Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 1
Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur
ylfa@mbl.is
FÆRST hefur í aukana að áhvílandi
lán á íbúðarhúsnæði hækki upp undir
söluverð íbúða og fari jafnvel yfir
söluverðið, sökum verðbólgu og geng-
isþróunar. Það heyrir þó yfirleitt til
undantekninga, enn sem komið er, en
nokkrir fasteignasalar, sem rætt var
við, sögðust hafa heyrt dæmi um slíkt.
Mun aukast dragi
ekki úr verðbólgunni
Að sögn Ingibjargar Þórðardóttur,
formanns Félags fasteignasala, er
framboðið af íbúðum, þar sem áhvíl-
andi skuldir eru ámóta háar og sölu-
verðið, ekki mikið. Þeir íbúðaeigend-
ur, sem versnandi efnahagsástand
hefur komið hvað harðast niður á, séu
helst þeir sem keyptu með gengis-
tryggðu lánunum sl. haust og fram yf-
ir áramót. Þeir sem keyptu fyrr hafa
hins vegar notið þeirra hækkana sem
orðið hafa á fasteignum síðustu fjögur
árin. Verðtryggðu lánin hafi ekki náð
að éta upp þær hækkanir enn sem
komið sé.
Ingibjörg segir að dragi ekki úr
verðbólgunni megi búast við því að
fleiri muni eiga í erfiðleikum með að
standa í skilum. „Sérstaklega núna
eins og staðan er, að afborganir hafa
hækkað mikið og þá helst á erlendu
Áhvílandi lán
um og yfir
söluverðinu
„Afborganir hafa hækkað mikið“
Mestar álögur vegna gengislána
lánunum. Þau eru ekki þessi „annui-
tets-lán“ þar sem er borgað jafnt út
allt tímabilið heldur er aðeins verið að
borga jafnar afborganir. Nú þegar
gengið hefur veikst um rúm 40% frá
áramótum þá þýðir þetta auknar
álögur á þá sem hafa tekið þessi lán.“
Hins vegar er það mat Ingibjargar
að fólk reyni að standa í fæturna í
lengstu lög hvað íbúðalánin varðar og
því hafi lítið borið á því að fólk neyðist
til að selja eignir sínar.
Gengisbundin
íbúðalán
JÚLÍ 2007
32,303
MILLJARÐAR
JÚNÍ 2008
90,989
MILLJARÐAR
F Ö S T U D A G U R 2 5. J Ú L Í 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
202. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Leikhús
í sumar >> 33
Grill-leikur
me› s‡r›um rjóma!
Kauptu dós af sýrðum rjóma frá MS,
farðu á www.ms.is, sláðu inn lukku-
númerið sem er í lokinu. Þú gætir unnið
glæsilegt Weber-grill eða
vandað grillsett.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
0
8
-1
0
2
0
REYKJAVÍKREYKJAVÍK
MUGISON OG FÉLAGAR
ERU KOMNIR HEIM
DAGLEGTLÍF
Með bílabrautir
á handleggnum
LOKS þykir ljóst hvers vegna
norðurljósin dansa, en því veldur
samspil segulsviðs jarðar og hlað-
inna agna frá sólvindum. Gervi-
hnettir NASA sem rannsaka áttu
fyrirbærið „segulhviður“ (e. geo-
magnetic substorms) sýndu að
norðurljós lifna við þegar orka
losnar vegna spennulosunar á
„teygðri“ segulsviðslínu 130.000
km frá jörðu. sigrunhlin@mbl.is
NASA uppgötvar hvers
vegna norðurljósin dansa
TILRAUNARVERKEFNI á veg-
um Orkuseturs og Samorku á Ak-
ureyri með tengiltvinnbíl hefur gef-
ist vel. Tilraunabíllinn er breyttur
Toyota Prius tvinnbíll sem hefur
fengið stærri og öflugri rafhlöðu,
líþíumjárnfosfat-rafhlöðu, sem hlaða
má með utanaðkomandi rafmagni.
Eigandi bílsins segir tæknina bylt-
ingu en bíllinn eyðir að jafnaði rúm-
um tveimur lítrum á hundraðið með
réttum akstri. » Bílar
Tveir lítrar á hundraðið
DEILT er um hvort ál sé „grænn
málmur“ eða ekki. Hér á landi eru
framleidd nærri 790.000 tonn af áli á
ári og flutt inn um 1.520.000 tonn af
súráli. Við framleiðslu þess magns af
súráli í útlöndum verður til a.m.k.
ein og hálf milljón tonna af rauðri
leðju á hverju ári, basískum úrgangi
sem inniheldur vítissóda og brenni-
stein. Forsvarsmenn íslenskra álfyr-
irtækja segja móðurfélög sín gera
kröfur í umhverfismálum og hráefni
þeirra sé ekki komið frá umhverf-
issóðum. » 20
Milljónir tonna af rauðri
leðju verða til á hverju ári
Eftir Halldór Armand Ásgeirsson
haa@mbl.is
ÖSSUR Skarphéðinsson iðnaðarráð-
herra veltir fyrir sér í nýjum pistli á
heimasíðu sinni hvort skynsamlegt
gæti verið að bjóða út orkuvinnslu á há-
hitasvæðunum fyrir norðan.
Tilefnið er yfirlýsingar Landsvirkj-
unar þess efnis að ákvörðun um að
senda Gjástykki í umhverfismat hafi
aukið áhættu í tengslum við stóriðju á
Bakka. Össur segir í pistlinum að alltaf
sé töluverð áhætta fólgin í vinnslu orku
úr jarðhita. „Það er spurning, hvort
ríkið eigi að bera þá áhættu – ef aðilar á markaði eru reiðu-
búnir til að axla hana. Eftir því hefur ekki verið leitað svo
iðnaðarráðuneytinu sé kunnugt. Hefur Landsvirkjun velt
því fyrir sér? Ætti ríkisstjórnin að velta því fyrir sér?“
Ráðherrann bendir jafnframt á að síðasta vor hafi Al-
þingi samþykkt lög sem banna að selja orkulindir úr op-
inberri eigu en ekki sé bannað að leigja réttinn til orku-
vinnslu í ákveðinn tíma.
Hann bætir við að útboð á orkuvinnslu háhitasvæðanna
myndi styrkja íslensku orkufyrirtækin. Ennfremur myndi
slíkt losa eigendur Landsvirkjunar, ríkið og skattborg-
arana undan þeirri áhættu sem Landsvirkjun hefur kvart-
að yfir. „Ef fyrirtækið telur að áhættan sé mikil er þá ekki
skylda þess að leita leiða til að lágmarka þá áhættu fyrir
hönd eigenda sinna?“
Iðnaðarráðherra veltir fyrir sér nýstárlegum möguleikum
Háhitasvæðin boðin út?
Össur
Skarphéðinsson
„VIÐ ætlum að reyna að þrauka, þetta ástand hlýtur að lagast þótt það taki
kannski 2-3 ár,“ segir kona nokkur sem tók erlent lán í september 2007.
Lánið er í japönskum jenum og svissneskum frönkum og hljóðaði láns-
upphæðin upp á 70 milljónir þegar það var tekið. Í dag stendur lánið í 100
milljónum.
Samkvæmt nýjustu tölum Seðlabankans hafa erlend lán heimilanna
hækkað úr tæpum 94 milljörðum í júlí 2007 í rúma 223 milljarða nú í júní.
Þar af eru skuldir vegna íbúðalána tæpur 91 milljaður en voru rúmir 32.
30 milljóna hækkun
ÍSLANDSMEISTARINN Björgvin Sigurbergsson úr Keili lék frábært
golf í gær á fyrsta degi Íslandsmótsins í höggleik sem hófst þá í Eyj-
um. Hann hefur þriggja högga forystu í karlaflokki líkt og Eygló
Myrra Óskarsdóttir úr Oddi í kvennaflokki. Á myndinni er Íslands-
meistari kvenna, Nína Björk Geirsdóttir, sem er fimm höggum á eftir
Eygló Myrru þegar þrír hringir eru eftir. | Íþróttir
Morgunblaðið/Sigfús
MIKIÐ SLEGIÐ Í
VINDI OG REGNI
Björgvin og Eygló Myrra léku best