Morgunblaðið - 18.06.2008, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. JÚNÍ 2008 33
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
Ó, JÓN... HEILLA-
ARMBAND! EN SÆTT
ÞAÐ ER EINN HLEKKUR MEÐ MYND AF
KETTI OG EINN MEÐ MYND AF HUNDI
HVAÐA
HLEKKUR
ERT ÞÚ?
ÞESSI MEÐ
RÓSINNI
ÞEIR ÁTTU
EKKI HLEKK
MEÐ MYND
AF AULA
JÁ, ÞETTA ER ÁHUGAVERÐ
SPURNING... ÞAÐ ER SVO
MARGT SEM HÆGT VÆRI AÐ
SEGJA... VIÐ GÆTUM RÆTT
ÞETTA Í ALLAN DAG
HVERNIG
VÆRI
HEIMURINN
ÁN SÓLAR?
HVAÐ FINNST ÞÉR
UM MÁLIÐ?
ÞAÐ YRÐI DIMMT!
ÉG HELD AÐ BESTA SÖNNUN
ÞESS AÐ VITSMUNALÍF
FINNIST Á ÖÐRUM HNÖTTUM
ER AÐ ENGINN HEFUR ENNÞÁ
ÁKVEÐIÐ AÐ HAFA SAMBAND
VIÐ OKKUR
ÉG LAS GREIN UM ÞAÐ
HVERNIG EYÐING MANNSINS
Á REGNSKÓGUNUM HEFUR
VERIÐ ÞESS VALDANDI AÐ
MARGAR DÝRATEGUNDIR ERU
Í ÚTRÝMINGARHÆTTU
BRÁÐUM LEGGUR ÞÚ OG VERÐANDI
MAÐURINN ÞINN AF STAÐ Í FERÐALAG
NIÐUR FLJÓT LÍFSINS
ÉG MÆLI MEÐ ÞVÍ AÐ ÞÚ SITJIR AFTARLEGA Í
BÁTNUM OG SETJIR Á ÞIG BJÖRGUNARVESTI
MÉR FANNST
KÝRNAR MÍNAR
EKKI NÓGU
HRESSAR,
ÞANNIG AÐ ÉG
FÉKK MÉR EITT
HJARÐFÍFL
ADDA, MAMMA
MÍN ER ORÐIN
STJARNA Á
„YOUTUBE“
HÚN KALLAR SIG „EIN
HEIT AMMA“ OG SETUR
MYNDBÖND, ÞAR SEM HÚN
TALAR UM ÁSTARLÍF SITT,
Á NETIÐ Á HVERJUM DEGIHVAÐ?
ENGAR ÁHYGGJUR, LALLI!
ÉG HEF ALDREI HEYRT
UM „EIN HEIT AMMA“
ADDA, ÞÚ
HLÝTUR AÐ
VERA AÐ
GRÍNAST!
HVAR HEFUR
ÞÚ VERIÐ?
ÞETTA VAR STELPAN
Í MÓTTÖKUNNI...
ÞETTA ER
HRÆÐILEGT
ÉG VERÐ AÐ FINNA MÉR
EITTHVAÐ AÐ GERA Á MEÐAN M.J.
NÝTUR ÞESS AÐ VERA FRÆG
OG FYRIR MIG
ER BARA EITT
AÐ GERA...
...VERA KÓNGULÓARMAÐURINN
Velvakandi
KANADAGÆSIR með unga sína á eyjunni Heclu sem er hluti þess land-
svæðis sem íslenskum innflytjendum til Kanada var úthlutað á ofanverðri
nítjándu öld og kallað Nýja Ísland. Geysimikið fugla- og dýralíf er á þess-
um slóðum.
Morgunblaðið/Ómar
Kanadagæsir á Nýja Íslandi
Símahleranir á tím-
um kalda stríðsins
TALSVERÐ umræða
hefur farið fram um
símahleranir á tímum
kalda stríðsins að und-
anförnu og sýnist sitt
hverjum. Skoða verður
þessar hleranir í ljósi
þess ástands sem ríkti í
heimsmálunum á þess-
um tíma. Sovétríkin og
Varsjárbandalagið ann-
ars vegar og Bandarík-
in og NATO hins vegar
stóðu andspænis hvor
öðrum grá fyrir vopn-
um og mikil hætta var á
að átök yrðu þeirra á milli. Átök sem
hefðu haft afdrifaríkar afleiðingar
fyrir heimsbyggðina og mannkyn allt.
Staðreyndirnar voru þessar: Sósíal-
istar og kommúnistar voru yfirlýstir
stuðningsmenn Sovétríkjanna sem
stefndu að heimsyfirráðum og ætluðu
sér að innleiða kommúnisma um ger-
valla heimsbyggðina. Gegn þessu
stóðu Vesturveldin með NATO í
broddi fylkingar tilbúin að berjast til
þrautar. Það var því ekkert óeðlilegt
að tortryggni ríkti í garð stuðnings-
manna Sovétríkjanna. Sem betur fer
tókst BNA og NATO að kveða Sov-
étmenn og stuðningsmenn þeirra í
kútinn. Það var ekkert huggulegt
sem við blasti eftir að járntjaldið féll
og ég er viss um að þeir aðilar sem
máttu þola þessar hleranir hefðu ekki
viljað óska Íslandi að verða hluti af
þeim óskapnaði sem Sovétveldið var.
Það hefur nú verið upplýst að eng-
inn þeirra aðila sem voru hleraðir á
sínum tíma varð uppvís að því að
fremja neitt ólöglegt at-
hæfi. Það kemur mér
ekki á óvart þar sem ég
var nátengdur aðilum á
þessum lista og vel
kunnugur öðrum. Það
hefði aldrei hvarflað að
mér að einhver þeirra
hefði getað gerst sekur
um landráð. Hitt stend-
ur þó óhaggað að fólk,
sem lýsti yfir stuðningi
við ógnarveldi Sov-
étríkjanna og vildi allt
vinna til þess að koma
„Íslandi úr NATO og
hernum burt“ á þessum
tíma, var ekki yfir grun-
semdir hafið. Krafan
um að ríkisstjórnin eigi að biðjast af-
sökunar á þessum hlerunum er
óraunveruleg. Þeir sem sitja í rík-
isstjórn Íslands í dag bera enga
ábyrgð á þessu. Ekki frekar en
danska ríkistjórnin á einokunar-
versluninni á sínum tíma eða breska
ríkisstjórnin á Búastríðinu. Það væri
þó vel við hæfi að ríkisstjórnin lýsti
því yfir að hún harmaði að þessir at-
burðir hefðu átt sér stað. Það væri
einnig við hæfi að þeir sem fylgdu
Sovétmönnum í kalda stríðinu á sín-
um tíma lýstu vanþóknun sinni á
þeim ógnvænlegu atburðum og
mannréttindabrotum sem áttu sér
stað í Sovétríkjunum. Ég hef ekki
orðið var við að neinn þeirra hafi sýnt
einhverja tilburði í þá átt. Þetta er
búið og gert. Látum kyrrt liggja.
Hermann Þórðarson,
Eskivöllum 9b, Hafnarfirði.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Molasopi og dag-
blaðalestur í Króknum kl. 9-10.30, vinnu-
stofa kl. 9-16.30, sumarferð út í óvissuna,
brottför kl. 12.45.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðslustofa,
böðun, handavinna, morgunkaffi/
dagblöð, fótaaðgerðir, hádegisverður,
spiladagur, kaffi.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt
opin kl. 9-16, Halldóra leiðbeinir kl. 13-16.
Ferðaklúbburinn Flækjufótur | Skráning
í Þýskalandsferðina 22.-29. sept. er hafin,
gott aðgengi fyrir fatlaða, eldri borgarar
velkomnir. Uppl. í síma 898 2468.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar ganga frá Ásgarði, Stangarhyl 4,
kl. 10.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi verður við
til kl. 16, félagsvist kl. 13, viðtalstími FEBK
milli kl. 15-16 og bobb kl. 16.30.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Mynd-
list kl. 9, ganga kl. 10, hádegisverður,
kvennabrids kl. 13. Kaffiterían opin til kl.
16.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Brids kl. 13, bútasaumur kl. 13, opið í
Jónshúsi til kl. 16.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur kl. 10.30, leikfimi kl. 11,
handverksstofa opin, námskeið í myndlist
kl. 13, kaffiveitingar. Hárgreiðslustofa,
sími 552 2488, og fótaaðgerðastofa, sími
552 7522.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-
16. Vinnustofa í handmennt opin kl. 9-16.
Halldóra leiðbeinir frá kl. 9-12. Félagsvist
kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaaðgerðir
og handavinna kl. 9-16, aðstoð við böðun
kl. 9-14, sund kl. 10-12, hádegisverður,
verslunarferð í Bónus kl. 12.10-14, tré-
skurður kl. 13-16, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, morg-
unstund, handavinnustofan opin allan
daginn, hárgreiðslu- og fótaaðgerð-
arstofan opnar, verslunarferð kl. 12.15,
dansað við undirleik hljómsveitar kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kvöldkirkja er opin frá
kl. 17-20. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir er
til viðtals í kirkjunni og eftir samkomulagi
í síma 858 7282.
Dómkirkjan | Hádegisbænir, bænastund-
ir alla miðvikudaga kl. 12.10-12.30. Léttur
hádegisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bæn-
arefnum má koma á framfæri í síma
520 9700 eða með tölvupósti á domkirkj-
an@domkirkjan.is.
Fríkirkjan Kefas | Skemmtun hjá ung-
lingastarfinu í dag. Nánari upplýsingar á
skrifstofu Kefas.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga og morg-
unverður í safnaðarsal eftir messuna.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Hádeg-
isbænastund í kaffisalnum kl. 12. Hægt er
að senda inn fyrirbænarefni á filadel-
fia@gospel.is.
Keflavíkurkirkja | Reykjanesvitar: Mið-
vikudag kl. 19. Gengið frá Reykjanesvit-
anum upp á Valahnúk. Farið verður yfir
sögu Reykjanesvita sem var fyrsti viti á Ís-
landi. Sr. Skúli S. Ólafsson verður með
helgistund við vitann.
Kristniboðssalurinn | Samkoma í kvöld
kl. 20 í Kristniboðssalnum á Háaleit-
isbraut 58-60. Ræðumaður: Skúli Svav-
arsson. Kaffi að lokinni samkomu.
Laugarneskirkja | Morgunbæn í kirkjunni
kl. 8. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur
upp frá kirkjudyrum kl. 10.30.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15. Sr.
Sigurður Árni Þórðarson.
Vídalínskirkja, Garðasókn | For-
eldramorgunn kl. 10-12.30. Kaffi á könn-
unni.