Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 8

Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 8
8 MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HÁTÍÐAHÖLD voru víða um land í gær í til- efni sjómannadagsins. Í Reykjavík voru haldnar minningarathafnir um látna sjó- menn, bæði í Hólavallakirkjugarði og Foss- vogskapellu. Einar K. Guðfinnsson sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra flutti ávarp í Hafnarhúsinu, við athöfn þar sem sjómenn voru heiðraðir. Í ræðu sinni ræddi Einar m.a. um viðbrögð ríkisstjórnarinnar við áliti mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðanna um íslenska kvótakerfið. Kvað hann mik- ilvægt að undirstrika að sjávarútvegurinn væri undirstöðuatvinnugrein sem lúta yrði sömu hagræðingarkröfum og aðrar atvinnu- greinar. Ella yrði hann undir og laðaði ekki til sín fólk. „Víða um heim má einmitt sjá dæmi um sjávarútveg sem orðið hefur þeim örlögum að bráð. Sjávarútveg sem ekki hefur verið álitinn alvöru atvinnugrein og er því ekki áhugaverður sem vettvangur lífsstarfs,“ sagði hann. Guðmundur Ragnarsson, formaður Félags vélstjóra og málmtæknimanna, viðraði í ræðu sinni við sömu athöfn áhyggjur af framtíð sjómennskunnar á Íslandi. „Að fá ungt fólk í dag til að fara í 30 daga veiðiferð á frystitog- ara með enga nettengingu, sms, msn og hvað þetta heitir allt saman er umhverfi og ein- angrun sem það sættir sig ekki við. Jafnvel þótt góð laun séu í boði,“ sagði Guðmundur. Við Reykjavíkurhöfn sýndu björg- unarsveitir m.a. búnað sinn og skólaskipið Sæbjörg fór í skemmtisiglingu til Akraness. Sjómenn heiðraðir víða um land Morgunblaðið/Árni Sæberg Furðuvera Þau Hanna, Eva og Jóhann virtu fyrir sér furðufiska við Reykjavíkurhöfn. Þeim leist ekkert á smokkfiskinn en líkaði öllu betur við þann gula í næsta kari. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Himnasending Á Akureyri sýndi Landhelgisgæslan björgun úr sjó. Þá var m.a. boðið upp á siglingar og skoðunarferð í fiskibátinn Húna II. Morgunblaðið/Árni Sæberg Lostæti Davíð Róbertsson og Þorvaldur Hafberg frá Sportkafarafélaginu grilluðu öðuskel við miðbakkann, týnda af köfurum við Reykjanes. Um helgina grilluðu þeir heilt fiskikar af skel. SÍMINN bæði hækkaði og lækkaði verð á nokkrum þjónustuþáttum í gær. Meðaláhrif til hækkunar á símreikninga einstaklinga og fyr- irtækja er á bilinu 1-4%. Ástæður verðbreytinga nú eru kostnaðar- hækkanir í rekstri sem tengjast meðal annars launaskriði og breyt- ingum á gengi íslensku krónunnar. Meðal þeirra þjónustuþátta sem munu lækka í verði eru símtöl í tvö önnur farsímakerfi en sú lækkun nemur um 4,6%. Á undanförnum vikum hefur ennfremur verið unn- ið að því að útvíkka sparnaðarleiðir Símans, meðal annars með því að fjölga svokölluðum „vinum“ í Frelsi og GSM-áskrift. Þá hefur sparnaðarleið Símans „Þú í útlönd- um“ verið útvíkkuð svo hún nær nú til allra viðskiptavina Símans í GSM-áskrift. 1-4% hækkun hjá Símanum HANNA Birna Kristjánsdóttir, forseti borgar- stjórnar, nýtur stuðnings rúmlega 57% lands- manna til þess að verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur. Þetta er niðurstaða skoðanakönn- unar sem Capacent Gallup gerði fyrir Stöð 2. Svarendur voru spurðir hvern þeir teldu að Sjálfstæðisflokkurinn ætti að velja sem næsta borgarstjóra Reykjavíkur. Langflestir nefndu Hönnu Birnu eða rúm 57%. Næstur henni var Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi og vildu rúmlega 11% sjá hann í borgarstjóra- stólnum. Tæp 6% vildu fá Júlíus Vífil Ingvarsson sem borgarstjóra en innan við 5% vildu að Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson, fyrrverandi borgar- stjóri, tæki aftur við embættinu, samkvæmt frétt Stöðvar 2. Könnunin var gerð 22.–26. maí. Í úr- takinu voru tæplega 1.100 manns af öllu landinu, 16–75 ára. Svarhlutfall var 53,3%. Vinsældir núverandi borgarstjóra minnka Dregið hefur úr ánægju með störf Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra samkvæmt nýjum Þjóðarpúlsi Gallup. Einungis 9% svarenda lýstu ánægju með störf hans nú, en 16% í janúar síð- astliðnum. Þá sögðust 67% svarenda af landinu öllu vera óánægð með störf hans og er það þrem- ur prósentustigum meira en í janúar. Talsvert dró úr ánægju með núverandi meiri- hlutasamstarf. Þannig voru 72% borgarbúa óánægð með meirihlutann en aðeins 16% þeirra voru ánægð. Af kjósendum Sjálfstæðisflokksins voru 45% ánægð með meirihlutann en 28% óánægð. Vilja Hönnu Birnu sem borgarstjóra STUÐNINGUR við Sjálfstæðisflokkinn í borg- arstjórn Reykjavíkur hefur minnkað mikið og einnig hefur dregið úr fylgi við flokkinn á lands- vísu, samkvæmt niðurstöðum Þjóðarpúls Capa- cent Gallup. Tæp 27% borgarbúa kváðust myndu kjósa Sjálfstæðisflokkinn ef gengið væri til borgar- stjórnarkosninga nú. Það er 11 prósentustigum minna en mældist í janúar. Þetta er minnsta fylgi sem borgarstjórnarflokkur sjálfstæðismanna hef- ur nokkru sinni fengið í könnunum Gallup. Ef þetta yrðu niðurstöður kosninga myndi flokkurinn missa rúm 15% af kjörfylgi sínu og þrjá af sjö borgarfulltrúum. Samkvæmt niðurstöðum Þjóðarpúlsins myndi Samfylkingin bæta við sig þremur borgarfulltrú- um og fá hreinan meirihluta í borgarstjórn, ef kos- ið væri nú. Flokkurinn mældist með rúmlega 45% stuðning í borginni en það er fjórum prósentustig- um meira en Samfylkingin mældist með í janúar. Vinstri grænir, sem nú hafa tvo borgarfulltrúa, fengju rúm 19% atkvæða og myndu bæta við sig þriðja borgarfulltrúanum. Framsóknarflokkurinn fengi 4,2% atkvæða og Frjálslyndir og óháðir 3,3%. Báðir síðasttöldu flokkarnir myndu missa borgarfulltrúa sína ef úrslit kosninga yrðu með þeim hætti. Færri styðja ríkisstjórnina Verulegar breytingar urðu á fylgi við ríkis- stjórnarflokkana milli mánaðanna apríl og maí. Samfylkingin bætir við sig tæplega fimm pró- sentustigum og er með 31% fylgi, sem er svipað og hún mældist með um síðustu áramót. Fylgi Sjálf- stæðisflokksins minnkar um næstum fjögur pró- sentustig og mælist nú vera rúmlega 33%. Sjálf- stæðisflokkurinn hefur ekki mælst með minna fylgi frá því í janúar 2005. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna stóð nánast í stað á milli mánaða en stuðningur við rík- isstjórnina minnkaði um rúm þrjú prósentustig. Nú sögðust 55% styðja stjórnina og hefur stuðn- ingur við hana ekki mælst minni á kjörtímabilinu. Fylgi annarra flokka breyttist lítið milli apríl og maí. Fylgi VG jókst lítillega og mældist 22% en bæði Framsókn og Frjálslyndir töpuðu fylgi. Gallup hefur aldrei mælt fylgi borgarstjórnarflokks sjálfstæðismanna minna en nú Samfylking fengi hreinan meirihluta Á fundi Borgarfulltrúar bera saman bækur sínar. TILKYNNT var síðdegis í gær um rúðubrot í nýja víkingasafnahúsinu við Víkingabraut í Reykjanesbæ. Að sögn lögreglu var búið að brjóta tvær mjög stórar rúður og þrjár aðrar minni. Ekki er vitað hver eða hverjir voru þarna að verki. Rúður brotnar í víkingasafni ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.