Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 03.06.2008, Blaðsíða 10
VEGNA frétta af verðlaunum sem veitt voru Kára Stefánssyni og Frið- berti Jónassyni, af heimssamtökum um augnsjúkdóminn gláku, í Berlín í gær telur Íslensk erfðagreining rétt að eftirfarandi komi fram. „Íslensk erfðagreining hafði frum- kvæði að þeim rannsóknum sem leiddu til tímamótauppgötvana á erfðafræði sjúkdómsins og urðu til- efni verðlaunanna. Öll hönnun rann- sóknanna fór fram hjá Íslenskri erfðagreiningu, svo og vinna við þær og öll túlkun niðurstaðna. Vís- indamenn hjá Íslenskri erfðagrein- ingu sáu einnig að mestu um ritun á grein um vinnuna sem birtist í tíma- ritinu Science á síðasta ári, og voru í báðum heiðurssætunum í höfundaröð (fyrsta og síðasta sæti).“ | egol@mbl.is ÍE hafði frumkvæði að rannsókn Í HNOTSKURN »Sálfræðilegar afleiðingar áfalls eins ogjarðskjálfta geta komið fram löngu eftir hamfarirnar. »Mikilvægt er fyrir fólk að vera vak-andi fyrir einkennum næstu daga og vikur. »Meðal einkenna sem fram geta komiðer tilfinningalegt ójafnvægi, upplifun á spennu, tómleiki og örmögnun. Eftir Egil Ólafsson egol@mbl.is RAUÐI krossinn hefur skipulagt fræðslu um áfallahjálp og áfallastreitu barna og unglinga í kjölfar jarðskjálfta. Í gær voru haldin fræðslu- erindi fyrir starfsfólk skólanna í Hveragerði. Er- indin voru haldin að beiðni bæjaryfirvalda í leik- skólunum tveimur, grunnskólanum og vinnu- skólanum. Jóhann Thoroddsen, verkefnisstjóri sálræns stuðnings hjá Rauða krossi Íslands, segir að börn bregðist oft öðruvísi við áföllum en hinir fullorðnu. Nauðsynlegt sé að hafa í huga að þau séu börn en ekki litlir fullorðnir einstaklingar, og að þau skynji umhverfið eins og þroski þeirra leyfir. Rauði krossinn bendir aðstandendum einnig á bæklinginn Aðstoð við börn eftir áfall sem hægt er að nálgast á vefsíðunni redcross.is. Rauði krossinn verður með fulltrúa sína næstu vikur í þjónustumiðstöðvunum í húsnæði Rauða krossins við Austurmörk í Hveragerði og í Tryggvaskála á Selfossi milli kl. 13.00 og 20.00. Áfallahjálparteymi Rauða krossins veitir viðtöl milli kl. 17.00 og 20.00 á þessum stöðum út þessa viku. Fjölmargir hafa nýtt sér þjónustu Rauða kross- ins í kjölfar jarðskjálftanna. Áfallahjálparteymið hefur einnig hitt um 30-40 manns á dag í Hvera- gerði, á Selfossi og í nágrannabyggðum. Áfallahjálp í skólum í Hveragerði 10 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Taktu tólið, Marshall minn, og ræstu út Grímseyjarferjuteymið, Eyjamenn verða að gera sér ljóst að ástandið leyfir ekkert lúxusskemmtiferðaskip. VEÐUR Hvalur hf. hefur selt 60 tonn afhvalkjöti til Japans af sjö lang- reyðum sem veiddust árið 2006 og var hvalkjötið sent þangað austur flugleiðis.     Kristján Lofts-son, forstjóri Hvals hf., hefur upplýst að hann hafi fengið ágætis verð fyrir kjötið, án þess þó að greina frá því hvert sölu- andvirði afurð- anna var.     Kristján hefur ekki heldur upplýstum hver kostnaður hefur verið af því undanfarin tvö ár, að geyma 60 tonn af hvalkjöti í frysti- geymslum.     Og hann hefur heldur ekki upplýsthver flutningskostnaðurinn er af því að fljúga með kjötið til Japans.     Það skyldi þó ekki vera að lítill eðaenginn hagnaður sé eftir af hval- veiðunum og vinnslunni árið 2006, þegar allur kostnaður er talinn!     Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs-ráðherra hefur enn ekki gefið neitt út um það hvort hann hyggst gefa út veiðileyfi á þessar tignarlegu skepnur í ár.     Andstæðingar hvalveiða hafa iðu-lega haldið því fram að frekari hvalveiðar okkar Íslendinga muni stórskaða framboð Íslands til Örygg- isráðs Sameinuðu þjóðanna og draga úr líkum þess að Ísland nái kjöri.     Hvað sem líður slíkum vangavelt-um og réttmæti slíkra fullyrð- inga er ekki úr vegi að beina einni spurningu til sjávarútvegsráðherr- ans: Ætlar ráðherrann hugsanlega að tefla í tvísýnu kjöri Íslands í Ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna?! STAKSTEINAR Einar K. Guðfinnsson Hvalveiðar og Öryggisráðið SIGMUND                      ! " #$    %&'  (  )                          *(!  + ,- .  & / 0    + -                     12     1  3   4 2- 2  * -  5  1 % 6! (78 9 4 $  (             !" #$%  " & &          :  3'45 ;4 ;*<5= >? *@./?<5= >? ,5A0@ ).?                                                      *$BC                         ! "          #  $    #% &    '  ! ( #     *! $$ B *! ' ( ) $  ( $ %  #$ * # <2 <! <2 <! <2 '%$) + & , -" #. D2E           /       )"(   *  #*       #   #  !   +"  $ )" "  ( <    87    ' ,         %"    #   !      &   +     -          '              #   #  !   $ &  .  /  ! ( + /0 #11 #$  2# "# + & Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ FRÉTTIR MATUR er mik- ilvægur hluti menn- ingar sérhvers lands. Fyrir skömmu var ís- lenskukennslan á veg- um Jafnréttishúss haldin í eldhúsinu hjá Námsflokkum Hafn- arfjarðar, þar sem konurnar elduðu sam- an kjötsúpu með ís- lenskum konum, borð- uðu saman og síðast en ekki síst töluðu saman. Í næstu viku er stefnt á að fara í hjóla- túr um Hafnarfjörð á vegum Jafnréttishúss og kynnast hjóla- (og bíla-) menningu á Íslandi. Markmið Jafnréttishúss er brjóta niður hindranir milli samfélagshópa með því að sinna fræðslu fyrir bæði innflytjendur og Íslendinga með námskeiðahaldi og verkefnum því tengdu. Í rannsókn sem gerð var á vegum Rauða Kross Íslands árið 2006 kom í ljós að margar erlendar konur eru félagslega einangraðar, ekki síst þær sem eru heimavinnandi og tala hvorki íslensku né ensku. Hindranir milli ólíkra menningar- heima má brjóta niður á ýmsan hátt og er tungumálið lykilatriði í því. Íslensku má læra á skemmtilegan hátt með því sameina íslenskukennslu og ýmiss konar menningarfræðslu. Jafnréttishús reynir að fara út fyrir hefðbundnar kennsluaðferðir með þetta að leiðarljósi og var fyrsta skrefið því tengt í samstarfi við Kvikmyndasafn Íslands. Safnið bauð fyrir skemmstu öllum þátttakendum á íslenskunámskeiði á vegum Jafn- réttishúss í bíó á íslensku myndina „Punktur, punktur komma, strik“ eftir Þorstein Jónsson, sem að mestu leyti er tekin upp í Hafnarfirði. Fengu konurnar þar góða kynningu á íslenskri kvikmyndamenningu hjá kvikmyndasafninu, segir í fréttatilkynningu. | gudruna@mbl.is Nám Vel gekk að sameina eldamennsku og ís- lenskukennslu í eldhúsinu hjá Námsflokkunum. Læra íslensku í eldhúsinu Árétting frá Íslenskri erfðagreiningu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.