Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 27 Atvinnuauglýsingar Vélstjóri Yfirvélstjóra 1000 hö vantar á MB Mörtu Ágústsdóttur frá Grindavík til netaveiða frá 1. júní. Upplýsingar í síma 426 8286 og 894 2013. Bifreiðarstjórar ath Bus drivers Óskum eftir að ráða í nokkur störf bifreiðar- stjóra með rútupróf . Mikil vinna, nýlegir bílar. Enskukunnátta æskileg. Nánari upplýsingar gefur Rúnar í s. 660 1303/ 540 1303 eða netfang runar@ruta.is Icelandexcursions allrahanda er alhliða ferðaþjónustufyrirtæki í örum vexti. Raðauglýsingar 569 1100 Fundir/Mannfagnaðir Félag sjálfstæðismanna í Árbæ, Selási, Ártúns- og Norðlingaholti Opinn fundur með Illuga Félag sjálfstæðismanna í Árbæ Selási, Ártúns- og Norðlingaholti efna til opins fundar um efnahagsmál með Illuga Gunnarssyni alþingismanni. Fundurinn verður miðviku- daginn 28. maí kl. 20:00 í félagsheimili sjálfstæðismanna í Hraunbæ 102B (við hliðina á Skalla). Allir velkomnir! Stjórnin. Tilkynningar Mat á umhverfisáhrifum Ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu framkvæmda Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eftirtaldar framkvæmdir skuli ekki háðar mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum um mat á umhverfisáhrifum nr. 106/2000 m.s.b.  Vatnsvinnsla við Hólmkelsá, fyrir Rif, Snæfellsbæ  Djúpborun við Kröflu, Skútustaðahreppi Ákvarðanirnar liggja frammi hjá Skipulags- stofnun, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þær eru einnig að finna á heimasíðu Skipulags- stofnunar: www.skipulag.is Ákvörðun Skipulagsstofnunar má kæra til umhverfisráðherra og er kærufrestur til 24. júní 2008. Skipulagsstofnun. Kísilverksmiðja í Helguvík, Reykjanesbæ Mat á umhverfisáhrifum - Athugun Skipulagsstofnunar Tomahawk Development hefur tilkynnt til umfjöllunar Skipulagsstofnunar frum- matsskýrslu um framleiðslu kísils í Helguvík. Tillaga að ofangreindri framkvæmd og skýrsla um mat á umhverfisáhrifum hennar liggur frammi til kynningar frá 27. maí til 8. júlí 2008 á eftirtöldum stöðum: Á bókasafni Reykjanesbæjar, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulagsstofnun. Frummatsskýrslan er aðgengileg á heimasíðu Tomahawk Develop- ment: www.tomahawkdevelopment.dk Allir hafa rétt til að kynna sér framkvæmdina og leggja fram athugasemdir. Athugasemdir skulu vera skriflegar og berast eigi síðar en 8. júlí 2008 til Skipulagsstofnunar, Laugavegi 166, 150 Reykjavík. Þar fást enn fremur nánari upplýsingar um mat á umhverfisáhrifum. Birt samkvæmt lögum um mat á umhverfis- áhrifum, nr. 106/2000 m.s.b. Skipulagsstofnun. Atvinnuauglýsingar sími 569 1100 sterk röddin, glaðlegt fasið og ljóm- andi brosið lýstu jákvæðri mann- eskju sem átti við mann erindi. Og maður tók glaður á móti Dodda. Það duldist ekki að hann hafði skoðanir og gat verið fastur fyrir teldi hann það við hæfi. En aldrei upplifði ég það öðruvísi en sem lifandi áhuga og velvilja til mín og þess starfs sem okkur var kært að efla. Ég kynntist fyrst Dodda sem ung- ur maður þegar ég byrjaði að taka þátt í ferðum Farfugla. Hann var einn af mörgum sem litu á sig sem Farfugla. Hann hafði sjálfur sem ungur maður eignast vini og öðlast reynslu í gegnum ferðir Farfugla og vildi að aðrir ættu kost á slíkum tækifærum. Tækifæri til að kynnast nýjum háttum, ganga önnur tún og láta aðra menningu auðga sína reynslu. Flakka svolítið en koma reynslu og vinum ríkari til baka. Saga Dodda og ferðafélaga er æv- intýri kynslóðar sem bjó sér til tæki- færi þegar fá voru í augsýn. Bandalag íslenskra farfugla þakk- ar Dodda fyrir áralanga samfylgd, vakandi áhuga á starfinu, velviljann og hvatninguna. Við Farfuglar, ferðafélagar fyrr og síðar, þökkum Dodda fyrir alla gleðina og trú- mennskuna í langri samfylgd um leið og við vottum Þuru og börnum samúð okkar. Bandalag íslenskra farfugla. Gunnar Ingi Hjartarson Það er aragrúi minninga sem koma upp í hugann þegar ég minnist Dodda míns, minningar sem eru mér hjartfólgnar og ég mun varð- veita um ókomin ár. Efst er mér í huga húmorinn, glaðværðin, hugul- semin, handlagnin, viskan og hjálp- semin. Ótrúlegt en satt, þessir eig- inleikar og miklu fleiri til rúmuðust í einum og sama manninum. Doddi hefur verið stór hluti af mínu lífi alla tíð og hefur verið mér sem náinn afi. Í hjarta mínu finn ég stórt skarð við fráfall hans og erfitt til þess að hugsa að við munum ekki framar sitja í rólegheitum og spjalla um heima og geima og ekki fæ ég fram- ar notið úrræða hans og handverks. Það var nú alltaf svo, að ef eitthvað þurfti að laga eða ef lausnar var þörf á hinum ýmsu málum, þá var Doddi alltaf boðinn og búinn til að aðstoða. Það eru ófáir hlutirnir sem fengu lengri líftíma vegna handlagni og út- sjónarsemi Dodda. Yfirgripsmikil þekking hans og áhugi á ýmsum málefnum skapaði líflegar og skemmtilegar samræður og fræðslugildið var mikið. Stundum fannst manni hreinlega að hann hefði lesið eitthvað um alla hluti. Al- veg magnað. Þegar ég staldra nú við og lít um öxl sé ég hvað Doddi hefur lagt styrka stoð undir þroska minn og hjálpað til við að leggja grunn að ýmsu í mínu lífi. Vísindi hvers kon- ar, hvort sem þau beindust að nátt- úrunni eða tæknilegum úrlausnum, voru ofarlega á baugi og sjálfsagður hluti af lífinu. Þannig held ég að nýt- ing náttúruauðlinda samhliða varð- veislu náttúrunnar hafi mótast sem samræmanleg markmið í mínum huga og ég hef það að leiðarljósi í mínum störfum. Fjölmargar stundir áttum við systkinin sem börn á Svöluhrauninu, í góðu yfirlæti, hlýju og notarleg- heitum. Það var svo gaman hvað oft var eitthvað skemmtilegt um að vera: taka upp kartöflur, dytta að hlutum, þvælast eitthvað, slá grasið, spila á spil – hversdagslegir atburðir kannski fyrir suma, en voru alltaf sérstakir og skemmtilegir. Maður fékk að vera með í öllu hjá Þuru og Dodda. Það eru mikil forréttindi að geta nánast valið sér fjölskyldu til við- bótar sinni eigin og vera þar tekið opnum örmum sem einn úr þeirri fjölskyldu væri. Forréttindin kom- ast á enn æðra stig þegar um er að ræða fólk á borð við Þuru, Dodda, Sigrúnu, Inga Þór, Möggu og þeirra börn. Þessu fékk Herborg mín einn- ig að kynnast og síðar strákarnir mínir og hafa þau einnig bundist fjölskyldunni sterkum og órjúfan- legum böndum. Fráfall Dodda er okkur öllum mikill missir, en minn- ingarnar um einstakan mann styrkja okkur og gefa okkur tilefni til að fagna lífi hans og störfum. Doddi minn, þú háðir marga hild- ina, en sumar orrustur eru illvinn- anlegar, jafnvel fyrir seigustu menn eins og þig. Nú er baráttunni lokið og þér líður betur á góðum stað. Ég finn að þú verður alltaf með mér og mínum og munt áfram styðja okkur á lífsins braut. Svei mér þá ef mér finnst þú ekki vera með mér í anda við að gera upp nýja húsið okkar. Kærar þakkir fyrir allt. Þinn Sveinn Óli. Ég minnist margra góðra stunda með Þorgrími á liðnum áratugum. Við áttum það sameiginlegt að vera báðir Gaflarar sem sóttum vinnu hjá Varnarliðinu á Keflavíkurflugvelli. Þorgrímur ók þessa leið daglega, oftast sjálfur, stundum í skiptum við aðra. Fyrstu áratugina á holóttum og bugðóttum malarvegi og síðar á betri vegi en samt viðsjárverðum. Hann var athugull og varkár og því voru þessar ferðir hans án teljandi slysa eða óhappa. Þorgrímur var traustur maður, félagslyndur og sérstaklega vel máli farinn. Hann gegndi sérstökum trúnaðarstörfum hjá Fjarskipta- stofnun Varnarliðsins („U.S. Naval Communications Station, Iceland“), ásamt miklum mannaforráðum og forustuhlutverki í rekstri og upp- byggingu þeirrar stofnunar. Hann hlaut margar viðurkenningar frá Bandaríska sjóhernum og Varnar- liðinu fyrir þau störf er hann innti af höndum. Hann hætti störfum haust- ið 1996 og hafði þá starfað hjá Varn- arliðinu um fjörutíu og þriggja ára skeið. Þorgrímur var lykilaðili að stofn- un Kiwanisklúbbsins Brúar sem var stofnaður 7. febrúar 1973 og starfaði til síðustu ára Varnarliðsins. Klúbb- urinn starfaði á enskri tungu og var hugsaður sem tengiliður milli Ís- lendinga og aðila hjá Varnarliðinu og annars staðar, sem ekki töluðu ís- lensku. Við stofnun klúbbsins var 61 stofnfélagi af sex þjóðernum, Ís- lendingar, Bandaríkjamenn, Þjóð- verjar, Bretar, Kínverjar og Danir. Ég kom oft sem gestur á klúbbfundi Brúar og var félagi í klúbbnum um nokkurra ára skeið. Þar ríkti ávallt mikill samhugur og framkvæmda- vilji. Klúbburinn átti aðild að Kiw- anisumdæminu Ísland-Færeyjar og gegndi sínu hlutverki ávallt með mikilli sæmd. Þorgrímur var einlægur stuðn- ingsmaður NATO og var einn lyk- ilaðila að stofnun félags er nefndist NATO-vina félagið. Félag þetta var undanfari Varðbergs og Samtaka um vestræna samvinnu sem Þor- grímur tók einnig þátt í. Þorgrímur var stoltur af landinu sínu, Íslandi, og var sérstaklega framtakssamur að kynna Ísland og íslenska menningu fyrir Bandaríkja- mönnum þeim er störfuðu hjá Varn- arliðinu. Sem dæmi um áhuga hans og framlag skal nefnt að hann aflaði sér réttinda sem leiðsögumaður, eingöngu til að gegna því hlutverki í frístundum sínum, um helgar, að fara með hópa varnarliðsmanna og fjölskyldur þeirra um Ísland og kynna þeim áhugaverða staði hinnar auðugu íslensku náttúru. Þannig fengu hundruð varnarliðsmanna allt aðra sýn á Ísland en þeir ella hefðu hlotið. Þorgrímur var þekktur af bandarískum varnarliðsmönnum sem „Thor Halldorsson“ og er tengdur órjúfanlega minningum þeirra frá dvölinni á Íslandi. Erindi þau er hann flutti hjá hinum ýmsu félögum varnarliðsmanna, t.d. um íslensku jólasveinana og íslenska þorramatinn voru sérstaklega vin- sæl og minnisstæð þeim er á hlýddu. Við fráfall Þorgríms er genginn góður samstarfsmaður, einlægur fé- lagi og vinur. Við Berta, eiginkona mín, færum Þuríði, eiginkonu hans, og eftirlifandi börnum og afkomend- um þeirra okkar innilegustu sam- úðaróskir. Blessuð sé minning Þor- gríms Halldórssonar. Guðni Jónsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.