Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 19

Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 19
fjármál fjölskyldunnar MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 19 Afmælishátíðin hefst með tónleikum Páls Óskars Hjálmtýssonar söngvara og Moniku Abendroth hörpuleik- ara miðvikudags- kvöldið 9. júlí. Bergþór Pálsson, Bragi Berg- þórsson og Þóra Fríða Sæmundsdóttir píanó- leikari verða með tón- leika í Bláu kirkjunni 23. júlí. x x x Síðast en ekki sístvill Víkverji minna á listahátíð ungs fólks á Austurlandi (LungA) sem verður haldin dagana 14.-20. júlí. Fjölbreytt dagskrá verður þá fyrir almenning á kvöldin, tónleikar á föstudagskvöldinu, uppskeruhátíð og stórtónleikar á laugardeginum. Fjölmargar hljómsveitir hafa boðað komu sína á hátíðina, þeirra á meðal Bang Gang, eftirlætis hljómsveit Víkverja og fjölskyldu hans. Hér er aðeins stiklað á stóru og Víkverji leyfir sér að fullyrða að allir Íslendingar, allt frá ómálga börnum til háþroskaðra menningarvita, finni sitthvað við sitt hæfi á Seyðisfirði í sumar. Víkverji dáist að elju og atorku Seyðfirðinga í menningarmálum. Seyðfirðingar geta svo sannarlega verið stoltir af þessari miklu starf- semi, ekki síst í ljósi þess að íbúar bæjarins eru aðeins um 750, eða álíka margir og íbúar einnar götu í Reykjavík, Bólstaðarhlíðar, og tæp- ur þriðjungur af íbúum Hraunbæjar. Listahátíð sumars-ins er hafin og Víkverji hugsar sér gott til glóðarinnar. Hátíðin hófst í Skaft- felli, miðstöð mynd- listar á Austurlandi, með gjörningi fjöl- listaþríeykisins Skyr Lee Bob, innsetn- ingum Christophs Büchels og verki eftir seyðfirska listamann- inn Pétur Kristjáns- son. Boðið verður upp á ýmislegt fleira bita- stætt „Á seyði“, listahátíð sem haldin hefur verið árlega yfir sumarmán- uðina á Seyðisfirði frá árinu 1995 þegar haldið var upp á aldarafmæli kaupstaðarins. Fjölmargir listamenn leggja til krásir sem soðnar verða í seyðnum, eða soðgrófinni, sem nafn fjarðarins er dregið af. Á Vesturveggnum verða til að mynda fimm sýningar á verkum alls tíu listamanna í júní, júlí og ágúst. Sýningarstjórar Vestur- veggjarins setja sýningarnar upp með það að leiðarljósi að kanna snertifleti tónlistar og myndlistar í verkum ungra íslenskra listamanna. Austfirski listamaðurinn Kristleifur Björnsson verður síðan með sýningu í Skaftfelli frá 28. júní til 3. ágúst. Sumartónleikaröðin Bláa kirkjan verður tíu ára í ár. Haldið verður upp á afmælið með tónleikum á mið- vikudagskvöldum frá 9. júlí og þeim lýkur með tvennum tónleikum 20. ágúst og fimmtudaginn 21. ágúst.       víkverji skrifar | vikverji@mbl.is Eftir Önnu Sigríði Einarsdóttur annaei@mbl.is Það er komið sumar…“ söngMannakorn hér um áriðog veðurblíðan bendir svosannarlega til þess að sumarið sé komið. Margir eru fyrir löngu búnir að ákveða hvernig sum- arfríinu skal varið og bókuðu utan- landsferðina jafnvel í janúar. Lík- lega hafa þó runnið tvær grímur á einhverja er krónan hríðféll og þeir jafnvel séð sig um hönd. En hvað með þá sem voru búnir að greiða ferðina áður en gengis- skriðið hófst? Þeir geta vissulega hrósað happi yfir að hafa fengið miða á góðu gengi, en þurfa líka að horfast í augu við að þegar út er komið verður töluvert dýrara að lifa en áætlað var. Þúsund evrurnar sem í janúar fengust fyrir um 90.000 kr., kosta nú hátt í 116.000 kr. Og þegar mamma, pabbi, börn og jafnvel bíll ætla saman til út- landa er sá gengismunur fljótur að hlaðast upp. Það er hins vegar engin ástæða til að örvænta. Sumarfríið í sólinni getur vel verið hið skemmtilegasta … ef maður bara breytir aðeins um hugarfar. Kaupa, kaupa, kaupa Fyrsta og ef til vill mikilvægasta breytingin felur í sér að hætta að líta svo á að samasemmerki sé á milli útlanda og verslunarferða. Slíkur hugsunar- háttur felur einfaldlega í sér leifar af haftatímum. Manstu þegar mamma og pabbi/afi og amma tók seríóspakka og harðfisk með til Kanarí? Slíkar sögur hafa kallað fram bros árum saman. Kannski verslunarferðirnar ógurlegu eigi eftir að kalla fram samskonar bros eftir nokkur ár. Þess vegna borgar sig að staldra við áður en fjárfest er í þunnum og litríkum sumarfatnaði í fríinu og spyrja sig: „Hversu oft á ég eftir að nota þetta eftir að heim er komið?“ Ef svarið er aldrei ætti að sleppa kaupunum. Það sama gildir um uppblásnu vindsængurnar, boltana og strand- leikföngin sem troðið var í ferða- töskurnar eftir síðustu sólarlanda- ferð og fylla nú geymsluna. Af hverju ekki að taka einhvern þess- ara fornvina með sér út þetta árið? Allur matur á að fara… Matar- innkaup eru útgjaldaliður sem erfitt er að forðast. Hér er þó líka rúm fyrir smá hagsýni. Morgunverður á hótelinu, sé hann ekki innifalinn, getur t.d. reynst glettilega dýr. Með því einu að rölta yfir á næsta kaffi- hús má oft lækka þann reikning verulega. Sömuleiðis er drykkurinn á hótel- og sundlaugabarnum yfir- leitt töluvert hærri en í kjörbúðinni við hliðina á. Það má líka vel fækka máltíðum sem neytt er á kaffi og veitinga- húsum yfir daginn. Hvers vegna ekki að smyrja eða kaupa nesti í næsta stórmarkaði áður en fjöl- skyldan heldur upp í skoðunarferð dagsins, nú eða vera með pikknikk á ströndinni? Með því móti má líka forðast skyndibitafreistingar sem hvort eð er teljast seint til hollustu. Það er líka vert að hafa í huga að fjöldi veitingahúsa er með tví- og þríþrétta hádegistilboð á mun betra verði en sést á kvöldseðlinum. Jafn- vel fínu staðirnir sem annars kæmu vel við pyngjuna. Hví ekki að gera hádegisverðinn stundum að aðal- máltíð dagsins? Á þeim tíma dags er fjölskyldan líka öll vel vakandi og enginn hætta á að minnstu krílin sofni ofan í spaghettídiskinn. Maður er manns gaman Sund- laugagarðar, tívolí og aðrir skemmtigarðar eru fastur viðkomu- staður margra fjölskyldna í fríinu og verðmiðinn getur verið hár. Dagsdvöl fyrir fjögurra manna fjöl- skyldu í Port Aventura skemmti- garðinum á Spáni kostar rúmar 17.000 kr. Eigi að skeyta sundlauga- garðinum í næsta nágrenni við heimsóknina er kostnaðurinn orðinn hátt í 30.000 kr. Gjaldeyrinn verður fljótt uppurinn eftir nokkrar slíkar ferðir. Það þarf hins vegar ekki alltaf að skipuleggja stóra og mikla dagskrá og vel vert að hafa í huga þann stóra sannleik Hávamála að maður er manns gaman. Fjölskyldan getur vel skemmt sér sjálf og sam- verustund með foreldrunum er oft öll sú skemmtun sem börn þurfa. Eigi hins vegar að hafa meira við má vel halda sitt eigið sundlaugar- partí, nú eða skipuleggja ratleik og jafnvel boðhlaup á ströndinni. Skemmtigarðaheimsóknirnar ættu að vera sérstök tilefni sem þá má láta sig hlakka enn meira til. Margt smátt gerir eitt stórt Það eru þó ekki bara stóru útgjöldin sem ganga á gjaldeyrinn. Því borg- ar sig að hafa augun alltaf opin og ganga ekki alltaf að fyrsta tilboði. Sigling hjá einu fyrirtæki getur t.d. verið helmingi dýrari en hjá öðru og sama gildir um skipulagðar göngur, hjólaleigur og kynningar á vínhér- uðum. Að ferðast ekki um stórborgina nema í leigubíl ætti sömuleiðis að heyra sögunni til. Almennings- samgöngur eru víðast hvar betri en á Íslandi og lestar- og sporvagns- ferðalög sannkallað ævintýri fyrir þau yngstu. Þær gefa líka gott tæki- færi til mannlífsskoðana, auk þess sem staðarvitundin eykst til muna. Að kynnast hinni hliðinni Það eru gömul sannindi og ný að miðbæ- ir stórborga og fjölmennir ferða- mannastaðir eru yfirleitt dýrari en gengur og gerist, þó sú þjónusta sem þar stendur til boða sé ekki endilega betri. Hvernig væri að koma sér út úr miðborg Parísar og kynnast öðrum hverfum, eða taka rútuna frá Benidorm yfir í nálæga smábæi? Borgir eins og London og Kaupmannahöfn hafa líka upp á óendanlega margt annað að bjóða en Oxford St. og Strikið. Sama er að segja um smábæi og útivistarsvæði í næsta nágrenni fjölmennari ferða- mannastaða – þeir geta oft reynst sannkallaðar gersemar þegar betur er að gáð. Að lifa og njóta Utanlandsferðin má þó ekki hverfa í skugga fjár- hagsáhyggna þó hemill sé hafður á því hversu oft og ötullega kortið er straujað. Fríið á að vera ánægjulegt og sé maður opinn fyrir nýjungum finnst stundum besta skemmtunin á ólíklegustu stöðum. Með pyngjuna í gjörgæslu í fríinu Morgunblaðið/Ómar Taktu strætó Það er ódýrara að nota almenningssamgöngur en leigubíla á ferðum erlendis og gefur auk þess gott tækifæri til að skoða mannlífið og átta sig betur á staðháttum. Hvers vegna ekki að smyrja eða kaupa nesti í næsta stórmarkaði áður en fjölskyldan heldur upp í skoðunarferð dagsins, nú eða vera með pikknikk á ströndinni? Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200 Til leigu eru tvær efstu hæðirnar í glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað við Glæsibæ. 6. hæð er 842,9 fermetrar 7. hæð er 584,8 fermetrar Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs í síma 530-4200 eða í tölvupósti á netfanginu eyjolfur@iav.is Glæsileg nýbygging

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.