Morgunblaðið - 15.07.2008, Page 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
/ ÁLFABAKKA
MAMMA MIA kl. 3:40 - 5:40D - 8D - 10:20D LEYFÐ DIGITAL
MAMMA MIA kl. 5:40 - 8 - 10:20 LEYFÐ LÚXUS VIP
KUNG FU PANDA M/ÍSL. TALI kl. 3:40D - 6 LEYFÐ DIGITAL
KUNG FU PANDA M/ENS. TALI kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 LEYFÐ
HANCOCK kl. 8 - 10:10 B.i. 12 ára
WANTED kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 16 ára
CHRONICLES OF NARNIA kl. 5 B.i. 7 ára
INDIANA JONES 4 kl. 8 B.i. 12 ára
THE BANK JOB kl. 10:20 B.i. 16 ára
MEET DAVE kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára
WANTED kl. 8D - 10:20D B.i. 16 ára DIGITAL
KUNG FU PANDA m/ísl. tal kl. 6D LEYFÐ DIGITAL
CHRONICLES OF NARNIA kl. 6 - 9 B.i. 7 ára
/ KRINGLUNNI
SÝND Í KRINGLUNNI OG KEFLAVÍK
Þau komu langt utan úr geimnum...
í dulargervi sem hæfði veröld okkar
fullkomnlega...
Það er heill heimur inni í honum sem heldur honum gangandi
SÝND Í ÁLFABAKKA, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
,,Ævintýramynd Sumarsins”
- LEONARD MALTIN, ET.
,,Besta spennumynd ársins”
- TED BAEHR, MOVIEGUIDE.
eeee
Yfirburða snilldarleg bresk- bandarísk
gaman-, söng- og dansræma byggð á
svellandi ABBA-lögum, frábærlega fjörug,
fyndin, fjölskrúðug og kynþokkafull.
- Ó.H.T, Rás 2
eee
“Hressir leikarar, skemmtilegur fílingur og
meiriháttar tónlist!”
- T.V. - Kvikmyndir.is
Þú ert búinn að fá nóg af skrif-ræðinu, þú ert búinn að fánóg af mannréttindabrotum,
þú ert búinn að fá nóg af hinu
ríkjandi ástandi. Nú er kominn tími
til að gera eitthvað, en hvað? Mót-
mæla? Stofna pönkhljómsveit? Ger-
ast graffari? Öskra útá götu? Nei,
auðvitað ekki, þú skiptir um far-
símafyrirtæki.
Ámeðan fjöldi Íslendinga mót-mælti því að Paul Ramses væri
vísað úr landi og eftir að tugþús-
undir höfðu mætt á tónleika í Laug-
ardal til stuðnings náttúrunni þá
þótti fjarskiptafyrirtækinu Voda-
fone við hæfi að fara í gang með
auglýsingaherferðina Skítt með
kerfið! Pönkstjörnur Íslands birtast
í sjónvarpsauglýsingu og kyrja
„Skítt með kerfið!“ og farþegar
strætó fá sömu upplýsingar í skýlum
skreyttum ungum tvífara Bjarkar
Guðmundsdóttur.
En vitaskuld er Vodafone jafn-
mikill hluti af hinu kapítalíska kerfi
og ríkisstjórnir og álver, enda eitt
stærsta ef ekki stærsta farsímafyr-
irtæki veraldar, með veltu upp á
milljarða árlega. En einmitt svona
virkar kerfið best – í stað þess að
taka orðræðuna – hvort hafa pönk-
ararnir rétt fyrir sér eða við? – þá
kaupir það orðræðuna, borgar
pönkurunum til þess að pönkast á
kerfinu, innan kerfisins.
Þar með deyr pönkið endanlega,
er innlimað í kerfið, byltingin étur
börnin sín.
Svona dó íslenska pönkið – en lifirbyltingin úti í heimi? Í fyrstu
bandarísku mynd rússneska leik-
stjórans Timur Bekmanbetov, Want-
ed, þá er liðleskjan Wesley (leikinn
af Skotanum James McAvoy) einmitt
búin að fá nóg af kerfinu – og lausn
hans undan okinu reynist sú að
byrja að drepa fólk.
En vitaskuld eru þau dráp einnig
hluti af kerfinu, hann gengur í leyni-
félag launmorðingja sem hafa svip-
að samband við örlögin og örlaga-
nornirnar þrjár, lesa í spunavef
hvern þurfi að drepa næst til þess að
viðhalda jafnvægi alheimsins.
Það er raunar erfitt að lesa íWanted því það er oft erfitt að
átta sig á ætterni myndarinnar,
þetta er rússnesk mynd í bandarísk-
um búningi. Þannig virðist Bek-
manbetov í aðra röndina vera að
deila á rússnesku mafíuna (Wesley
verður jú bara launmorðingi af því
pabbi hans er það) og þá þræði sem
liggja frá henni um allt samfélagið,
blóði drifna þræði sem enda flestir í
vel snyrtum höndum fyrirmenna.
En um leið er hann að fjalla um
hina bandarísku áróðursvél sem tel-
ur sig geta sannfært veröldina um
að þeir geti valið hverja skuli drepa
til þess að vernda fjöldann, til þess
að vernda þig. Þú, fjöldinn og vest-
rænu gildin verandi veigrunarorð
fyrir kerfið sem allir þykjast gefa
skít í.
En kannski tókst alþjóðavæðing-unni þarna að finna örlitla
glufu í kerfinu, örlítið gat sem kerfið
er ekki alveg búið að átta sig á
ennþá. Þegar bandarískur hasar er
búinn til úr rótsterkri rússneskri
uppskrift, mallaðri í nýfrjálsum kap-
ítalisma Villta austursins, þá firrast
gagnrýnendur við og vita ekki alveg
hvað þeir eiga að halda.
Gagnrýnendur ná ekki almenni-
lega til botns, jafnvel þótt þetta virð-
ist ósköp hefðbundin hasarmynd í
flestu, náðist hér að smygla ein-
hverju inn í poppkúltúr sem er far-
inn að éta sjálfan sig innan frá? Og
ef svo er, er það endilega eitthvað
æskilegt?
Myndin hefur verið sökuð um ým-
islegt, þar á meðal fasisma – og
vissulega er brosið á Wesley þegar
hann drepur fórnarlömb sín grun-
samlega breitt. En það er líka út af
því hann hefur skipt út einni blekk-
ingu fyrir aðra, og þessi blekking
veitir honum fró, hlutverk í lífinu –
og tálsýn um vald.
En það verður vitaskuld fyllt uppí þessa glufu, jafnvel áður en
blaðið fer í prentun. Rússneska
mafían er komin til Washington,
McDonalds til Moskvu, Roman
Abramovich kemur til Íslands. Kerf-
ið verður flóknara, þræðirnir liggja
víðar, en það heldur áfram að
styrkjast.
Og allt þetta ofbeldi? Það er ekkiuppfinning Bekmanbetov. Ný-
lentur í Bandaríkjunum, óviss um
hvernig ætti að gera bandaríska
hasarmynd, þá fór hann og talaði við
bíógestina, unga Bandaríkjamenn,
og komst að því að draumar þeirra
voru fullir af ofbeldi og blóði. Þetta
er fólkið sem borgar fyrir miðann,
fólkið sem vill flýja í örskotsstund.
Þetta erum við, þetta er kerfið, þetta
erum við að biðja um okkar blekk-
ingu, næsta skammt. Við erum kerf-
ið og með hjálp Vodafone hefur okk-
ur loksins tekist að gefa skít í okkur
sjálf – nema við stöndum upp og
mótmælum almennilega og hættum
að láta hafa okkur að fíflum.
asgeirhi@mbl.is
Skítt með hugsjónirnar!
AF LISTUM
Ásgeir H. Ingólfsson
» Bandarískur hasar, búinn til úr rótsterkri rúss-neskri uppskrift, mallaðri í nýfrjálsum kapítal-
isma Villta austursins.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Öskrað á strætóskýli Ein af auglýsingum Vodafone úr Skítt með kerfið-herferðinni.
BANDARÍKJAMENN mega eiga
von á því innan tíðar að tóbaksvarn-
arauglýsingar birtist á DVD-diskum
á undan öllum
kvikmyndum
sem sýna reyk-
ingar og börn 13
ára og yngri
mega horfa á.
Fjórar slíkar
auglýsingar hafa
þegar verið gerð-
ar og hafa kvik-
myndafyrirtækin í Hollywood sam-
þykkt að setja þær á mynddiska
sína.
Reiknað er með því að tugmillj-
ónir manna muni sjá auglýsingarnar
um heim allan, á undan myndum á
borð við Indiana Jones and the King-
dom of the Crystal Skull, Get Smart
og 21. Ríkisstjóri Kaliforníu, Arnold
Schwarzenegger (sem sést púa vind-
il á meðfylgjandi mynd) greindi frá
þessu föstudaginn síðastliðinn. Þetta
væri stórt skref í baráttunni gegn
reykingum.
Fyrirtækin Sony, Universal Stud-
ios, Time Warner, Paramount, Walt
Disney Studios og Twentieth Cent-
ury Fox hafa öll skrifað undir samn-
ing við Entertainment Industry
Foundation og Heilbrigðisstofnun
Kaliforníu um auglýsingarnar.
Varað við
reykingum
á DVD
FYRIRSÆTAN fyrrverandi Christ-
ie Brinkley féllst á að greiða eig-
inmanni sínum fyrrverandi, Peter
Cook, 2,1 milljón dollara og ljúka
með því hatrömmum skilnaðar-
málaferlum. Við málaferlin kom
m.a. fram að Cook hafði sængað hjá
aðstoðarkonu sinni sem var aðeins
18 ára og greitt henni 300.000 doll-
ara fyrir að þegja um framhjáhald-
ið. Auk þess eyddi hann 3.000 doll-
urum á mánuði í klám á tímabili.
Brinkley er 54 ára en var geysi-
vinsæl fyrirsæta á 9. áratugnum.
Hún á nú fjögur hjónabönd að baki
og segist ekki ætla að ganga í það
heilaga aftur.
Eignir Brinkley eru metnar á 60
milljónir dollara.
Ætlar ekki að
gifta sig aftur
Áður fyrr Peter Cook og Christie
Brinkley á hjónabandsárunum.