Morgunblaðið - 11.06.2008, Síða 16
Hlutabréf
ekki lægri í
tæp þrjú ár
Eftir Björgvin Guðmundsson
og Grétar Júníus Guðmundsson
ÚRVALSVÍSITALAN í kauphöll-
inni á Íslandi lækkaði um 2,0% í gær
og er lokagildi hennar 4.512 stig.
Vísitalan hefur lækkað um tæp 30%
frá áramótum en hún hefur ekki ver-
ið lægri í tæp þrjú ár, eða frá því í
október 2005.
Velta með hlutabréf í kauphöllinni
hefur minnkað undanfarna mánuði
og ef fram heldur sem horfir mun
veltan í þessum mánuði verða með
allra minnsta móti, miðað við það
sem verið hefur undanfarin misseri.
Það sem af er þessum mánuði hefur
veltan verið um 20 milljarðar. Verði
hún svipuð út mánuðinn má reikna
með að veltan verði að hámarki 60-70
milljarðar. Hún var tæpir 127 millj-
arðar í maí, 140 milljarðar í apríl, 169
milljarðar í mars en um 136 millj-
arðar í febrúar. Í júní í fyrra var velt-
an um 209 milljarðar. Því má jafnvel
gera ráð fyrir að veltan í þessum
mánuði verði ekki mikið yfir þriðj-
ungur af veltu sama mánaðar í fyrra,
þ.e. ef framhald verður á því að velt-
an verði eins lítil og verið hefur.
Bankarnir vega þungt
Hlutabréfavísitölur hafa víða
lækkað mikið að undanförnu og er ís-
lenska kauphöllin engin undantekn-
ing. Sveiflur eru þó líklega meiri hér
en víða annars staðar. Fjármálafyr-
irtæki eiga stóran þátt í þeim lækk-
unum sem orðið hafa, væntanlega
vegna þeirra hremminga sem verið
hafa á fjármálamörkuðum.
Gengi hlutabréfa íslensku við-
skiptabankanna hefur lækkað mikið
frá því það varð hæst á síðasta ári, en
það var í júlí 2007 hvað varðar Kaup-
þing og Glitni en í október í tilviki
Landsbankans. Frá því það var hafa
hlutabréf Kaupþings lækkað um
41%, hlutabréf Glitnis hafa lækkað
um 46% og bréf Landsbankans um
47%, miðað við lokaverð þeirra í gær.
Markaðsvirði bankanna hefur því
lækkað um það sem þessu nemur á
þeim tíma sem liðinn er.
Velta í kauphöllinni
hefur minnkað verulega
5 ."." 3& # 6
9 2 1 0 / : / 0 1 2
Lægsta gildi vísitöl-
unnar frá október 2005
Bréf bankanna hafa
lækkað um rúm 40%
16 MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
● OLÍUVERÐ lækkaði á heimsmark-
aði í gær. Þannig lækkaði verðið í
New York til að mynda um 3 dollara
fyrir tunnuna og fór í um 131 dollar.
Hlutabréfavísitölur í flestum helstu
kauphöllum heimsins héldu þó
áfram að lækka í gær. Enn sem fyrr
voru það einna helst bankar og önn-
ur fjármálafyrirtæki sem leiddu
lækkanirnar víða.
Hlutabréfavísitölur í Asíu lækkuðu
víða um 2-4% en í Evrópu lækkuðu
þær almennt nokkuð minna, reyndar
fimmta daginn í röð. Flestar vísitölur
í Bandaríkjunum lækkuðu en þó
hækkaði Dow Jones lítillega.
Hlutabréf lækkuðu
áfram í kauphöllum
● TÓLF mánaða verð-
bólga mun aukast úr
12,3% í maí í 12,4% í
júní, ef spá Greining-
ar Glitnis gengur eftir.
Þetta kom fram í
Morgunkorni deildar-
innar í gær.
Greiningardeild Landsbankans
spáir því hins vegar að verðbólgan
muni fara yfir 13%, samkvæmt spá
deildarinnar sem verður birt í dag.
Greining Glitnis spáir því að vísi-
tala neysluverðs muni hækka um
0,6% á milli maí og júní. Þetta er
hækkun frá því sem Greining Glitnis
hafði áður gert ráð fyrir.
Í Morgunkorninu segir að ástæðan
fyrir því að deildin spái nú meiri verð-
bólgu en áður orsakist fyrst og
fremst af því að gengi krónunnar
hafi gefið eftir á ný. Einnig séu verð-
hækkanir vegna gengislækkunar fyrr
á árinu enn að koma fram. Verð-
hækkun á eldsneyti hafi haldið
áfram erlendis og áhrif þess verða
að mati deildarinnar nokkur í júní. Þá
sé innlendur kostnaðarþrýstingur
einnig enn til staðar en reiknað sé
með að það muni draga úr honum
þegar líður á árið.
„Frá og með haustinu teljum við
að hratt muni draga úr árshraða
verðbólgunnar, að hún verði nálægt
8,5% í árslok og að 2,5% verðbólgu-
markmið Seðlabankans náist um
mitt næsta sumar,“ segir deildin.
Greiningardeildir spá
aukinni verðbólgu
ÚTLÁN Íbúðalánasjóðs í maí jukust
frá fyrri mánuði en þau hafa ekki
verið meiri frá því í desember á síð-
asta ári.
Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í
maí námu um 4,8 milljörðum króna.
Þar af voru almenn útlán sjóðsins
um 3,8 milljarðar og lán vegna
leiguíbúða rúmur milljarður.
Almenn lán sjóðsins hafa ekki
verið meiri frá því í nóvember á síð-
asta ári og lán vegna leiguíbúða
hafa ekki verið meiri frá því í des-
ember, eins og heildarútlánin.
Fyrir ári síðan, þ.e. í maí 2007,
voru útlán Íbúðalánasjóðs nokkuð
meiri en í maí á þessu ári, en þau
voru hins vegar minni bæði í janúar
og febrúar í fyrra en nú.
Bankarnir hafa að mestu dregið
sig út af íbúðalánamarkaðinum og
segir í Vegvísi greiningardeildar
Landsbankans að markaðshlutdeild
Íbúðalánasjóðs á íbúðalánamarkaði
sé um 80%. | gretar@mbl.is
Útlán Íbúðalánasjóðs
aukast milli mánaða
2% 34"$
%4
* 6!7,*(
5 7# ' " 1'"
!
** ! G < ' <G < ' < G G H $ E I J
2
1
0
/
:
'?
'?
'?
'?
8 3(
"
+ ,
-
, .
/0
1234.56337
6$
."." $ '
!# &!>)-
A!# &!>)-
LM
!>)-
#*
!!>)-
)-!L&)%*
!7*
@N* !# &!>)-
O &+
!!>)-
!7* !>)-
<*!>)-
$P EI
$
" (! ()--!>)-
? !>)-
F !>)-
9 & # 68'"
/21!>)-
'*)N!>)-
'
*
N!'Q '
*
N!P
* !PK
L!
*
!# &!>)-
R !
@N* N!# &!>)-
I;> !>)-
?
A!>)-
*
A!>)-
" 0! 37" +
S
!'* !S-
!# !>)-
& !>)-
)'"%: . '
&
?*!!*!
6
!!!!O &!!!!!!!!$*
2-:-/:2
20-911-/2
/90-12:-/ /01-::/-:
:-22-/ :-0- :-011-:-: 2/-10-/:
:-0-22
2-///-92
:-1-1 :-/0-:2
/-2/- 0-1:- /9-021-:0
:0-//1
1/-: :-99
"
1-/00-: "
"
"
"
-9- "
"
2=12
/:= =9
:2=2
:=0
/=2
9=0
0=::
: =29
9 :=:
2=9
:1 / "
:19= "
"
"
"
10 "
1= 2=2
/=:1
=99
:2=21
:=21
11= /= 9 0=:2
:=/1
9/=1
:= :9= :11= /:0= :2:= := : "
=09
1001= : 1=1
A*
&
:2
:1
0/
9
/
1
:
/
:0
2
2
:
:
:
"
:9
"
"
"
"
1
"
"
J
-
:-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- :-2- -1- :-2- :-/- 0-2- 2-: /-2- :-2- 0-2- -/- E<T!;
E<T!
.
.
E<T!,
<!
.
.
JQ!G I U
.
.
?$L
J'T
.
.
E<T!=:1
E<T!00
.
.
● GENGI hlutabréfa deCode, móður-
félags Íslenskrar erfðagreiningar fór
niður fyrir einn dollar í viðskiptum á
Nasdaq-hlutabréfamarkaðinum í
gær, er það lækkaði um 11,5% frá
deginum áður. Lokaverðið var 0,9
dollarar og hefur aldrei verið lægra.
Á síðustu áramótum var gengi
hlutabréfa deCODE um 3,5 dollarar
á hlut, og hefur það því lækkað um
rúm 70% það sem af er þessu ári.
Fyrir ári síðan, eða í júní 2007, var
gengið einnig um 3,5 dollarar.
Hlutabréf deCode
fóru undir einn dollar
„ÞAÐ er mikil óvissa um þróun
mála í heiminum og svo virðist sem
ný bylgja af svartsýni sé að ganga
yfir. Það hefur almennt meiri áhrif
hér á landi,“ segir Edda Rós Karls-
dóttir forstöðumaður greiningar-
deildar Landsbankans.
Hún bendir á að erfiðleikar við
fjármögnun á alþjóðamörkuðum
valdi fjármálafyrirtækjum um allan
heim vanda og að bankar vegi
þungt í íslensku úrvarlsvísitölunni.
Því lækki vísitalan meira en víða
erlendis við þessar aðstæður.
„Lækkun úrvalsvísitölunnar frá
ársbyrjun 2007 er svipuð og lækkun
erlendra fjármálavísitalna,“ segir
Edda Rós og telur að lækkun fjár-
málafyrirtækja sé farin að endur-
spegla svartsýni sem almennt sé
ekki innistæða fyrir. Skuldatrygg-
ingarálag hafi líka hækkað og það
endurspeglist í verði hlutabréfa.
„Þessar lækkanir eru í takt við
það sem er að gerast erlendis. Við
sjáum neikvæðar fréttir frá Banda-
ríkjunum og bankavísitölur snar-
lækka. Eitthvað af þessum áhrifum
smitast hingað til Íslands,“ segir
Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í
Greiningu Glitnis.
Hann segir litla veltu á bak við
lækkanir úrvalsvísitölunnar undan-
farna daga. Lítið sé um að vera á
hlutabréfamörkuðum og engar
fréttir berist. Við slíkar aðstæður
er ekki skrítið að hlutabréf lækki
eilítið í verði.
Ný svartsýnisbylgja
● VELTA í dagvöruverslun í maí var
heldur minni en í sama mánuði í
fyrra, þegar tekið hefur verið tillit til
þess að í ár voru fleiri föstu- og laug-
ardagar í mánuðinum en í fyrra. Velt-
an var jafnframt minni en í mánuð-
inum á undan, þ.e. í apríl síðast-
liðnum, á föstu verðlagi. Frá þessu
er greint í tilkynningu frá Rannsókn-
arsetri verslunarinnar.
Maímánuður er annar mánuðurinn
í röð sem veltan minnkar þegar vísi-
talan fyrir veltuna hefur verið árstíða-
og dagaleiðrétt. Sala áfengis jókst
þó í mánuðinum um 13%.
Dagvöruverslun
dregst saman
P
IP
A
R
S
ÍA
8
1
1
8
8
Fimmtudagurinn 12. júní
kl. 08:15 - 09:30 á Grand Hótel.
Danskur Örn
í morgunmat
www.utflutningsrad.is
Útflutningsráð heldur morgunverðarfund með
danska leikaranum, Jens Albinus og viðskipta-
fulltrúa Íslands í Danmörku, Rósu Viðarsdóttur.
Skráning fer fram í gegnum netfangið
utflutningsrad@utflutningsrad.is eða í síma 511 4000.
Nánari upplýsingar veita Andri Marteinsson, verkefnisstjóri,
andri@utflutningsrad.is og Hermann Ottósson, forstöðumaður,
hermann@utflutningsrad.is
Á fundinum mun Jens Albinus, sem Íslendingar þekkja
best sem hálfíslenska lögreglumanninn Hallgrím Örn
Hallgrímsson úr dönsku spennuþáttunum Örninn, fara á
léttu nótunum yfir samskipti Dana og Íslendinga, og fjalla
um hvað er líkt og ólíkt með þjóðunum.
Einnig mun Rósa Viðarsdóttir kynna viðskiptatækifæri á
Eyrarsundssvæðinu og hitta fulltrúa fyrirtækja, sem hafa
áhuga á að styrkja stöðu sína í viðskiptum við Dani,
frá kl. 10:00 í Borgartúni 35.
Borgartún 35 105 Reykjavík sími 511 4000 fax 511 4040 utflutningsrad@utflutningsrad.is