Morgunblaðið - 11.06.2008, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
BANDARÍKJAMENN leita nú
allra leiða til að spara bensín vegna
mikilla verðhækkana síðustu miss-
eri. Til að mynda hafa sumir vinnu-
veitendur gripið til þess ráðs að gera
starfsfólki sínu kleift að vinna heima
eða vinna í tíu klukkustundir á dag í
fjóra daga í stað þess að vinna í fimm
daga á viku.
Meðalverðið á bensíni hefur
hækkað um nær 80% í Bandaríkj-
unum frá því í janúar í fyrra og er nú
yfir fjórum dollurum á gallonið (3,8
lítra). „Þetta hefur áhrif á ráðstöf-
unartekjur fólksins. Og allt í einu sér
fólk að það þarf að gera eitthvað í
þessu,“ sagði Chuck Wilsker, tals-
maður bandarískra samtaka sem
beita sér fyrir því að fyrirtæki geri
starfsfólkinu kleift að nota nýjustu
fjarskiptatækni til að stunda fjar-
vinnu. Mörg bandarísk fyrirtæki
hafa á síðustu árum tileinkað sér
slíka tækni í sparnaðarskyni, meðal
annars til að draga úr fasteigna- og
rekstrarkostnaði, og fjarvinnan hef-
ur mælst vel fyrir hjá starfsfólki.
Hækkanirnar á eldsneytisverði hafa
orðið til þess að fjarvinnan nýtur enn
meiri vinsælda meðal starfsfólksins.
Samtökin telja að rúmlega 26
milljónir Bandaríkjamanna, eða um
18% vinnuaflsins, vinni heima að
minnsta kosti í nokkra daga. Ekki er
þó vitað hversu margir þeirra
ákváðu að gera það vegna hærra
eldsneytisverðs.
Fyrirtæki nokkurt í Kaliforníu
áætlar að 18.000 starfsmenn þess,
sem vinna heima eða sem næst
heimili sínu, spari um 510 lítra af
bensíni hver á ári, eða sem svarar
rúmum 40.000 krónum hver miðað
við verðið eins og það er núna.
Margir launþegar, til að mynda í
byggingarvinnu eða veitingahúsum,
geta ekki unnið heima og vinnuveit-
endur þeirra hafa gripið til ýmissa
ráða til að minnka bensínnotkunina.
Sum fyrirtækjanna hafa gefið starfs-
mönnunum kost á að vinna í tíu
klukkustundir á dag í fjóra daga í
stað fimm daga vinnuviku.
Bílaumferðin minnkar
Ýmislegt bendir til þess að verð-
hækkanirnar hafi orðið til þess að
margir Bandaríkjamenn hafi breytt
lífsvenjum sínum í sparnaðarskyni.
Bandaríska vegamálastofnunin
áætlar til að mynda að bílaumferðin
á vegum landsins í mars síðast-
liðnum hafi verið um 4,3% minni en í
sama mánuði árið áður. Er þetta í
fyrsta skipti frá árinu 1979 sem bíla-
umferðin í Bandaríkjunum minnkar
í mars og hún hefur aldrei áður
minnkað jafnmikið á einu ári.
Fleiri vinna heima
Fjarvinna nýtur vaxandi vinsælda í Bandaríkjunum
Orsökin dýrara bensín Vinnuvikan í fjóra daga
KÖNNUN, sem gerð var um öll Bandaríkin, bendir til þess að um 8%
Bandaríkjamanna hafi hætt eða dregið úr notkun einkabíla til að ferðast til
og frá vinnu og notfæri sér þess í stað almenningssamgöngur. Sama hlut-
fall þátttakenda í könnuninni kvaðst hafa breytt áformum sínum um ferða-
lög í sumarfríinu vegna hærra eldsneytisverðs og ákveðið að ferðast til
staða nær heimahögunum.
Samkvæmt upplýsingum frá kortafyrirtækinu MasterCard hafa bensín-
kaup Bandaríkjamanna minnkað um 4-5% á síðustu vikum.
Þá hefur hærra bensínverð m.a. orðið til þess að sala á bensínhákum hef-
ur snarminnkað og verð á fasteignum fjarri atvinnusvæðum lækkað.
Höfuðvígi einkabílsins að falla?
Reuters
Nú er mælirinn fullur Indverskar konur slá í pönnur á mótmælafundi gegn hækkunum á eldsneytisverði í ind-
versku borginni Chandigarh. Bensínverð var hækkað um 10% á Indlandi fyrir viku.
Reuters
Metverð Meðalverðið á bensíni er
nú í fyrsta skipti yfir fjórum doll-
urum á gallonið í Bandaríkjunum.
ALÞJÓÐABANKINN ýtti átaki sínu
til verndar tígrisdýrum úr vör síðast-
liðinn mánudag, miklar vonir eru
bundnar við verkefnið. Byrjað verður
á viðræðum við yfirvöld þeirra landa
þar sem tígrarnir halda sig. Með við-
ræðunum verður fjármagnsþörf til
verndunarinnar áætluð og jafnframt
leitað leiða til fjármögnunar.
„Sú ógn sem steðjar að tígrisdýra-
stofnunum er rétt eins og hver önnur
vá sem þarfnast stöðugs eftirlits, líkt
og hlýnun jarðar, farsóttir eða fátækt.
Baráttan er umsvifamikil, hún er yf-
irvöldum í viðkomandi löndum ofviða
og þarf að færast út til alþjóðasam-
félagsins,“ sagði Robert Zoellick,
forseti Alþjóðabankans, þegar átak-
inu var hrint af stað.
Dýraverndunarsinnar á Indlandi
hafa gagnrýnt Alþjóðabankann fyrir
að fara af stað með slíkt verkefni á
sama tíma og hann fjármagnar lagn-
ingu þjóðvega og skógræktarverk-
efni á Indlandi, sem hafi valdið dýra-
lífi skaða.
Bankastjórinn hefur svarað því til
að öll slík verkefni verði tekin til end-
urskoðunar með tilliti til náttúru-
verndarsjónarmiða. | jmv@mbl.is
Alþjóðabankinn
bjargar tígrum
Dýraverndunarsinnar gagnrýnir
!
"
#$%&'()
*
+ , -
.
%
*
(
/
0
0 1+
!"#
2*)')(#)3.(45%)67
$%&' ()*+,&-&.'&./%"(01.23.&
%45"/263773./&71".&.!%%83(4 /
9,".5&:04/".2&71..;5< "0=(2
.;''3&4'*&%"(&,/>;.&0",01",37
;5+(=5(15"01/(3.71,%45"/26&
/'"..:'*=%;5(4'&7/?(3%&/17.;%&,"
134(9'.".5&/'<."04,&4 /43
!" #$%& '() (
* ' + !"#$%# & " ' ($)"*
8294%.
:%;0
+%.*<$2%
%2:%4$
(4$<4902%
.%:%02%
*#%4
49=%: + 2 4 %
)#00:%4$
73%453
0 >
6
>
>?! 1
@ >?
A/
*%45:%$900
*#).%
>
B
A A/
/
A
!
(4$:%4$
* &
,
BANDARÍSKIR vísindamenn á
vegum IBM og National Laboratory
í Los Alamos sviptu á mánudag hul-
unni af hraðvirkustu ofurtölvu sem
gerð hefur verið. Tölvan er afrakst-
ur sex ára vinnu undir stjórn orku-
málaráðuneytis Bandaríkjanna og
kostaði 100 milljónir dala.
Ofurtölvan gengur undir nafninu
Roadrunner, í höfuðið á hlaupa-
gauknum, ríkisfugli Nýju Mexíkó,
en hún var meðal annars þróuð í Los
Alamos í Nýju Mexíkó. Hún getur
framkvæmt þúsund billjón aðgerðir
á sekúndu, þ.e.a.s. milljón milljarða
á sekúndu. Það þýðir að ef allir íbúar
jarðar tækju sér vasareikni í hönd
og reiknuðu dag og nótt, myndi taka
þá 46 ár að afkasta það sem Road-
runner getur gert á einum degi.
Tölvuna á fyrst og fremst að nota við
þróun og viðhald kjarnavopna, og til
að gera líkön af kjarnorkuspreng-
ingum.
Vopnin ganga fyrir
Roadrunner er einnig sögð geta
komið að góðum notum í lækn-
isfræði, geimvísindum, verkfræði og
fjármálageiranum, svo fátt eitt sé
nefnt, m.a. við að rannsaka tilurð
heimsins og við að þróa vistvænt
eldsneyti og lyf við alnæmi.
Orkumálaráðuneytið hefur þó gef-
ið vísindamönnum takmarkaðan
tíma til að fást við þessi háleitu verk-
efni, því eftir hálft ár verður kröftum
tölvunnar að þremur fjórðu beint að
vopna- og hernaðarmálum.
Roadrunner tekur álíka mikið
pláss og 288 ísskápar, þekur 560 fer-
metra og vegur samtals 230 tonn.
Hún þykir sparneytin miðað við aðr-
ar ofurtölvur, og getur framkvæmt
376 milljón aðgerðir á hvert vatt.
Tölvan er nú í Poughkeepsie í New
York-ríki en verður í næsta mánuði
flutt til rannsóknarstofunnar í Los
Alamos. | sigrunhlin@mbl.is
Öflugasta ofurtölva í heimi
AP
Engin fartölva Don Grice, yfirverk-
fræðingur IBM, skoðar tölvuna sína.
ÓTTAST er að allt að hundrað hafi
týnt lífi þegar farþegaflugvél brotn-
aði í sundur og varð alelda á örskots-
stundu eftir lendingu á alþjóðaflug-
vellinum í Khartoum, höfuðborg
Súdans, um áttaleytið í gærkvöldi að
staðartíma.
Sjónarvottar og farþegar segja
eldhafið hafa breiðst hratt út eftir
sprengingu í einum hreyflinum, þeg-
ar flugmennirnir biðu eftir upplýs-
ingum um hvaða hliði þeir ættu að
aka vélinni að. Veður var slæmt þeg-
ar slysið varð, skýfall og eldingar, en
vélin, sem var af gerðinni Airbus
A300, var að koma frá Amman í
Jórdaníu með 203 farþega og 14
manna áhöfn.
Flugöryggi þykir ábótavant í
landinu en stjórnvöld hafa áður
kennt viðskiptaþvingunum um að
m.a. hafi gengið illa að fá varahluti í
bandarískar flugvélar.
Hundrað taldir
af í Khartoum
Þotuhreyfill sprakk eftir lendingu
Eitt versta flugslysið í sögu Súdans
AP
Eldhaf Úr upptöku Sudan TV, sem
áætlar að allt að 100 hafi látist.