Morgunblaðið - 03.06.2008, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 9
FRÉTTIR
Sundfatnaður
Nærfatnaður
Náttfatnaður
Mikið úrval
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
LAGERSALA
OUTLET
LAUGAVEGI 51 STÆRÐIR 42-54
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið virka daga 10.00-18.00
Laugard. Bæjarlind 10.00-16.00 og Eddufell 10.00-14.00
25%
afsláttur
af sumarjökkum og frökkum
Laugavegi 63 • S: 551 4422
KLASSÍSKIR
SUMARFRAKKAR
(með og án beltis)
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Sundföt
Sundbolir,
bikiní,
boxer sundbuxur,
buxnasundpils.
Str. 42/44 – 54/56.
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
ÞEGAR krökkt er af bílum á bíla-
stæðunum við Smáralind hafa bif-
reiðaeigendur orðið fyrir tjóni þegar
þeir aka utan í stuðlabergsstólpa sem
stillt hefur verið upp á umferðareyj-
um við lóð verslunarmiðstöðvarinnar.
Við þessar aðstæður hafa viðskipta-
vinir lagt bílum sínum upp við kanta á
umferðareyjum og þar með eru stein-
arnir ekki í sjónlínu þegar bakkað er
úr stæði. Er vitað um a.m.k einn við-
skiptavin Smáralindar sem varð fyrir
tjóni upp á rúmar 200.000 kr. með
þessum hætti og þurfti að bera það
sjálfur að verulegu leyti.
Steinarnir ekki fjarlægðir
Að sögn Hennings Freys Henn-
ingssonar, framkvæmdastjóra
Smáralindar, hefur forsvarsmönnum
verslunarmiðstöðvarinnar verið
kunnugt um að einhverjir hafi orðið
fyrir tjóni en þau mál séu ekki mörg.
Ekki standi til að fjarlægja steinana
eða færa þá til. Ökumenn þurfi hrein-
lega að sýna almenna aðgæslu þegar
þeir leggja bílum sínum og fyrir-
byggja tjón með því móti. Tilgang-
urinn með steinunum sé að vernda
umferðareyjar á bílastæðum fyrir
ágangi stórra bifreiða og vinnuvéla
sem moka þar snjó að vetri til. „Akst-
ursleiðum hefur ekki verið breytt og
þær eru jafn greiðar og áður. Mergur
málsins er að steinarnir eru staðsett-
ir á umferðareyjum og ættu því ekki
að vera til vandræða, “ sagði Henn-
ing.
Bifreiðareigandi sem lendir í tjóni
af þessu tagi fær það aðeins bætt ef
hann er með kaskótryggingu og
ræðst það af skilmálum tryggingar-
innar. Því hærri sem svokölluð eigin
áhætta er í tryggingaskilmálum hins
vátryggða, því meira tjón ber hann
sjálfur.
Bakka bílum á
stuðlabergið
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Stuðlaberg Einn hinna umdeildu steina við bílastæði Smáralindar.
Bíleigendur hafa lent í hundraða þúsunda króna tjóni á bílastæðum við Smáralind
Í HNOTSKURN
» Tæplega 1⁄4 umferðar-óhappa á höfuðborgar-
svæðinu fyrstu níu mánuði síð-
asta árs varð á bílastæðum
Smáralindar og Kringlunnar.
» Algengast er að ekið séeða bakkað á kyrrstæða
bíla. Flest verða óhöppin milli
kl. fjögur og fimm.
ÞEGAR framkvæmdum lýkur á nýju bílastæðahúsi við
Smáralind við turn norðanmegin við bygginguna verða
bílastæði til taks fyrir rúmlega 3.000 bíla viðskiptavina.
Í dag eru bílastæðin í kringum 2.200 en bílastæðum
fjölgaði nokkuð við byggingu brúar á milli turnsins á
Smáratorgi og Smáralindar.
Að sögn Hennings Freys Henningssonar, fram-
kvæmdastjóra Smáralindar, var sú framkvæmd ekki á
vegum rekstrarfélags Smáralindar en var kærkomin
viðbót þar sem við byggingu brúarinnar mynduðust
fjölmörg ný bílastæði sem standa viðskiptavinum
Smáralindar til boða. Þessum stæðum kemur svo til
með að fjölga enn frekar þegar nýja bílastæðahúsið
verður tekið í notkun. | thorbjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Stórt og stækkar enn
Nóg af stæðum í Smáralind
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið