Morgunblaðið - 03.06.2008, Síða 34
Eftir Ásgeir H. Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
BALDVIN Z er ungur leikstjóri
sem vakti athygli fyrir óvenjulegt
Evróvisjónmyndband þessa árs sem
átti vafalítið sinn þátt í velgengni
Eurobandsins í Belgrad. Hann er
nýfluttur heim eftir kvikmyndanám í
Danmörku og mun í sumar leikstýra
stuttmyndinni „Hótel Jörð“. „Hún
fjallar um lífið og dauðann út frá
heimspekilegum pælingum ungrar
stúlku. Þetta er í raun barnamynd
fyrir fullorðna,“ segir Baldvin um
myndina sem hin sjö ára Kristín
María Brink leikur aðalhlutverkið í
en aðrir barnungir leikarar í mynd-
inni eru þau Aron Brink (úr Blóð-
böndum) og Ingibjörg Sóllilja Balt-
asarsdóttir (Kormáks), en þau léku
nýlega saman í uppfærslu leikritsins
Kommúnan. Þúsundþjalasmiðurinn
Ragnar Kjartansson, Þorsteinn
Bachmann og Halldóra Geirharðs-
dóttir sjá svo um fullorðinshlut-
verkin.
Heim í kreppuna
En hvernig er að koma heim í
Evróvisjónæði og stuttmyndagerð?
„Mér finnst það æðislegt, frábært að
koma heim í kreppuna,“ segir Bald-
vin. Allt byrjaði þetta raunar norður
á Akureyri – og þótti mörgum hann
brattur að ætla sér að búa til bíó-
myndir fyrir norðan. „Þegar ég
byrjaði að sækja um styrki og tala
um það að ég ætlaði að gera bíó-
myndir á Akureyri fékk maður bara
góðlátlegt klapp á bakið – en hægt
og rólega fóru fyrirtæki og aðrir að
horfa til mín, fljótlega fór ég að gera
auglýsingar sem voru svo sýndar á
landsvísu, stuttmyndir bæði fyrir
staðarsjónvarpið Aksjón og bíóhúsin
fyrir norðan – og var raunar hálf-
gerður skápakvikmyndagerð-
armaður – nú er þetta lifibrauðið.“
Og það styttist í fyrstu mynd
Baldvins í fullri lengd. „Ég er búinn
að fá handritsstyrk fyrir bíómynd í
fullri lengd, byggða á Við viljum jól-
in í júlí, barnabók eftir Yrsu Sigurð-
ardóttur.“ Um er að ræða aðra bók
skáldkonunnar sem síðar sneri sér
að krimmaskrifum.
Barnamynd fyrir fullorðna
Morgunblaðið/Kristinn
Samstarfsfélagar Leikstjórinn Baldvin Z með þeim Kristínu Maríu Brink
og Aroni Brink. Þriðji ungi leikarinn, Ingibjörg Sóllilja, var fjarverandi.
Baldvin Z fer frá Evróvisjón í heimspekipælingar
Eins og lesa má um í frétt hér á
næstu síðu virðast borgaryfirvöld
og Icelandair hafa í hyggju að auka
stuðning sinn við tónlistarhátíðina
Iceland Airwaves. Þetta eru að
sjálfsögðu ánægjulegar fréttir fyrir
íslenskt popptónlistarlíf og þó að
tómarúmið sem hátíðin hefði skilið
eftir sig hefði vissulega verið fyllt
innan fárra missera er ljóst að inn-
an Hr. Örlygs liggur mikil þekking
og reynsla sem lengri tíma tekur að
afla. En þrátt fyrir að bjartari
tímar séu nú framundan hjá Hr. Ör-
lygi væri ekki óskynsamlegt að
endurskoða skipulagningu hátíð-
arinnar frá grunni og finna lausn á
vandamálum sem ættu í sjálfu sér
ekki að vera vandamál.
Í því sambandi ber helst að nefna
greiðslur til íslensku listamann-
anna sem koma fram á hátíðinni ár
hvert. Það er í besta falli skömm-
ustulegt að stór menningarhátíð á
borð við Iceland Airwaves borgi
ekki þeim listamönnum sem þar
koma fram. Stærra hneyksli er svo
að hagsmunasamtök á borð við Fé-
lag tónskálda og textahöfunda
(FTT) og Félag íslenskra hljómlist-
armanna (FÍH) hafi ekki látið þetta
réttindamál sig varða. Til hvers eru
íslenskir tónlistarmenn að borga í
sjóði þessara félaga ef svona stóru
réttindamáli er sópað undir teppi
ár eftir ár?
Reykjavíkurborg og Icelandair
ættu ekki síst að taka þetta vanda-
mál til sín og krefjast þess að á móti
stuðningi þeirra við hátíðina verði
öllum listamönnum, sem þar koma
fram og gera hátíðina að því em
hún er, greidd laun. Annað er
ótækt. Og ef peningarnir finnast
ekki, nú þá er málið einfalt: Við-
skiptamódelið gengur ekki upp.
Tími kominn til að end-
urskoða Airwaves
Eftir Gunnhildi Finnsdóttur
gunnhildur@mbl.is
HVERT áfallið á fætur öðru dynur nú yfir hljóm-
sveitina Reykjavík! Fyrir stuttu var einkahluta-
félag sveitarinnar tekið í árangurslaust fjárnám
og nú liggur söngvarinn á spítala með rifið nýra
eftir háskalegan stórfiskaleik með nemendum
Austurbæjarskóla síðastliðinn föstudag. Aflýsa
verður tónleikaferðalagi Reykjavíkur! erlendis
og útgáfu nýrrar plötu verður frestað.
Bóas Hallgrímsson forsprakki Reykjavíkur! er
kennari í Austurbæjarskóla meðfram rokkinu.
Síðustu dagana fyrir sumarfrí er venjan að
leggja skólabækurnar til hliðar og og Bóas bauð
sínum krakkahóp út í stórfiskaleik. „Við vorum
þarna í góðu glensi á túninu við skólann þegar
einn af yngri nemendunum ákvað að koma og
heilsa upp á mig þar sem ég var að hlaupa á
fullri ferð. Hann kom svo skyndilega að mér að
ég hafði í rauninni bara um tvennt að velja, að
hlaupa á barnið eða reyna að henda mér framhjá
honum og ég tók seinni kostinn. Ég tók hann
reyndar með mér í fallinu, en það er allt í lagi
með hann. Það kom hins vegar gat á nýrað á
mér,“ segir Bóas.
„Mér brá voða mikið vegna þess að ég hélt að
ég hefði slasað barnið. Ég bar hann inn í skóla-
bygginguna og lét kíkja á hann og svo hélt ég
áfram að kenna tvær kennslustundir,“ segir
hann. „Þetta hljómar kannski hetjulega, en þetta
var ekkert voðalega hetjulegt. Þetta var allt
saman hálf kjánalegt og ég var í rauninni ekki
alveg eins og ég á að mér að vera.“
Gat á hausinn í ofanálag
Bóas gaf sér loks tíma í lok dagsins til að fara
á bráðamóttökuna þar sem hann fékk að vita að
það væri rúmlega klukkustundar bið eftir lækn-
isaðstoð. „Á meðan ég var að bíða fór ég á kló-
settið og pissaði bara blóði og áttaði mig á því að
það væri ekki allt eðlilegt. Svo fékk ég mikinn
verk upp síðuna og það leið yfir mig þarna inni á
klósettinu á Slysó. Ég datt á hausinn og fékk gat
á hann í ofanálag. Ég vaknaði um tíu mínútum
síðar í svitakófi á gólfinu eins og versti fíkni-
efnasjúklingur, enda fann ég mig tilneyddan að
tilkynna starfsfólkinu að ég væri kennari og ný-
kominn úr vinnunni og að ég hefði ekki verið úti
að skemmta mér.“
Þegar Morgunblaðið heyrði í Bóasi í gær var
hann allur að braggast og bjóst við að komast
heim af sjúkrahúsinu síðar um daginn. Þá var
komið í ljós að hann heldur nýranu, þó það hafi
verið tvísýnt í fyrstu.
Reykjavík! ætlaði sér að halda í tónleikaferð
til Skotlands í byrjun júní. „Við áttum að spila á
tveimur tónlistarhátíðum þar og vorum að skoða
möguleika á tónleikahaldi í Japan og Ástralíu,
en það er allt í biðstöðu núna,“ segir Bóas von-
svikinn. „Þetta var rosa spennandi, við áttum að
spila við Loch Ness-vatnið og svona.“
Ný plata var væntanleg frá Reykjavík! í lok
sumars, en ljóst er að útgáfa hennar frestast um
nokkrar vikur vegna slyssins. Nú þegar er þó
hægt að nálgast eitt nýju laganna bæði á heima-
síðu Kimi records og á MySpace-síðu hljómsveit-
arinnar.
Bóas hefur fengið skýr fyrirmæli frá læknum
að taka því rólega á næstunni. „Ég má ekki gera
neitt af viti í sex vikur. Ekki spila fótbolta og
ekki spila á tónleikum. Ég mæli ekki með því að
fólk rífi í sér nýrað ef það ætlar að gera eitthvað
skemmtilegt í sumar.“
Slasaðist í stórfiskaleik
Söngvari Reykjavíkur! með rifið nýra Plata og tónleikar í uppnámi
Morgunblaðið/Kristinn
Kraftur Bóas í rokksöngvarahlutverkinu sem er greinilega mun hættuminna starf en barnakennslan
sem hann sinnir í Austurbæjarskóla á daginn. Hann slasaðist í stórfiskaleik.
Nú erum við loksins
lausir úr svitastorkn-
um æfinga- og upptöku-
herbergjum… 39
»
reykjavíkreykjavík