri m.a. ætlaður til að halda „djúsnum“ gangandi, að dampur detti ekki niður hvað vinnslu á næstu plötu varðar. „Við verðum t.d. með fjögur ný lög á komandi tónleikum, lög sem við tilkeyrum á tónleikunum og vinnum svo frekar með í hljóð- veri.“ Næsta plata er áætluð til útgáfu snemma á næsta ári. Síðasta plata GusGus, Forever, gekk afskaplega vel, bæði í sölulegu sem listrænu tilliti, og kom út víða um heim, m.a. í Japan og Suður-Ameríku. „Við erum að kanna ýmsa mögu- leika hvað varðar næstu plötu og það væri gaman að opna á nýja markaði,“ segir forsetinn. „Við er- um á feiknaflugi, það verður engin fimm ára bið í næstu plötu, og nóg að gera – eins og alltaf.“ Morgunblaðið/Arnaldur Forsetinn President Bongó er á leið í tónleikaferðalag og verður meðal annars komið við í Brasilíu, Rússlandi, Þýskalandi og Sviss. Allt að gerast GusGus er á leið í yfirgripsmikið tónleikaferðalag og vinnur hörðum höndum að næstu breiðskífu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.