Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 26.05.2008, Blaðsíða 26
26 MÁNUDAGUR 26. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Þorgrímur Júl-íus Halldórsson fæddist í Hafn- arfirði 1. júlí 1927. Hann andaðist á Landspítalanum við Hringbraut laug- ardaginn 17. maí síðastliðinn. For- eldrar hans voru Halldór Teitsson frá Hólmfastskoti, f. 1886, d. 1967 og Ingibjörg Jónsdóttir frá Vindási á Rang- árvöllum, f. 1891, d. 1954. Systkini Þorgríms eru Jón, f. 1918, d. 1997, Vilborg, f. 1920, Elí- as, f. 1922, d. 1990, Guðrún Sigríð- ur, f. 1923 og Þorbjörg, f. 1926, d. 1985. Þorgrímur kvæntist 14. júlí 1956 Þuríði Þórarinsdóttir, f. 1932, dóttur Þórarins Magn- ússonar skósmiðs, f. 1895, d. 1982 og Ingibjargar Guðmundsdóttir, f. 1900, d. 1989. Systkini Þuríðar eru Magnús, f. 1924, d. 1996, Guð- mundur, f. 1926, d. 1996, Helga Áslaug, f. 1927 og Guðbjörg Ólína, ingunni og var einn af stofnendum frjálsa lífeyrissjóðsins FISK. Auk þess sem hann m.a. tók þátt í störf- um Landsmálafélagsins Fram og var áhugamaður um útivist og tók m.a. leiðsögumannaréttindi og var ötull við landkynningar á náttúru og sögu landsins í mörg ár. Eftir að Þorgrímur hætti að vinna eyddi hann meiri tíma í sumarbústað þeirra hjóna í Þrastarskógi og lagði mikinn metnað í bæði frá- gang húss og lóðar. Best þótti hon- um að hafa börn og barnabörnin með í bústaðnum og því fleiri því betra og þó húsið hafi ekki verið stórt var alltaf pláss fyrir alla. Eft- ir 40 ára búskap í einbýlishúsi þeirra við Svöluhraun fluttu þau hjónin á Lækjargötu 26 í nýtt fjöl- býli en þar blómstraði áhugi Þor- gríms fyrir fuglalífinu á Hamar- kotslæknum og fékk fjölskyldan oft nákvæma skýrslu um hátterni gæsapara og álftanna á tjörninni. Útför Þorgríms fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Bálför mun fara fram síðar. f. 1929. Þorgrímur og Þuríður eignuðust tvö börn, þau eru: a) Ingi Þór, f. 1957, kvæntur Margréti Jónu Jónsdóttur, f. 1957, börn þeirra eru Helgi Marteinn, f. 1982, sambýliskona Hlín Pálsdóttir, f. 1979, sonur þeirra er Húnbogi Bjartur, f. 2008, Guðlaugur, f. 1983, Jóhann Óli, f. 1988, Elísabet María, f. 1992 og Katrín Þórey, f. 1994. b) Sigrún Björg, f. 1960. Þorgrímur lærði rafvirkjun 1946 og síðan til loftskeytamanns og vann sem slíkur til sjós á sínum yngri árum en fór síðan til Banda- ríkjanna til náms í raffræði og vann hjá Fjarskiptastöð Varn- arliðsins frá 1953 til 1996 þegar hann lét af störfum vegna heils- unnar. Þorgrímur var alla ævi virkur í félagsmálum, starfaði m.a. í tugi ára með Bandalagi ís- lenskra Farfugla, í Kiwanishreyf- Elsku pabbi minn. Hinn 17. maí sl. var höggvið stórt gat í tilveru mína þegar þú kvaddir þennan heim. Ég veit að ég á marg- ar og ljúfar minningar til að stoppa í gatið en örið verður til staðar og lífið aldrei eins og áður. Á togast tilfinn- ingar, léttir og gleði, yfir að þú losn- ir undan þeim þjáningum sem líf þitt var orðið undir lokin og sjálfelska mín að vilja hafa þig lengur hjá okk- ur. Með þessum orðum mínum vil ég þakka fyrir það lán mitt að hafa eignast þig ekki bara sem frábært foreldri heldur sem einlægan vin í gegnum líf mitt. Ég var pabbastelpa sem krakki og strax sem unglingur náðum við mjög vel saman og gátum rætt ótrúlegustu mál þótt við vær- um langt frá því að vera alltaf sam- mála. Það sem þó stendur upp úr er ást- in og lífsgleðin í kringum ykkur mömmu, alltaf var manni fagnað hvort sem við kíktum við eða bara slógum á þráðinn og þú áttir auðvelt með að tjá ástvinum þínum hversu vænt þér þótti um þá – það eru perl- ur sem við eigum okkur til huggunar á þessum erfiða tíma. Ég er svo lán- söm að hafa dagleg samskipti við foreldra mína og okkar fjölskyldu oft líkt við ítalska stórfjölskyldu þar sem okkur líður best öllum saman hvert ofan í öðru. Þú varst mikill og góður eigin- maður, pabbi, afi og síðast mjög stoltur langafi en áttir samt alltaf af- gangs handa öðrum ættingjum og óskyldum, ekki síst börnum, sem löðuðust mjög að Dodda afa. Sam- band ykkar mömmu var sérstaklega náið og gott og missir hennar mikill eftir rúmlega 50 ára hjónaband. Lífsgildin sem þú kenndir okkur; virðing fyrir öðrum, ábyrgð og hóg- værð auk kærleiks og ekki síst lífs- gleði og æðruleysi, lifa vonandi áfram í okkur systkinunum og næstu kynslóðum þér til heiðurs. Líf þitt var ekki alltaf auðvelt, sjúkraskráin ótrúleg lesning, en þú tæklaðir lífið með bros á vör og kvartaðir aldrei, varst alltaf eld- hress og tilbúinn á ball eins og þú orðaðir það, og erum við sannfærð um að þetta viðhorf gaf þér auka- tíma hér með okkur. Ég vil þakka þeim fjölmörgu heil- brigðisstarfsmönnum sem komu að umönnun þinni og ekki síst einstöku starfsfólki á 12G Landspítalanum við Hringbraut sem fylgdi þér síð- asta spölinn. Hvíl í friði elsku pabbi minn, þín Sigrún Björg. Elsku afi, ég man alltaf þegar við vorum lítil ég og Katrín og við fórum oft með þér og ömmu að gefa gæs- unum brauð og fórum svo kannski inn í bílskúr með þér að smíða og laga hluti. Mig langaði alltaf að vera eins klár og þú að smíða og laga hluti, en núna ertu bara farinn til himna og situr þar og fylgist með okkur sem vorum nánust þér og vakir yfir okkur. Þótt þú sért farinn þá munum við alltaf sjá hluta af þér í börnum þínum, barnabörnum og barnabarnabörnum, minning þín mun alltaf lifa með þeim sem áttu þann heiður að kynnast svona kát- um og góðum manni eins og þér. Ég á alltaf eftir að sakna þín. Elísabet María Ingadóttir. Doddi frændi er allur. Það er með söknuði að við kveðjum þig Þor- grímur Halldórsson, þó viss léttir, eftir erfið veikindi hjá þér. Þú varst með eindæmum góður maður sem ekkert aumt máttir sjá, og varst allt- af tilbúinn að hjálpa öðrum. Það var gott að sækja þig heim, varst alltaf tilbúinn að hlusta, hvort heldur mál- in voru stór eða smá, þannig að sjálfgefið var að þykja vænt um þig. Þú varst var mikill fjölskyldumaður. Börn hændust að þér og þú eign- aðist mörg afabörn þó skyldleiki væri ekki alltaf til staðar. Við minnumst heimsókna til ykk- ar Þuru á Svöluhraunið, þar sem setið var í eldhúskróknum, spilað, spjallað og slegið á létta strengi. Við þökkum þér samfylgdina og hugul- semi í okkar garð gegnum tíðina. Við sendum Þuru og Sigrúnu, Inga Þór og Möggu, Helga Martein, Hlín og Húnboga Bjarti, Gulla, Jóhann Óla, Elísabetu og Katrínu okkar innilegustu samúðarkveðjur og megi guð styrkja þau í sorg sinni og missi. Minningin um góðan dreng lifir að eilífu. Guðni, Valgerður, Elías Már, Atli og Árni Freyr. Elsku afi. Þú ert búinn að vera besti afi sem nokkur hefur getað eignast. Ég er svo heppin að þú varst afi minn. Stundirnar sem þú varst með mér voru bestu stundirnar mínar. Þú varst alltaf að hjálpa okkur og kenna okkur hvað væri rétt og rangt. Uppi í sumarbústað var alltaf skemmtilegast. Við fórum alltaf að spila á spil og þú varst allaf bestur í rommíi. Þú kenndir mér margföldun og deilingu og margt, margt fleira. Þessi næstu ár eiga eftir að vera mikið öðruvísi án þín og erfitt að fara í gegnum þau án afa míns, ég á eftir að saknað þín svo mikið. Þú varst svo góður við okkur ég vil bara þakka þér fyrir öll árin sem ég og systkini mín höfum verið með þér. Og ég hlakka til að sjá þig aftur þeg- ar ég fer frá þessum heimi og kem til þín. Kv. Litla prinsessan þín, Katrín Þórey. Við frétt um fráfall góðs vinar stöðvast tíminn eitt andartak í æp- andi þögn. Tómarúm myndast og hluti af okkur hverfur með. En tóm- ið fyllist aftur með lifandi minning- arbrotum, sem mynda eina heild og hinn látni lifir með okkur í huga og hjarta ekki síður en í lifanda lífi. Þorgrímur Halldórsson, hann Doddi, á þennan sess í lífi okkar. Án hans verður lífið ekki það sama, en minningarnar ylja og hann verður með okkur alla tíð í anda. Ekki grunaði okkur, þegar við réðum Sigrúnu dóttur hans sem barnfóstru fyrir eldri son okkar, þegar við fluttumst til Hafnarfjarð- ar fyrir 36 árum, eftir langa fjarveru erlendis, að við fengjum heila fjöl- skyldu í kaupbæti. Doddi og Þura höfðu einstakan hæfileika til að laða að sér börn. Börnin okkar, sem þá voru tvö, vildu helst hvergi annars staðar vera. Yngri sonur okkar fæddist svo á afmælisdegi Þuru og fannst þeim hann hin besta afmæl- isgjöf. Það má segja að þau hafi tek- ið okkur undir sinn verndarvæng, sambandið jókst og varð að góðri vináttu. Ingi Þór, sonur þeirra, út- skýrði mjög vel þessi tengsl síðar, að við værum ættleidda fjölskyldan þeirra. Ekki spillti það, að sumarbú- staðir okkar eru í göngufjarlægð og það var oft kátt í Grímsnesinu bæði í leik og starfi. Doddi var handlaginn, hugmyndaríkur og einstaklega hjálplegur og á hann mörg hand- tökin í viðhaldi og breytingum á bú- staðnum okkar, sem bera vott um útsjónarsemi hans og fagmennsku. Það var viðkvæðið hjá börnunum okkar hér áður fyrr, ef eitthvað skemmdist eða bilaði: Hann Doddi lagar þetta, og það gerði hann und- antekningarlaust. Hann var „laga- rinn“ í fjölskyldunni! Hjálpsemi Dodda var ólýsanleg, Hann var allt- af til staðar og eiga margir þeim hjónum mikið að þakka, því að ekki er Þura síðri. „Sælla er að gefa en þiggja“ á ekki við neinn betur en þau. Það ríkti engin lognmolla í nálægð Dodda, hann lá ekki á skoðunum sínum, hvorki um menn né málefni, vildi þó engan meiða og talaði aldrei illa um neinn, en talaði tæpitungu- laust við fólk, var hreinn og beinn. Hann átti það til að ýkja örlítið eða skreyta umræðuna, sérstaklega ef hann fann, að kveikjuþráðurinn var stuttur í viðmælanda, allt þó í græskulausu gamni til að lífga upp samveruna. Já, það var oft farið upp á háa C, og svo hlegið dátt á eftir. Og brosið hans, þegar stutt var í púkann í honum, er ógleymanlegt. Það eru forréttindi að eiga vini með sömu viðhorf, skoðanir og húmor. Engir okkur óskyldir hafa orðið okkur eins náin og þau Doddi, Þura og fjölskylda þeirra. Fyrir það vilj- um við þakka í dag. Það eru verð- mæti, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Við vottum Þuru, Sigrúnu, Inga Þór, Möggu og börnunum öllum dýpstu samúð okkar. Innistæðan í banka minninganna er svo mikil að hún tæmist ekki og verður enn verð- mætari með degi hverjum. Við sökn- um hans öll, en minnumst hans best með því að lifa áfram í anda hans í gleði og bjartsýni, í trú á hið góða og jákvæða. Sigurveig og Pálmar. Það er með trega í hjarta sem ég kveð Þorgrím Halldórsson, Dodda „afa“. Ég átti allt eins von á því að hann myndi vinna enn einn sigurinn í baráttunni við krabbann, því annar eins dugnaðarforkur og baráttumað- ur á engan sinn líka. Þær eru ófáar minningarnar sem ég á af heimsóknum mínum til Þuru og Dodda í Svöluhraunið og í bú- staðinn sem allar einkenndust af mikilli gleði, hlátri og dugnaði. Ég lærði svo ótal margt hjá þeim í æsku og það var alltaf hægt að spjalla um daginn og veginn því þau gáfu sér alltaf tíma til að hlusta á barnslegar hugrenningar ungs manns. Bílferðir í gamla rauð, heimsóknir í herstöð- ina, kartöflugarðarnir, gamli bústað- urinn þar sem ég lærði að borða með hníf og gaffli, staflarnir af National Geographic, Villi vaskahúsdraugur, Slyppugil og þjóðlegu spilastokk- arnir. Þetta eru yndislegar minning- ar. Það lék allt í höndunum á Dodda enda var hann alltaf kallaður Doddi „lagari“ af okkur börnunum því það var alvitað að hann gat lagað allt. Það var svo gaman að vera með hon- um þegar hann var að vinna að ýms- um verkefnum því hann hætti ekki fyrr en hann hafði fundið lausn á vandamálinu, enda var hann afskap- lega úrræðagóður. Vinátta foreldra minna við Þuru og Dodda hófst þegar Sigrún byrj- aði að passa Svein Óla bróður og þróaðist sú vinátta á þann hátt að ég hef alltaf litið á þau sem afa minn og ömmu. Það að hafa fengið að vera litli afastrákurinn í fanginu á Dodda er ómetanlegt og verð ég ávallt þakklátur fyrir það. Nú í seinni tíð var heilsunni farið að hraka en aldrei fann maður nokk- urn bilbug á Dodda og sneri hann öllu upp í grín með sinni alkunnu hnyttni. Við Ella og dæturnar færum Þuru, Sigrúnu, Inga Þór, Möggu og börnunum innilegustu samúðar- kveðjur okkar og biðjum Guð að gefa þeim styrk á sorgarstund. Það er sárt að horfa á eftir Dodda en minningin um einstakan mann mun lifa í hjörtum okkar allra sem hafa notið þess að kynnast honum. Hrafnkell Pálmarsson. Doddi var farfugl. Hann var ekki einn af þessum hljóðlátu mönnum. Nærvera hans kallaði á athygli, Þorgrímur Halldórsson ✝ Haukur Gunn-arsson fæddist í Reykjavík 27. mars 1936. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 17. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Vigdís Odds- dóttir, f. 20.12. 1904, d. 24.11. 1987 og Gunnar Gils Jónsson, f. 11.8. 1910, d. 22.1. 1979. Systir Hauks er Guðrún Oddný Gunnarsdóttir, f. 18.7. 1944. Hún var gift Ólafi Jónssyni, f. 13.5. 1946. Þau skildu á árinu 2006. Börn þeirra eru 1) Erla f. 19.1. 1976, gift Guðmundi Helga Sævarssyni, f. 26.7. 1974. Dóttir þeirra er Sara, f. 8.1. 2005, og 2) Jón Gunnar, f. 28.3 1980. Haukur ólst upp í Laugarnesinu og gekk í Laugarnes- skóla. Hann starf- aði hjá Vatnsveitu Reykjavíkur og síðar Orkuveitu Reykjavíkur til sjö- tugs. Útför Hauks verður gerð frá Fossvogskapellu í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Haukur var stóri bróðir hennar mömmu, átta árum eldri og eru mínar fyrstu minningar tengdar jól- um þegar hann og Sigga frænka voru með okkur heima í Arkarholt- inu. Oft á tíðum þótti honum nóg um æsinginn í okkur systkinunum á aðfangadagskvöld þegar við biðum óþreyjufull eftir að fullorðna fólkið kláraði jólamatinn sinn svo við kæmumst nú í pakkana. Aldrei skildum við hvernig hægt var að borða svona hægt og rólega og njóta matarins eins og fullorðna fólkið greinilega gerði þegar allir þessir pakkar biðu undir trénu. Ég held nú að hann hafi haft lúmskt gaman af því að fylgjast með spenn- ingnum í okkur því þegar allir voru búnir að taka upp pakkana, þá voru pakkarnir hans Hauks enn óopnaðir hjá honum. Ég minntist þessara tíma þegar hann var hjá okkur um síðustu jól og ég, Gummi og Jón Gunnar vorum orðin fullorðna fólk- ið sem sat og naut matarins á með- an Haukur og mamma hjálpuðu Söru að byrja að opna pakkana. Haukur var mjög barngóður og veitti það honum mikla ánægju að fylgjast með börnum að leik. Sara dóttir mín naut góðs af sambandinu við frænda sinn og var mjög ánægjulegt að fylgjast með þeirra samskiptum. Haukur kenndi Söru að heilsa og kveðja með handabandi þegar hún var rétt rúmlega árs- gömul. Þau voru stórvinir og gaman hversu tilbúinn hann var að gera það sem hún bað hann um; róla, renna eða fara á vegasaltið. Einnig komu í ljós myndlistarhæfileikar sem ég hafði ekki hugmynd um að hann byggi yfir. Haukur og Sara gátu setið og teiknað í langa stund. Sú stutta stjórnaði og alveg sama hvað hún sagði honum að teikna, hvort það var fjólublá sól eða rönd- ótt hús, alltaf gerði Haukur það möglunarlaust. Haukur hafði gaman af ferðalög- um. Hann ferðaðist til Danmerkur og Þýskalands og þegar við fjöl- skyldan vorum til skamms tíma bú- sett í Englandi þá heimsótti hann okkur þangað. Hann sótti þó meira í ferðalög innanlands og vildi þá gjarnan heimsækja staði sem hann hafði áður komið til og kynnast sögu þeirra nánar. Haukur greindist með krabba- mein fyrir rúmu ári síðan og í byrj- un þessa árs fór að halla undan fæti. Síðustu tvo mánuði dvaldi hann á Landspítalanum við Hring- braut og vil ég fyrir hönd fjölskyld- unnar koma á framfæri þakklæti til lækna og hjúkrunarfólks á deild 13–D. Hauks verður sárt saknað. Bless- uð sé minning hans. Erla Ólafsdóttir. Hann Haukur okkar Gunnarsson er farinn. Þegar Haukur lét af störfum hjá Orkuveitu Reykjavíkur sökum aldurs fyrir tveimur árum hafði starfsaldur hans hjá Vatns- veitu Reykjavíkur og síðar Orku- veitunni náð yfir 50 ár. Hann var með einn lengsta starfsaldur allra starfsmanna fyrirtækisins. Haukur var sérstakur – prúð- menni og drengur góður – en ekki allra. Hann fylgdist vel með þjóð- málum og því sem var að gerast í kringum hann á vinnustað þó ekki virtist svo vera við fyrstu sýn. Mæt- ing hans til vinnu var einstök. Sendum innilegar samúðarkveðj- ur til systur Hauks og aðstandenda. Fyrrum samstarfsfólk hjá Vatnsveitu Reykjavíkur. Haukur Gunnarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.