Morgunblaðið - 25.07.2008, Qupperneq 6
6 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
Mýrdalur | „Ég hef bara opið þeg-
ar veðrið er gott. Það er ekki að-
staða fyrir fólkið þegar rignir og
veður er vont,“ segir Jakobína
Elsa Ragnarsdóttir á Görðum í
Reynishverfi sem rekur syðsta
kaffihús landsins og væntanlega
það minnsta. Hún bakar kaffi-
brauðið sjálf.
Jakobína er ekkja og býr í
Görðum með syni sínum, Ragn-
ari Indriðasyni. Þau stunda sauð-
fjárrækt og voru einnig með
töluverða gulrófnarækt um tíma.
„Ég hætti með gulrófurnar og
ákvað að gera eitthvað í staðinn.
Fólk hefur sest hér í brekkuna
og drukkið kaffi og mér fannst
tilvalið að setja upp greiðasölu,“
segir Jakobína.
Garðar eru syðsta býli lands-
ins og örstutt er í Reynisfjöru
sem er fjölsóttur viðkomustaður
ferðafólks. Kaffihúsið sem hún
byggði er þó það lítið að gestir
geta ekki sest inni en borð og
stólar eru úti á veröndinni.
„Fólki finnst spennandi að koma
upp úr fjörunni og fá sér kaffi-
sopa. Margir kaupa sér líka veit-
ingar og taka með sem nesti,“
segir Jakobína.
Hún bakar mest af kaffibrauð-
inu sjálf en viðurkennir að
stundum hafi hún ekki við og
verði að kaupa eina og eina teg-
und til að bæta við. Jakobína
notar veturinn til að baka en
þegar birgðirnar eru þrotnar,
eins og nú er, notar hún kvöldin
til að baka og smyrja brauð.
Marmarakakan er vinsælust í
Kaffihúsinu í Görðum en hjóna-
bandssæla og flatbrauð sópast
einnig út. Hún bakar flatkök-
urnar sjálf og hangikjötið er
einnig afurð Garðabúsins, reykt
af Ragnari syni hennar. Á boð-
stólum er einnig brauð með
reyktri bleikju sem þau veiða í
Dyrhólaósi og láta reykja hjá
Fagradalsbleikju.
Kaffihúsið í Görðum var opnað
í fyrra. Jakobína segir að við-
skiptin hafi gengið ágætlega í
júlí. Fólk sé farið að átta sig á
þessari þjónustu. Hún er að at-
huga möguleikana á því að
stækka húsið, til að gestir getið
notið veitinganna inni, þegar
rignir. „Annars finnst mér fólk
hafa gaman af því að sitja úti, í
góðu veðri, og njóta útsýnisins,“
bætir hún við. Útsýnið er ekki
amalegt, sjálf Dyrhólaey blasir
við hinum megin við ósinn.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Heimabakað Jakobína Elsa Ragnarsdóttir selur kaffi og brauð í kaffihúsi sínu á syðsta býli landsins, Görðum
í Reynishverfi. Kaffibrauðið er allt heimabakað. Jakobína bakar allan veturinn og svo á kvöldin á sumrin.
Bara opið í góðu veðri
Jakobína Elsa Ragnarsdóttir hætti í garðræktinni og
opnaði agnarsmátt kaffihús við Reynisfjöru í Mýrdal
Eftir Þorbjörn Þórðarson
thorbjorn@mbl.is
„ÞAÐ kemur upp svona faraldur öðru
hvoru á sumrin. Menn reyna að skila
þessu og fá skilagjald,“ segir Geir Jón
Þórisson, yfirlögregluþjónn hjá lög-
reglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Þjófnuðum hefur fjölgað
Töluvert er um að gaskútum sé
stolið af tjaldvögnum og gasgrillum í
skjóli nætur. Hafa komið upp mörg
slík tilfelli í sumar. Viðmælandi
Morgunblaðsins hefur lent í því tvisv-
ar með skömmu millibili að kútar séu
fjarlægðir af vagni hennar. Geir Jón
segir að fá tilvik hafi komið upp um að
fólk sé að sniffa gasið að undanförnu,
um sé að ræða „krakka sem vantar
pening.“
Fólk skilar kútunum á bensín-
stöðvar og er skilagjald frá 2.000-
9.000 kr. eftir stærð og eðli kútanna.
Ingunn Sveinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri neytendasviðs hjá N1,
segir að fyrirtækið hafi þá reglu að
við skil á kútum sé beðið um skilríki
og aðeins sé tekið við einum kút í einu.
„Við erum alltaf á varðbergi gagnvart
þessu ef við sjáum sömu mennina
koma aftur og aftur að skila kútum.
Við höfum fundið fyrir því hjá okkar
viðskiptavinum að þjófnuðum á kút-
um hefur fjölgað. Við höfum því
margítrekað við okkar starfsfólk að
fylgjast með og biðja um skilríki í
hvert sinn,“ segir Ingunn.
Fólk er hvatt til þess að girða kút-
ana af eða geyma búnað, eins og gas-
grill með kútum, úr augsýn til þess að
fyrirbyggja þjófnað.
Morgunblaðið/Sverrir
Gaskútar Skilagjald er frá 2.000 kr.
upp í 9.000 kr. eftir stærð kútanna.
Gaskútar
vinsælir
hjá þjófum
Skila kútunum síðan
gegn skilagjaldi
JARÐSKJÁLFTARNIR sem mælst
hafa um 14-16 km austan við Gríms-
ey eru orðnir yfir 1.100 talsins.
Jarðskjálftahrinan hófst á hádegi í
fyrradag og mældust þá stærstu
skjálftarnir 4,7 og 4,8 á Richter. Í
gær voru þeir stærstu á bilinu 3,3-
3,5.
Að sögn Halldórs Geirssonar,
sérfræðings hjá Veðurstofu Ís-
lands, hefur hægt og rólega dregið
úr virkninni en hún er þó enn nokk-
uð hviðótt og má búast við að svo
verði fram í næstu viku.
Margir jarðskjálftanna hafa
mælst á Tjörnesbrotabeltinu en það
er þekkt jarðskjálftasvæði.
Enn skelfur
við Grímsey
Morgunblaðið/Einar Falur
Grímsey 1.100 skjálftar hafa mælst.
HARÐUR árekstur varð um kl.
14:30 á Breiðholtsbraut, við Selja-
skóga, í gær. Tveir fólksbílar lentu
saman og var fólk úr báðum bif-
reiðum flutt á sjúkrahús. Einn er
talinn alvarlega slasaður en ekki er
vitað um meiðsl hinna þriggja.
Þá var ökumaður, sem valt bif-
reið sinni á Hafnavegi á Reykjanesi
síðdegis í gær, fluttur á Heilbrigð-
isstofnun Suðurnesja til skoðunar.
Ekki er talið að maðurinn sé alvar-
lega slasaður.
Mikið slasaður
eftir árekstur
LÖGREGLAN í Keflavík stöðvaði í
gærmorgun ökumann vegna gruns
um akstur undir áhrifum fíkniefna.
Var ökumaðurinn ásamt farþega
færður á lögreglustöð.
Engum sögum fer af viðbrögðum
ekilsins en farþeginn tók afskipti
lögreglunnar afar óstinnt upp. Hót-
aði hann lögreglumanninum að
ganga ærlega í skrokk á honum
þegar sá síðarnefndi væri ekki á
vakt. Hótunin verður kærð.
Lögregluþjóni
hótað ofbeldi
Eftir Hjálmar Stefán Brynjólfsson
hsb@mbl.is
BECROMAL á Íslandi hefur samið
við Húsbygg ehf. um uppbyggingu
aflþynnuverksmiðju á Krossanesi.
Húsbygg tekur við starfinu af
ítölsku verktökunum D&V en samn-
ingum við þá var nýlega rift. Verkið
hefur tafist um þrjár vikur, en að
sögn Eyþórs Arnalds eins af for-
svarsmönnum verksmiðjunnar er
markið sett á að vinna upp tafirnar
þannig að verksmiðjan hefji starf-
semi fyrir áramót:
„Vonir standa til að gangsetning
verksmiðjunnar muni hefjast fyrir
áramót líkt og upphaflega var áætl-
að.“ Að sögn Eyþórs verður verk-
smiðjan sú stærsta sinnar tegundar
með 64 vélasamstæður sem vinna af-
urðina: aflþynnur.
Þar sem verksmiðjan verður
byggð upp í þrepum verður ekki
strax þörf á þeim 75MW sem verk-
smiðjan mun að endingu þurfa.
Einnig eru stálgrindarhlutar og
-veggir, sem búnir voru til fyrirfram,
loks komnir til landsins, en eftir
þeim hefur verið beðið: „Um 50
gámar eru nú fyrir sunnan með
grindinni og bíða þess að fara í upp-
setningu,“ segir Eyþór.
Hann bætir við að þetta tvennt
muni hjálpa til við að verksmiðjan
taki til starfa fyrir áramót.
Greitt fyrir það sem gert er
Heimildarmenn Morgunblaðsins á
meðal íslensku verktakanna sem áð-
ur störfuðu við verksmiðjuna hafa
sagt að þeim hafi lengi vel ekki verið
greidd laun. Því vísar Eyþór á D&V:
„Ítalski verktakinn verður að
svara ef hann hefur tafið að greiða
einhverjum aðilum. Hann verður að
vera ábyrgur gerða sinna. En verkið
hefur verið unnið eftir hefðbundnum
verkstöðlum og óháður umsjón-
armaður mat verkið. Það hefur verið
greitt fyrir það sem gert var.“
Mengar ekki
Verksmiðjan þurfti ekki að fara í
umhverfismat þar sem hún mengar
ekki en áhrifin á umhverfið eru að
sögn Eyþórs einungis þau að sjórinn
umhverfis verksmiðjuna mun hitna
um nokkrar gráður.
„Þetta litla ævintýri um græna
stóriðju hefur hingað til farið frekar
hljótt í fjölmiðlum. Það hefur mikla
kosti í för með sér, t.d. hátæknistörf
sem munu myndast hér á Akureyri.
Ég á von á að Húsbygg hefjist
handa eftir helgi eftir meistara- og
verktakaskipti. Þá fara menn að sjá
líf og fjör á Krossanesi.“
Gangsett fyrir áramót
Húsbygg mun byggja Krossanes-
verksmiðjuna Tefst um þrjár vikur
Morgunblaðið/Hjálmar S. Brynjólfsson
Aflþynnur Eyþór Arnalds forsvarsmaður segir að markið verði sett á að
vinna upp tafirnar þannig að verksmiðjan hefji starfsemi fyrir áramót.
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úr-
skurð Héraðsdóms Reykjavíkur um
að karlmaður, sem handtekinn var í
vikunni ásamt þremur öðrum
mönnum í Garðabæ, sæti gæslu-
varðhaldi til 28. júlí. Talið er að
maðurinn hafi ásamt félaga sínum
framið innbrot í þrjú hús í Hafn-
arfirði og Garðabæ sl. mánudag.
Fram kemur í úrskurði héraðs-
dóms að lögreglan hafi stöðvað bíl í
Garðabæ sem í voru fjórir karl-
menn, sl. mánudagskvöld. Í bílnum
fannst myndavél, sem stolið var úr
húsi í Garðabæ fyrr um daginn, og
hálsmen sem stolið var úr húsi í
Hafnarfirði. Þá fannst einnig kú-
bein í bílnum og hefur lögregla bor-
ið það saman við verksummerki þar
sem brotist var inn. Samanburð-
urinn leiddi í ljós að samskonar kú-
bein, bæði hvað varðar lit og lögun,
var notað við að spenna upp glugga
á þeim stöðum þar sem brotist var
inn. Einnig er kúbeinið talið hafa
verið notað við að spenna upp hurð-
ir inni í viðkomandi húsum.
Tveimur mönnum var sleppt eftir
yfirheyrslur en tveir voru úrskurð-
aðir í viku gæsluvarðhald. Annar
kærði úrskurðinn til Hæstaréttar.
Gæsluvarð-
hald staðfest