Morgunblaðið - 02.06.2008, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 27
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Barnavörur
www.rassalfar.is
Girnilegustu taubleiurnar á klakanum
og hágæða barnafatnaður sem
unninn er úr 100% lífrænum fair
traid bómul. www.rassalfar.is
Garðar
Ódýr garðsláttur
Tek að mér garðslátt í sumar fyrir ein-
staklinga og húsfélög. Vönduð vinnu-
brögð. Óbreytt verð frá síðasta sumri.
Fáðu tilboð. Upplýsingar í síma:
857-3506.
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins 6
mánuðum LR-kúrinn - hreint
ótrúlegur árangur á ótrúlega stuttum
tíma. Uppl. Dóra www.dietkur.is
Sumarhús
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Glæsilegar sumarhúsalóðir!
Til sölu afar fallegar lóðir í kjarri-
vöxnu landi við Ytri-Rangá.
Allt eignarlóðir. Stórkostlegt útsýni.
Mikil veðursæld. Allt eignarlóðir. 100
km frá Reykjavík. Útivistarmöguleikar
og náttúrufegurð í sérflokki.
Uppl. í síma 893 5046 og á
www.fjallaland.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Námskeið
Byrjendanámskeið fyrir fullorðna
Skemmtileg byrjendanámskeið í
tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar-
skráning hafin. Tíu tíma námskeið
kr. 18.900. Upplýsingar í síma
564 4030.
Tennishöllin og TFK
Til sölu
Tékkneskar og slóvenskar
handslípaðar kristal- ljósakrónur.
Mikið úrval og gott verð.
Slóvak kristall,
Dalvegi 16b, Kópavogi.
S. 544 4331.
Þjónusta
Hitaveitur/vatnsveitur
Þýskir rennslismælar fyrir heitt og
kalt vatn.
Boltís sf.,
símar 567 1130 og 893 6270.
Ýmislegt
Rosalega lekker slæða í stíl við
sundfatnaðinn á kr. 7.885,-
Bikini bh í stærðum 32-38
D,DD,E,F,FF,G skálum á kr. 7.285,- og
buxur í stíl á kr. 4.360,-
Meiriháttar sundbolur í 34-44
D,DD,E,F,FF skálum og 34-38 G,GG
skálum á kr. 10.885,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
Nýkomið úrval af dömuskóm úr
leðri, skinnfóðraðir. Margar gerðir.
Verð: 7.885.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán.- fös. 10-18
og laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Nýjar skolplagnir!
Endurnýjum lagnir með nýrri tækni!
Enginn uppgröftur, lágmarks truflanir,
auknir rennslis eiginleikar. Fullkomin
röramyndavél.
Ástandskoðum lagnakerfi.
Allar pípulagnir ehf.
Uppl. í síma 564-2100.
Léttar og þægilegar herra-
mokkasíur úr leðri, skinnfóðraðar.
Litir: svart og beige. Stærðir: 40 -47
Verð: 6.585.-
Þægilegir og vandaðir herra
sumarskór úr leðri. Margar gerðir
og litir. Stærðir: 41 -46
Verð: 6.785.-
Úrval af mjúkum herrasandölum
úr leðri, skinnfóðraðir.
Margar gerðir. Stærðir: 40 - 47
Verð frá 5.885.-
Misty skór,
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18
og laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Vélar & tæki
Til leigu með/án manns.
Gerum einnig tilboð í hellulagnir og
drenlagnir.
Steinöld ehf, sími 696 6580.
Bátar
Bátur óskast
Bátur óskast til handfæra og
línuveiða, allt að 12 tonn.
Upplýsingar í síma 857 7211.
Bílar
Mercedes Benz Vito 120 CDI
nýr til sölu. Sjálfskiptur, V-6 dísel,
204 hestöfl, samlæsingar, rafmagn í
rúðum og speglum o.fl.
S. 544 4333 og 820 1070.
Mercedes Benz E 220 CDI
Dísel. Sk. 09.´05, avandgarde, sjálf-
skiptur, topplúga, rafmagn í sæti,
sætahitari o.fl., ekinn aðeins 25 þús.
km. Uppl. í s. 544 4333 og 820 1070.
Matator hjólbarðar
Sumar- og heilsársdekk. 15 %
afsláttur af dekkjum gegn framvísun
auglýsingar. Gildir til 10. júní 2008.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16b, Kópavogi,
s. 544 4333.
Iveco 50 C 13, sk. 08. 2004
Ekinn aðeins 38 þ. km. Með lyftu.
Gott ástand. Kaldasel ehf.
s. 544 4333 og 820 1070.
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, FWD.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 696 0042,
bilaskoli.is
Bilaskoli.is
Bókleg námskeið - ökukennsla
- akstursmat - kennsla fatlaðra
Snorri Bjarnason
Nýr BMW 116i ´07.
Bifhjólakennsla.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Volkswagen Passat '06 .
892 4449/557 2940.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '06.
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza '06.
696 0042/566 6442.
Mótorhjól
Honda CRF 250R árg. 2007
Lítið notað, nýbúið að skipta um
stimpil. Wrp/Fatbar stýri, stýris-
hækkun. Verð 650 þús.
Uppl. í síma 845 9080.
Húsviðhald
Smiður getur bætt við sig
smærri verkum. Set upp innréttingar,
hurðir, slæ upp veggjum og klæði og
tek að mér alla almenna viðhalds-
vinnu. Sanngjarnt verð
S: 862-7180, Atli.
FRÉTTIR
HALLDÓR Pálmar Halldórsson
líffræðingur varði doktorsritgerð
sína „Cellular and physiological bio-
marker responses to pollutants in
native and transplanted mussels
(Mytilus edulis L.) in Iceland“ frá
Háskóla Íslands 18. apríl síðastlið-
inn.
Á undanförnum árum hefur aukist
notkun á líffræðilegum mælikvörð-
um (bíómarkerum) við mat á mengun
sjávar. Með líffræðilegum mæli-
kvörðum er átt við margvíslegar
ástandsmælingar á lífverum, sem
gefa til kynna álag af völdum meng-
unar, svo sem
skemmdir á lík-
amsvef, raskaða
starfsemi frumna
eða líffæra eða
jafnvel van-
sköpun. Líf-
fræðilegir mæli-
kvarðar gefa
þannig til kynna
almennt mengun-
arálag eða álag af
völdum ákveðinna mengandi efna og
eru mikilvæg til stuðnings grein-
ingum á styrk mengandi efna.
Í doktorsverkefninu voru nokkrir
líffræðilegir mælikvarðar metnir í
kræklingi nærri íslenskum hafnar-
svæðum, en þar eru ýmis olíusam-
bönd, t.d. PAH-efni, þungmálmar og
efni úr botnmálningu skipa, oft í
miklu magni. Beitt var frumulíf-
fræðilegum (mat á skemmdum á ein-
þáttabrotum erfðaefnisins, DNA-
viðbætur, o.fl.), lífeðlisfræðilegum
(hraði öndunar, síunarhraði tálkna
og hjartsláttur), auk lífefnafræði-
legra mælikvarða (framleiðsla á
málmþíónum o.fl.)
Í ljós kom að við hafnarsvæði er
umtalsvert álag á krækling af völd-
um mengandi efna. Álagið kemur
fram í skemmdum á erfðaefni kræk-
lingsins, bæði séð í aukinni tíðni ein-
þáttabrota og í DNA-viðbótum, þar
sem olíusambönd tengjast við erfða-
efni, auk þess sem tilvist mengandi
efna hefur áhrif á hjartslátt kræk-
lingsins og öndun. Fæðuupptaka
reyndist lítil vegna lamaðra bifhára.
Lagt var mat á það hversu hratt
þetta gerist hjá heilbrigðum kræk-
lingi sem var fluttur á hafnarsvæði.
Niðurstöður rannsóknanna sýna
að líffræðilegir mælikvarðar í kræk-
lingi eru gagnlegir til að kanna
ástand sjávar á norðurslóðum. Lík-
legt er að álag af völdum olíusam-
banda muni aukast með aukinni
skipaumferð á norðurslóðum í fram-
tíðinni og þessar aðferðir gera kleift
að vakta slíkt álag.
Hlutar verkefnisins voru unnir í
samvinnu við rannsóknarhópa frá
Háskólanum í Stokkhólmi, Háskól-
anum í Flórens og Institue of Marine
Science, Feneyjum. Í doktorsnefnd
voru dr. Jörundur Svavarsson, pró-
fessor við Háskóla Íslands, dr. Åke
Granmo, prófessor við Gautaborg-
arháskóla og Kristineberg Marine
Research Station, og dr. Guðmundur
Hrafn Guðmundsson, prófessor við
Háskóla Íslands. Rannsóknirnar
voru styrktar af Rannís og af Rann-
sóknasjóði Háskóla Íslands.
Halldór Pálmar Halldórsson (f.
1971) lauk stúdentsprófi frá Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja árið 1991,
BS-prófi í líffræði frá Háskóla Ís-
lands árið 1999 og MS-námi í sjáv-
arlíffræði frá Háskóla Íslands árið
2003. Hann hóf doktorsnám í sjáv-
arlíffræði árið 2003 við Háskóla Ís-
lands. Á árunum 1991-1996 lagði
Halldór stund á sjómennsku og hefur
meðfram framhaldsnámi sinnt
stundakennslu við Háskóla Íslands
og verið skipstjóri og umsjón-
armaður rannsóknabáts líf-
fræðistofnunar Háskóla Íslands, Sæ-
mundar fróða.
Maki Halldórs er Helga Guðrún
Bjarnadóttir matvælafræðingur.
Doktor
í líffræði
Halldór Pálmar
Halldórsson