Morgunblaðið - 11.06.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. JÚNÍ 2008 33
ÞAÐ er mikil þolinmæðisvinna að greiða net. Jón Gunnar Björgvinsson af
bátnum Braga RE-2 gerir grásleppunetið klárt fyrir næsta róður.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Greitt úr flækjunni
Fótleggjavandamál
og appelsínuhúð
MIG langar til að segja
frá góðri reynslu minni,
ég hef leitað allra ráða til
að fá bót við vandamáli í
fótleggjum sem hefur
hrjáð mig til margra ára.
Ég hef haft mikil eymsli
og bólgur á fótleggjum
og appelsínuhúð, einnig
bólgur hringum hné og
við ökkla með miklum
sársauka við snertingu
eða nudd. Skiljanlega hef ég reynt
ýmislegt en það sem ég hef verið að
láta gera fyrir mig hefur því miður
skilað frekar litlum árangri þar til nú
er ég komst í meðhöndlun í algjöru
undratæki hjá Snyrtisetrinu í Heilsu-
verndarstöðinni. Eftir aðeins einn
tíma var mikill munur sem sást
greinilega, þykku aumu bólgurnar
undir hnjám minnkuðu um allt að
helming, eins kringum ökkla, og líð-
anin miklu betri. Eftir þrjá tíma var
appelsínuhúðin farin að brotna mikið
niður og húðin orðin sléttari, líðan
mín betri, ekki bara í fótleggjum
heldur líka andlega. Ég hef prófað
æði margt en þessi meðhöndlun slær
öllu við. Ég er mjög þakklát því ég
var farin að halda að ekk-
ert væri til sem raunveru-
lega gæfi bata. Mikil app-
elsínuhúð er ekki bara
útlitsvandamál, hún er
heilsufarsvandamál með
mörgum fylgikvillum eins
og vanlíðan og þyngsla-
tilfinningu í fótleggjum.
Þar sem þessi meðferð
gaf svo góða raun ákvað
ég að prófa öra- og slit-
meðferð á maga með
þessu sama tæki þar sem
ég hef haft slit á maga í 10
ár. Eftir tvo tíma fór ég að sjá að húð-
in hafði dregið sig saman og var orðin
sléttari, eftir 10 tíma voru fótlegg-
irnir óþekkjanlegir og maginn líka og
ég því harla kát með bæði betra útlit
og líðan. Ég veit hvað mín vandamál
hrjá margar konur sem halda eins og
ég að ekkert geti hjálpað. Vil koma á
framfæri þakklæti mínu til Snyrtiset-
ursins fyrir þessa ótrúlega árangurs-
ríku meðhöndlun og vil jafnframt að
aðrar konur fái að vita að það er hægt
að fá hjálp og bót.
Björg.
Aflagrandi 40 | Molasopi og dag-
blaðalestur í Króknum 9-10.30, vinnu-
stofa kl. 9-16.30, sumarferð í Borgarfjörð
og Landnámssetrið kl. 8.45.
Bandalag kvenna í Hafnarfirði | Farið
verður í árlega gróðursetningarferð fimm-
tud. 12. júní kl. 19 í landið okkar.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðslustofa,
böðun, almenn handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerð, hádegisverður,
spiladagur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt
opin kl. 9-16, Halldóra leiðbeinir kl. 13-16.
Félag eldri borgara í Garðabæ | Tekið á
móti greiðslu á skrifstofu FEBG í Jónshúsi
kl. 13-16 í dag fyrir Vestfjarðaferðinni. Ekki
er hægt að taka við greiðslukortum. Ath.
Þetta er síðasti dagur til að greiða fyrir
ferðina.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | Farið verður í ferð 12. júní um:
Skeið, Árborg, Þjórsárdal, Búrfellsvirkjun,
Háafoss, Stöng o.fl. Hálendismiðstöð,
Landsveit og Gíslholtsvatn. Matur á Hótel
Hlíð. Leiðsögn hefur Pálína Jónsdóttir.
Brottför frá Gjábakka kl. 9 og Gullsmára
kl. 9.15. Heimkoma kl. 18-19. Skráning-
arlisti í Gullsmára.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4,
kl. 10. Söngfélag FEB æfing kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi verður til
kl. 16, hádegisverður kl. 11.40, félagsvist
kl. 13, viðtalstími FEBK kl. 15-16 og bobb
kl. 16.30.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður,
kvennabrids kl. 13. Kaffiterían opin til kl.
16.
Félagsstarf Gerðubergs | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, m.a. tréútskurður og
handavinna. Frá hádegi spilasalur opinn.
„Mannrækt – trjárækt“, gróðursetning í
Gæðareit með leikskólabörnum frá
Hraunborg kl. 13.30, á eftir bjóða börnin
heim í kaffihúsastemningu, uppl. á staðn-
um og s. 575-7720.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó í Íþróttahús-
inu Digranesi kl. 14.30 og hringdansar kl.
15.15 á sama stað. Uppl. í síma 564-1490
og 554-5330.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10.30, leikfimi kl. 11, handverksstofa opin,
námskeið í myndlist kl. 13, kaffiveitingar.
Hárgreiðslustofa sími 552-2488 og fóta-
aðgerðastofa sími 552-7522.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-
16. Vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16.
Halldóra leiðbeinir frá kl. 9-12. Félagsvist
kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir
og handavinna kl. 9-16, aðstoð við böðun
kl. 9-14, sund kl. 10-12, hádegisverður,
verslunarferð í Bónus kl. 12.10-14, tré-
skurður kl. 13-16, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, morg-
unstund, handavinnustofan opin allan
daginn, hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arstofan opnar, verslunarferð kl. 12.15,
Dansað við undirleik hljómsveitar kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkjan er opin frá
kl. 17-20. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er
til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi
í síma 858-7282.
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn í
Holtakoti frá kl. 10-12.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur máls-
verður í safnaðarheimili eftir stundina.
Dómkirkjan | Hádegisbænir, bænastund-
ir alla miðvikudaga kl. 12.10-12.30. Léttur
hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bæn-
arefnum má koma á framfæri í síma 520-
9700 eða með tölvupósti til domkirkj-
an@domkirkjan.is.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga og morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Hádeg-
isbænastund í kaffisalnum kl. 12. Hægt er
að senda inn fyrirbænarefni á filadelfia
(hjá)gospel.is.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í kvöld
kl. 20 í Kristniboðssalnum, Háaleitisbraut
58-60. Ræðumaður er Guðlaugur Gunn-
arsson kristniboði. Yfirskrift: Sönn um-
hyggja (1. Þess. 3:1-13). Kaffi og meðlæti
að lokinni samkomu.
Laugarneskirkja | Morgunbæn kl. 8.10.
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur upp
frá kirkjudyrum kl. 10.30.
Vídalínskirkja Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Kaffi á könn-
unni.
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
GLEÐILEGA HÁTÍÐ, SONUR
SÆLL. ÞAÐ ER ALLT GOTT AÐ
FRÉTTA ÚR SVEITINNI...
LÆKNIRINN SEGIR
AÐ SKJÖLDU VERÐI
EKKI MEINT AF
MEIRI
KLAUFARNIR
ÞESSAR KÝR
ÞAÐ SPARKAÐI KÝR Í HÖFUÐIÐ Á
VINNUMANNINUM UM DAGINN, EN
HEPPNIN VAR MEÐ OKKUR...
VARÚÐ!
HUNDUR
VARÚÐ!
HUNDUR
VARÚÐ!
HUNDUR
KOMINN
TÍMI
TIL!
HÆ,
SOLLA!
BÚIN
MEÐ RIT-
GERÐINA?
JÁ, ÉG
EYDDI ÖLLUM
GÆRDEGINUM
Í AÐ SKRIFA
HANA. EN ÞÚ?
ÞEGAR MAÐUR
VEIT JAFN MIKIÐ
OG ÉG ÞÁ ÞARF
MAÐUR EKKI
HEILAN DAG. ÉG
SKRIFAÐI MÍNA Á
TÍU MÍNÚTUM
BÍDDU
NÚ VIÐ!
MÁ ÉG
SJÁ?
VARSTU
BÚIN AÐ SJÁ
PLASTVASANN
SEM HÚN ER Í?
LEÐUR-
BLÖKUR
ERU EKKI
PÖDDUR!
ÞAÐ LÍTUR ÚT
FYRIR AÐ ÞÚ
VERÐIR EKKI
HÆST Í
BEKKNUM
Í ÞETTA
SKIPTIÐ!
„LEÐUR-
BLÖKUR:
STÆRSTU
PÖDDUR Í
HEIMI“
REYNUM
ÞETTA
EINU
SINNI ENN
HALTU MJÚKLEGA Á
GAFFLINUM Í HÆGRI
HÖNDINNI...
EN Í ÞETTA
SKIPTI ÞARFTU EKKI
AÐ KALLA „NÁÐI ÞÉR“
EF ÞAÐ TEKST!
SÍÐAN SKALTU
STINGA GAFFLINUM
Í OSTRUNA OG LYFTA
HENNI Á MEÐAN ÞÚ
HELDUR Á SKELINNI
Í VINSTRI HÖNDINNI!
ÉG SKIL
ÞETTA EKKI.
ÞEIR ÆTLA
AÐ BANNA
SKOTVEIÐI-
FÉLAGINU OKKAR
AÐ KOMA AFTUR Í
„DISNEY WORLD“
FYRIRGEFÐU,
SARA. ÞÚ ÁTTIR EKKI
AÐ HEYRA ÞETTA
SKIPTIR EKKI MÁLI,
ADDA. ÉG VEIT AÐ ÞÉR
FINNST ÉG OFVERNDA
BARNIÐ MITT
EN EFTIR ÞAÐ SEM VIÐ GENGUM
Í GEGNUM TIL AÐ EIGNAST MAGNA
ÞÁ GERUM VIÐ HVAÐ SEM ER TIL
AÐ EKKERT KOMI FYRIR HANN
EKKI
SATT?
REYNDAR
HAFA ÞAU
NOKKUÐ TIL
SÍNS MÁLS
KEYPTIR ÞÚ DAGBLAÐ Í L.A. Á
MEÐAN ÞÚ VARST FRÉTTAMAÐUR Í
SJÓNVARPSÞÆTTINUM MÍNUM?!?
AF HVERJU EKKI? ÉG
HEF ALLTAF VERIÐ
MEIRA FYRIR DAGBLÖÐ
AUK ÞESS GET ÉG
ALLTAF STOFNAÐ
MINN EIGINN ÞÁTT
ÉG ER EKKI VISS UM AÐ ÉG BYRJI
AFTUR AÐ VINNA FYRIR JAMESON...
ÉG ÆTLA AÐ LEYFA ÞESSUM
TVEIMUR AÐ BJÓÐA Í MIG
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara