Morgunblaðið - 25.07.2008, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 25. JÚLÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
MIKIL óvissa ríkir um hvort tekst að ljúka Doha-
samningnum í þeirri fundalotu sem nú stendur í
Genf í Sviss, að sögn Sigurgeirs Þorgeirssonar,
ráðuneytisstjóra í sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðuneytinu. Hann er í hópi fulltrúa Íslands sem
taka þátt í fundalotu í þessari viku. Fundirnir eru
skref í átt að því takmarki að ljúka Doha-
viðræðunum fyrir lok þessa árs.
Sigurgeir sagði að viðræðum hafi miðað hægt
það sem af er vikunni. Í gærkvöldi var ráðgerður
framhaldsfundur Pascals Lamys, forstjóra WTO,
með fulltrúum sjö ríkja og ríkjabandalaga. Í þeim
hópi eru Bandaríkin, Evrópusambandið, Indland,
Kína, Brasilía, Ástralía og Japan. Fyrsti fundur
þeirra hófst síðdegis á miðvikudag og stóð til
klukkan fjögur í gærmorgun án þess að þar næð-
ist nein niðurstaða.
Viðræðurnar snúast um tvö meginsvið, annars
vegar landbúnaðarþáttinn og hins vegar markaðs-
aðgang annarra vara en landbúnaðarvara
(NAMA). Undir það falla t.d. iðnaðarvörur. Sig-
urgeir sagði að sem stæði væru átökin mest um
NAMA-þáttinn. Aðspurður taldi hann að sam-
komulag gæti strandað á honum. Ekki kemur til
greina að gera samkomulag um landbúnaðarþátt-
inn einan. „Annaðhvort allt eða ekkert“ er grund-
vallaratriði í viðræðunum, að sögn Sigurgeirs.
Þær snúast að miklu leyti um jafnvægið á milli
þess sem sumar þjóðir telja sig hagnast vegna
landbúnaðarsamningsins og þess sem þær þurfa
þá að láta á móti í iðnaðarvörum og öfugt.
ESB til í meiri lækkun tollabindinga
Evrópusambandið (ESB) hefur nú tilkynnt að
það sé reiðubúið að fallast á meiri meðaltals-
lækkun tollabindinga en áður var rætt um. Þá var
miðað við að meðaltalslækkunin yrði minnst 54%,
en ESB kveðst nú reiðubúið að fara í 60%. Sig-
urgeir sagði að þegar betur sé að gáð feli þetta til-
boð ESB ekki í sér gagngera breytingu. Að baki
liggur vörulisti sem á eru m.a. svonefndar hita-
beltisvörur, þ.e. afurðir sem fá sérstakar tilslak-
anir vegna nokkurra hitabeltislanda. Um er að
ræða um 200-300 vörunúmer sem verða að lækka
um 80-85%. Með því að taka þessar vörur inn í
meðaltalið nái ESB auðveldlega 60% lækkun
tollabindinga. Ekki hefur enn náðst almenn sam-
staða um að meðaltalslækkunin verði 60% í stað
54%. Einnig hefur nýlega komið fram að Banda-
ríkjamenn eru reiðubúnir að binda stuðning sinn
við landbúnaðinn við milljarða dollara.
Tollar lækka minna en tollabindingarnar
Sigurgeir sagði að sér sýndist að hin almenna
lækkunarkrafa tollabindinga verði í kringum 70%.
Síðan megi einstök ríki skilgreina tiltekinn fjölda
svonefndra viðkvæmra vara en ekki þarf að lækka
tollabindingar á þeim jafnmikið. Ekki liggur fyrir
hvað viðkvæmu vörurnar verða margar. Sigurgeir
sagði næsta ljóst að miðað við að almenn lækkun
tollabindinga verði 70% og að Íslendingar skil-
greini um það bil 100 tollalínur sem viðkvæmar,
þá verði meðaltalslækkun tollabindinga hér meiri
en 54%. Krafan um meðaltalslækkun tollabind-
inga sé því enginn þyrnir í augum íslensku sendi-
nefndarinnar.
Sigurgeir áréttaði að með tollabindingu er átt
við heimild til að leggja á toll, en hann sagði að í
flestum tilvikum séu tollar hér á landi mun lægri
en tollabindingarnar. Þetta þýði því ekki að með-
altalslækkun á rauntollum hér verði 54% í kjölfar
samkomulags.
Átök um iðnaðarvörur
Doha-viðræðurnar í Genf
fara hægt af stað og
óvissa ríkir um árangur
Morgunblaðið/G.Rúnar
Verð og úrval Samkomulag í Doha-viðræðunum mun væntanlega leiða til aukinnar samkeppni ís-
lenskra landbúnaðarvara við útlendar vörur í hillum íslenskra verslana, auk verðlækkana.
Aðildarþjóðum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar
WTO (World Trade Organization) fjölgaði um
eina á ráðstefnunni sem nú stendur yfir í Genf
þegar Grænhöfðaeyjar bættust í hópinn. Aðild-
arlönd WTO eru nú 153 talsins.
Ísland fékk aðild að GATT-samningnum 1968
og tók síðan þátt í stofnun Alþjóðaviðskipta-
stofnunarinnar sem tók við af GATT í ársbyrjun
1995. Stofnunin myndar lagalegan og stofn-
analegan ramma um viðskipti þjóða heims.
Helsta markmið hennar er að auka frjálsræði og
tryggja réttaröryggi í heimsviðskiptum og
stuðla að hagvexti og efnahagslegri þróun.
Aðildarríki WTO samþykktu á ráðstefnu í
Doha í Katar 2001 að hefja nýjar samninga-
viðræður um alþjóðaviðskipti. Takmarkið var að
draga úr viðskiptahömlum og að fella fleiri svið
viðskipta undir alþjóðlegar reglur. Fastanefnd
Íslands hjá alþjóðastofnunum í Genf tekur þátt í
viðræðunum fyrir Íslands hönd auk fulltrúa sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðuneytis.
Heimild: iceland.org
Alþjóðaviðskiptastofnunin (WTO) og Doha-viðræðurnar
FANGAR á Litla-Hrauni fengu óvæntan glaðning þegar
Bolli Thoroddsen varaborgarfulltrúi, sem er við nám í
Japan, lét 250 þúsund af hendi rakna til söfnunar fyrir
gróðurhúsi á Hrauninu. Bolli skrifaði bréf til fanganna
þegar hann heyrði af söfnuninni, en hann var fangavörður
í sumarafleysingum fyrir ári síðan, „kynntist þar mörgum
og eignaðist góða vini, bæði úr hópi fanga og fanga-
varða“.
Í bréfinu rifjar Bolli upp kynni sín af einstökum föngum
og segist hafa gert sér grein fyrir tveimur mikilvægum at-
riðum eftir dvöl sína. „Í fyrsta lagi, áttaði ég mig á því að í
mörgum tilfellum voru það erfiðar og óhagstæðar ytri að-
stæður sem urðu til þess að margir ykkar eru á Litla-
Hrauni í dag. Þar með er ég ekki að segja að ábyrgðin sé
ekki ykkar heldur, að ég er nokkuð viss um að ef ég hefði
búið við ákveðnar aðstæður þá hefði ég allt eins gert mín
mistök, valið rangan veg. Og það má segja um mjög
marga. Á minni fyrstu vakt sagði einn fangavarðanna við
mig: „Bolli, hér eru allir jafnir“. Það voru orð að sönnu, og
varð ég þess fullviss eftir sumarið.“
Í öðru lagi skrifar Bolli að eftir kynni af föngunum viti
hann að þeir geti komist á rétta braut. „En um leið geri ég
mér grein fyrir því að það er ekki auðvelt. En með því að
sem flestir taki þátt í uppbyggilegum verkefnum eins og
að hefja garðrækt og setja upp gróðurhús, halda ljóða-
samkeppni, fótboltamót, tónleika, efla félagið ykkar Af-
stöðu, hjálpa hver öðrum, ég tala nú ekki um ef þið drífið
ykkur í nám, þá mun ykkur takast það.“
Bolli sagðist telja að þetta brautryðjendastarf Mar-
grétar Frímannsdóttur á Litla-Hrauni væri ómetanlegt
fyrir fanga og þeirra undirbúning undir líf og störf að lok-
inni afplánun. „Ávinningur þjóðfélagsins er mikill af því
að fangar komist á réttan kjöl í lífinu. Það þýðir ekki bara
betra líf fyrir þá sjálfa, heldur einnig færri fórnalömb,
minni skaða og kostnað við réttargæslukerfið. Þess vegna
ættu sem flestir að styðja þetta frumkvæði Margrétar og
fanganna á Litla-Hrauni.“
„Hér eru allir jafnir“
Morgunblaðið/Ómar
Garðyrkja Hópur fanga á Litla-Hrauni hefur und-
anfarið fengist við garðyrkju.
Í HNOTSKURN
»Fangar á Litla-Hrauni hafa ræktað mat-jurtir og eru nú að safna fyrir gróð-
urhúsi. Þeim sem vilja leggja söfnuninni lið
er bent á reikningsnúmerið 101-26-171717.
Kennitalan er 481203-3330.
SIGRÍÐUR Indriðadóttir hefur ver-
ið ráðin í nýtt starf mannauðsstjóra
Mosfellsbæjar. Meginhlutverk
mannauðsstjóra er að taka þátt í
fjölbreyttu og krefjandi starfi í bæj-
arfélaginu og útfæra mannauðsmál
á samræmi við stefnu Mosfellsbæjar
hverju sinni.
Sigríður er fædd árið 1972, hún er
grunnskólakennari að mennt með
meistaragráðu í félagsvísindum með
áherslu á mannauðs- og mennt-
unarfræði frá Háskólanum í Lundi.
Nýr mann-
auðsstjóri
STUTT
Á SUNNUDAGINN nk. verður
heyannadagur á Árbæjarsafni. Am-
boðin verða því tekin fram og gest-
um og gangandi boðið að taka þátt í
heyönnum eins og þær tíðkuðust
fyrr á tíð. Að þessu sinni munu
meðlimir fornbílaklúbbsins einnig
taka þátt með sýningu á gömlum
heyvinnuvélum. Dagskráin hefst kl.
13 og stendur fram eftir degi.
Heyannir á
Árbæjarsafni
Á MORGUN, laugardag, verða liðin
100 ár frá stofnun Ungmenna-
félagsins Heklu. Af því tilefni verð-
ur haldin afmælishátíð á íþrótta-
svæðinu á Hellu.
Dagskráin hefst kl. 13. Meðal at-
riða verða fjölskyldutugþraut,
sögusýning, kaffi, tónlistaratriði og
margt fleira.
Allir eru velkomnir á hátíðina og
er ókeypis inn.
Afmælishátíð
Á SUNNUDAG nk. kl. 14 verður
sungin messa á grunni kirkjunnar á
Þönglabakka í Fjörðum.
Kirkja stóð á Þönglabakka frá
kristnitöku og allt til ársins 1944
þegar byggð lagðist af á staðnum. Í
messunni verður byggðarinnar
minnst og þakkað fyrir líf þeirra
sem þar ólu aldur sinn.
Að messu lokinni verður boðið
upp á kaffi og lummur.
Messa í óbyggðum
ÞRIÐJUDAGINN 29. júlí verður
farin óhefðbundin leið í leiðsögn
um Viðey. Verkefnastjóri Viðeyjar,
Guðlaug Elísabet Ólafsdóttir, og
Hjálmar Hjálmarsson munu leiða
gönguna og segja frá nýjum
uppgötvunum í sögu Viðeyjar.
Gangan verður í anda Lygasögu-
göngunnar sem boðið var upp á á
Viðeyjarhátíð og vakti gríðarlega
kátínu. Siglt er frá Skarfabakka kl.
19:15. Gangan tekur eina og hálfa
til tvær klukkustundir.
Lygasögu-
ganga í Viðey
STJÓRN Torfusamtakanna segist
harma áform Listaháskóla Íslands
um að byggja í samræmi við vinnings-
tillögu í samkeppni um nýtt húsnæði
á horni Laugavegar og Frakkastígs.
Ráðgert er að tvö af þremur eldri
húsum á reitnum, Laugavegur 43 og
45, verði rifin samkvæmt vinningstil-
lögunni, en hús númer 41, sem lagt
hefur verið til að verði friðað, mun
standa áfram.
Í tilkynningu frá Torfusamtökun-
um segir að LHÍ virðist hafa sofið á
meðan vitundarvakning hafi orðið
annars staðar í samfélaginu um mik-
ilvægi húsverndar. Það sé miður að
nýbyggingin verði ekki löguð að ein-
kennum byggðar í gamla bænum með
sátt milli sjónarmiða húsverndar og
nýrrar uppbyggingar, eins og aðrar
tillögur hafi gefið til kynna á fyrri
stigum keppninnar. Vinningstillagan
endurspegli neikvæða afstöðu LHÍ til
húsverndar, sem sé sérlega alvarlegt
hjá einu menntastofnun landsins á
sviði byggingalistar. Svo sterkt for-
dæmi um niðurrif úr þessari átt verði
að teljast menningarsögulegt slys.
Þá skorar stjórn Torfusamtakanna
á Skipulagsráð Reykjavíkur að hvika
ekki frá stefnu sinni um húsvernd við
Laugaveg svo húsin númer 41-45 fái
að standa. unas@mbl.is
Listaháskól-
inn veldur
vonbrigðum