Morgunblaðið - 11.06.2008, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 29
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Timbur skjólveggir til sölu
28 stk. 1,80 m breidd, 1,60 m hátt. 13
stk. 90 m br. 1,60 m, selst allt saman
á 180.000 kr. Kaupandi sér um flutn-
ing. Sími 898-0281.
Ódýr garðsláttur
Tek að mér garðslátt í sumar fyrir ein-
staklinga og húsfélög. Vönduð vinnu-
brögð. Óbreytt verð frá síðasta sumri.
Fáðu tilboð. Upplýsingar í síma:
857-3506.
Sumarhús
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Glæsilegar sumarhúsalóðir!
Til sölu afar fallegar lóðir í kjarri-
vöxnu landi við Ytri-Rangá.
Stórkostlegt útsýni. Mikil veðursæld.
Allt eignarlóðir. 100 km frá Reykjavík.
Útivistarmöguleikar og náttúrufegurð
í sérflokki.
Uppl. í síma 893 5046 og á
www.fjallaland.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Lagersala
Seljum bútasaumsefni, bækur, snið,
saumasmávöru, peysur, boli o.fl. á
mjög lækkuðu verði í versluninni.
Diza
Laugavegi 44
s: 561-4000
www.diza.is
Íslenskur útifáni
Stór 100x150 cm. 3.950 kr.
Krambúðin,
Skólavörðustíg 42,
Reykjavík, sími 551 0449.
Frábærar peysur í útivistina,
alull sem má vélþvo á 40°. Litir,
svart, off-white, vínrautt, navy og
camel. TILBOÐSVERÐ 6900 kr.
Diza
Laugavegi 44
s: 561-4000
www.diza.is
Ýmislegt
Kanadískir gæðapottar
Þola -50 gráður frost
Eigum gríðarlegt úrval af tröppum
og öllum fylgihlutum fyrir potta.
Sendum hreinsiefni og síur um allt land.
www.heitirpottar.is
Kleppsvegur 152, sími 554 7755
(Ath. áður barkarí Jóa fel)
ROSA sætt í sólina
BH í stærðum D,DD,E,F,FF,G skálum
á kr. 5.750,-
BH í stærðum D,DD,E skálum á kr.
5.275,- og pils á kr. 4.985,-
Misty, Laugavegi 178,
sími 551 3366.
Opið mán-fös 10-18, lau 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
____..á ótrúlega rauðum skóm!
Mikið úrval af flottum rauðum
dömuskóm úr leðri með skinnfóðri.
Margir aðrir litir. Verð 7.885.- og
8.990.- Úrvals skór á frábæru verði
Misty skór,
Laugavegi 178, sími 551 2070.
Opið mán.-föst. 10-18
og laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
Bílar
Tilboð- Toyota árg. '97
Ódýrt tilboð! Til sölu Toyota Corolla
ekinn 151.000 km á aðeins 230.000
kr. Í mjög góðu lagi! Fyrir frekari
upplýsingar hringið í 659 0119 eða
616 2954.
Mercedes Benz árg. '00
Ek. 320 þ. km. Mercedes Benz Atego
1228, árg. 2000. Gott eintak. Verð 2.5
+ vsk. Uppl. sími 892 3060.
Mótorhjól
Til sölu
ný framrúða (national cycle) á
mótorhjól, passa á Honda VT 750 og
1100, hugsanlega fleiri hjól, festingar
fylgja, verð 45 þúsund.Upplýsingar
veitir Kristján í síma 617 6450.
Tilboð á nýjum Yamaha
fjórhjólum og mótorhjólum
Getum boðið upp á nokkur ný og
ónotuð Yamaha fjórhjól og mótorhjól
á frábæru tilboðsverði.
Mótormax, Kletthálsi 13,
s. 563 4400, www.motormax.is
HAUSTIÐ 1974 bárust þau tíðindi
að Viktor Kortsnoj hefði unnið Ana-
tolí Karpov í 21. skák einvígis þeirra
í Moskvu í aðeins 19 leikjum. Þetta
hlaut að vera einhver vitleysa. Ein-
vígi þeirra hafði staðið í tæpa tvo
mánuði og Karpov teflt af miklu
öruggi. Eftir 18 skákir hafði hann
unnið þrjá skákir og gert 15 jafn-
tefli. Þar sem einvígið snerist um
það í fyrsta lagi hvor ynni fyrr fimm
skákir og jafnframt að það gæti ekki
orðið meira en 24 skákir blasti sig-
urinn við honum. En Kortsnoj vann
19. skákina og síðan þessa skák sem
hér fylgir:
Moskva 1974; 19. einvígisskák
Kortsnoj – Karpov
Drottningarindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 b6 4. g3
Bb7 5. Bg2 Be7 6. Rc3 0-0 7. Dc2 c5
8. d5 exd5 9. Rg5 Rc6 10. Rxd5 g6
11. Dd2 Rxd5 12. Bxd5 Hb8
13. Rxh7 He8 14. Dh6 Re5 15.
Rg5 Bxg5 16. Bxg5 Dxg5 17. dxg5
Bxd5 18. 0-0 Bxc4 19. f4
– og Karpov gafst upp.
Einvígi sem virtist lokið var
skyndilega orðið æsispennandi. En
tími Kortsnojs var of lítill. Hann
fékk aðeins eitt tækifæri með hvítu
mönnunum í viðbót og nýtti það illa.
Boris Spasskí, sem var meðal áhorf-
enda í þeirri skák, kvað helsta galla
Kortsnojs hafa þar komið fram;
hann væri alltaf að leika mönnunum
fram og til baka. Með þremur jafnt-
eflum á lokasprettinum ávann Kar-
pov sér réttinn til að skora á heims-
meistarann Fischer.
Einvígið dró dilk á eftir sér;
Kortsnoj flúði land stuttu síðar og
þá upphófst kafli í skáksögunni sem
einkenndist af miklum ýfingum með
Kortsnoj og sovéskum skákmönnum
– og tveimur heimsmeistaraeinvígj-
um við Karpov í Baguio 1978 og
Merano 1981.
Nú er öldin önnur og Kortsnoj
teflir á hverju mótinu á fætur öðru í
Rússlandi eða öðrum fyrrverandi
sovéskum lýðveldum. Hann er orð-
inn 77 ára gamall og tekur hvert tap
alveg sérstaklega óstinnt upp. Alveg
eins og í gamla daga. Á dögunum
mættust þessir tveir á öflugu at-
skákmóti í Odessa í Úkraínu. Kar-
pov byrjaði illa en náði góðum enda-
spretti og varð aðeins ½ vinningi á
eftir efstu mönnum. Skáklistin hefur
undanfarin ár þokað fyrir viðskipt-
um og pólitík og þar hefur honum
orðið vel ágengt og hann er hins
vegar nánast hættur að tefla á
venjulegum kappskákmótum. En
fastlega má reikna með að hefndin
hafi verið sæt undir lok þessa móts
þegar hann lagði Kortnsoj að velli –
í 19 leikjum!
Odessa 2008:
Karpov – Kortsnoj
Nimzoindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4.
Dc2 d6 5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 c5 7.
Rf3 0-0 8. dxc5 dxc5 9. b4 Rc6 10.
Bb2 Db6 11. b5 Rd4 12. Rxd4 Re4
13. De3 Da5+ 14. Kd1 Da4+ 15.
Db3 Da5 16. De3 Da4+ 17. Rb3
Rxf2+ 18. Ke1 Rxh1 19. Dc3!
– Kortsnoj gafst upp. Eftir 19. …
f6 20. Rxc5 fellur svarta drottningin.
Henrik sigraði í Póllandi
Henrik Danielsen sigraði á minn-
ingarmótinu um Emanuel Lasker
sem lauk í Barlinek í Póllandi í dag.
Henrik hlaut 6½ vinning af níu
mögulegum og var hálfum vinningi
fyrir ofan næstu menn. Í 2.-3. sæti
með sex vinninga urðu Hvít-Rússinn
Nikolai Aliavdin og pólski stór-
meistarinn Luakasz Cuborowski.
Alls tók 21 skákmaður þátt í mótinu,
og þar af fjórir stórmeistarar.
Karpov vann Kortsnoj í 19 leikjum
SKÁK
Odessa, Úkraínu
30. maí til 2. júní 2008
Kortsnoj og Karpov við taflið í Odessa
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
Tvímenningskeppni spiluð í Ás-
garði Stangarhyl 4 fimmtud. 5. júní.
Spilað var á 11 borðum. Meðalskor
216 stig. Árangur N-S.
Júlíus Guðmss. – Rafn Kristjánss. 270
Oddur Jónsson – Óli Gíslason 257
Eysteinn Einarss. – Magnús Halldórss. 234
Árangur A-V.
Jón Lárusson – Ragnar Björnsson 245
María Huld – Þorbjörg Bjarnadóttir 241
Halla Ólafsdóttir – Lilja Kristjánsd. 238
BRIDS
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Bridsfélag
eldri borgara í Hafnarfirði
Föstudaginn 6. júní var spilað á 13
borðum. Úrslitin urðu þessi í N/S:
Bragi V. Björnsson - Oddur Jónsson 446,
Bjarni Þórarinsson - Jón Hallgrímsson 375
Sæmundur Björnss. -Sævar Magnúss. 345
Austur/Vestur
Jón Lárusson - Halla Ólafsdóttir 399
Óli Gíslason - Eyjólfur Ólafsson 352
Sigurður Jóhannss. - Jón Gunnarsson 336
Föstudagur 30.05 - N-S:
Skarphéðinn Lýðsson - Sverrir Jónsson 256
Albert Þorsteinsson - Björn Árnason 252
Ármann Lárusson - Guðni Ólafsson 219
A-V
Guðm. Bjarnason - Jón Ó. Bjarnason 266
Magnús Oddson - Ragnar Björnsson 241
Jórunn Kristinnsd. - Sigrún Andrewsd. 236
Þriðjudagur 03.06 - N-S:
Jón Hallgrímsson, Bjarni Þórarinsson 392
Óskar Karlsson, Júlíus Guðmss. 385
Björn Karlsson - Jens Karlsson 369
A-V
Björn Árnason - Albert Þorsteinsson 407
Bragi V. Björnsson - Oddur Jónsson 363
Kristján Þorlákss. - Oddur Halldórss. 340