Morgunblaðið - 26.05.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 26.05.2008, Síða 17
|mánudagur|26. 5. 2008| mbl.is Morgunblaðið/Valdís Thor Eigandinn Þórhildur María er mikill dýravinur og ætlar að verða dýralæknir. Slapp Skuggi út eina ferðina enn,“stundi Bergþóra Arnarsdóttir upp ísímann þegar blaðamaður spurðistfyrir um sniðugar, loðnar kanínur sem hann hafði frétt að byggju í Heiðargerði. Skuggi og Birta Nótt eru kanínur af Lion- head kyni. Hinn borubratti Skuggi var fyrsti fjölskyldumeðlimurinn af kanínutegund. Hann hefur gaman af því að stelast út í leyf- isleysi og er ástæða fyrir mæðulegri rödd Bergþóru í símanum. „Krakkarnir í hverfinu þekkja hann og eru fljót að skila honum ef þau sjá hann,“ segir Bergþóra. Fyrir búa hvorugkynsgárinn Trill og músin Vírus á þessu fjöruga heimili. Hin viðkvæma Birta Nótt kom svo á heimilið fyrir tæpu ári. Hún var frekar illa fyrir kölluð þegar blaða- mann og ljósmyndara bar að garði enda hafði hún fætt þrjá lífvana unga um nóttina. Eigandi myndarlegu dýrafjölskyldunnar er hin ellefu ára gamla Þórhildur María Bjarna- dóttir. Þórhildur er ábyrgðarfull og klár stúlka sem veit ýmislegt um dýrahald. „Ég hef alltaf haft áhuga á dýrum og ætla að verða dýralæknir í framtíðinni,“ segir hún. Veisla að komast í grasið Kostirnir við að eiga kanínur eru margir að mati Bergþóru. „Það þarf lítið að hafa fyrir þeim, eina sem þarf er búr og það er auðvitað kostur að eiga lokaðan garð. Þær borða kan- ínufóður en elska að fá vökvamikið grænmeti og ávexti,“ segir hún. „Þær eru mjúkar, sætar og kelnar og það er rosalega notalegt að kúra með þær,“ bætir Þórhildur við. Að sögn Þórhildar er vel hægt að temja kanínur en þó er það erfiðara þegar kljást þarf við tvær í einu. Uppeldi Skugga og Birtu Nóttar er því á frjálslegum nótum. „Við reyn- um að hafa þau eins mikið úti í garði og við getum og þorum. Maður sér alveg hvað það er mikil veisla hjá þeim þegar þau komast út í grasið,“ segir Bergþóra. Skugga virtist ekki leiðast athygli ljós- myndarans en að mati mæðgnanna fer hann í mikið manngreinarálit. „Hann skiptist á að vera ljúfur og grimmur. Oftast er hann róleg- ur en þegar hann sér Birtu Nótt verður hann æstur og árásargjarn,“ segir Þórhildur. Birta Nótt er hins vegar hlédrægari. „Hún er ofsa- lega blíð og kelin, en urrar nálægt Skugga. Núna er feldurinn hennar hins vegar mjög reyttur því hún hefur verið að útbúa hreiður fyrir ungana í búrinu sínu.“ Blekktar af ketti Eins og kom fram í upphafi hefur Skuggi sloppið út nokkrum sinnum undanfarið. Hann skilar sér þó oftast heim en um daginn höfðu mæðgurnar ekki orðið varar við hann heilan dag og voru orðnar áhyggjufullar. Um kvöldið hófst leit. „Við fórum með vasaljós inn í alla garða, lögðumst undir skúra, skriðum inn í runna og alltaf vorum við að sjá hann út und- an okkur svartan og loðinn með blikandi augu. Aldrei tókst okkur þó að ná honum,“ segir Bergþóra. „Eftir mikla leit komumst við síðan að því að svartur loðinn köttur hafði fylgt okkur alla leið. Við sem héldum að við værum alltaf við það að ná Skugga, “ segir Þórhildur. Sem betur fer skilaði Skuggi sér þó heim daginn eftir með hjálp góðra ná- granna. gudrunhulda@mbl.isFeimin Birta Nótt hélt sig í fangi eigandans. Flökkukanínur sem njóta frjáls- legs uppeldis Kanínur eru hin bestu gæludýr þótt þær geti verið mislyndar eins og Guðrún Hulda Pálsdóttir komst að þegar hún hitti tvær loðkanínur í misjöfnu sálarástandi. Segðu sís Skugga fannst athygli ljósmynd- arans ekki leiðinleg og brosti sínu blíðasta. ÁSTARJÁTNINGAR, fyndni og fúkyrði eru best meðtekin í vinstra eyra. Eigi hins vegar að veita leiðbeiningar, upplýsingar og önnur þau skilaboð sem ekki eru á til- finningasviðinu borgar sig að veðja á hægra eyrað. Standi því til að biðla til elsk- unnar kann að vera best að koma hlutum svo fyrir að það sé vinstra eyrað sem hlýði á ástarjátninguna. Þetta kemur fram á netmiðli breska dagblaðsins Times, í grein sem fjallar um mun heilahvelanna tveggja og byggð er á rannsóknum sem gerðar hafa verið víðs vegar um heim. Þó heilahvelin líkist hvort öðru þá hafa þau engu að síður sín sérsvið. Vinstra heilahvelið er þannig rökræna og mest ráðandi hvelið á meðan það hægra stendur fyrir hið sjónræna, innsæi og tilfinningar. Og þar sem hægra heilahvelið stjórnar vinstri hlið líkamans hafa rannsóknir sýnt að vinstra eyrað er leiðin að tilfinninga- hluta heilans. Heilahvelin hafa líka áhrif á ýmsa aðra virkni líkamans og hafa rannsóknir sýnt að hægra augað nemur betur liti, hægri fót- urinn er kitlnari og við kyssum frekar á vinstri kinnina en þá hægri. Heilaskanni hefur verið notaður til að styðja kenningarnar, sem og rannsóknir á einstaklingum með heilaskaða. Þannig eru hlutverk heilahvelanna tveggja skýrari hjá sjúklingum sem ekki hafa „corpus callos- um“ eða hin svo nefndu hvelatengsl. Eins eiga þeir sjúklingar sem lamast hafa vinstra megin líkamans í kjölfar hjarta- áfalls frekar í málörðugleikum. Og listinn sem Times birtir er fjöl- breytilegur. Þannig er fólk líklegra til að hlæja hlýði vinstra eyrað á brandarann samkvæmt rannsókn sem gerð var við Kaliforníuháskóla. Sömuleiðis bera 75- 80% kvenna smábörn á vinstri handlegg – burtséð frá því hvort þær eru rétt- eða örvhentar – fullyrða vísindamenn við Sus- sex-háskóla. Og við Sam Houston Uni- versity of America segjast menn hafa sýnt fram á að 69% fólks eigi auðveldara með að endurtaka kærleiksorð berist þau um vinstra eyrað á móti 56% nákvæmni fyrir það hægra. Meira að segja lyktarskynið er ekki látið ósnortið og hefur Pennsylvaníu- háskóli fundið út að vinstri nös kvenna nemur betur rakspíra- og blómailm. Símsölumenn gerðu svo ekki síður vel að hafa þessar niðurstöður í huga, því samkvæmt University College í London náðu þeir betri árangri þegar þeir hlýddu eingöngu á viðskiptavinina með vinstra eyranu. Tilfinningar í vinstra eyra, upplýsingar í það hægra Morgunblaðið/Kristinn Vinstra eða hægra? Það skiptir máli hvort eyrað hlýðir á upplýsingarnar. TAI chi-æfingar eru taldar geta komið fólki með syk- ursýki 2 til hjálpar. Tvær nýjar rannsóknir sýndu fram á að 12 vikna æf- ingaprógramm styrkir ónæmiskerfið og jafnar blóð- sykurinn. Kínverska sjálfs- varnarlistin tai chi stuðlar að slökun með djúpöndun og hægum hreyfingum. Fréttavefur BBC sagði frá rannsóknunum sem birtust í British Journal of Sports Medicine. Í fyrri rannsókn- inni sem gerð var í Taívan voru bornir saman tveir hóp- ar, annars vegar 30 manns með sykursýki og hins vegar 30 heilbrigðir einstaklingar. Þátttakendur lærðu 37 tai chi- æfingar hjá sérfræðingum og tóku vikulega þátt í 3 klst. langri æfingu. Eftir 12 vikna æfingar kom í ljós að hjá fólki með sykursýki 2 varð blóðsykurinn ekki eins hár og ónæm- iskerfið styrktist. Síðari rannsóknin var gerð í Ástralíu og sýndi hún sams konar niðurstöður auk þess sem þátttak- endur léttust, blóðþrýstingur þeirra minnkaði greinilega, þeir sváfu betur, voru orkumeiri og minna bar á verkjum. Mælt er með því að fólk með sykursýki stundi að lágmarki 30 mínútna líkamsrækt af rólegri gerðinni fimm daga vik- unnar. Um 1,8 milljónir manna eru með sykursýki 2 í Bretlandi en talið er að 750 þúsund hafi ekki verið greind með sjúkdóm- inn. Tai chi hjálpar sykursjúkum Yfirvegun Tai chi-æfingar stuðla að heilbrigðara lífi hjá sykursjúkum samkvæmt ný- legri rannsókn. daglegtlíf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.