Morgunblaðið - 11.06.2008, Blaðsíða 34
EM er eiginlega ekki
íþróttamót. EM er
listahátíð … 36
»
reykjavíkreykjavík
„UMBOÐSMAÐUR Íslands“ á að
mörgu leyti betur við Kára Sturlu-
son en Einar Bárðar sem nú er fjarri
Íslandsströndum með eina skjól-
stæðingi sínum Garðari Thór Cort-
es. Kári hefur á undanförnum miss-
erum farið með umboð fjölmargra
íslenskra listamanna auk þess sem
hann hefur staðið að baki innflutn-
ingi á erlendum stórstjörnum hingað
til lands á undanförnum áratug eða
svo. En nú hefur Kári ákveðið að
helga sig færri og stærri verkefnum
og hefur dregið sig m.a. út úr flest-
um þeim verkefnum sem hann hefur
sinnt að undanförnu. En hvað er
Kári að fara að gera nákvæmlega?
„Ég ætla annars vegar að setja
meiri fókus á Lay Low sem sendir
frá sér sína aðra plötu um miðjan
október og hins vegar hef ég tekið að
mér markaðsstjórastöðu fyrir vefinn
gogoyoko sem er alþjóðlegur sam-
félagsvefur ætlaður tónlistarfólki,
útgáfum og tónlistarunnendum. Vef-
urinn tekur mið af því besta sem vef-
ir eins og MySpace, FaceBook, Bebo
og fleiri hafa upp á að bjóða ásamt
því að vera kynningar- og söluvett-
vangur fyrir tónlistarfólk og útgáfur
með góðgerðarmál í forgrunni.“
Að sögn Kára mun vefurinn bjóða
tónlistarfólki og útgáfum betri kjör í
sölu á tónlist á netinu og nýjum
tekjustraumum ásamt því að 10% af
allri veltu vefjarins renna til góð-
gerðarmála. Áætlað er að setja
gogoyoko.com í loftið í lok janúar
2009 og er heildarkostnaður við
framleiðslu, markaðssetningu og
rekstur fyrstu tvö árin áætlaður
tvær milljónir dala. Nú þegar hafa
fjárfestar komið inn með 650 þúsund
dali og vinna við að afla meira fjár er
í fullum gangi. | hoskuldur@mbl.is
Er Gogoyoko framtíðin?
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Umboðsmaður Íslands? Kári Sturluson hefur ákveðið að taka að sér
færri en stærri verkefni á næstunni, þ.á m. vefinn Gogoyoko.
Kári Sturluson vinnur að uppbyggingu nýs samfélagsvefjar
Eins og sjá má í
fréttinni hér neðst
á síðunni hefur
Kári Sturluson
umboðsmaður
ákveðið að beina
allri sinni athygli
að einungis tveimur verkefnum;
Lay Low sem ætlar sér stóra hluti
með næstu plötu sinni og sam-
félagsvefnum gogoyoko.com sem
settur verður til höfuðs öðrum sam-
félagsvefjum á borð við Facebook
og MySpace. Þetta þýðir hins vegar
að heill hellingur af hljómsveitum
stendur eftir umboðsmannslaus því
Kári fór áður með umboð flytjenda
á borð við Hjálma, Benny Crespo’s
Gang, Ampop, Megas og Senuþjóf-
ana auk rokksveitarinnar Mínus.
Ljóst má vera að margir þessara
listamanna sjái á eftir Kára sem
hefur getið sér gott orðspor fyrir
að vera bæði harðduglegur og stál-
heiðarlegur; mannkostir sem alla
jafna eru ekki hafðir um fólk sem
starfar í tónlistar- og skemmt-
anabransanum.
Hver fyllir skarð
Kára Sturlusonar?
Nýverið
bárust fréttir
af því að nýj-
asta plata
Bubba Morth-
ens, Fjórir
naglar, muni
koma út á hinu
gamla og góða vínyl-formi. Nú
hefur verið greint frá því á heima-
síðu Bjarkar Guðmundsdóttur,
bjork.com, að allar plötur söng-
konunnar muni koma út á sama
formi í lok þessa mánaðar. Um
ákaflega takmarkað upplag verð-
ur að ræða, en nýrri og jafnframt
betri tækni en áður hefur þekkst
hefur verið beitt til að framleiða
plöturnar. Vínyl-áhugamenn geta
því pantað sér allt frá Gling Gló
og Debut til Drawing Restraint 9
og Volta á bjork.com, og notið
þess svo að hlusta á þær eins og
sumir segja að eigi að hlusta á
tónlist. Nú er bara spurning hvort
liðsmenn Sigur Rósar geti verið
minni menn en Björk, og verði því
ekki að gefa Með suð í eyrum …
út á vínyl líka.
Plötur Bjarkar á vínyl
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is
FYRIR fimm árum kom út lítið blað, við fyrstu
sýn ósköp meinleysislegt, Reykjavik Grapevine.
„Blaðinu var einkum ætlað að vera upplýsinga-
miðill fyrir ferðamenn, kynna borg og bæ og
áhugaverða viðburði og vera meira lifandi en
ferðamannahandbækur,“ segir Sveinn Birkir
Björnsson sem ritstýrt hefur blaðinu undanfarin
tvö ár. „Svo hefur blaðið þróast út í það að verða
um leið upplýsingamiðill fyrir innflytjendur á Ís-
landi sem ekki geta nýtt sér fjölmiðla á íslensku.
Og blaðið er vettvangur dægurmenningar og
listalífs, kryddað einstaka harðorðum pistlum
um það sem betur má fara í samfélaginu.“
Fimm gestaritstjórar
Í tilefni af fimm ára afmælinu kemur út sér-
stök aukaútgáfa af Grapevine. En þegar að er
gáð er nær lagi að kalla afmælisútgáfuna gjörn-
ing frekar en útgáfu. Fimm ritstjórar úr ólíkum
áttum fá þar fimm síður hver til að gera skil, eft-
ir eigin höfði.
Það eru Pétur Blöndal, blaðamaður á Morg-
unblaðinu, Barði Jóhannsson tónlistarmaður,
Bergur Ebbi Benediktsson, tónlistarmaður og
starfsmaður Útflutningsráðs, Sara Riel mynd-
listarmaður og Silja Magg ljósmyndari sem fá
lausan tauminn.
Á hverju mega lesendur eiga von? „Pétur
skrifar greinar tengdar tölunni fimm. Hann
ferðast t.d. með strætisvagni fimm og sér hvert
vagninn ber hann. Sara Riel gerir blaðið að sýn-
ingarsal og heldur samsýningu á síðum blaðsins
með fjórum öðrum listamönnum (samtals
fimm),“ segir Birkir. „Silja gefur lesendum svip-
myndir af fimm Íslendingum sem eru að gera
það gott í New York, Bergur er með hugleið-
ingar um útgáfuna þessi síðustu fimm ár og
Barði … konsept Barða er óræðara og treysti ég
mér varla til að útskýra það.“
Gerir sig klárt fyrir skólann
Grapevine ætlar að nota þessi tímamót til að
skerpa á hinu og þessu í blaðinu. Vefútgáfa
Grapevine verður endurhönnuð og uppfærð í
samræmi við nýjustu vefstrauma og prent-
útgáfan fær m.a. nýtt útlit og merki. „Ég reikna
með að við höldum áfram á þessari braut sem við
höfum verið að feta,“ segir Birkir. „En eins og
fimm ára barn er blaðið að gera sig klárt fyrir
skólann, og enduruppgötva sjálft sig svolítið.“
Tíu frjálsar hendur
Blaðið Grapevine fagnar fimm ára afmæli sínu á föstudaginn
Fimm gestaritstjórar leika lausum hala í sérstakri afmælisútgáfu
Morgunblaðið/G. Rúnar
Ritstjórn Grapevine Mannabreytingar hafa verið tíðar innan blaðsins og áherslur breyst í takt við
þær. Blaðið hefur hins vegar markað sér sérstöðu á íslenskum blaðamarkaði og má vel við una.