Morgunblaðið - 25.07.2008, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf
Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gud-
laug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ÍSLENDINGAR
á leið til Banda-
ríkjanna munu frá
og með 12. janúar
2009 þurfa að fylla
út rafrænt eyðu-
blað með ýmsum
upplýsingum fyrir
brottför.
Hingað til hafa
ferðalangar þurft
að fylla út efnis-
legt, grænt eyðublað um borð í flug-
vélum en rafræna skráningarkerfið
mun smám saman taka við af því.
Sömu spurningar verður að finna í
rafræna kerfinu og hinu fyrra. Kerfið
nær til allra ríkja sem njóta undan-
þágu frá vegabréfsáritun til Banda-
ríkjanna (Visa Waiver Program) og
Ísland er eitt þeirra.
Rafræna kerfið auðveldar alla úr-
vinnslu gagna og einnig fólki ferðalög
til Bandaríkjanna enda mun það nú
vita fyrir brottför hvort því sé heimilt
að ferðast þangað eða ekki. Fólk mun
því ekki vera sent aftur til baka reyn-
ast einhverjar upplýsingar ófullnægj-
andi. Mælst er til þess að fólk fylli út
rafræna eyðublaðið í það minnsta 72
klukkustundum fyrir brottför. Svar
um hvort ferðalagið er heimilt mun
berast um hæl.
Kerfið verður á veraldarvefnum og
mun verða opnað 1. ágúst. Þann 12.
janúar 2009 verður öllum skylt að
fylla út upplýsingar þar fyrir brottför.
Öll svör verða að vera á ensku og hver
skráning er virk í tvö ár. Jákvætt svar
heimilar aðeins ferðalag til Banda-
ríkjanna en er ekki ótvírætt loforð um
að viðkomandi fái aðgang inn í landið.
haa@mbl.is
Rafræn
skráning
tekur við
Ferðalög til Banda-
ríkjanna auðvelduð
Netið Skráning
verður rafræn.
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„MAÐUR hefur varla tíma til að
bursta í sér tennurnar, það er svo
margt að gerast. Maður er ekki al-
veg búinn að átta sig,“ segir Þor-
móður Árni Jónsson júdókappi.
Það er skammt stórra högga á
milli hjá Þormóði. Á þriðjudaginn
sl. fæddist honum og Bylgju Dögg
Sigurðardóttur, kærustu hans, son-
ur og þann 15. ágúst nk. keppir
hann í júdó fyrir Íslands hönd á Ól-
ympíuleikunum.
Þormóður hefur æft fjóra tíma á
dag undanfarið og það verður
þannig alveg fram að Ólympíu-
leikum. „Síðustu dagar hafa farið í
stífar æfingar og þess á milli hef ég
bara verið uppi á spítala að sinna
konunni,“ segir Þormóður. Sonur
þeirra er fyrirburi, en heilsast vel.
Vel undirbúinn
Sonur Þormóðs og Bylgja verða
heima á Íslandi meðan hann keppir
úti í Kína. Foreldrar hans verða þó
í Peking að styðja við bakið á hon-
um og hann á vini í Kína sem ætla
að fylgjast með.
Þormóður segist vel undirbúinn.
„Í júdóinu er það þannig að ekkert
er fyrirfram ákveðið. Það getur allt
gerst. Stundum þarf bara ein mis-
tök hjá mótherja og þá er sigurinn í
höfn. Ég þori ekkert að spá fyrir
um árangur. Ég er í mínu besta
formi á ferlinum og ég mun leggja
mig allan fram,“ segir Þormóður.
Aðspurður hvort það veiti honum
aukainnblástur í keppninni að
verða faðir, segir Þormóður svo
vera. „Þetta sló mig samt örlítið út
af laginu síðustu vikur. Barnið að
koma í heiminn og stífar æfingar.
Maður þurfti svolítið að stilla
strengina, einn hlut í einu.“ Þor-
móður tók sér einn dag í frí til að
vera með barni og konu en svo hóf-
ust stífar æfingar strax daginn eft-
ir.
Júdókappi stendur í ströngu
Eignaðist son á þriðjudaginn og er
á leið á Ólympíuleikana í Peking
Stíft Þormóður fékk einn frídag með barni og konu, en svo tóku æfingar við.
MIKIÐ grjóthrun varð úr fjallshlíð
skammt austan við Holtsá undir
Eyjafjöllum í gærkvöldi og féllu
stórir hnullungar m.a. á Suðurlands-
veg. Að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli var tilkynnt um hrunið laust eft-
ir kl. 22 í gær en einhverjir steinanna
fóru yfir rafmagnslínu svo miklir
neistar mynduðust. Línan fór þó
ekki í sundur.
Kalla þurfti til gröfu af nálægum
bæ til að ryðja grjótinu af veginum
en við það skemmdist vegurinn lít-
illega. Lögreglan vill því biðja öku-
menn á svæðinu að fara með gát.
Grjóthnullung-
ar féllu á Suð-
urlandsveg
UM 120 manns, ásamt átta hundum, voru við leit í gær að erlenda karl-
manninum, sem sást ganga nakinn ofarlega í hlíðum Esjunnar. Þegar
Morgunblaðið fór í prentun var hann enn ekki fundinn og stóð til að halda
leitinni áfram í dag.
Sökum sviptivinda og slæmra aðstæðna seint í gærkvöldi þurftu þyrlur
að hætta leit. Olli það leitarmönnum áhyggjum hve kalt var orðið.
Tvær konur sáu til mannsins þar sem hann gekk nakinn ofarlega í fjall-
inu um hádegisbilið í gær. Föt mannsins fundust neðan við Þverfellshorn í
um 200 metra hæð. Sömuleiðis fundust þar skilríki og bíll hans fannst á
bílastæðinu við rætur fjallsins.
Morgunblaðið/hag
Leitin heldur áfram
Eftir Unu Sighvatsdóttur
unas@mbl.is
ÁÆTLAÐ er að um 5-6 mánaða töf
hafi orðið á gerð Ólafsfjarðarleggs
Héðinsfjarðarganga vegna stans-
lauss vatnsaga þar undanfarna mán-
uði. Aðfaranótt miðvikudags tvöfald-
aðist svo vatnsmagnið þegar innsti
veggur ganganna gaf sig undan
vatnsþrýstingi. Talið er að þar
streymi nú um 4-500 sekúndulítrar,
en gangagerðarmenn vonast til að
hafa þar með komist fyrir upptök
flæðisins.
Að sögn Jóhanns Gunnars Stef-
ánssonar, framkvæmdastjóra Há-
fells, hefur vatnsflaumurinn dregið
mjög úr verkhraðanum. „Venjulega
eru teknir um 3-5 metrar í einu og
farnir 50-70 metrar á viku, en núna
fórum við 5 metra á tveimur vikum.
Það fer mikill tími í að koma þéttiefni
fyrir og undirbúa hverja spreng-
ingu,“ segir Gunnar. Nú sé verið að
hreinsa frá og styrkja bergvegginn í
kring áður en tekin verður ákvörðun
um framhaldið. „Það skýrist ekki
strax hvort við erum komnir fyrir
þetta, en ef það er þessi vatnsæð sem
hefur verið að skapa vandamálið
undanfarið þá ættum við að komast í
gegn með þetta núna. Þá leiðum við
vatnið í fráveituskurð út úr göngun-
um og höldum áfram.“
Stefna enn á sömu verklok
Þrátt fyrir þessar tafir við fram-
kvæmdina segir Jóhann að áætluð
verklok, í desember 2009, hafi ekki
breyst. „Við kappkostum að ljúka
verkinu á tilsettum tíma þar til ann-
að kemur í ljós. Við erum núna að
leita leiða til að flýta öðrum hluta
framkvæmdanna til að vinna upp
þessar tafir Ólafsfjarðarmegin.“
Verið sé að skoða hvort starfs-
mönnum verði fjölgað og eins að fá
fleiri tæki til verksins. „Við þurfum
að leita leiða til að redda öðrum vél-
um í lokafrágang Siglufjarðarmegin,
sem gerir það að verkum að við get-
um kannski flýtt fyrir þar sem vinn-
ur þá kannski upp tíma á móti.“
Mánaðatöf
í göngunum
Gríðarlegur vatnsflaumur hefur tafið
sprengingar í Héðinsfjarðargöngum
!"#$%
!"!!$&' ()#&
&
!"*(+&
#",!+&!"+*+&
MIKILL samdráttur varð í nýskráningu ökutækja í 13. viku þessa árs miðað
við sl. ár að því er samantekt sem Umferðarstofa hefur látið gera um ný-
skráningu ökutækja sýnir. Mánudaginn 17. mars féll krónan um 8,12%. Í til-
kynningu frá Umferðarstofu kemur m.a. fram að þetta sé stærsta gengisfall
íslensku krónunnar sem sést hefur á þessu ári en í heildina féll gengi krón-
unnar um tæplega 20% í mars. Í kjölfarið varð mikill samdráttur í nýskrán-
ingu ökutækja í samanburði við árið á undan.
Til 17. mars var heildaraukning nýskráninga árið 2008 26,1% meiri en á
sama tíma í fyrra. Frá þeim degi til 18. júlí sl. fækkaði nýskráningum hins
vegar um 34,5%. Því má segja að 17. mars sé upphaf mikils samdráttar í ný-
skráningu ökutækja á þessu ári. Óvænt aukning verður aftur í nýskráningu í
22. og 24. viku. Skýringin er fyrst og fremst nýskráning mikils fjölda bíla-
leigubíla en margar bílaleigur voru á þessum tíma að endurnýja bílaflotann.
Fallið hófst 17. mars