Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 29

Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 29
hans, fyrir það að hann hélt á mér þegar það var erfitt fyrir mig að ganga sjálf, fyrir að hann tók flísar úr fingrum og tám og kyssti á bágt- ið. Því það var enginn sem mátti taka úr mér flís upp í sumarbústað nema hann afi. Ég er svo þakklát fyrir það að afi var eins og hann var, langbesti afi í öllum heiminum. Ég er þakklát fyrir það að hafa geta sagt honum það svo oft að ég elsk- aði hann svo mikið og fyrir það hversu oft hann sagði það sama við mig. Ég er þakklát Guði fyrir lífið hans afa og fyrir tímann sem ég hafði til að kveðja hann. Ég er glöð að vita að hann er komin í dýrðina til Jesú. Elsku afi minn, við söknum þín öll svo mikið. Litla flísin þín, Anna Rannveig. Ég er svo lánsöm að hafa fengið að eiga alveg einstakan afa. Afa sem ég hef alltaf verið svo stolt af, afa sem ég hef alltaf getað litið upp til. Það eru ekki margir sem geta sagt „hann afi minn, hann rekur fyrir- tæki og fer svo nokkrum sinnum í viku og æfir box með vinum sínum“ en þetta gerði hann þar til hann var 84 ára. Það var svo margt sem hann afi tók sér fyrir hendur og margt sem hann afrekaði en í minni minn- ingu er hann fyrst og fremst afi sem hafði alltaf tíma fyrir mann. Það var alveg sama hvenær ég kom til hans, hann lagði það frá sér sem hann var að gera og ég varð miðpunktur alls. Í hvert skipti sem ég kom til hans breiddi hann út stóra faðminn sinn og tók á móti mér með sinni ein- stöku hlýju og fögrum orðum. Hann var alltaf svo stoltur af öllu sem við barnabörnin vorum að gera og fylgdist vel með. Ég gleymi honum aldrei við hliðarlínuna þegar ég keppti fyrir Ármann eða þegar hann var að rifna úr stolti þegar ég spilaði eða söng á tónleikum og eng- inn klappaði eins hátt og innilega og hann, klappið hans yfirgnæfði alla aðra og varði alltaf aðeins lengur en hjá öllum hinum. En svona var hann afi, hann skar sig alls staðar úr og það var ekki annað hægt en að taka eftir honum. Hann byrjaði líka alla afmælissöngva með háu fallegu röddinni sinni og söng alltaf hæst og innilegast af öllum. Þegar ég lít til baka fyllist ég fyrst og fremst þakklæti. Ég er svo þakklát fyrir allt sem hann gaf mér og fyrir allt sem hann kenndi mér. Betri fyrirmynd er ekki hægt að hugsa sér í lífinu. Hann var svo heil- brigður, bæði á líkama og sál, og það var ekkert vandamál sem hann gat ekki leyst og fjölskyldan var alltaf undir hans verndarvæng og skipti hann mestu máli í lífinu. Það eru svo margar góðar minn- ingar sem ég fæ að geyma í hjarta mínum en sterkustu og bestu minn- ingarnar um hann eru hvað hann sýndi mér alltaf mikla ást og mikinn kærleika. Ég gleymi aldrei þegar hann horfði á eftir mér út um gluggann alveg þar til hann gat ekki séð mig lengur þegar ég var að ganga ein heim frá ömmu og afa á kvöldin. Ég gleymi heldur aldrei hvernig hann stóð yfir rúminu mínu og bað heitt og innilega til Guðs fyr- ir okkur öllum þegar ég gisti hjá þeim. Ég gleymi aldrei þegar hann kenndi mér að tefla og ég var eina stelpan sem tók þátt í skákmóti í bekknum mínum, allt til að gera elsku afa stoltan. Allar þessar minn- ingar mun ég geyma í hjarta mínu og það verður alltaf markmið mitt að líkjast afa mínum sem mest. Elsku besti afi minn, þakka þér fyrir að ég fékk að vera afastelpan þín. Ég á eftir að sakna þín óend- anlega mikið og hlýja faðmsins þíns en ég veit að nú færð þú að hvíla í enn stærri og sterkari faðmi Frels- ara okkar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Þín „Elska“, Erla Björg Káradóttir. Það var fyrir um tíu árum að ég kom inn í fjölskyldu Guðmundar Arasonar og áður en það gerðist bjóst ég ekki við því að nokkur mað- ur utan minnar fjölskyldu myndi hafa jafn mikil áhrif á líf mitt og framtíð eins og Guðmundur hefur gert. Mér var strax ljóst að Guð- mundur skipaði sérstakan sess í lífi Erlu konu minnar og var ég því stressaður fyrir okkar fyrsta fund. Ég reyndi að koma vel fyrir og rétti út hönd mína og kynnti mig, sá gamli breiddi út faðminn og faðmaði mig að sér og sagðist vera afi Guð- mundur. Frá þeim degi hefur afi Guðmundur skipað stóran sess í mínu lífi og hafa afi Guðmundur og amma Rannveig tekið mér vel og á ég þeim mikið að þakka. Við afi Guðmundur sátum oft og spjölluðum um Vestmannaeyjar og sagði hann mér sögur frá þeim tíma þegar hann bjó heima í Vestmanna- eyjum. Sögur af Urðarkettinum og þegar hann fór á árabát út í franska skútu og farið var að leita að honum þegar hann kom í land ásamt vini sínum. Þessar sögur eru í dag góðar minningar um stundir með þessum góða manni sem alltaf var tilbúinn að gefa manni tíma og athygli. Hnefaleikar voru hans ær og kýr og æfði ég hnefaleika hjá afa Guð- mundi fyrir nokkrum árum. Þá var hann kominn yfir áttrætt og gaf ekkert eftir í því að miðla kunnáttu sinni til okkar peyjanna. Eitt sinn á MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 29 Alvöru blómabúð Allar skreytingar unnar af fagfólki Kransar • Krossar • Kistuskreytingar Sími: 553 1099 • Fax: 568 4499 Heimasíða: www.blomabud.is Netfang: blomabud@blomabud.is ✝ Ástkær bróðir okkar, mágur og frændi, JÓNAS HALLDÓR GEIRSSON vélstjóri, Rekagranda 1, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Neskirkju miðvikudaginn 4. júní kl. 13.00. Jón K. F. Geirsson, Sigrún Hjartardóttir, Margrét Geirsdóttir, Gísli Guðmundsson, Nína S. Geirsdóttir, Orville J. Pennant og systkinabörn. ✝ Þökkum innilega samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, VIÐARS ÞÓRÐARSONAR, Uppsalavegi 17, Húsavík. Hildigunnur Sigurbjörnsdóttir, Sigurbjörn Viðarsson, Hlaðgerður Þóra Viðarsdóttir, Þórður Eggert Viðarsson, Inga Björk Dagfinnsdóttir, Edda Bryndís Sigurbjörnsdóttir, Hildigunnur Sigurbjörnsdóttir, Hildigunnur Sigvarðsdóttir, Viðar Bragason, Hulda Karen Höskuldsdóttir, Júlía Sif Höskuldsdóttir, Sigmann Þórðarson, Lilja Björk Viðarsdóttir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýju við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, sonar, bróður, mágs og frænda, ÓSKARS JÓNSSONAR blikksmíðameistara, Krummahólum 6. Guð blessi ykkur öll. Marteinn Örn Óskarsson, Guðlaug Jónsdóttir, Katrín Ýr Óskarsdóttir, Helga Lilja Óskarsdóttir, Jón Bjarni Óskarsson, Jón Óskarsson, Katrín Marteinsdóttir, Lilja Jónsdóttir, Ragnar D. Stefánsson, Marteinn Jónsson, Þórunn Ásmundardóttir, Kristján Jónsson, Kristín Ólöf Jansen og systkinabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður míns, tengdaföður, afa okkar og langafa, JÓNS RÓSANTS ÞORSTEINSSONAR, sem lést föstudaginn 23. maí á Grund. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild V2 á Grund, einkum Helgu Hermannsdóttur, fyrir frábæra alúð og umhyggju. Benedikt Jónsson, Guðný Árnadóttir, Guðjón Benediktsson, Ingibjörg Benediktsdóttir, Sigríður Elísabet Benediktsdóttir, Hrafn Helgason og langafabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA GUNNLAUGSDÓTTIR hjúkrunarkona, verður jarðsungin frá Digraneskirkju miðvikudaginn 4. júní kl. 13.00. Gunnlaugur Örn Þórhallsson, Justina Tri Ismunari, Sigurjóna Þórhallsdóttir, Karl Ottesen, Þóra Þórhallsdóttir, Halldór Konráðsson, Þorsteinn Þórhallsson, Sigrún Eiríksdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR GUÐNI JÓNSSON fv. lyfsali, Flókagötu 33, Reykjavík, sem lést á heimili sínu aðfaranótt fimmtudagsins 29. maí, verður jarðsunginn frá Háteigskirkju föstudaginn 6. júní kl. 15.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er vinsamlega bent á Samband íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) í síma 533 4900. Fjóla Guðleifsdóttir, Leifur Sigurðsson, Katsuko Sigurðsson, Anna Sigurðardóttir, Hannes Leifsson. ✝ Elskulegur bróðir okkar, HALLDÓR GESTSSON frá Syðra-Seli, Vesturbrún 2, Flúðum, er lést á Landspítalanum Fossvogi miðvikudaginn 28. maí, verður jarðsunginn frá Hrunakirkju laugardaginn 7. júní kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Ólafur Sigurgeirsson, Guðrún Gestsdóttir, Ásgeir Gestsson, Marta Gestsdóttir, Skúli Gestsson. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför elskulegs eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og langafa, BERGS G. GÍSLASONAR, Laufásvegi 64a. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Landspítalans í Fossvogi deild A7 fyrir góða og hjartahlýja umönnun. Ingibjörg J. Gíslason, Þóra Sandholt, Ragnheiður Gíslason, Þórarinn Jónasson, Bergljót B. Gíslason, Ása Gíslason, Ólafur R. Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ALEXANDER STEFÁNSSON fyrrverandi alþingismaður og ráðherra frá Ólafsvík, Lækjarsmára 4, Kópavogi, er lést miðvikudaginn 28. maí á hjúkrunarheimilinu Eir, verður jarðsunginn frá Ólafsvíkurkirkju föstudaginn 6. júní kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á Ólafsvíkurkirkju. Björg H. Finnbogadóttir, Finnbogi H. Alexandersson, Sigríður M. Halldórsdóttir, Svanhildur Alexandersdóttir, Marinó H. Sveinsson, Stefán Alexandersson, Laila Michaelsdóttir, Lára Alda Alexandersdóttir, Þórður Ólafsson, Örn Alexandersson, Aðalheiður St. Eiríksdóttir, Atli Alexandersson, Elfa Eydal Ármannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. SJÁ SÍÐU 30

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.