Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 39

Morgunblaðið - 02.06.2008, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. JÚNÍ 2008 39 HÁSKÓLINN Á AKUREYRI ER ALÞJÓÐLEGA VIÐURKENNDUR Á ÖLLUM FRÆÐASVIÐUM Nýverið fékk Háskólinn á Akureyri viðurkenningu menntamálaráðu- neytis á öllum fræðasviðum sínum, þ.e. auðlindavísindum, félags- vísindum og heilbrigðisvísindum. Viðurkenningarnar eru byggðar á mati alþjóðlegra sérfræðinefnda sem fóru yfir starfsemi háskólans og skiluðu ýtarlegum skýrslum um hana og mæltu skilyrðislaust með viðurkenningu fræðasviðanna. Störf kennara og nemenda f mjög góða dóma og sömuleiðis hvernig háskólinn nær að skapa persónulegt andrúmsloft fyrir nemendur og starfsfólk. Jafnframt er vakin sérstök athygli á þeim góða árangri sem háskólinn hefur náð í að byggja upp fjarnám. Umsóknarfrestur til 5. júní VIÐ ERUM STOLT AF HÁSKÓLANUM OKKAR kynntu þér námið á www.haskolanam.is og komdu í hópinn ÞEIR sem aldrei fá nóg af slags- málamyndum úr hinum æsilega heimi austurlenskra bardagaíþrótta, með sínum löngu og síendurteknu bardögum (sem flestir byrja með miklum látum, síðan sígur á ógæfu- hliðina fyrir hetjunni sem er við dauð- ans dyr þegar hún loksins fær blóð- bragðið í munninn og hnuðlar á andstæðingnum), framandi umhverfi né fögrum búningum, fá talsvert fyrir sinn snúð í Forbidden Kingdom. Hún hefur flest til að bera sem prýtt getur kung fu-sirkussýningu: Jet Li, Jackie Chan; hvítan drengstaula sem er þjálfaður upp í þjóðsagnakennda hetju og öðling; tvær kínverskar val- kyrjur (önnur ljóska til aðgrein- ingar); stórkostlegt landslag (myndin er tekin í Kína), bleikir akrar og grjónabeð krydduð stafrænum klettaborgum og fjallþökum. Síðast, en ekki síst eru slagsmálin linnulítil og kóreógrafían og hugmyndaflugið sem þar ræður ríkjum hið líflegasta. Að hætti kung fu-mynda er For- bidden Kingdom berangurslega skrifuð, rauði þráðurinn er bærilegt ævintýri sem gengur út á að past- urslítill drengstauli í Boston, er val- inn í sendiför gegnum tíma og rúm til að skila staf sem reynist sannkallaður veldissproti, til síns fyrri eiganda, apakóngsins í Kína (Li). Til þess þarf hann að fara í gegnum „hliðið sem er ekki hlið“, og njóta fulltingis sífullrar, ódauðlegrar bardagahetju (Chan), og músíkalsks áflogagikks (Yifei), sem gefur honum undir fótinn. Samtöl og persónusköpun er hins vegar unnin af hefðbundnum sleifarhætti. Satt best að segja var ég vel und- irbúinn til að láta mér leiðast undir sýningunni. Chan og Li eru ekki í hópi minna eftirlætisleikara, enda leikið í mun fleiri innihaldslausum slagsmálamyndum en eftirminnileg- um. Raunin varð önnur, kvikmynda- takan og átakaatriðin eru unnin af snilld, reyndar hanga hetjurnar full- oft og lengi í loftinu – að hætti Cro- uching Tiger, Hidden Dragon, samt sem áður, ef þú ætlar að sjá ein kung fu-átök í ár, þá er Forbidden King- dom myndin. Bostonbúinn og Apakóng- urinn í Kína KVIKMYND Regnboginn, Sambíóin Leikstjóri: Rob Minkoff. Aðalleikendur: Jackie Chan, Jet Li, Collin Chou, Liu Yi- fei, Michael Angarano. 110 mín. Banda- ríkin 2008. Forbidden Kingdom Sæbjörn Valdimarsson Slagur Kung-fu mynd ársins. UNGUM og efnilegum „breik“–dansara, að nafni Justin, verður á í messunni í miðri sýn- ingu, með þeim skelfilegu afleiðingum að hann liggur í dái í tvo áratugi. Það er komið nýtt árþúsund og allt orðið breytt þegar Justin (Kennedy), rankar við sér árið 2006. Hann er búinn að glata bestu árum ævinnar og setja fjárhag foreldra sinna í rúst. Einfaldir hlutir flækjast fyrir honum og kvennamálin eru brösótt. Eina sjáanlega útgönguleiðin að bregða sér aftur út á dansgólfið og reyna að vinna sigurlaunin í danskeppni. Justin smalar því saman gamla genginu sínu, þeim Darnell (Núñez Jr.), Aki (Lee) og Hector (Alvarado), nú er að dansa eða drepast. Myndin er ekki alveg eins slæm og hún lítur út fyrir, alla vega fyrsta klukkutímann, eða svo, og nokkrir gestaleikarar lífga upp á moð- ið. Handritshöfundunum tekst merkilega oft að hagnýta sér misþroska Justins og tíma- skekkjuna í lífi hans, kreista fram einn og einn hlátur þegar mest liggur við. Þegar líður á sýningartímann sækir í gamalkunnugt aula- brandara-far, sem sumir hverjir eru á mörk- unum. Kennedy er ekki gjörsneyddur hæfi- leikum, er eftirsóttur á unglingamynda- markaðnum og fær vonandi eitthvað bitastæðara í næstu myndum. Að dansa eða drepast Misþroska Ekki eins slæm og hún lítur út fyrir. KVIKMYND Regnboginn Leikstjóri: Harvey Glazer. Aðalleikendur: Jamie Kennedy, Migues A. Núñez Jr., Maria Menounos, Michael Rosen- baum, Bobby Lee. 105 mín. Bandaríkin 2007. Kickin’ It Old Skool bbnnn Sæbjörn Valdimarsson Snyrtisetrið ehf. Barónsstíg 47 - 101 Reykjavík S. 533 3100 (Heilsuverndarstöðin) Okkar frábæra tækni eykur starfsemi kollagens - og færir árin til baka

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.