Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 17

Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 17 SUÐURNES ÍS L E N S K A /S IA .I S /O R K 4 23 61 0 5/ 08 • Orkuveita Reykjavíkur rekur stærstu jarðvarmaveitu í heimi. www.or.is Skordýr í Elliða- árdal Orkuveitan efnir til göngu- og fræðsluferðar í Elliðaárdal undir leiðsögn Guðmundar Halldórssonar, skordýrafræðings þriðjudagskvöldið 3. júní kl. 19.30. Gengið verður um dalinn og hugað að þeim smádýrum sem þar búa. Þátttakendur eru hvattir til að hafa með sér stækkunargler. Gangan hefst við Minjasafn Orkuveitu Reykjavíkur, Elliðaárdal. Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Vogar | Gefið var út menningarblað í Vogum sl. fimmtudag og myndlistarverk voru gefin á öll heimili sveitarfélagsins. Þá lauk vinnustofu hóps lista- og fræðifólks á vegum listahátíðar- innar Díónýsíu í Vogum með því að listafólkið sýndi afrakstur vinnu sinnar undanfarna tíu daga. Meðal annars var kveikt í verkinu ÞÖGN. Átta listamenn eru í hópnum sem hefur haft aðsetur í Vogum, þar af fimm erlendir. Þetta er í annað sinn sem vinnustofur eru skipulaðar á landsbyggðinni undir þessu heiti. Verkefnið var auglýst erlendis, meðal annars í gegnum listaháskóla. Gísli Hvanndal Ólafsson, tals- maður hópsins í Vogum, segir að færri hafi komist að en vildu. Fólkið kemur víða að og hittist svo á að flestir úr þessum hópi eru út- skrifaðir úr myndlistarnámi. Samvinna við heimafólk Mikið er lagt upp úr því að verkefnin séu unnin í samvinnu við heimafólk og hefur lista- fólkið því verið í sambandi við íbúana í Vogum. Gísli er rithöfundur. Hann hefur safnað efni í menningarblað sem hann gaf síðan út í lok vinnustofunnar. Blaðið var ekki komið út þeg- ar rætt var við Gísla í gær en hann nefndi að honum hefði tekist að safna þjóðsögum, kveð- skap og skrifum um örnefni. Einn listamaðurinn hefur mest verið úti í náttúrunni við að gera listaverk og hefur notið við það aðstoðar barna úr bænum. Tveir hafa unnið að listaverki í hlöðunni í Minni-Vogum sem vinnustofan hefur haft til afnota. Þá má geta þess að einn þátttakandinn ákvað að teikna svo margar myndir að hann gæti fært öllum heimilum í Vogum eina mynd að gjöf. Hluti hópsins hefur unnið mikið með börnum í grunnskólanum og myndlistarkennara þeirra og einn heimsótti bókmenntaklúbb í miðstöð eldri borgara og tók viðtöl. „Við skiljum ekki eftir minnisvarða eða neitt slíkt. En þátttakendur hafa verið duglegir að taka myndir af þróun verka sinna og það verð- ur til minja um veru okkar hér, auk myndanna sem gefnar eru á heimilin og blaðsins,“ segir Gísli og er ánægður með dvölina í Vogum. Hann segir að dvölin hafi haft sérstaklega mikil áhrif á erlendu þátttakendurna og þeir haft ánægju af því að vinna í svona litlu sam- félagi í fallegu umhverfi. Glöggt er gestsaugað „Þau hafa kynnt sér málin hérna og spjallað við fólk. Við fáum nýtt sjónarhorn með hinu glögga gestsauga,“ segir Róbert Ragnarsson, bæjarstjóri í Vogum, um heimsókn Díónýsíu- hópsins. Góð aðsókn var á sýningu Díónýsíu-fólksins á fimmtudagskvöld og íbúarnir áhugasamir. Bæjarstjórinn segir að sýningin hafi verið áhugaverð. Nefndi sérstaklega tréskúlptúrinn ÞÖGN sem brenndur var á sjávarkambinum. Túlkaði hann athöfnina á þann veg að hún væri til að þjappa fólki saman, eins og eldur hefur lengi verið notaður til. Þá væri búið að brenna þögnina sem ríkti um þennan ágæta stað sem mætti bera meira á. Kveiktu í Þögninni Ljósmynd/Eva Ljosvoll Listsköpun „The Dark Days Are Not Over“ er heiti á verki sem listakonan Tina Schotton tók upp á myndband í Vogum. Með henni á myndinni er Marie Cloquet og Karolina Boguslawska. Í HNOTSKURN »Díónýsía er samvinnuverkefni lista-manna og hefur það að markmiði að brjóta niður innbyrðis höft ólíkra list- greina og ytri múra á milli landsbyggðar og höfuðborgarsvæðis. »Að þessu sinni starfa vinnustofur lista-og fræðimanna í Vogum, á Hofsósi, Dalvík og Borgarfirði eystra og eru þátt- takendur 27. LANDIÐ Eftir Jón Sigurðsson Blönduós | „Æfinginn skapar meistarann,“ sagði Rakel Ýr Ívarsdóttir, 5 ára Blönduósingur, sem er alveg að verða sex ára. Rakel sem á heima á Aðalgötunni á Blönduósi var að æfa sig á nýja hjólinu sínu sem hún fékk í af- mælisgjöf og naut aðstoðar föður síns. „Ég er ekki búin að eiga afmæli en það er alveg að koma,“ sagði hin einbeitta Blönduósmær til að réttlæta snemmfengnu afmælis- gjöfina. „Svo passa ég mig líka á bílunum, það er öruggt,“ sagði Rakel að lokum og hélt áfram út í lífið. Æfingin skapar meistarann Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Hjólað Rakel Ýr passar sig á bílun- um og er með það á hreinu að æfingin skapar meistarann. Eftir Alfons Finnsson Ólafsvík | Það lá vel á Daníel Jóns- syni frá Ólafsvík er var hann að sjó- setja Breiðfirðing í Ólafsvíkurhöfn. Báturinn var smíðaður árið 1953 af Kristjáni í Skógarnesi. „Ég fékk bátinn í fyrra frá Stykk- ishólmi og var hann í eigu Kristjáns Gunnarssonar sem er sonarsonur Kristjáns í Skógarnesi. Til stóð að báturinn færi á safn í Reykhólum, en ég fékk hann með því skilyrði að gera hann upp,“ segir Daníel í sam- tali við Morgunblaðið. Daníel segir að margir bátar hafi verið smíðaðir á sínum tíma á Breið- arfjarðareyjum, ,,en báturinn sem ég hef verið að gera upp er sá eini sem eftir er á floti á Íslandi sem ég veit um. Það má segja að báturinn hafi verið ónýtur er ég fékk hann í hend- urnar, og það hefur tekið mig heilt ár að gera hann upp. Loksins er það bú- ið og ég er virkilega sáttur með bát- inn. Það voru vandræði með að fá vél sem passaði, en ég fann þrjár norsk- ar vélar og tókst að gera eina úr þeim. Vélin sem er um borð er 18 hestöfl, og er í toppstandi.“ Daníel byrjaði að gera upp báta árið 1953 með föður sínum, sama ár og Breiðfirðingurinn hans var smíð- aður. „Núna er ég hættur og er að flytja til Vestmannaeyja. Ég tek bát- inn með mér svo ég hafi eitthvað til að dunda við því ég hef ekki orðið heilsu til að standa lengur í báta- smíði,“ segir Daníel. Endurgerður Breiðfirðingur sjósettur Morgunblaðið/Alfons Reynslusigling Daníel Jónsson í reynslusiglingu í Ólafsvíkurhöfn. Ný- uppgerði báturinn er hinn glæsilegasti. VEITT hafa verið verðlaun í sam- keppni um bestu sjónvarpsauglýs- inguna í forvarnaverkefninu „Flott án fíknar“. Athöfnin fór fram í Þjónustumiðstöð UMFÍ. Samkeppnin var samvinnuverk- efni UMFÍ og Stöðvar 2 og komst dómnefnd að þeirri niðurstöðu að besta auglýsingin væri unnin af fjórum nemendum úr Giljárskóla á Akureyri. Nemendurnir eru Baldur Auðunn Vilhjálmsson, Hreiðar Hreiðarsson, Patrekur Sólrúnarson og Stefanía Snædís Johnsen. Jón Reginbaldur Ívarsson og Ómar Egill Ragnarsson úr Árbæj- arskóla tóku einnig þátt í sam- keppninni og voru þeim veitt verð- laun fyrir sitt framlag. Þá voru veitt þrenn verðlaun í samkeppni um bestu skjáauglýs- ingu „Flott án fíknar“ fyrir kvik- myndahús. Brynjólfur Löve Mogen- sen hlaut fyrstu verðlaun og fékk að launum 25 þúsund krónur. Sandra Rós Björnsdóttir fékk 15 þúsund krónur fyrir annað sætið og Kría Benediktsdóttir hafnaði í þriðja sæti og fékk 10 þúsund krón- ur að launum. Í þessari samkeppni tóku þátt nemendur á listnáms- braut úr Borgarholtsskóla í Grafar- vogi. Ljósmynd/Jón Kristján Sjónvarpsauglýsing Baldur Auðunn Vilhjálmsson, Hreiðar Hreiðarsson, Patrekur Sólrúnarson og Stefanía Snædís Johnsen úr Giljárskóla á Akur- eyri unnu til fyrstu verðlauna um bestu sjónvarpsauglýsinguna. Skjáauglýsing Brynjólfur Löve Mogensen hlaut fyrstu verðlaun í samkeppni um bestu skjáauglýsingu Flott án fíknar fyrir kvikmyndahús. Keppa um bestu sjónvarpsauglýsinguna hjá „Flott án fíknar“ Giljárskóli hreppti fyrstu verðlaun

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.