Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 32

Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ dagbók Í dag er þriðjudagur 3. júní, 155. dagur ársins 2008 Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef- ast, leitið og þér munuð finna, knýið á, og fyrir yður mun upplokið verða. (Matt. 7, 7.) Sonur Víkverja hélt með ferming-arpeningana sína sem leið lá í Kringluna á dögunum til að kaupa sér gallabuxur og bol fyrir mikið ball sem fara átti fram á vegum fé- lagsmiðstöðvarinnar í hverfinu um kvöldið. Ekki kom annað til greina en fara í ákveðna búð enda kaupa „allir“ unglingar fötin sín þar. Pilturinn var fljótur að finna flík- ur við sitt hæfi og þá var bara eftir að taka upp veskið. Og hvað haldið þið að hann hafi þurft að borga fyrir klæðin? Rétt tæpar tuttugu þúsund krónur. Segir Víkverji og skrifar. Er það í lagi? Buxurnar voru ekki einu sinni í fullri lengd, ná drengnum rétt í hné. Á því er víst eðlileg skýring. „Þetta eru kvartbuxur, pabbi,“ útskýrði sá nýfermdi hneykslaður fyrir miðöld- ungnum föður sínum. Það er nafn með rentu, „kvartbuxur“. Gott og vel. Látum vera að dreng- urinn hafi verið rukkaður um tæpar fjórtán þúsund krónur fyrir bux- urnar – annað eins hefur maður heyrt – en Víkverji á vont með að skilja hvernig hægt er að selja ósköp venjulegan stuttermabol á tæpar sex þúsund krónur. Hvað ætli kosti að framleiða hann? Þrjúhundruð kall? Eigum við neytendur að standa álengdar og láta þetta arðrán yfir okkur ganga? Þið verðið að fyrirgefa en Víkverji á ekki annað orð yfir við- skipti af þessu tagi. Getur verið að við Íslendingar séum í merkafjötrum? x x x Condoleezza Rice, utanrík-isráðherra Bandaríkjanna, var á þeysireið um Norðurlönd í liðinni viku og hitti margt fyrirmennið að máli. Að sögn var það þó hápunkt- urinn á ferð hennar að koma upp á hótelherbergi til hinnar fornfrægu glysrokksveitar Kiss í Svíþjóð. Birti mbl.is mynd af upphefðinni og ekki var annað að sjá en hinir ólseigu rokkhundar Gene Simmons og Paul Stanley kynnu vel við sig í þessum félagsskap enda þótt veikara kynið standi, að sögn, sjaldnast upp á rönd í návist þeirra. | vikverji@mbl.is Víkverjiskrifar Reykjavík Stefáni Hjaltalín og Elínu Hrönn Káradóttur, Lækjargötu 26, Hafnarfirði, fæddist sonur 22. apríl kl. 23.28. Hann vó 14 merkur (3505 g) og var 52 cm langur. Reykjavík Fjólu Hauks- dóttur og Jóni Inga Ólafs- syni, Frostafold 12, fæddist sonur, Haukur Óli, 23. mars kl. 20.44. Hann vó 16 merkur og var 54,5 cm langur. Reykjavík Örnu Bech og Hrólfi Pétri Eggerz, Þver- holti 15, fæddist dóttir, Sól- veig Eggerz Bech, 29. mars kl. 5.50. Hún vó 3595 g og var 51 cm löng. Akranes Axel Frey Gíslasyni og Tinnu Ósk Grímarsdóttur, Reynigrund 42, Akranesi, fæddist dóttir, Díana Rós, 10. mars kl. 2.15. Hún vó 3325 g og var 50 cm löng. Hrísey Díönu Björgu Sveinbjörnsdóttur og Hermanni Jóni Erlingssyni fæddust tvíburadæturnar Viktoría Líf og Tara Naomí hinn 6. maí kl. 9.06 og 9.07. Þær vógu 2755 g og 2605 g og voru báðar 47 cm langar. Eru systurnar fyrstu tvíburarnir sem fæðst hafa í Hrísey í áratugi. Nýirborgarar Nýbakaðir foreldrar? - Sendu mynd af litla krílinu og nánari upplýsingar á netfangið barn@mbl.is Krossgáta Lárétt | 1 hroki, 4 lang- ar í, 7 nefnir, 8 líkams- hlutinn, 9 megna, 11 heimili, 13 ræktað land, 14 á hverju ári, 15 líf, 17 nálægð, 20 knæpa, 22 ljúka, 23 heitir, 24 vis- inn, 25 öskra. Lóðrétt | 1 nægir, 2 að baki, 3 klettur, 4 til sölu, 5 dreng, 6 stjórnar, 10 styrkir, 12 lík, 13 beita, 15 styggir, 16 kvendýr, 18 kjáni, 19 tilbiðja, 20 sár, 21 streita. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 fangelsið, 8 eldur, 9 seiga, 10 inn, 11 kaðal, 13 arans, 15 hjóms, 18 hlass, 21 kór, 22 kjaga, 23 orðar, 24 hagleikur. Lóðrétt: 2 andúð, 3 geril, 4 lasna, 5 ilina, 6 sekk, 7 kaus, 12 aum, 14 ról, 15 hika, 16 óraga, 17 skafl, 18 hroki, 19 auðnu, 20 sorg. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Sudoku Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3- reit birtist tölurnar 1-9. Það verð- ur að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Lausn síðustu Sudoki. www.sudoku.com © Puzzles by Pappocom Skák Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. O–O Be7 6. He1 b5 7. Bb3 d6 8. c3 O–O 9. d4 Bg4 10. d5 Ra5 11. Bc2 c6 12. h3 Bc8 13. dxc6 Dc7 14. Rbd2 Dxc6 15. a4 Bb7 16. Rf1 Rc4 17. Rg3 g6 18. Bd3 Hfc8 19. De2 bxa4 20. Bg5 Rb6 21. Rh4 Kf8 22. Rhf5 gxf5 23. Rxf5 Bd8 24. Df3 Rbd7 25. Bc2 Rc5 26. Bh6+ Ke8 27. Had1 Be7 28. Bg5 Rcd7 29. Dg3 a3 30. Bh4 Bf8 31. bxa3 Dxc3 32. Bd3 Hc6 33. He3 Da5 34. Hf3 d5 35. exd5 Dxd5 36. Bc2 Hxc2 37. Hxd5 Rxd5 Staðan kom upp á opna Kaupþings- mótinu sem lauk fyrir skömmu í Lúx- emborg. Indverska undrabarnið og stórmeistarinn Parimarjan Negi (2514) hafði hvítt gegn íslenska stór- meistaranum Hannesi Hlífari Stef- ánssyni (2583). 38. Rd6+! og svartur gafst upp enda yrði hann mát eftir 38… Bxd6 39. Dg8+ Bf8 40. Dxf7#. Hvítur á leik. Brids Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is Leiðin heim. Norður ♠ÁKDG876 ♥ÁD3 ♦-- ♣DG4 Vestur Austur ♠109 ♠432 ♥K862 ♥75 ♦K107 ♦G96432 ♣Á1087 ♣52 Suður ♠5 ♥G1094 ♦ÁD85 ♣K973 Suður spilar 6G. Bandaríkjamaðurinn Richard Pavlicek hélt á spilum vesturs í tvímenningi og freistaðist til að dobla sex grönd út á ásinn og kóngana tvo. Sagnir höfðu upplýst um langan spaða- lit í blindum og Pavlicek fylgdi doblinu eftir með hlutlausu spaðaútspili. Sagn- hafi drap og spilaði strax ♣D–G, sem Pavlicek dúkkaði. Slemman lak síðan einn niður, sagnhafi komst aldrei heim til að svína í hjarta. Pavlicek var ánægður með sig, við yfirferð daginn eftir sá hann þó að sagnhafi hafði getað gert mun betur. Vandamál sagnhafa er að komast inn á suðurhöndina og það er heldur máttlaust að spila ♣D–G. Betri tilraun er að spila litlu laufi á níuna, þótt ekki heppnist það hér. Hitt heppnast hins vegar, að taka þrjá spa- ðaslagi, spila ♣D og yfirdrepa með kóng! Vestur verður að taka slaginn og spila rauðum lit eða laufi frá tíunni. Þá er sagnhafi kominn heim. (21. mars - 19. apríl)  Hrútur Þú ert viðkvæmur þessa dagana, jafn-brothættur og nýfætt barn og ekki fjarri guðdómnum. Sjáðu til þess að ósýnilegir kraftar hugsi um þig. (20. apríl - 20. maí)  Naut Ekki vera of harður á þeim sem brjóta reglurnar, sérstaklega ekki ef þeir eru að brjóta úreltar reglur, andlega tak- markandi eða hreinlega heimskulegar. (21. maí - 20. júní)  Tvíburar Þolirðu nokkuð þegar „þau“ hafa rétt fyrir sér? Þessi „þau“ eru með eitt- hvað á prjónunum, svo þú skalt læðast með veggjum og reyna svo að skáka þeim. (21. júní - 22. júlí)  Krabbi Ekki vera hræddur við að stíga inn í nýjan vinahóp, sérstaklega ef þú hef- ur eitthvað mikilvægt að segja. Eins og er hlustar fólk frekar á nýtt fólk en gömlu vinina. (23. júlí - 22. ágúst)  Ljón Farðu yfir allt sem sem þú lærðir í síðasta mánuði um að spyrja spurninga, hlusta vel og áætla eins lítið og þú getur. Þú notar lærdóminn og það svínvirkar. (23. ágúst - 22. sept.)  Meyja Reyndu að komast hjá því að fara inn á heimspekileg svæði. Ef bara ein lítil tá stígur þar niður, gæti allur dagurinn farið í vangaveltur í stað gjörða. (23. sept. - 22. okt.)  Vog Þú átt það til að rukka of lítið fyrir þjónustu þína eða vinna fyrir ekkert til að reyna að festa stöðu þína. Fáðu heims- borgara til að semja fyrir þig. (23. okt. - 21. nóv.) Sporðdreki Þú ert býsna slyngur. Þú get- ur brotið niður tilfinningalegar varnir fólks og látið það gera það sem þú vilt og þarft. Hlutlausi tónninn gerir það. (22. nóv. - 21. des.) Bogmaður Þú hefur ekkert áþreifanlegt til að byggja bjartsýni þína á, sem er ein- stakt. Þegar þú hefur góða tilfinningu fyr- ir einhverju, gerðu þá eitthvað í því. (22. des. - 19. janúar) Steingeit Samúð þín hvetur þig til að skuldbinda þig. Þú veist kannski ekki al- veg hvernig þú átt að fara að því en treystu því að þú getir það og það gerist einhvern veginn. (20. jan. - 18. febr.) Vatnsberi Þetta er eitt af þessum skiptum sem best er að taka enga ákvörðun. Þú færð bara helming upplýsinganna sem þú þarfnast til að bregðast rétt við. (19. feb. - 20. mars) Fiskar Það sem þú vilt muntu fá fljótt. Það er ekki alltaf gott. Það sem er fallegt í fjarska getur litið allt öðruvísi út í nálægð. Vandaðu valið. Stjörnuspá Holiday Mathis 3. júní 1932 Ríkisstjórn Ásgeirs Ásgeirs- sonar tók við völdum. Ásgeir var þá 38 ára gamall, þing- maður Framsóknarflokksins. 3. júní 1937 Flugfélag Akureyrar var stofnað. Nafni þess var síðar breytt í Flugfélag Íslands sem sameinaðist Loftleiðum undir nafni Flugleiða hf. árið 1973. 3. júní 1951 Séra Bjarni Jónsson kvaddi söfnuð Dómkirkjunnar í Reykjavík eftir 41 árs prests- þjónustu. 3. júní 1989 Jóhannes Páll páfi kom til Ís- lands. Þetta var fyrsta heim- sókn trúarleiðtoga kaþólskra manna til landsins. Þetta gerðist þá ... Rútur Pálsson, Skíðbakka, verð- ur fimmtugur 5. júní. Í tilefni af- mælisins býður Rútur og fjöl- skylda vinum og vandamönnum að samgleðjast með þeim í Gunn- arshólma laugardaginn 7. júní frá kl. 20. Tjaldsvæði er á staðnum. 50 ára  María Sól Kristjánsdóttir og Þóra María Sigurjónsdóttir frá Mosfellsbæ voru með tombólu fyrir utan Bónus-verslun og söfnuðu 5.764 kr. fyrir Rauða Kross íslands. Hlutavelta VAFALAUST verður fjölmennt í 85 ára afmæli rit- höfundarins þekkta Gunnars Dal á morgun. Hann fæddist í Syðsta-Hvammi í Vestur-Húnavatnssýslu 4. júní árið 1923. Aðspurður hvernig hann hyggist eyða afmælisdeginum segir Gunnar hlæjandi. „Ja, maður er nú orðinn hálfníræður karlskarfur og ekki til neinna stórræða,“ og bætir við „en einn sona minna og hans ágæta kona ætla að sjá um þetta fyr- ir mig og munu einfaldlega hafa opið hús milli 17- 19.“ Gunnar segist nokkuð spánskur þegar kemur að afmælisdögum: „Á Spáni segja þeir einfaldlega Cumpleaño eða árið er búið! Ég hef yf- irleitt ekki haldið mikið upp á daginn og jafnan reynt að forðast það.“ Gunnar kveðst ekki eiga sér uppáhaldsheimspeking. „Heimspek- ingar eru ekkert merkilegri en annað fólk – langt því frá. Þó er ég þakk- látur tveimur mönnum sérstaklega fyrir að fræða mig og umheiminn allan. Sá fyrri er Steven Weinberg atómfræðingur fyrir að sýna fram á í bók sinni Fyrstu þrjár mínúturnar hvernig efni, tími og rúm koma út úr nánast engu á rökfræðilega óhugsandi hátt. Sá síðari er Richard Dawk- ins fyrir að kenna heiminum hvernig lífið kemur út úr dauðanum, þvert á fyrri hugmyndir okkar um að lífið sé af lífi fætt!“ Gunnar Dal rithöf- undur tekur á móti gestum frá klukkan 17 til 19 á afmælisdaginn, mið- vikudaginn 4. júní, að Eyktarsmára 6 í Kópavogi. Gunnar Dal rithöfundur 85 ára Um efnið, tímann og rúmið

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.