Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 13
ERLENT
Reuters
Í öruggum höndum
ÞESSI sjaldgæfu hvítu ljónasystkin fæddust 30. júní í dýragarði í Þýska-
landi. Þann dag gutu tvær hvítar ljónynjur sjö hvítum ljónsungum. Önnur
móðirin annast sína þrjá unga sjálf, en hin afneitaði sínum. Einn þeirra dó,
en starfsmenn dýragarðsins sjá um hina þrjá og gefa þeim mjólk úr pela.
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
TYRKNESKIR saksóknarar til-
kynntu í gær um ákæru á hendur 86
manns fyrir að leggja á ráðin um að
koma ríkisstjórn Tayyip Erdogans
frá völdum. Nöfn hinna ákærðu hafa
ekki verið gerð opinber en meðal
þeirra eru fyrrverandi hershöfð-
ingjar auk stjórnmálamanna og
blaðamanna. 48 hinna ákærðu hafa
þegar verið handteknir.
Mikil ólga hefur ríkt í Tyrklandi
undanfarna mánuði og þykir ákæran
vera framhald á flókinni valdabar-
áttu sem átt hefur sér stað á milli
yfirvalda og veraldlega sinnaðra
hópa, studdra af tyrkneska hernum
og öðrum ríkisstofnunum.
Yfirvöld sæta gagnrýni fyrir að
reyna að auka þátt íslams á opinber-
um vettvangi. Allt frá tímum Mu-
stafa Kemal Atatürk, fyrsta forseta
Tyrklands á fyrrihluta síðustu aldar,
hafa skil á milli ríkis og trúar verið
grundvallandi í samfélaginu.
Stjórnarflokksins AKP bíða nú
réttarhöld og gæti svo farið að flokk-
urinn verði bannaður vegna trúar-
legrar slagsíðu, en hann hefur m.a.
unnið að tilslökunum varðandi höf-
uðklúta kvenna og sölubann á
áfengi. Forysta AKP hefur varist
ásökunum um að þeir vilji koma á
ríki íslamista í Tyrklandi og segist
hlynnt áframhaldandi aðskilnaði rík-
is og trúar.
Ákæran sem tilkynnt var um í
gær er 2.500 síðna löng og afrakstur
árslangrar rannsóknar yfirvalda á
meintu neti öfga-þjóðernissinna sem
gengur undir nafninu „Ergenekon.“
Ákæran kveður m.a. á um að
ákærðu hafi hvatt til hryðjuverka-
árása en ekki verður skýrt frá smá-
atriðum hennar fyrr en ákæran hef-
ur verið samþykkt af dómskerfinu.
Sterk ítök hersins
Stjórnarandstæðingar segja
ákærunni ætlað að þagga niður í
gagnrýnendum stjórnvalda og segja
áberandi hversu margir hinna hand-
teknu séu andstæðingar AKP-
stjórnarflokksins. Það þykir tíð-
indum sæta að lögreglan handtaki
fyrrverandi hershöfðingja. Herinn
hefur alltaf haft sterk ítök í landinu
og á sl. 50 árum hefur hann velt fjór-
um kjörnum ríkisstjórnum úr sessi.
Árið 1997 knúði herinn ríkisstjórn
Necmettin Erbakan til að láta af
völdum vegna of mikillar áherslu á
trúarleg málefni.
Stjórn Erdogans
gerir gagnárás
86 hafa verið ákærðir fyrir hryðjuverk
og valdaránstilburði í Tyrklandi
Reuters
Mótmæli Handtökur hershöfðingja
tyrkneska hersins mættu andstöðu.
Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
sigrunhlin@mbl.is
GORDON Brown, forsætisráðherra Bretlands, tilkynnti
við lok leiðtogafundar G8-ríkjanna boð sitt um að aðstoða
Nígeríumenn við að þjálfa herlið sitt til að takast á við
lögbrot í óshólmum Níger, þar sem mestu olíuuppsprett-
ur Nígeríu er að finna. Takmark hernaðaraðgerð-
anna er að hámarka olíuútflutningsgetu Nígeríu-
manna, en réttindasamtök íbúa óshólmanna hafa meðal
annars eyðilagt olíubirgðir. Áætlað er að vopnuð átök
hafi minnkað olíuútflutning um fjórðung.
Vopnahlé dregið til baka
Í kjölfar ummæla Browns dró Frelsishreyfing ós-
hólma Níger (MEND) til baka loforð um að hætta að-
gerðum gegn stjórnvöldum tímabundið, en hreyfingin
stöðvaði hernaðaraðgerðir einhliða 22. júní síðastliðinn
til að greiða fyrir friðarviðræðum. Krafa MEND er að
íbúar óshólmanna, þar sem lífsskilyrði eru afar bág
vegna fátæktar og olíumengunar, fái hlutdeild í hagnaði
af olíuvinnslu. Til þess hafa þeir meðal annars sprengt
olíuleiðslur og tekið gísla.
Er tilboð Browns spor í rétta átt?
Fréttaskýrandi breska blaðsins Independent, Johann
Hari, sagði í grein sem birtist í vefútgáfu blaðsins í gær
að tvennt hefði getað kveðið niður óróa á óshólmasvæð-
unum: Að verða við kröfum MEND eða að halda ósáttum
íbúum niðri með vopnavaldi. Brown hafi óumbeðinn tekið
seinni pólinn í hæðina, vegna þess að hitt hefði verið
tímafrekara og dýrara. Hari ályktaði að þarna væri við
bresku þjóðina að sakast og að hún ætti að hugsa sig um
áður en hún kvartaði undan háu eldsneytisverði, því það
gæti bitnað á þeim sem síst skyldi. Að sögn Haris reyndu
íbúar óshólmanna friðsamlegar aðgerðir, en voru bók-
staflega skotnir niður af yfirvöldum. Aðgerðir á borð við
þær sem MEND stendur fyrir séu neyðarúrræði. Forseti
Nígeríu, Umaru Yar’Adua heimsækir Breta í næstu viku.
Vesturlandabúar íhugi
afleiðingar olíugræðgi
Reuters
Eldur Slökkviliðsmenn nálægt Lagos í Nígeríu berjast
við eld út frá sprunginni olíuleiðslu í maí síðastliðnum.
LUIS Moreno-
Ocampo, sak-
sóknari stríðs-
glæpadómstóls-
ins í Haag, sakar
Omar Hassan al-
Bashir, forseta
Súdans, um þjóð-
armorð, stríðs-
glæpi og glæpi
gegn mannkyni í
nýrri skýrslu
sinni. Er al-Bashir sakaður um að
bera ábyrgð á glæpum vígasveita
gegn blökkumönnum í Darfur-
héraði á undanförnum árum.
Sameinuðu þjóðirnar hyggjast
draga megnið af starfsliði sínu frá
Darfur á næstunni. Talið er að
Moreno-Ocampo muni leggja fram
ákæru á hendur Bashir en nefnd
þriggja dómara dómstólsins mun
síðan ákveða hvort gefin verði út
handtökuskipun. Yfirvöld í Súdan
viðurkenna hins vegar ekki lögsögu
dómstólsins í Haag. kjon@mbl.is
Fer al-Bashir
fyrir rétt?
Omar Hassan
al-Bashir
TÆPLEGA þrjá-
tíu rússnesk ung-
menni blinduðust
þegar leysi-
geislasýning á
reif-danshátíð
sem haldin var 5.
júlí síðastliðinn í
bænum Vladímír
skammt austan
við Moskvu fór
úrskeiðis. Þegar
leysigeislarnir voru settir upp fyrir
hátíðina gleymdist að gera ráð fyr-
ir tjöldum sem voru á svæðinu
vegna mikilla rigninga, og í stað
þess að lýsa beint upp í himininn
endurkastaðist hluti geislanna í
augu gestanna með fyrrgreindum
afleiðingum.
Sjónhimnur ungmennanna
brenndust og eru settar örum. Sum
þeirra misstu allt að 80% sjónar-
innar og óttast læknar að skaðinn
sé varanlegur. sigrunhlin@mbl.is
Reif í augað
Leysigeislar Lista-
verk í Genf í Sviss.
GANGI allt að óskum verður frum-
gerð JHL-40-loftfarsins komin á
flug árið 2012, en þróunarvinnan
hefur staðið í 25 ár. Ofurloftfarinu
er ætlað að flytja farm á milli af-
skekktra staða og sjá fjórir Boeing-
hreyflar um að knýja farið og lyfti-
búnað þess. Talsmenn Boeing og
SkyHook segja loftfarið hentugt
fyrir olíu- og gasfyrirtæki, það auð-
veldi þungaflutninga og spari vega-
lagnir í óbyggðum. jmv@mbl.is
! "
$#
!"
""
!
%
! ! !&'(
#!"
)
!
$
* $
% '(
! !"
%
+ ! &,
"" ,
&" -
!
!. /0 1. 22 . 32 1
!
*!
'()
*
+
,
-#.
Ofurloftfar í óbyggðum
Hverjir selja nígeríska olíu?
Shell hefur verið stærsti útflytjandinn síðan olíu-
lindirnar uppgötvuðust um 1960, um það leyti sem Níg-
ería öðlaðist formlegt sjálfstæði undan Bretum. 80%
olíu sem dælt er upp í Nígeríu kemur frá Níger-
óshólmunum.
Hverjir kaupa olíuna?
Bretar fyrst og fremst, en fast á hæla þeirra koma
Bandaríkjamenn.
Hver er staða heimamanna?
Olíuútflutningurinn hefur ekki orðið til að færa þjóðinni
almenna velsæld þótt sumir hafi grætt. Landbúnaður
og veiðar eru nú illmöguleg í óshólmum Níger vegna
olíumengunar. Frelsishreyfing óshólma Níger (MEND)
berst fyrir því að íbúar þeirra fái bætur og hluta hagn-
aðar af olíuútflutningi.
S&S