Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 20
20 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ ERFIÐ VERKEFNI Geir H. Haarde forsætisráðherrasegir í viðtali, sem birtist íMorgunblaðinu á laugardag í tilefni af árs afmæli ríkisstjórnarinnar, að áhrif yfirstandandi efnahagsþreng- inga á atvinnulífið eigi eftir að koma að fullu fram, þótt hann telji að sjái fyrir endann á þrengingunum á fjármála- markaðnum og „að sá verðbólgukúfur, sem við göngum nú í gegnum, muni ganga hratt niður“. Síðan bætir hann við: „En ég tel að það sé mikilvægt verkefni fyrir okkur að reyna að koma í veg fyrir að hér verði stöðnun í þjóðar- framleiðslu eða samdráttur, sem gæti leitt til verulegs atvinnuleysis. Það má segja að verkefnið sé að koma í veg fyr- ir að spár um það rætist. Þess vegna er mikilvægt að halda áfram atvinnuupp- byggingu og efla framleiðsluna.“ Þetta er kjarni málsins í þeim vanda, sem nú steðjar að. Það er vonandi rétt mat hjá forsætisráðherra að botninum sé náð á fjármálamörkuðum í þeirri niðursveiflu, sem hófst í haust og enn er að koma fram, en ýmislegt bendir þó til að svo sé ekki. Það er erfið list að halda réttum kili í efnahagsmálum þegar gefur á bátinn. Á undanförnum árum hefur aðgangur að fé verið nán- ast óheftur, en nú hefur dæmið snúist við og verulega hægt á hjólum efna- hagslífsins. Undanfarna áratugi hefur hins vegar verið meginmarkmið að halda atvinnuleysi í lágmarki á Íslandi öndvert við meginland Evrópu þar sem atvinnuleysi hefur verið talinn sjálf- sagður fórnarkostnaður fyrir efna- hagslegan stöðugleika. Sú hefur sem betur fer ekki verið raunin hér og er ekki enn. Geir segir í viðtalinu að engir alvar- legir árekstrar hafi orðið í samstarfi Sjálfstæðisflokks við Samfylkinguna á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar. Í einu máli eru flokkarnir hins vegar ekki samstíga. Geir segir að eins langt og hann sjái inn í framtíðina henti það ekki hagsmunum Íslendinga að ganga í Evrópusambandið. Hann óttast ekki klofning í Sjálfstæðisflokknum vegna Evrópumálanna, en hvað með stjórn- arheimilið? Samfylkingin hefur aðra sýn á framtíðina. Evrópumálin eru ekki á dagskrá í stjórnarsamstarfinu, en um þau er að myndast átakalína, sem ugglaust mun hafa þar áhrif. Að auki getur samstarfið vandast ef enn þrengir að og „misgengis“ gætir áfram í fylgi flokkanna. Óvænt áföll hafa dunið yfir eftir að ríkisstjórnin tók við; niðurskurður þorskkvótans um þriðjung vegna til- lagna Hafrannsóknarstofnunar og samdrátturinn í efnahagslífinu. „Verð- bólguskotið“ kann að verða skamm- vinnt, en orkuvandinn og matvæla- kreppan eru til marks um breytta tíma, sem gætu falið í sér rýrnun lífs- kjara í heiminum í fyrsta skipti í lang- an tíma. Lífskjarabaráttan á Íslandi gæti tekið á sig breytta mynd. For- sætisráðherra segir að Íslendingar verði að breyta neyslumynstri sínu og boðar aukna áherslu á nýja orkugjafa. Það gæti þurft meira til eigi að halda í þau lífskjör, sem byggð hafa verið upp á undanförnum áratugum hér á landi. Í viðtalinu segir Geir að 80% þess, sem kveðið var á um í ríkisstjórnar- sáttmálanum, hafi verið hrundið í framkvæmd. Ríkisstjórninni verður hins vegar ekki gefin einkunn við þessi tímamót. Arfleifð hennar mun velta á því hvernig henni gengur að takast á við þau vandamál, sem steðja að ís- lensku efnahagslífi á tímum hækkandi verðs á olíu og öðrum aðföngum. HRÆSNI Náttúruhamfarir í tveimur Asíu-löndum hafa knúið Vesturlanda- búa til þess að horfast í augu við sjálfa sig með ýmsum og stundum óvæntum hætti. Hamfarirnar í Búrma hafa vakið upp áleitnar spurningar um hversu lengi er hægt að sitja hjá, þegar þeir sem ráða ríkjum í viðkomandi landi hafna allri hjálp frá öðrum löndum eins og hinir öldnu herforingjar í Búrma gerðu fyrst í stað. Hörmungarnar á Balkanskaga voru að vísu af mannavöldum en að lokum var gripið inn í þær. Hvers vegna var það ekki gert í Búrma? Var það vegna þess, að slíkt inngrip hefði ekki verið Kínverjum þóknanlegt? Á Vesturlönd- um hefur verið rætt um þetta mál út frá siðferðilegum sjónarmiðum en hefur ákvörðunin um að sitja hjá verið tekin á pólitískum forsendum? Sennilega. Nú ríkir aðdáun á Vesturlöndum á skjótum viðbrögðum kínverskra stjórnvalda vegna jarðskjálftanna þar. Og þá hefjast umræður um það, hvort skjót viðbrögð við jarðskjálftum eigi að verða til þess að dregið verði úr gagn- rýni á mannréttindabrot í Kína fram yfir Ólympíuleikana. Sumir segja já og aðrir segja nei eins og gengur og ger- ist. Og enn aðrir trúa því að með því að fara hægt í gagnrýni á mannréttinda- brot í Kína séu meiri líkur en minni á, að Kínverjar dragi smám saman úr slíkum brotum og að íbúar Kína muni smátt og smátt öðlast þau mannrétt- indi, sem við teljum sjálfsögð. Til er hins vegar annar skóli, sem tel- ur að Kínverjar láti sig engu skipta gagnrýni af þessu tagi á Vesturlöndum. Stjórnvöld í Peking fari sínu fram og herði tökin í Kína í stað þess að auka frelsi. Langtímamarkmið þeirra sé að efla tök sín á kínversku samfélagi. Þau láti sig engu skipta umræður á Vest- urlöndum um það hvort eigi að umbuna þeim fyrir góða frammistöðu á jarð- skjálftasvæðum með því að draga úr gagnrýni á mannréttindabrot fram yfir Ólympíuleikana. Þau telji það yfirlæti og hroka Vesturlandabúa að halda, að þeir geti sett sig í dómarasæti yfir Kína eða öðrum einræðisríkjum. Þetta eru áhugaverðar umræður og kannski snúast þær fyrst og fremst um að friða sjálfa okkur. Að við Vestur- landabúar finnum rök fyrir sjálfa okk- ur til þess að skýra hvers vegna við horfum fram hjá mannréttindabrotum Kínverja en drögum glæpamenn á Balkanskaga fyrir dóm í Haag til þess að svara til saka. Hræsnin í þessum umræðum á Vest- urlöndum er satt að segja yfirgengileg en á sér mörg fordæmi á undanförnum áratugum. Nú er meiri hræsni í samskiptum Vesturlandaþjóða við Kínverja en við nokkra aðra þjóð í veröldinni. Fjár- hagslegir hagsmunir Vesturlandabúa krefjast friðsamlegra samskipta við Kína. FRÉTTASKÝRING Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is H jólreiðar eru heilsusamlegur, umhverfisvænn og hag- kvæmur samgöngumáti (eins og segir á heimasíðu átaksins Hjólað í vinnuna) og bæði ríkisvaldið og sveitarstjórnir hafa hvatt til hjólreiða og almennrar hreyfing- ar. Og eftir því sem fleiri hjóla því minni verða umferðahnútarnir. Í ljósi alls þessa hlýtur að vera eðlilegt að spyrja hvers vegna hjólreiðastígar voru ekki lagðir um leið og Vesturlandsvegur og Reykjanes- braut voru tvöfölduð í umfangsmestu vega- gerð síðari ára á höfuðborgarsvæðinu. Sjö milljarðar. Það er um það bil kostn- aðurinn við að tvöfalda Vesturlandsveg um Mosfellsbæ og Reykjanesbraut þar sem hún liggur um þéttbýli á höfuðborgarsvæð- inu. Þú – Nei, þú! Meðan umræddar framkvæmdir voru á skipulagsstigi reyndu Landssamtök hjól- reiðamanna að koma þeirri hugmynd að hjá Vegagerðinni, samgönguráðuneytinu og sveitarfélögum að um leið og bílvegirnir væru tvöfaldaðir yrði gert ráð fyrir hjóla- stígum meðfram vegunum og þannig yrðu bæjarfélögin sem þessar stofnbrautir liggja um tengd saman. Á þessar ábendingar var hlustað en ekk- ert gert, a.m.k. ekki ennþá. Þurfi hjólreiða- menn að fara þessar leiðir verða þeir þess vegna annaðhvort að fara miklar króka- leiðir eða hjóla úti í vegkanti og bíta á jaxl- inn þegar bílarnir þeysast fram úr á 80-100 km hraða eða hraðar. Hjá Vegagerðinni fengust þær upplýs- ingar hjá Jónasi Snæbjörnssyni, svæðis- stjóra á Suðvesturlandi, að þar á bæ hefðu menn litið svo á að það væri hlutverk sveit- arfélaga að skipuleggja og greiða fyrir hjólreiðastíga. Þar að auki hefði Vegagerð- in ekki haft heimild til að leggja fé í hjól- reiðastíga fyrr en eftir að vegalögum var breytt árið 2007. Vegagerðin hafði á hinn bóginn heimild til að borga fyrir reiðvegi og hefur haft þá heimild lengi. Hjá sveitarfélögunum, a.m.k. sumum, var hins vegar litið svo á að ríkinu bæri að koma að uppbyggingu hjólreiðastíga með- fram stofnbrautum. Í kjölfar ofangreindrar breytingar á vegalögunum var settur á laggirnar vinnu- hópur sem í sitja fulltrúar samgönguráðu- neytisins, Vegagerðarinnar og Sambands sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem hefur að hl stíga við sto Haraldur fellsbæ, von ins leiði til verði eytt sem allra fy áhuga á að l beinlínis for ið raunhæf eitthvað sem koppinn,“ s Betra að f Staðan í eða misslæm ið. Akvegirnir tvöfal arða en hvar eru Hraðbraut Tvöföldun Vesturlandsvegar og Reykjanesbra bót fyrir þá sem aka bíl. Hjólreiðamenn þurfa enn sem fyr „MIÐAÐ við hvað verið er að gera í nágrannalöndum okkar þá er þetta for- kastanlegt og í rauninni stórundarlegt,“ segir Magnús Bergsson, stjórnarmaður í Landssamtökum hjólreiðamanna, um að engir hjólreiðastígar voru lagðir meðfram Vesturlandsvegi og Reykja- nesbraut þegar þessar akbrautir voru tvöfaldaðar. Hvergi í Evrópu þar sem hann þekki til sé svona vegagerð stund- uð, þ.e. að gera á engan hátt ráð fyrir hjólreiðamönnum. Magnús segir nauðsynlegt að fá hjól- reiðabrautir meðfram helstu stofn- brautum, s.s. Miklubraut, Vesturlands- vegi og Reykjanesbraut. Óbrotin rugllína Víða um höfuðborgarsvæðið liggja göngu- og hjólreiðastígar, líka nefndir útivistarstígar, og eru sumir afskaplega mikið notaðir, s.s. sá sem liggur frá Ægisíðu upp í Elliðaárdal. Hjólreiða- menn hafa lengi bent á að stígarnir séu of þröngir til að bera bæði umferð hjól- andi og gangandi fólks auk þess sem mjög sé á reiki hvaða reglur gildi á stígunum. Magnús segir að í raun sé ófremdarástand á þessum stígum og hann hafi heyrt af mörgum óhöppum þar, m.a. vegna blindhorna og óvissu um umferðarreglur. Hver sem fer um útivistarstígana á höfuðborgarsvæðinu veitir því athygli að merkingar á þeim eru afar mis- jafnar. Stundum er hjólreiðamönnum uppálagt, með málaðri óbrotinni línu, að hjóla vinstra megin á stígunum en stundum hægra megin. Oftar en ekki er engin lína og hafa margir litið svo á að slíkt sé til marks um framtaksleysi viðkomandi sveitarfélags. Það kemur því væntanlega mörgum á óvart að Landssamtök hjólreiðamanna hafa lagst gegn því að stígunum verði skipt þannig að öðrum megin sé hjólreiða- stígur en hinum megin göngustígur. Magnús bendir á að engar umferð- arreglur gildi um stígana heldur sé miðað við þær reglur sem gildi almenn í umferðinni. Merkingar stíganna séu hins vegar með þeim hætti að ómögu- legt sé að fara eftir þeim. „Bara það eitt að þarna að ekki er hæ hefðbundnum hann. Samkvæ sé nefnilega b óbrotna línu. um ekki, stun vinstra megin in. Óreiðan va hvorum megin saman auki þ Ófremdarástand á út Nauðsynlegt að fá hjólreiðastíga meðfram helstu stofnbrautum Merkt/ómerkt Stundum er merkt hvar á að hjóla og hvar Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.