Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 15

Morgunblaðið - 15.07.2008, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 15 MENNING ÁÐUR óbirt bréf milli tveggja rit- höfunda varpa nýju ljósi á hinn þekkta Bloomsbury-hóp sem starf- aði í London á fyrstu áratugum síð- ustu aldar. Meðal félaga í höpnum voru Virginia Woolf, John Maynard Keynes, E. M. Forster og Lytton Strachey. Rithöfundurinn Vita Sackville- West var ástkona Virginiu Wolf. Eftir að hún lést átti Sackville-West í bréfaskriftum við yngri skáldkonu, Margaret Howard að nafni. Í bréf- unum lýsti hún sambandi sínu við Wolf og dró upp svipmyndir af vin- um þeirra og menningarlífinu í London. Sackville-West var fyr- irmyndin að titilpersónu einnar þekktustu bókar Woolf, hinni tví- kynja Orlando sem ferðaðist um í tíma. Bréfaskiptin milli skáldkvenn- anna tveggja hófust sama ár og Virginia Woolf framdi sjálfsmorð. „Þú vekur með mér mikinn söknuð eftir Virginiu,“ skrifar Sackville- West. „Hvernig þú kannt að meta snilligáfu hennar og hvað þú ert spennt að hafa uppgötvað skrif hennar. Það er stór áfangi í lífi manns að lesa verk eftir hana í fyrsta skipti.“ Bréfin verða slegin hæstbjóðanda hjá Sotheby’s uppboðshúsinu á fimmtudaginn. Þau eru um 150 tals- ins og spanna tvo áratugi. Sackville- West talar meðal annars um að það orð sem fór af Woolf fyrir að vera kuldaleg hafi verið óverðskuldað. „Virginia hafði miklu meira til að bera en kaldar gáfur. Hún var mjög hlý og mannleg við þá sem hún elsk- aði. Það voru að vísu fáir og hún gerði miklar kröfur, en ást hennar og umhyggja var mjög einlæg þegar hún ákvað að veita einhverjum hana.“ gunnhildur@mbl.is Blooms- bury í nýju ljósi Bréf ástkonu Virg- iniu Woolf boðin upp Ást Vita Sackville-West átti í sam- bandi við Virginiu Woolf. LJÓÐASTUND í tali og tón- um verður í Listasal Mosfells- bæjar annað kvöld klukkan átta. Jóhann Hjálmarsson og Christopher Burawa lesa úr ljóðum sínum og þýðingum og Tríó Carls Möller fléttar inn djasstónum. Tríóið skipa þeir Carl Möller, Guðmundur Steingrímsson og Bjarni Sveinbjörnsson. Tónlistin er eftir Carl Möller og fleiri. Jóhann Hjálmarsson hefur sent frá sér sautján ljóðabækur, hina fyrstu árið 1956. Christopher Burawa kennir enskar bókmenntir og skapandi skrif við háskólann í Arizona og starfar við ritstörf og þýðingar. Bókmenntir Ljóða- og djass- flétta í Mosfellsbæ Jóhann Hjálmarsson Í JÚLÍ og ágúst stendur Tónlistarfélag Ísafjarðar fyrir tónleikaröðinni Sumar í Hömrum, og verða tónleik- arnir yfirleitt á fimmtudags- kvöldum kl. 20. Ungt lista- fólk er í meirihluta þeirra sem fram koma á sumartón- leikunum. Tónleikaröðin hefst næsta fimmtudagskvöld kl. 20 með tónleikum tónlist- arhópsins Slyngur. Hópinn skipa Arnþrúður Gísladóttir, sem leikur á þverflautu, Bjarni Frí- mann Bjarnason, víóluleikari, fiðluleikararnir J. Páll Palomares og Viktor Orri Árnason og Þor- gerður Edda Hall sellóleikari. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Tónlist Slyngur byrjar Sumar í Hömrum Tónlistarhópurinn Slyngur. FYRSTU bækur bókaútgáf- unnar Opnu komu út fyrir helgina. Önnur fjallar um Jök- ulsárgljúfur en hin er stór myndabók um stjörnufræði. Í bókinni Jökulsárgljúfur: Dettifoss, Ásbyrgi og allt þar á milli eftir Sigrúnu Helgadóttur er fjallað um landslag svæð- isins, lífríkið og fólkið sem hef- ur byggt það ásamt mót- unarsögu þess. Þá fylgir henni gönguleiðakort með tengingum við meginmál bókarinnar. Höfundur Ferðar um himingeiminn er danski stjörnufræðingurinn Jan Teuber. Þar birtist safn af nýjustu ljósmyndum úr himingeimnum. Bókmenntir Upp í himininn og niður í gljúfur Bókin Ferð um himingeiminn. ÞETTA er í fyrsta sinn sem Blá færsla er sýnd á Íslandi. Ég sýndi það fyrst árið 1988 í Helsinki, í landi skóganna,“ segir Kristján Guð- mundsson um verkið sem nú er sýnt á Kjarvalsstöðum, á sýningunni Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist. Þar standa fimm stórar dagblaðapappírsrúllur á gólfi og hefur blátt blek dropað niður í end- arúllurnar og litað þær. „Ég kalla verkið Bláa færslu þar sem blekið færist til, úr einum stað í annan,“ segir hann. Þetta er í sjöunda skipti sem verk- ið er sett upp og í fyrsta sinn á Ís- landi,“ segir Æsa Sigurjónsdóttir sýningarstjóri. „Blá færsla er líklega stærsta verk Kristjáns, sem verk og sem hlutur – þetta eru tæp fimm tonn af pappír. Þótt verkið líti út fyr- ir að vera skúlptúr þá er þetta teikn- ing sem verður til í tíma. Við sjáum tíma líða þegar við horfum á blekið renna niður. Svo er þetta líka vísun í það hvað teikning er og hvort það sé hægt að gera teikningu án þess að mannshöndin komi þar nærri,“ segir Æsa. Kristján segir blekið yfirleitt vera um þrjá sólarhringa að leka úr flöskunum – svo sígi það niður í rúll- urnar. „Þetta er í raun „perform- ans“-teikning, og skúlptúrteikning líka, og tímaverk. Þetta kemur inn á ýmislegt. Verkið er sett af stað og svo gengur það.“ Hann segir verkið hafa verið nokkuð mismunandi í uppsetn- ingum, rúllurnar á Kjarvalsstöðum séu þær stærstu sem hann hefur not- að. „Þegar verkið er búið, sýning- unni lýkur, þá er hægt að gefa þenn- an pappír í leikskóla, að minnsta kosti rúllurnar sem ekkert blek er á. Annars get ég gert mörg þúsund teikningar, með því að vefja utan af rúllunum,“ bætir Kristján við hugsi, „og sjá hvernig þetta lítur út að inn- anverðu. Það gæti verið forvitnilegt að röntgenmynda rúllurnar.“ efi@mbl.is Blekið færist til Verkið Blá færsla eftir Kristján Guð- mundsson sýnt í fyrsta sinn á Íslandi Morgunblaðið/Einar Falur Tímateikning Kristján Guðmundsson tekur tímann á milli fyrstu blekdrop- anna er láku á pappírsrúllurnar við uppsetningu verksins Blárrar færslu. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is Á SUMARSÝNINGU Kjarvals- staða, sem nefnist Draumar um ægi- fegurð í íslenskri samtímalist og var hluti af Listahátíð, birtist ekki hefð- bundin sýn listamanna 20. aldarinnar á mikilfengleika íslenskrar náttúru. Þarna eru engin málverk heldur vafrar Laddi um snæhvíta auðn með hlaðna byssu og hleypir við og við af. Við horfum ofan í framkvæmdum rist stíflustæði, sjáum ýkta, tölvu- gerða draumaheima, ljósmyndir af jökulsporðum og pappírsrúllur sem blek hefur teiknað í. Sýningarstjór- inn, Æsa Sigurjónsdóttir listfræð- ingur, segir að þegar hún hóf að und- irbúa sýninguna, sem fyrst var sett upp í Brussel, hafi það vakið athygli hennar að íslenskir listamenn voru farnir að fjalla um náttúruna á allt annan hátt en þeir höfðu gert áður. „Það varð ákveðinn byrjunarreitur,“ segir Æsa. „Ég vildi vekja athygli á því að íslenskir listamenn væru að fjalla um náttúruna út frá stærri for- sendum en áður. Listamenn eru ekki að taka nátt- úruna sem gefna í dag og heldur ekki að taka hana of hátíðlega.“ Þegar landið var ferskt Elstu verkin eru ljósmyndaröð Vigfúsar Sigurgeirssonar frá um 1930, sem sumar birtust í bókinni Das Unbekannte Island sem kom út 1936. „Ég lít á þessar ljósmyndir sem ákveðið arkíf og þær eru sýnishorn af þessu ægifagra sjónarhorni sem íslensk landslagsljósmyndun byggir á og síðar varð einhverskonar klisja um Ísland. Þegar Vigfús byrjar að mynda er landið algjörlega ferskt. Myndir hans eru ákveðinn upphafs- reitur á sýningunni.“ Leikið með þjóðlega sýn Æsa segir tvo þungaviktarmenn sem eru orðnir hluti af okkar klass- ísku hefð eiga þarna verk, það eru þeir Hreinn Friðfinnsson og Kristján Guðmundsson. Fjalla þeir ekki beint um náttúruna sem slíka heldur spyrja stærri spurninga um tímann. Mest áhersla er lögð á ljósmyndir og myndbönd og Æsa segist hafa viljað fjarlægja skil milli hópa sem hafa verið áberandi, eins og mynd- listarmanna sem taka ljósmyndir og ljósmyndara sem taka ljósmyndir. „Ég vildi reyna að setja fulltrúa þeirra hlið við hlið, en þeir fjalla oft um sömu hlutina þótt þeir fjalli um þá á ólíkan hátt. Ólafur Elíasson á hér tvær mynd- raðir en hann er að sýna hvernig við horfum á náttúruna frá vísindalegu sjónarhorni. Myndaseríur hans vöktu mikla athygli þegar þær komu fram undir lok síðustu aldar og ég held að þær hafi haft mikil áhrif á það hvernig fólk hefur horft á landið og kannski enduruppgötvað Ísland sem landsvæði þar sem enn er hægt að finna ægifegurð. Fólk skynjar náttúru og umhverfi á nýjan hátt á hnattræna vísu og þessi sýning fjallar um það hvernig íslenskir listamenn bregðast við og túlka þessa nýju upplifun. Þeir eru líka að leika sér með túristaklisj- urnar og með þessa þjóðlegu sýn sem íslenskir listamenn höfðu á nátt- úruna áður,“ segir Æsa. Klisjurnar um Ísland Íslenskir myndlistarmenn eru farnir að fjalla um náttúruna á annan hátt Morgunblaðið/Einar Falur Breyting „Listamenn eru ekki að taka náttúruna sem gefna í dag og heldur ekki að taka hana of alvarlega,“ segir Æsa Sigurjónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.