Morgunblaðið - 03.06.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 03.06.2008, Qupperneq 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Styrmir Gunn-arsson lét ígær af starfi ritstjóra Morg- unblaðsins, ná- kvæmlega 43 árum eftir að hann hóf störf á blaðinu nýútskrifaður lögfræð- ingur hinn 2. júní 1965. Í gær lauk ekki aðeins óvenjulöngum og glæsilegum nærfellt 36 ára ritstjóraferli Styrmis, heldur einstakri samfellu í ritstjórn blaðsins sem nær allt aftur til ársins 1924, er Valtýr Stef- ánsson varð ritstjóri þess. Valtýr var ritstjóri til dauða- dags 1963 eða í 39 ár. Síðustu fjögur árin, frá 1959, var Matthías Johannessen ritstjóri með Valtý og gegndi ritstjóra- starfinu í hartnær 41 ár. Sam- an spannaði ritstjóratíð þeirra tveggja því 76 ár. Síðustu ár Valtýs var Styrmir byrjaður að venja komur sínar á ritstjórn- arskrifstofur Morgunblaðsins og taka að sér verkefni fyrir blaðið. Árið 1972 var Styrmir ráðinn ritstjóri við hlið Matthíasar. Nöfn þeirra munu lengi standa saman í sögu íslenzkrar blaða- mennsku; farsælla samstarf en þeirra Styrmis og Matthíasar, sem stóð í 28 ár, er vandfundið. Þeir tóku við blaði, sem Valtýr hafði gert að stórveldi á ís- lenzkum blaðamarkaði og stýrðu því í sameiningu þannig að það óx sífellt og dafnaði. Ein forsenda þess að Morg- unblaðið varð blað allra lands- manna var að ritstjórar þess áttuðu sig á nauðsyn þess að rjúfa þau nánu tengsl, sem höfðu myndazt á milli blaðsins og Sjálfstæðisflokksins. Að þessu unnu þeir Styrmir og Matthías rólega en ákveðið, með þeim árangri að þegar flokksblöðin dóu drottni sínum eitt af öðru blómstraði Morg- unblaðið. Pólitískar hugmyndir Styrm- is Gunnarssonar hafa ekki sízt verið mótaðar af uppvaxt- arárum í hinu unga lýðveldi, sem var að festa sig í sessi sem sjálfstætt ríki, og af hug- myndafræðilegum átökum kalda stríðsins, sem var í al- gleymingi þegar hann hóf feril sinn í blaðamennsku. Í þeim átökum fóru áherzlur Sjálf- stæðisflokksins og Morg- unblaðsins lengst af saman. En í ýmsum öðrum baráttumálum, sem Morgunblaðið hefur tekið upp í ritstjórnargreinum af miklum sannfæringarkrafti, hefur Styrmir skrifað þvert á flokkslínur. Það á til dæmis við um skrif hans um auðlinda- gjaldið í sjávarútvegi, beint lýðræði og nauðsyn þess að takmarka umsvif og völd stórra fyrirtækjasamsteypa í litlu landi. Styrmir hefur haldið þannig á málum að nú þegar hann skil- ar blaðinu í hendur samstarfs- manna sinna er enginn vafi í þeirra huga um að ritstjórn Morgunblaðsins er og á að vera óháð öllum stjórnmálaflokkum og sérhagsmunum og blaðið tekur fyrst og fremst afstöðu með lesendum sínum við ritstjórnarlegar ákvarðanir. Að frumkvæði Styrmis hefur Morgunblaðið iðulega tekið upp baráttu fyrir hagsmunum þeirra, sem með einum eða öðrum hætti hafa átt undir högg að sækja. Hann hefur til dæmis átt mikinn þátt í því að eyða fordómum í garð geðsjúkra á Íslandi. Í síðustu viku veittu samtökin Hugarafl Styrmi fyrstu heiðursverðlaun samtakanna, Gáruna. Við það tækifæri sagði einn af for- ystumönnum samtakanna að Styrmir Gunnarsson hefði breytt umræðunni um geðheil- brigðismál á Íslandi. Það er sízt ofmælt. Styrmir Gunnarsson hefur í meira en fjóra áratugi helgað sig Morgunblaðinu nær ein- vörðungu. Alla daga hefur hann verið vakinn og sofinn yf- ir blaðinu og sjaldnast gengið til náða fyrr en hann hefur horft á eftir síðustu síðunni í prentvélina. Þær mörgu kyn- slóðir blaðamanna, sem hafa alizt upp hjá Styrmi, hafa dáðst að þessari eljusemi og jafn- framt furðað sig á því hvaðan þessi ótrúlega starfsorka kæmi. Það hefur aldrei farið á milli mála að Styrmir gerir miklar kröfur til samstarfs- manna sinna. Hann á auðveld- ara með það en margur, því að mestar kröfur hefur hann alla tíð gert til sjálfs sín. Þegar eitthvað hefur bjátað á hjá starfsmönnum ritstjórnar Morgunblaðsins hafa þeir hins vegar mátt vita að í ritstjór- anum eigi þeir hauk í horni. Styrmir hefur verið reiðubúinn að gefa starfsmönnum sínum allt það svigrúm, sem þeir hafa talið sig þurfa til að ná aftur vopnum sínum eftir áföll eða erfiðleika á vettvangi fjöl- skyldu eða einkalífs. Fyrir það standa margir í þakkarskuld við hann. Síðasta sjö og hálft ár hefur Styrmir Gunnarsson verið einn ábyrgðarmaður Morgunblaðs- ins. Á þessum tíma hafa orðið meiri breytingar í rekstr- arumhverfi blaðsins en oftast áður og samkeppnin á blaða- markaði harðari. Styrmir hefur á þessum tíma alltaf haft for- ystu um að blaðið brygðist hratt við breytingum og sam- keppni; með fjölgun útgáfu- daga, breytingum á útgáfunni og hagræðingu á ritstjórninni. Niðurstaðan er sú að Morg- unblaðið hefur haldið sínum hlut betur en mörg áskrift- arblöð í sambærilegri stöðu í nágrannalöndunum og á nú mikil sóknarfæri. Samstarfsmenn Styrmis Gunnarssonar á ritstjórn Morgunblaðsins kveðja hann með söknuði og innilegu þakk- læti fyrir langa samfylgd. En um leið spyrja þeir: Hvar ætlar Styrmir nú að finna sínum óskertu starfskröftum verðuga viðspyrnu? Alla daga hefur hann verið vakinn og sofinn yfir blaðinu.} Starf Styrmis É g er forfallin áhugamanneskja um handbolta íslenska karlalands- liðsins – strákanna okkar. Ég er líka mikil áhugamanneskja um pólitík og vegna þessara tveggja áhugamála minna finnst mér ekki úr vegi að gera smásamanburð á karlalandsliðinu og borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins. Strákarnir okkar náðu þeim glæsilega ár- angri í Póllandi í fyrradag að tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking í sumar, með því að leggja Svía að velli í hreint æsilega spennandi og frábærum leik. Guðmundur Þ. Guðmundsson, sem sýndi þann kjark að taka við karlalandsliðinu þegar enginn þorði, lagði allt sitt undir, höfuðið líka, og uppskar ríkulega. Hvernig fóru strákarnir að þessu? Jú, þeir sýndu einstaka samstöðu, baráttu, keppnis- og leikgleði, einn fyrir alla og allir fyrir einn. Það var hrein unun að horfa á liðið. Þeir sýndu að þeir skilja hvað liðsheildin þýð- ir, órjúfanleg samstaða í vörn, frábær markvarsla að baki vörninni, samhent og djörf sókn, stjórnað af krafti af leik- stjórnanda og þjálfara. Svo til allt gekk upp og sætur sig- ur, 29-25, var okkar. Takið eftir, lesendur góðir: Það er aðeins einn leik- stjórnandi inni á vellinum í handbolta og það er aðeins einn þjálfari. Aðrir liðsmenn gegna mikilvægu hlutverki, mjög mikilvægu, en þeir eru fyrst og fremst hluti liðs- heildarinnar, sem lýtur stjórn leikstjórnanda og þjálfara. Hvers vegna er mér þetta svona hugleikið, kunna einhver ykkar að spyrja. Jú, svarið er þetta. Íslenska karlalandsliðið gerði það sem borgarstjórnarflokkur Sjálfstæðisflokksins virðist alls ekki kunna. Þar er engin liðsheild, þar snúa menn ekki bökum saman; þar birtast borgarfulltrúarnir okkur ekki sem samstæður flokkur, samhent liðsheild, undir styrkri for- ystu leikstjórnandans, oddvitans, sem vill berj- ast til sigurs, sem væri í því fólginn að tryggja okkur Reykvíkingum betri borg. Nei, ónei! Þar á bæ ríkir sundurlyndi, þar sem undir rær svokallaður oddviti borgarstjórnarflokks- ins, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Hann er trausti rúinn, en getur ekki sætt sig við orðið hlutskipti og þrjóskast til þess að sitja áfram, í óþökk flestra. Að vísu eru þeir Gísli Marteinn Baldursson og Júlíus Vífill Ingvarsson hljóð- látir stuðningsmenn við áframhaldandi „forystu“ Vil- hjálms um stundarsakir. Ekki vegna þess að þeir hafi of- urtraust og trú á pólitískri getu Vilhjálms, heldur vegna þess að áframhaldandi óvissa um hver eigi að taka við for- ystuhlutverkinu í flokknum hentar einkahagsmunum þeirra beggja. Báðir eru haldnir þeirri löngun að verða borgarstjóri og skiptir þá engu máli þótt skoðanakönnun eftir skoðanakönnun sýni fram á að þeir njóta afar tak- markaðs fylgis til slíkra metorða. Hvenær ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að vakna af Þyrni- rósarsvefni sínum? Væri ekki ráð að leita í smiðju íslenska karlalandsliðsins í handbolta? | agnes@mbl.is Agnes Bragadóttir Pistill Þeir sneru bökum saman FRÉTTASKÝRING Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is T ímasetningin,“ segir Guðmundur Þóroddsson aðspurður um tilefni samkomulags „að frum- kvæði OR“ um að hann léti af störfum sem forstjóri eftir að hafa verið í leyfi og gegnt stöðu for- stjóra REI. „Það stóð til að ég færi aftur yfir í Orkuveituna og það kall- aði á aðgerðir. Ég er með ráðning- arsamning sem gerir ekkert ráð fyrir sérstökum ástæðum til að segja mér upp eða óska eftir starfslokum. Þannig að ég er ekkert að velta mér upp úr því.“ Uppsögn af hálfu OR Til tíðinda dró haustið 2007 þegar Guðmundur fór í leyfi frá OR og varð forstjóri REI, útrásararms OR. Það markaði upphafið að „REI-málinu“ svonefnda, helsta fréttamáli liðins árs. Sú atburðarás snerist um sam- runa REI og GGE, sem síðar var aft- urkallaður, og réð mestu um starfs- lok Guðmundar á föstudag, en í samkomulagi þar að lútandi segir að um þau fari „eins og um uppsögn af hálfu OR væri að ræða.“ Margt spilaði inn í. Borgar- fulltrúar Sjálfstæðisflokksins voru óánægðir með kynningu sem þeir fengu hjá Guðmundi rétt fyrir sam- runann og sögðu hana „stuttaralega“ og upplifðu framkomu hans sem „lítillækkandi“. Guðmundur sagði það hlutverk fulltrúa stjórnmála- manna í stjórn OR en ekki embættis- manna að upplýsa flokksmenn sína um gang mála. Þá sættu stjórnendur OR gagn- rýni minnihlutans, sem fékk að morgni samrunans, eftir að hafa „ítrekað“ gengið eftir því, upplýs- ingar um að til stæði að yfirstjórn REI og OR keypti hluti í REI. Átti Guðmundur að fá að kaupa 78 millj- ónir á genginu 1,27. Sú tala var lækk- uð á fundinum í 30 milljónir á geng- inu 1,3, en samrunagengi REI var 2,77. Í skýrslu þverpólitísks stýrihóps um málefni OR í febrúar kom fram að „formbreyting á þjónustusamn- ingi og ákvörðun um kauprétt- arsamninga til lykilstarfsmanna OR og REI vek[t]i spurningar um hvort almannahagsmunir [hefðu] hugs- anlega vikið fyrir einkahagsmunum“. Úr röðum sjálfstæðismanna má heyra að Guðmundur hafi ekki lagt sig eftir því að „endurvinna traust“ borgarfulltrúa, eins og sagt var brýnt í skýrslu stýrihópsins, og er m.a. bent á ummæli hans á Vísir.is, þar sem hann segir: „Það er stóralvarlegt að pólitíkusar geri samning og hætti svo við án þess að gefa fullnægjandi skýringar. Þetta er stærsta klúður Íslandssögunnar að mínu mati. Og orsökin er vandræðagangur í póli- tík.“ Landslagið í pólitíkinni Örlög Guðmundar réðust einmitt í pólitíkinni. Vilji meirihlutans er skýr, enda hefur Ólafur F. Magnússon borgarstjóri lýst því yfir að taka eigi upp „algjörlega nýja stjórnarhætti í OR“ og að hann efaðist ekki um að einhver myndi axla ábyrgð vegna REI-málsins. Ekki er stuðningur við Guðmund innan VG, en sú afstaða að sitja hjá í málinu ræðst af því að borgarstjóri eigi einnig að axla ábyrgð. Guð- mundur nýtur stuðnings borgarfull- trúa Framsóknar og einnig Samfylk- ingar, sem telur ábyrgðina hvíla á borgarstjóra, sem hafi farið með eig- endavald sem stjórnarformaður OR, en ekki starfsmönnum sem hafi talið sig vinna í hans umboði í haust. „Það er verið að hengja bakara fyrir smið.“ Sjálfstæðismenn halda því hins- vegar fram að Vilhjálmur hafi þegar axlað ábyrgð. Hann hafi beðist afsök- unar á mistökum, sé hættur í stjórn OR, sé ekki lengur borgarstjóri og „það virðist nokkuð almenn skoðun meðal borgarbúa að hann eigi ekki afturkvæmt þangað.“ Hver ber ábyrgð á „stærsta klúðrinu“? Morgunblaðið/ÞÖK Sviptingar Miklar sviptingar hafa verið í starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur og útrásararmsins REI á yfirstandandi kjörtímabili borgarstjórnar. 12. september Guðmundur Þóroddsson verður forstjóri REI og tekur leyfi frá störfum sínum hjá OR. 3. október Samruni REI og Geysis Green Energy samþykktur á hluthafa- og eigendafundi OR. 1. nóvember Samruna REI og GGE hafnað í borgarráði að tillögu stýrihópsins. Svandís Svavarsdóttir segir allar reglur hafa verið „þverbrotnar“, umboð hafa farið fyrir ofan garð og neðan, og að kynningu og opinberri umræðu hafi verið ábótavant. 7. febrúar Þverpólitískur stýrihópur sammæl- ist um að „trúnaðarbrestur“ hafi orðið milli æðstu stjórnenda REI og „ákveðinna“ borgarfulltrúa. „Brýnt sé að endurvinna það traust.“ 31. maí Samkomulag um starfslok forstjór- ans Guðmundar Þóroddssonar sam- þykkt í stjórn OR. Fulltrúar VG og Samfylkingar sitja hjá. STIKLAÐ Á STÓRU ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.